Morgunblaðið - 25.06.1942, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
Orustan um Egyftaland
Fimtudagur 25. júní 1942.
Tangarsóknin
Rommel leitar
suður fyrir varn-
arlínu Breta
ILondon er litið svo á, að orustan um Egyftaland
sje hafin. í tilkynningum öxulsríkjanna í gær
var þó aðeins frá staðbundnum viðureignum
nálægt landamærunum.
Fregnir frá Kairo í gærkvöldi hermdu, að almenning-
ur þar biði með óþreyju fregnanna um það, hvar Rommel
reyndi að ráðast inn í Egyftaland.
Mönnum er ljóst (segir í fregninni) að kleift er að
senda her eftir hinum ófullkomnu vegum í sunnanverðri
eyðimörkinni og láta hann ráðast inn í Nílardalinn sunn-
anverðan. Er því lögð áhersla á nauðsyn þess, að hafðar
sjeu öflugar varnir langt suður í eyðimörkina.
Þess hefir orðið vart, að Rommel hefir sent nokku'rt lið,
suður á bóginn frá Gambut, og er þess getið til að hann ætli að
reyna að komast suður fyrir breska virkið í Sidi Omar og ráðast
beint austur til Nilardalsins, eða sækja norð-austur á bóginn í
áttina til Sidi Barani.
Rykskýin hníga aldrei allan liðlangan daginn fyrir vestan
Gambut, þar sem liðflutningar öxulsherjanna fara fram, segir í
Reutersfregn frá aðalstöðvum áttunda hersins.
Auk liðflutninganna suður á
bóginn, hefir miklu liði verið
verið safnað nyrst á víglínunni,
gengt Sollum og Halfayaskarði.
1 tilkynningu Kairoherstjómar-
innar í gær var skýrt frá því að
viðureignir milli hraðsveita
hefðu átt sjer stað fyrir vestan
Sollum.
í fregn frá þýsku herstjórn-
inni í gærkvöldi var skýrt frá
því, að þýskar flugvjelar hefðu
g’ert harðar loftárásir á svæðið
milli Sidi Barani og Sollum og
einnig á svæðið fyrir vestan Soll-
um.
Breski flugherinn hefir einn-
ig haldið uppi loftárásum á her-
stöðvar öxulsherjanna í Libyu.
EGYFTAR.
Forsætisráðherra Egyfta,
Nahas Pasha, sagði í egyftska
þinginu í gær, að breska stjórn-
in hefði lýst yfir því afdráttar-
laust, að hún væri staðráðin í
því að gera sitt ítrasta til þess
að hrinda árás á Egyftaland.
Þrátt fyrir örðugleika þá, sem
liggja í augum uppi, sagði hann,
er hernaðaraðstaðan góð. Að-
staða Breta er miklu betri nú
heldur en undir svipuðum kring-
umstæðum í fyrra.
Nahas Pasha sagði að hann
gæti fullvissað þingmenn um
þetta, eftir að hafa rætt við full-
trúa Bandamanna og herstjóm
þeirra og haft tækifæri til þess
að kynna sjer áform þeirra.
Mann mótmælti því að breska
stjórnin hefði krafist þess að
cgypskirr hermenn yrðu sendir
til vígstöðvanna.
Stríðsstjórn í
Astralíu
Sjerstök stríðsstjóm verður
mynduð í Ástralíu og verð-
ur hún skipuð 7 mönnum, að
því er fregnir frá Sydney herma.
33 þúsund
fangar
Itilkynningu öxulsherstjórn-
anna í gær var skýrt frá
því, að tala fanganna, sem tekn-
ir hefðu verið í Tobruk væri nú
orðin 33 þús.
Þar með segjast öxulsherirn-
ir hafa tekið yfir 50 þús. fanga
frá því að sókn Rommels hófst.
Yfir 1000 skriðdrekar hafa
verið teknir eða eyðilagðir.
I
Nazistauppþot
í Sviþjóð
NEW YORK, miðvikudag:
— Blaðinu New York Times bár
ust í dag fregnir frá Stokkhólmi
um að 8 sænskir nasjstar hefðu
í gær reynt að halda almennan
útifund á torgi einu í Trelle-
borg í Suður-Svíþjóð. En áður
en þeim tókst að Ijúka fundin-
um hröktu yfir þúsund manns
þá á flótta og hrópuðu:
,,Niður með svikarana“. Nas-
istamir flúðu til lögregluvarð-
stöðvar til þess að komast und-
an.
Alsherjar atlaga
Þjððverja að
Sebastopel
r
„Ogtirlcg sókn“
hjá Kharkov
T7I regnir frá Moskva í gær
gær hermdu, að Þjóðverj-
ar væru nú byrjaðir alsherjar-
sókn á öllum vígstöðvum við
Sebastopol.
Á Kharkov vígstöðvunum
hafa Rússar orðið að hörfa í nýj-
ar vígstöðvar undan „ógurlegri
sókn Þjóðverja“, að því er
frjettaritari Reuters í Kuibys-
hev símar. En hann segir að það
sje fjajrri því, að um óskipu-
legan flótta sje að ræða hjá rúss
neska hernum.
Blaðið Rauða stjarnan skýrði
frá því í gær til dæmis, um á-,
kafa Þjóðverja, að þeir hefðu
teflt fram á einum litlum hluta
vígstöðvanna 200 skriðdrekum,
auk fótgönguliðs. Víða á víg-
stöðvunum tefla þeir fram 30 til
40 skriðdrekum.
Þýska herstjórnin minnist
ekkert á þessa sókn, en á Seba-
stopol vígstöðvunum segir hún
að síðustu leifum rússneska
hersins, sem enn varðist á skaga
nokkrum á norðurvígstöövun-
um, hefði verið gjöreytt. — A
suðurvístöðvunum hafa þýskar
og rúmenskar hersveitir tekið
með áhlaupi, eftir harða ná-
vígisbardaga í torfæru skóg-
lendi, virki og hæðadrög, að
því er herstjórnin skýrir frá.
Herstjórnin segir, að 11 þús.
fangar hafi verið teknir hjá
Seb\stopol og 158 fallbyssur og
auk þess hafa yfir 2 þús. jarð-
vígi og steinsteypt virki verið
tekin og yfir 65 þús. jarð-
sprengjur gerðar óskaðlegar.
Kortið sýnir hugsanlegar leiðir, sem Hitler kann að velja ef það
verður úr að hann reyni að hefja tangarsókn í Austurlöndum frá
Libyu að vestan og frá Kákasus og e. t. v. Tyrklandi að norðan.
Ein örin stefnir frá Krít á Suez-skurðinn og er hún sett vegna
vitneskjunnar um allöflugt þýskt fallhlífarherlið á Krít. Einnig
hafa borist fregnir um að Þjóðverjar hafi safnað all miklu af
flatbotnuðum innrásarbátum á Krít og í Tólfeyjum, með árás
á Cyprus og e. t. v. Suez fvrir augum.
D-LISTINN er listi Sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík.
Roosevelt 09 Ctiurctiill
ð tundi Kyrrahafs-
rððsins
Roosevelt forseti hefir kall-
að Kyrrahafsstríðsráðið
saman á aukafund í Washing-
ton í dag. Churchill verður við-
staddur á fundinum og Mac-
kenzie King forsætisráðherra
Kanadamanna var Væntanleg-
ur til Washington í gærkvöldi
og verður hann einnig viðstadd-
ur.
Cordell Hull, utanríkismála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði
í gær, að Roosevelt og Chur-
chill hefðu gefið hernaðinum í
Kína sjerstakan gaum í viðræð-
um sínum.
Amertskir hermenn
I Vestur-Afiíku
09 Eritreu
Mixton, þingmaður óháða
verkamannaflokksins í
Englandi upplýsti í umræðun-
um um f járlög bresku nýlendn-
anna í breska þinginu í gær, að
amerískir hermenn væru komn-
ir til Vestur-Afríku og Eritreu,
nýlendunnar í Austur-Afríku,
sem Bretar tóku af Itölum í
fyrra.
1 umræðunum í þinginu upp-
lýsti aðstoðar nýlendumálaráð-
heríran að breska heimsveldið
hefði mist 60 hundraðshluta af
tilframleiðslu heimsins, 90% af
gúmmíframleiðslunni auk ann-
arra mikilvægra hráefna.
Hann sagði að leggja þyrfti
megináherslu á að auka fram-
leiðsluna í nýlenó.unum og hef-
ir sjerstök nefnd verið stofnuð
í þessu augnamiði.
Forseti Argentlnu
segir al sjer
Ortega, forseti Argentínu
lagði niður embætti sitt í
’gær.
Nokkurra æsinga hefir gætt
í Argentínu út af árás sem kaf-
bátur gerði á argentinskt skip.
Var árásin gerð án nokkurrar
aðvörunar og skipinu sökt.
Háværar raddir hafa komið
fram um að Argentínumenn
slíti stjórnmálasambandi við
öxulsríkin.
Aðeins Argentína og Chile
halda enn stjórnmálasambandi
sínu við öxulsríkin.
20 skíptim
sökt
— aukatilkynningu, sem þýska
herstjórnin birti í gærmorg-
un var skýrt frá því, að þýskir
kafbátar hefðu sökt 20 skipum
ovinanna, samtals 102 þús.
smál. í Atlantshafi og undan
ströndum Ameríku.
Malta: ÖrðugleiKar
vegna missis
Tobruk-borgar
Tlyl' issir Tobruk mun hafa all-
-t-’-t- viðtæk áhrif á siglingar
Breta til Malta og einnig til
Cyprus og Sýrlands, að því er
skýrt var frá opinberlega í Lon-
don í gær.
Alvarlegastar eru þó horfurnar
um siglingarnar til Malta. Vegna
þess, að flugvjelar Breta hafa
færst austur á bóginn, verður tor-
velt að senda orustuflugvjelar
.með skipaflotunum til Malta og
á það einkum við tun síðasta
hluta leiðarinnar, þar sem árásir
öxulflugvjelanna eru samkvæmt
undanfarinni reynslu, ákafastar.
Einnig er vakin athygli á því
í London, að öxulherirnir muni
geta haft mikil not af höfninni
í Tobruk.
Loftárásir öxuls flugherjanna á
Malta hafa haldið áfram undan-
farinn sólarhring. í tilkynningum
þýsku og ítölsku lierstjórnanna
er skýrt frá árásum á flugvelli
á eynni og í tilkynningu frá
Malta segir, að sprengjur hafi
fallið nálægt flugvöllum bæði í
fyrradag og í gær.
Yfir 2600 loftvarnamerki hafa
nú verið gefin á Malta, segir í
tilkynningunui.