Morgunblaðið - 25.06.1942, Page 3
Fimtudagur 25. júní 1942.
MORGUNBLAÐIÐ
3
—Stefán Jóhann—
og eignaskatturinn
Báðir lögfrœðifjelaga,r Stefáns Jóh. Stefánssonar,
formanns Alþýðuflolcksins, hafa efnast svo að þeir geta,
greltt eignaskatt. Sjálfur eign^st Stefán Jóhar(n hins-
vegar aldrei neitt, og hefir samt miklu hærrn tekjur en
hinir ungu f jelagar hans.
Það er því von, að honum blöskri, hvernig efna-
mennirnir fara að því að sleppa undan skatti.
I gær er Alþýðublaðið látið býsnast yfir því, að eigna-
skattur eigenda Kveldúlfs skuli hafa lækkað um 13 þús-
und krónur. Stefán Jóhann veit þó ofurvel, að þetta staf-
ar af því, að síðasta Alþingi ákvað að hætta við þá rang-
látu og fjarstæðu tvísköttun á hlutal^rjefaeign, sepi í
fyrra átti sjer stað. Þessi ákvörðun Alþingis kom eigend-
um H.f. Kveldúlfs auðvitað að gagni eins og öllum öðr-
um hlutaf jelagaeigendum í landinu.
Hvort eigendur Kveldúlfs hafi munað þetta miklu
og þeir því lagt sjerstakt kapp á það, sjest af því að
skattar fjelagsins nú nema rúmlega 2V2 miljón krónum,
og hafa þá 13 þúsundir til eða frá ekki ýkja mikla þýðingu.
Um þetta þegir Alþýðuhlaðið.
Einnig hefir því láðst að geta hins, að vegna „skatta-
laga Ólafs Thors“ greiðir Kveldúlfur nú 1 miljón króna
meira til ríkisins og 100 þúsund krónum meira til bæjar-
ins, en ef lögin frá því í fyrra hefðu verið óbreytt, lögin,
sem Alþýðuflokkurinn þakkar sjer.
Ef til vill segir Alþýðublaðið frá þessu í dag.
StórstúkuþingiA
C' undir stóðu slitalítið frá því
kl. 9 f. hádegi fram til kl.
7 síðdegis í gær. Voru þar af-
greiddar ýmsar tillögur og einnig
fjárhagsáætlnn fyrir næsta ár.
Mestar umræður urðu um það,
hvort halda skyldi Stórstúkuþing
framvegis árlega, eða aðeins ann-
8-ð hvort ár. Voru allskiftar skoð-
aQir manna á því, en málið var
afgreitt þannig, að leita skuli
Umsagnar allra stúknanna í land-
lnu áður en fullnaðar ákvörðun
verður tekin.
Kosning
framkvæmdanefndar.
Hún fór fram síðdegis í gær
°S? voru flestir embættismennirnir
endurkosnir. Hin nýja fram-
tvsemdanefnd er þannig skipuð:
Kristinn Stefánsson stórtemplar.
Árni Öla, stórkanslari. Þóranna
Símonardóttir frú St.vt. Jóh. Ögm
Oddsson stórritari. Jón Magnús-
R°n stórgjaldkeri. Hannes J.
Hagnússon Stgu. Pjetur Sigurðs-
son stg. löggjafarstarfs. Margrjet
Jónsdóttir st. fræðslustjóri. Sigfús
Sigurhjartarson Stkap. Gísli Sig-
nrgeirsson st. þegur.
Dómnefnd var endurkosin og
eiga allir nefndarmenn heima á
-ákureyri, nema Stórtemplar, sem
er oddamaður.
í fjármálanefnd voru kosnir
Þórður Bjarnason, Gissur Páls-
s°n, Hjörtur Hansson, Jón Hafliða
son og Þorst. Þorsteinsson kpm.
í gærkveldi var fulltrúum utan
af landi haldið samsæti í G. T.-
^úsinu, og var þar margt manna
°£ góður fagnaður.
í dag lýkur unglingaregluþingi,
se»i háð er í sambandi við Stór-
sfúkuþingið. Enn fremur verður
^ðldinn Hástúkufundur kl. 1.
Stórstúkufundur hefst svo kl.
3% e. h. og er gert ráð fyrir,
hægt verði að slíta þinginu
fyrir kvöldið, ef ekkert óvænt
hetnur fyrir.
Kvenskðtsmót á Ulf-
Ijótsvatni I júll
Kvenskátar víða af landinu
ætla að halda mót að Úlf-
Ijótsvatni dagana 4.—7. júlí í
sumar. Er búist við að þarna
verði um 80 skátastúlkur, flest-
ar hjeðan úr Reykjavík, en
einnig nokkrar frá Akureyri,
Vestmannaeyjum og víðar að.
Mót þetta er haldið í tilefni
af því, að kvensKátahreyfingin
hjer á landi er 20 ára gömul í
sumar. Afmælið er 7. júlí. Á
mótinu verður haldin kven-
skátasambandsfundur.
Dagana sem skátastúlkurnar
dvelja að Úlfjótsvatni, en þar
er nú sem kunnugt er skáta-
heimili, munu þær fara í göngu-
ferðir á næstu fjöll og 1 ná-
grénnið. Að öðru leyti verður
tímanum varið til kvenskáta-
íþrótta og leikja, varðeldar á
kvöldin 0. s. frv.
1 Kvenskátafjelagi Reykja-
víkur eru nú skráðar á fjórða
hundrað stúlkur.
María Gerharda
príorínna látín
Frá frjettaritara vorum í
Hafnarfirði.
ystir María Gerharda, prior-
inna við St. Jósefsspítala
hjer í bæ andaðist í spítalanum
í fyrradag. Priorinnan var fædd
í Þýskalandi 12. maí 1886. Fyrir
25 árum gekk hún í reglu St.
Jósefssystra í Danmörku. Eftir
að hafa stundað hjúkrun á
Landakoti og hjer við spítalann
við prýðilegan orðstýr, var húu
fyrir tæpum 4 árum skipuð prior-
inna við spítalann í Hafnarfirði.
D-LISTINN er listi Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík.
Et Sjálfstæðismenn
gera skyldu sína - þá
er sigurinn vís
\—■
Varist ftprengiöflin —
þar eru andsfæðing-
arnir að verki
PAÐ ERU fyrst og fremst tvær spumingar, sem
sjerhver kjósandi verður að svara með sjálf-
um sjer, áður en hann gengur að kjörborðinu
5. júlí n. k. Þessar spumingar eru:
1. Vilt þú fá lausn á kjördæmamálinu, sem felst í stjórnar-
skrárbreytingu þeirri, sem síðasta Alþingi samþykti?
2. Vilt þú, að lokaskrefilð í sjálfstæðismáli þjóðarinnar verði
stigið á þessu ári og stofnað verði lýðveldi á íslandi?
Þetta eru þau tvö höfuðmál, sem kosningarnar 5. júlí raun-
verulega snúast um. Svo koma ótal smærrj mál, sem grípa inn í
á einn eða annan hátt, en kjósendur mega aldrei láta þau glepja
sjer sýn og missa sjónar af höfuðmálunum.
Námskeið fyrir versl
unarmenn I tiáskólan
um ð næsta vetri
æsta vetur hefir Háskólinn
4-™ í hyggju að halda nám-
skeið fyrir starfandi verslunar-
menn í sambandi við kenslima í
viðskiftafræðum, sem tekin var
upp síðastliðið haust. Verslunar-
menn eru nú orðnir svo fjölmenn
stjett og þýðingarmikil, að vel
þarf að vera, sjeð fyrir ment-
unarskilyrðum þeirra að öllu
leyti.
Um langt skeið hafa starfað
hjer tveir verslunarskólar, og nú
nýlega hefir verið tekin upp há-
skólakensla í viðskiftafræðum. En
undanfarið hafa starfandi verslnn
armenn ekki' átt þess neinn kost
að menta sig frekar samhliða
starfi sínu. Verslunarskólinn hafði
fyrir nokkrum ámm kvöldnám-
skeið, sem ætlnð voru starfandi
verslunarmönnum og gáfust vel,
en sú starfsemi hefir undanfarið
legið niðri. Nú, þegar háskóla-
kensla hefir verið tekin npp í
viðskiftafræðum, virðist eðlilegt,
að háskólinn taki upp slíka
fræðslu, enda hefir hann til þess
kennara, sem eru sjermentaðir,
hver í sinni grein, og hin ákjós-
anlegustu ytri skilyrði.
Á næsta vetri hefir háskólinn í
hyggju að halda slík námskeið í
þessum greinnm:
1) Bókfærslu fyrir byrjendur
og skamt komna. 2) Bókfærslu j
fyrir lengra komna (t. d. þá,
sem lokið hafa prófi í Verslunar-
skóla fslands). 3) Þjóðhagfræði.
4) Rekstrarhagfræði. 5) Verslun-
arrjetti. 6) Ensku. 7) Þýsku. 8)
Frönsku. Námskeiðin verða eftir
kl. 5% á kvöldin,
f bókfærslunámskeiðunum verð-
ur kent 3 stundir vikulega, en í
hinum öllum tvær stundir. Nám-
skeiðin hefjast 15. október og
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Hafnarfjörður
og Sígltifjörður
gefa herbergi í
Stúdentagar ðí nn
Tvö bæjarfjelög hafa gengið á
undan með góðu eftirdæmi
og gefið sitt herbergið hvort í
nýja stúdentagarðinn. Bæjarfje-
lögin eru Hafnarfjörður og Siglu-
fjörður. Eru gjafirnar hvor fyrir
sig kr. 10.000.
Byggingu stúdentagarðsins nýja
miðar hægt og þjett áfram, en
bygging hans ætti að fara að
ganga greiðlegar er fleiri bæjar-
fjelög og sýslufjelög bætast í
hópinn til að styrkja þetta þarfa
-* málefni.
Kjördæmamálið liggur nú
svo Ijóst fyrir kjósendum, að
enginn getur verið þar í nein-
um vafa lengur.
Framsóknarflokkurinn er eini
flokkurinn, sem berst gegn
þessu máli. Hann hefir öll spjót
úti til þess að stöðva málið. —
Hann biður ákaft kjósendur,
einkum í sveitum, að veita
flokknum svo öflugt kjörfylgi
nú, að hann geti stöðvað fram-
gang málsins á Alþingi.
Þessi algjörlega neikvæða af-
staða, sem Framsókn hefir tek-
ið til þessa stórmáls er ákaflega
óviturleg. Ekki væri unt að
koma á meiri glundroða í okk-
ar stjómmálum, en verða
myndi, ef Framsókn fengi vilja
sinn í þessu efni. Ohugsandi
væri með öllu, að Framsókn
gæti stjómað landinu upp á eig-
in spýtur. Og þó að hún hafi
fullan hug á, að stjórna með al-
gerðu flókkseinræði (sbr. boð-
skap Egils í Sigtúnum), vantar
hana alt til þeirra framkvæmda.
Jafnvel vopnakaup Hermanns
kæmu ekki að neinu haldi til
þeirra hluta.
Það væri ákaflega óviturlegt
af kjósendum dreifbýlisjns, ef
þeir Ijetu Framsókn í tje nægi-
legt kjörfylgi, til þess að stöðva
kjördæmamálið. Lausnin, sem
nú fekst á kjördæmamálinu,
fyrir atbeina Sjálfstæðisflokks-
ins, er fyrst og fremst hags-
munamál kjósenda í dreifbýl-
inu. Hún tryg^ir ekki aSeins
jafnrjetti kjósendanna í sveit-
unum innbyrðis, heldur grunn-
múrar hún áhrifavald dreif-
býlisins á Alþingi í framtíðinni.
Fyrir þessu loka Framsóknar-
menn augunum. Þeir sjá ekkert
annað en þrengsui sjérhagsmuni
flokksklíku þeirrar, sem er
iþungamiðja Framsóknarflokks-
ins.
★
Þótt kjördæmamálið sje stór-
mál, gnæfir þó sjálfstæðismálið
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Greinar um Alþingi
íslendinga 1012 ára
í 100 amerískum
blöðum
Washington, 24. júní.
t tilefni af 1012 ára afmæli
Alþingis tslendinga á þessu
sumri birtu um 100 amerísk blöð
sjerstaka grein um sögu Alþing-
is og þýðingu þess í dag.
I greininni er Islandi lýst,
sem „vitaljósi lýðræðisins". Ett
það var öldungardeildarþing-
maðurinn Henrjk Shipstead frá
Minnesota, sem kom í greinintti
á framfæri innan öldungadeild-
arinnar.
Höfundur greinarinnar et
kunnur blaðamaður, Frederik!
Haskin, sem skrifar fyrir
Washington Evening Star og um
100 önnur amerísk blöð. — t
greininnj segir m. a.:
,,Á þeim tímum, er heimurinn
er í upplausn, ríkisstjómir
falla og stoðir lýðræðisins í
hættu, þá er hughreystandi að
hugsa um, að ein þjóð —- tsland
— heldur upp á 1012 ára af-
mæli lýðræðis síns á þesáu
SUmri. s.' i: i 'i. i'l u.v
Sagan hefir sýnt, að þáð er
ekki aðeins lýðræði, sem staðjð
hefir í þúsund ár, heldur að
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
: >■ ■; iv. ; 'i.1 íin \i J i,y i;íbl Oi'l
rnr m hm
lignanil "
■J AP kjósendiir höfðu í
» ^ gær greitt atkvæði
hjá lögmanni, þar a£ 650 Réýk'-
víkingar, sem verða íjarverandí
á kjördag. — Sjálfstæðismenn I
Munið að kjósa áður en þið farið
úr bænum. Listi ykkar í Reykja-
vík er D-listi.