Morgunblaðið - 25.06.1942, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
------------L___
Sjálfifæðismenn
~ ÚB ' •'
skyldu sina • -
p,i nr><.
Fjórða hvert barn
óskiigetið
rXAMH. AF ÞEIÐJU flÐU
langt þar yfir. Það er mál mál-
anna.
. Kjósendur gera sjer vafalaust
Ijóst, áð ef Framsókn fengi vilja
sinn og gæti stöðvað framgang
kjördæmamálsins, þá væri þar
með sjálfstæðismálið lagt á
hilluna.
Og það er einmitt þetta, sem
Framsóknarflokkurinn keppir
að. Hann vill ekki stíga loka-
skrefið í sjálfstæðismálinu á
þessu ári. Hann segir ekkert
um það, hvenær hann vilji stíga
skrefið. Hann segir aðeins, að
fresta eigi málinu þar til eftir
stríð.
Hvaða afleiðingar gæti það
haft, ef farið væri að ráðum
Framsóknarf lokksins ?
Enginn veit hve lengi stríðið
stendur. Enginn veit hvernig
umhorfs verður í heiminum, að
stríðinu loknu.
Væri þannig frá málum okk-
ar gengið, * Islendinga, þegar
fulltrúar stórveldanna setjast
við friðarborðið að stríðinu
loknu, að stjómarfarslega sjeð
værum við einskonar rekald,
við hefðum meira að segja ekki
formlega slitið sambandinu við
Dani, en byggjum hjer við
bráðabirgða stjórnskipulag,
rjett eins og við værum að bíða
eftir fyrirskipun annara -— hver
er þá kominn til að segja, hvað
við okkur yrði gert?
Ef við ekki sjálfir, Islending-
ar, höfum dug í okkur til þess
að stíga síðasta skrefið í sjálf-
stæðismálinu og gera það sem
gera þarf, getum við ekki ætl-
ast til, að aðrir vinni þetta verk
fyrir okkur.
Nú er einmitt rjetti tíminn til
athafna í sjálfstæðismálinu. —
Það er komið fast að þeim tíma-
mótum, . sem Sambandslögin
tengdu okkur við Dani. Og þótt
Alþingi hafi lýst yfir því, að
Sambandslögin sjeu ekki lengur
í gildi, er enn eftir að ganga
formlega frá sambandsslitum.
Þetta má ekki dragast lengur.
Hlutur okkar verður styrkari
að öllu leyti, ef við höfum að
íullu gengið frá framtíðar-
stjórnarskipan okkar, þegar
sest verður að friðarsamning-
unum að stríðinu loknu. Og við
gerum engum rangt til, að stíga
lokaskrefið einmitt nú, ekki
heldur fyrverandi sambands-
þjóð okkar, því samningstíma-
bil Sambandslaganna er út
runnið á næsta ári.
Frestun á lokaaðgerðum í
sjálfstæðismálinu, eins og
Framsóknarflokkurinn stefnir
að, getur haft hinar alvarleg-
ustu afléiðingar fyrir framtíð
þjóðarinnar.
★
Sjálfstæðiskjósendur, hvar
sem eruð á landinu, minnist
þess, að. það er flokkur ykkar,
Sjálf.stæðisflokkurinn, sem hef-
ir fory^túria á þessum merki-
legu tímámótum stjórnmálanna.
Án aðstoðar ykkar tekst ekki
áð koma stórmálum þeim, sem
kosið er um nú í örugga höfn.
Á ykkur hvílir því mikil ábyrgð
í þessum kosningum.
Það, sem kjósendur /Sjálf-
stæðisflokksins verða sjerstak-
léga að varast, er þetta tvent:
1. Að láta ekki blekkjast af
moldviðri Framsóknarmanna í
kjördæmamálinu. Er þessu sjer-
stakljega befint til Sjálfstæðis-
manna í sveitum.
2. Að varast sprengiöflin, sem
andstæðingarnir eru hvarvetna
að reyna að koma inn í fylking-
ar Sjálfstæðismanna. Þessu er
sjerstaklega beint til kjósenda
í Reykjavík. Og það eru ekki
aðeins sprengilistar samherj-
anna gömlu, Jónasar Þorbergs-
sonar og Sigurðar Jónassonar,
sem Sjálfstæðiskjósendum ber
nú að varast, heldur ber þeim
einnig að varast eiturörvar and-
stöðuflokkanna hjer í bænum,
sem leggja mikla áherslu á. að
veikja Sjálfstæðisflokkinn.
Munið þetta Sjálfstæðismenn:
Hvert einasta atkvæði úr fylk-
ingu flokksins, yfir á sprengi-
listana eða í fylkingar andstöðu
flokkanna, fjarlægir möguleik-
ana fyrir lokasigur í sjálfstæð-
ismálinu!
Ef hver einasti Sjálfstæðis-
maður gerir skyldu sína, er sig-
urinn vís!
Verslunarnðmske’ð
í Hðskólanum
fbamh. af þriðju séðu.
standa til 15. apríl. Hvert nám-
skeið nm sig er sjálfstætt, og
geta menn tekið þátt í svo mörg-
um þeirra, sem þeim'sýnist, einu
þeirra eða þeim öllum. í lok hvers
námskeiðs verður síðan haldið
próf, og fá þeir, sem taka þátt
í þeim og standast þau, skírteini
frá háskólanum þess efnis.
Þátttökugjald verður mjög lágt,
aðeins 75—ÍK) kr. fyrir þau nám-
skeið, þar sem kennt er 3 stundir
á viku, en 50—60 kr. fyrir hin,
þar sem kent er 2 stundir í viku,
svo að hjer er í rauninni um
injög lítið fjárhagsatriði fyrir
menn að ræða, og er það að þakka
velvilja núverandi kenslumálaráð-
herra til þessa máls, að svo getur
orðið. Þátttökugjald greiðist
fyrirfram.
Það er von háskólans, að nám-
skeið þessi komi að gagni og verði
vel sótt, t. d. af þeim, sem verið
hafa í verslunarskólanum eða
samvinnuskólanum, en eiga nú
ekki' kost á neinni framhaldsment
un. Má sjerstaklega henda þeim
á námskeiðin í bókfærslu fyrir
lengra komna og rekstrarhag-
fræði.
Þeir, sem taka vilja þátt í
þessum námskeiðum, verða áð til-
kynna það háskóiaritara fyrir 15.
ágúst, og gefur hann og Gylfi
Þ. Gíslason dósent allar nánari
upplýsingar.
Ef fleiri gefa sig fram í ein-
stökum námsgreinum en unt er
að taka, ganga þeir fyrir, er
fyrstir tilkynna þátttoku sína.
Af öllum fæddum böraum
1940 voru ö48 eða 25,6
% óskilgetin. Er það töluvert
hærra hlutfall heldur en ánð
á undan. En annars hefir hlut-
fallstala óskilgetinni barna
hækkað mikið síðustu árin og
undanfarin 100 ár hefir hún
aldrei verið hærri en nú“.
Þessi frásögn er tekin úr síð-
ustu Hagtíðindum (maí 1942).
1 lok síðasta stríðs, á árunum
1916—1920 voru rúmlega 13
börn af hverjum hundrað fædd-
um bömum, óskilgetin. Þetta
hlutfall hjelst að mestu leyti ó-
breytt þar til árið 1930, en þá
fór að halla undan fæti.
Á árunum 1931—1935 voru
rúmlega 18 af hverjum hundrað
fæddum börnum óskilgetin og
næsta árabil, frá 1936—1940
voru þau orðin rúmlega 23 af
hverjum hundrað.
Árið 1940 var svo komið að
rúml. fjórða hvert barn, sem
fæddist á því ári var óskilgetið.
Rjett er að vekja athygli á
því, að hernám landsins fór
ekki fram fyr en í maí árið
1940.
1012 ára afmæli
Alþingis
FKAMH. AF ÞRIÐJU *lÐO
það er traustara í dag en nokkru
sinni fyr“.
Þá er í greininni lýst því. er
alþinfi var fcrtofnsett |á Þing-
’<-öllum árið 930 cg sagt, að
fyrstu alþingismennirnir hafi
verið norrænir menn, sem hafi
verið æfintýragjarair, og ó-
hræddir við válynd^ veður og
samtíðarmenn feína“.
Þá er í greininni ítarlega rak-
in barátta Islendinga fyrir sjálf-
stæðinu. Greininni lýkur með
þessum orðum:
„Island er auðugt að bók-
mentum og menníngu og á elstu
tungu, sem töluð er í Evrópu,
mentun handa öllum og að
miklu leyti sjálfu sjer nóg og
glæpir eru sárafáir.
Eftir 10 alda lýðræði stendur
Island eins og hughreystandi
viti fyrir þá, sem nú eiga í hættu
að frelsið verði af þeim tekið“.
Fimtudagur 25. júní 1942.
Myndin er af fólki á nýrri gerð björgunarfleka, sem farið er að
framleiða í Bandajlríkjunum fyrir ameríska flotann. Björgunar-
flekar þessir eru gerðir úr nýrri tegund gúmmís, sem er ljettara
en kork. Flekinn getur haldið uppi 30 manns. Það þykir sjer-
stakur kostur við fleka þessa, fram yfir aðrar gerðir björgunar-
fleka, að auðvelt er að ná taki á þeim í sjónum.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiniiri
I Bókarfregn |
5 5
vaniuiiiuiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
Sal( farðar
Salt jarðar eftir Gunnar
M. Magnúss. Útg. Jens
Guðbjörnsson.
Gunnar M. Magnúss sýndi það
þegar á skólaárum sínum, að
honum var mjög sýnt um ritstörf.
Slík viðfangsefni voru honum
mjög hugleikin. Ekki minnist jeg
þess, að nokkur nemandi hafi tek-
ið með meiri fögnuði ritgerðar-
efni, sem honum þótti girnilegt tii
viðureignar. : Síðan ! eru nú liðin
allmörg ár, og bækur þ.ær, sem
Gunnar hefir látið frá sjer fara,
eru líka orðnar margar. Þessi nýja
bók mun vera sú tíunda í röðinni.
Þó hygg jeg það tvímælalaust, að
hann sje í stöðugri framför. Þessi
bók ber vott um vaxandi þroska
og víkkandi sýn yfir leiksvið lífs-
ins og þær margbreytilegu mynd-
ir, sem þar birtast.
Aðalsögumenn þessarar bókar
eru þrír. Undarlega ólíkar per-
sónur, en vel mótaðar og ljóslif-
andi hver fyrir sig. Konan, Ragn-
heiður Loftsdóttir, er mikil fyrir
sjer, skÖpuð til þess að standa
þar á lífssviðinu, sem eitthvað
bæri á henni, en verður að lúta
lágt að litlu hlutskipti, að því er
í fljótu bragði virðist. En hún
lætur ekki bugast af bágum kjör-
um. Hún heldur velli og vinnur
hin „hljóðu hetjuverk" íslenskrar
alþýðukonu, sem vel hefði átt
heima í æðri sessi en þeim, sem
örlögin bjuggu henni. Maðurinn,
Jóakim Jónsson, er ljettur á bár-
unni. Hann er glaðlyndur farmað-
ur, til í alt og fær í flestan sjó,
þegar vel gefur og sjómannsbrag-
urinn er á honum. En þegar sund-
in lokast og ekki sjer skarða í
skerjágarð ; baslsins og fátælftar-
ijinar og umkomuleysisins, er
hann ekkert annað en maðurinn
konunnar sinnar, auðsveipur og
undirgefinn. Þriðji aðalmaðurinn
er Norðmaðurinn, Herlufsen,
framkvæmdamaðurinn, vinnuveit-
andinn og skapari velmegunarinn-
ar á sögustaðnum. Ef til vill hef-
ir höfundur sett sig í nokkurn
vanda með þeirri' mannlýsingu,
vet
þar sem fyrirmyndin mun vera
þektur maður úr atvinnusögu
landsins á síðari árum. Þeir, seD*
ókunnir eru þar vestra, geta v1^
anlega ekki borið söguna saiDaU
við veruleikann. En vel finst iöjer
höfundi takast að sýna útlend10^
inn, stórmennið, afJ<aRtamannin,í?
fullan af framfaramóði og hveru
ig hann brotnar niður og bilar’
þegar mest á reynir og óg®^aI1
steðjar að, einmitt af því, að hauU
er hjer rótlaus. Hann rotast ^
steinshöggi örlaganna, af ÞV1
hann er ekki sjálfur af íslellS
bergi brotinn.
Marga fleiri sögumenn n1®
nefna, sem Hfa og hrærast *
um bókarinnar, svo sem &
kaupmannsdóttur. En hjer ver
staðar að nema. r
Stíll og málblær bókarinnar ^
með nokkrum sjerkennum-
undi er ekki aðeins ant nm
A r eiuU
og persónur sögunnar, heldnr
ig um málfarið. Hann hefir
an af ýmsum smávægileguU1 «
brigðum málsins. Honum er "
full-ljóst, að segja má sömn
un á marga vegu og notar ^
það víða af smekkvísi. En Þar ^
líka af mörgu að taka. Þeif
ekki í geitarhús ullar að leita» s
skygnast vel um í launkofn®1
lenskrar tungu. ^t9
Jeg skal ekki fjölyrða
um þessa bók. Bæti aðeins Þvl
að jeg vildi gjarnan sjá fr®111^.^
ið, hvort sem það verður ^
framhald af þessari bók e^a
ur ný frá hendi þessa höfun<iar
Freysteiim Gnnnars3011
Gleðjið börnin, sem
eru í sveitina. Sendið P
bókina í ÚTLEGЕ ^
hafa beðið eftir henni le
Bókaverslun ísafoldar’
EKKI
ÞA
EF LOFTUR GETUR
pA&