Morgunblaðið - 06.06.1942, Síða 7
MORGUNftkAÐIÐ
__' J _ !■ p y ■ _•
Laugardagur 6. júní 1942.
Framræsla Staö-
arbygðamýra í
Eyjafirði
Frá frjettaxitara vorum
á Akureyri.
taðarbygðarmýrar nefnast
mjög víðlend engjalönd, er
iiggja anstan Eyjafjarðar í mið-
Uuta Öngulstaðarhrepps. Mýrarn-
ar tilheyra tólf jörðum í hreppn-
um og tveim í Hrafnagilshreppi.
Engjarnar eru víða mjög gras-
gefnar, en verða jafnan að mikl-
um hluta ekki nytjaðar til hey-
skapar, sökum bleytu og foræðis.
Hefir lengi verið um það rætt,
að stofna þyrfti til framræslu
þeirra og áveitu og er nú svo
komið þeim málum, að framræsla
og áveitufjelag Staðarbygðar hef-
ir fengið því framgengt, að keypt
hefir verið skurðgrafa frá Eng-
landi. Er hún nýlega komin það-
an til Akureyrar. Gert er ráð
fýri'r, að innan skams verði hafist
handa með undirbúning verksins
og munu þeir ráðunautarnir Pálmi
Einarsson og Árni G. Eylands
kóma horður og vera með í ráð-
um fyrirtækinu viðvíkjandi.
Skurðgrafan á að gera aðal-
framræsiuskurð mikinn, sem og er
ætlaður tii vatnsupptöku úr Eyja-
fjarðará. Ivostnaðaráætlanir, sem
gerðar voru fyrir tveim árum,
gera ráð fyrir, að verkið kostaði
70 þúsund kr. En nú mun það að
sjálfsogðu verða all miklú dýrara,
Samkv. Jarðræktarlögunum greið
ir ríkið Ys kóstnaðar, en % verða
bændur að greiða.
Jðn H. Benediktsson
Fæddur 24. mars 1930.
Dáinn 24. maí 1942.
Kveðja
frá Sigríði R. Jónsdóttur.
Imú burtri lík þitt borið er
því betri heimur opnast þjer.
Þitt barnsins hjarta blundar rótt
og boðar öllum, góða nótt.
Þú hjeðan gekst með glaða lund
og góðan þráðir vinar fund.
Og engan gat þá grunað neitt,
að gæti af þessu sorgir leitt.
Jeg þakka æsku árin þín
og alla trygð er barst til mín;
mig umfaðmaði armur þinn,
oins og þú værir sonur minn.
Því sakna jeg með sárum harm
og svíður hjarta mjer í barm,
að sjá þig hverfa svona fljótt
af sviði lífsins með æsku þrótt.
»
Jeg framar ei’ þig fæ að sjá,
því feigðin burt þig kallað á
á Hvítasunnu helgri stund
varst heim hvaddur á drottins
fund.
Á himni lifir saklaus sál
og sjer ei' lengur heimsins tál.
Því æðri fegurð augað sjer,
eilífðin blasir móti þjer.
Þín æska blómgast aftur skal
í ódauðleikans fagra sal.
Þar lít jeg aftur eitthvert sinn
ástkæra litla vininn minn.
Ágúst Jónsson.
Noregssof nunin:
94 þús. króntir
M oregssöfnuninni hafa nú bor-
ist röskar 94 þús. króna og
vitað er um meira fje, sem þó
ekki er hjer með talið.
Hjer koma síðustu gjafirnar,
sem söfnunarnefnd hefir borist:
Merkjasalan á Hvammstanga
120; kr., Merkjasalan á Blönduósi
290, U. M. S. Snæf. og Hnappdæla
100, Vjelsm. „Hjeðinn“ 500, Hall-
dór R. Gunnarsson 100, skemtun
K. F. U. M. Hfirði 110, Guðlaug
Narfadóttir, Dalbæ 20, starfsfólk
P. Stefánssonar 1210 kr., starfs-
fólk Steindórsprent 212 kr. E. og
O. 10 kf., Fjelag ísl. hjúkrunar-
kvenna 1000 kr., Versl. O. Elling-
sen h.f. 5000 kr.
Áður tilkynt gjöf, 1000 kr. frá
Sirius var frá súkkulaðiverksmiðj-
unni, en ekki gosdrykkjaverk-
smiðjunni.
Hótanir Þjóöverja
Stríðsfangar fá ekki
maf eða drykk
ýska herstjórnin tilkynti í
gær, að fundist hafi hjá
fjórða breska brynreiðaherfylk
inu í Libyu fyrirmæli um að
þýskir stríðsfangar skuli ekki fá
mat, drykk eða hvíld fyrr en
búið er að yfirheyra þá.
Herstjómin segir, að breskir
stríðsfangar muni ekki fá mat
eða drykk frá því á hádegi þ.
6. júní, fyr en Bretar tilkyhni
herstjórninni, að horfið hafi ver
ið frá þessu ráðí.
Engin afstaða hefir verið tek-
in til þessa í London.
Libya
FRAMH. AF ANNARI 8ÍÐO
höfum notað í eyðimörkinni og sem
okkur tókst að flytja til vígstöðvanna
þar með mikilli leynd. Einnig hafa
nýjar andskriðdrekabyssur, sem not-
aðar voru nú í fyrsta sinn gefið góða
raun.
Það er éinnig aúgljóst, að hersveitir
Rommels hafa einnig fengið ný vopn,
að öðrum kosti myndi honum ekki
hafa tekist að verja göngin, sem hon-
um tókst að rjúfa í herlínu okkar.
Sú staðreynd, að Rommel er að búa
um sig í þessum göngum bendir til
þess, að hann hugsar ekki til þess að
hörfa undan. Honum gengur greiðar
að koma hergögnum til herja sinna
fyrir austan herlínu okkar um þessi
göng, en á hinn bóginn hefir torveld-
ast fyrir honum, með sókn Breta fyr-
ir vestan þau undanfama daga, að
koma hergögnunum í göngin. Hreyfi-
sveitir Breta liggja stöðugt i leyni
fyrir flutningalestum hans.
Meðfram af þessari ástæðu verður
aðstaða Rommels að teljast örðugri
en aðstaða Ritchies.
Einar B. Guðxntmdason.
Gnðlangnr Þorláksson.
Sím'ar 3602, 3202 og 2002,
Ansturstræti 7. .
Skrifttofutími kl. 10—12 og 1—8.
Dctgbók
WM88MIM »MiM»MMi
Nætnrlæknir er í nótt Björg-
vin Fiönsson, Laufásveg 11. Sími
2415.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apótéki.
Þjóðhátíðardagur Svía er í dag.
En vegna veikinda sendifulltrú-
ans hjer, Otto Johansons, er
venjulegri opinbelri móttöku í
sendiráðinu frestað.
Messur í dómkirkjunni á morg-
un: kl. 11 síra Friðrik Hallgríms-
son, kl. 5 síra Bjarni Jónsson.
Hallgrímsprestakall. Messa kl. 2
á morgun í bíósal Austurbæjar-
barnaskólans, sr. Sigurbjörn Ein-
arsson.
Nesprestakall. Messað í Skild-
inganesskóla kl. 2% á morgun.
Fríkirkjan í Reykjavík. Messa
á morgun kl. 11 (Sjómannadag-
inn), síra Árni Sigurðsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mess-
að á morgun kl. 11, síra Jón Auð-
uns.
85 ára er í dag frú Sigríður
Einarsdóttir, Freyjugötu 10 A.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Jóni'
Auðuns, Elín Sigurbergsdóttir og
Hans Anders Þorsteinsson bíl-
stjóri. Heimili brúðhjónanna er á
LaugarneSveg 55.
Hjúskapur. í dag verða gefin
samari i hjónaband af síra Jóni
Thorarensen, ungfrú Kristín Guð-
mundsdóttir, Jónssonar stór-
kaupm., Baugsveg 29 og Björn
Guðmundsson starfsmaður hjá O.
Johnson & Kaaber. Heimili ungu
hjónnna verður á Hörpugötu 18.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband Jóhanna Júlía
Sigurðardóttir' frá Vestmannaeyj-
um og Guðm. Jónsson bakari,
Frakkastíg 19. Heimili brúðhjón-
anna verður á Frakkastíg 19.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband Vilborg Sig-
ursteinsdóttir og Stefán Bjarna-
son lögregluþjónn. Heimili ungu
hjónanna verður að Ármóti, Akra-
nesi.
Hjúskapur. í dag kl. 6 verða
gefin saman í hjónaband af síra
Jóni Thorarensen, Guðrún Ófeigs-
dóttir og Pjetur Hjaltested mál-
ari. Heimili þeirra verður á Brá-
vallagötu 6.
Golfklúbbur íslands. Fjórbolta-
leikur í dag kl. 3. Fjölmennið.
Á málverkasýningu Höskuldar
Björnssonar í Safnahúsinu hafa
selst um 30 myndir. Sýningin verð
ur aðeins opin í dag og á morgnn.
Nokkrar nýjar vatnslitamyndir
og teikningar hafa bæst við.
Sjómaxmadagurinn. Aðgöngu-
miðar að skemtuninni í Iðnó verða
seldir í dag kl. 3—7 í skrifstofu
Sjómannafjelagsins. Aðgöngu-
miðar verða aðeins seldir sjó-
mönnnm og fær hver maður tvo
miða. Verði eitthvað eftir af mið-
um, verða þeir seldir í Tðnó á
sunnudag.
Kjörskrá Hafnarfjarðar liggur
nú frammi á skrifstofu bæjar-
stjóra. 2203, menn eru á kjörskrá.
Við síðustu kosningar voru 2162
á: kjörkkrá. Kærufrestur er út-
runnin í dag.
ÚtvarDÍð í dag.
12.15—-13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
1925 Hljómplötur: Samsöngur.
20.00 Frjettir.
20.30 Leikrit: „Einu sinni var —“
eftir Holger Draehmann (Lárus
Pálsson og leiknemendur hans).
22.00 Frjettir.
MMmNNNMMMfttMJ
Fólk vanfar •
til þess að bera Morgunblaðið til kaup- u #
enda í Vesturbænum og Austurbaanum. ' ' J
Komið á afgreiðsluna. ■-•-•■-ujS
r i'
JpJorgtraiWaílíð •
Okkar innilegustu þakkir til allra vina og vandamanna
fjær og nær, sem mintnst 25 ára húskaparafmælis okkar 2.
júní með heimsóknnm, höfðinglegum gjöfum, blómnm og
skeytum.
Þórxum Pálsdóttir. Bjarai Niknlásson. .
Úrval af vöndoðnm
karlmannaföfum
‘i 1 liýudat
9
Vcfnaðarvöruverzlun — Ausfursfrœfl
Skrifstofa vor er lokuð
i .
allan daglnm i dag wegna far«5*
arfarar Gnðfóns Gamalíelsson*
ar flskflmalsmanns
Vjelasalao ti.f.
Skrifstofa vor er lokuð
allan dagftnn ft dag wegna farö-
arfarar Gnfffóns Gamalielsson*
ar fiskfimatsmanBS
S. SteíánssoB & Co.
Móðir okkar og tengdamóðir
MARGRJET GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Bergstaðastræti 60 föstndaginn 5. þ. m.
Böm og tengdaböm.
Jarðarför elskn litlu dóttnr okkar
JÓHÖNNU GUBRÚNAR ALBERTS BERGÞÓRS-
DÓTTUR
fer fram mánudaginn 8. júní frá fríkirkjunni. Athöfnin hefst
með bæn á heimili okkar, Vesturbrant 22, Hafnarfirði kl. 1%
síðdegis.
María Jakobsdóttir. Bergþór Albertsson.
t