Morgunblaðið - 25.07.1942, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐíÐ
Laugardaffur 25. júlí 1942.
Þjóðverjar segja Rostov fallna
Loftárásir á
Þýskaland úr
austri og vostri
Loftárásir voru gerðar á
Þýskaland í fyrrinótt, úr
vestri og austri.
Margar br^skar sprengju-
flugvjelar fófu til árása á stöðv
ar Þjóðverja í Ruhrhjeraði og
Rínarbygðum. Aðalárásinni var
beint gegn Duisburg, sem er
mikilvæg samgöngumiðstöð. —
Var þetta önnur árásin, er gerð
er á þá borg á þrem dögum.
Þrjár þýskar nætur-orustu-
flugvjelar voru skotnar niður,
en 7 flugvjelar Breta komu ekki
aftur til bækistöðva sinna.
Þjóðverjar skýra frá því, að
rússneskar spreng j uf lugv j elar
hafi gert árásir á staði á strönd
Austur-Prússlands.
Breskar flugvjelar fóru einn-
ig til skyndiárása á flugvelli í
Hollandi og Belgíu og fleiri
staði í hcrteknu löndunum.
Loftárásir á Ituhr.
í Reutersfregn segir nánar frá
loftárás Breta í fyrrinótt á Rínar-
bygðir og Ruhr-hjeraðið.
Segir þar, að flugvjelarnar, sem
Bretar sendu til Þýskalands, hafi
verið mörgum sinnum fleiri en
þær, sem Þjóðverjar sendu til
Bretlands.
Veður var óhagstætt, en áhafnir
margra flugvjelanna skýra frá
því, að árásirnar hafi gengið að
óskum. Meðal annars var varpað
niður tveggja smálesta sprengjum
og mátti gerla sjá leiftrin af
sprengingunum.
Margar stærstu flugvjelar Breta
tóku þátt í árásunum, svo sem
•Halifax, Lancaster og Wellington-
flugvjelar. Yfirmaður einnar Hali
fax-vjelarinnar segir svo frá, að
tvær þýskar flugvjelar af Junk-
ers 88-gerð, hafi ráðist tvívegis á
Halifax-vjelina. Önnur var hrakin
á brott með vjelbyssuskothríð, en
hín var skotin niður, og sást, að
hún stóð í báli, er hún hrapaði
til jarðar.
Tvær aðrar þýskar flugvjelar af
sömu gerð voru einnig skotnar nið
ur.
Loftárás Þjóð-
verjaáBretland
¥ fyrrinótt komu um fjörutíu
þýskar sprengjuflugvjelar
til árása á staði í Austur-Eng-
landi og Miðlöndum. Tjón varð
mokkurt, bþeðá á mönnum og
eignum.
7 flugvjelanna voru skotnar
niður.Þaraf skaut flugsveit Max
Aitkens, sonar Beaverbrooks lá-
varðar niður fimm.Aitken skaut
sjálfur niður tvær flugvjelanna.
Á kortinu sjást nokkrir þeir staðir, sem mest hefir verið
barist um á suðurhluta austurvígstöðvanna að undanförnu.
Auchinleck trygg-
ir aðstöðu sína
IEgyptalandi vinna hersveitir Auchinlecks að því
að tryggja aðstöðu sína og búa sig undir frek-
ari átök.
Segir í fregnum frá Kairo, að menn geti ekki búist
við mikilli sókn Breta nú, heldur hafi unnist nokkuð á, og
því verði að halda og tryggja sig sem best gegn árásum,
sem Rommel kunni að gera.
FLUGHERINN ATHAFNASAMUR
Ljettar sprengjuflugvjelar Breta Hafa verið athafnasamar og
gert margar árásir á stöðvar óvinanna, birgðalestir og vopnabúr.
Nokkrar steypiflugvjelar möndulherjanna gerðu tilraunir til árása
á stöðvar Breta. Voru fjórar þeirra skotnar niður og ein orustuflug-
vjel af Messerscbmitt-gerð, sem var þeim til varnai*. Á miðhluta
vígstöðvanna var sprengjum varpað á bifreiðalestir fjandmannanna
og varð mikið tjón af. Árásir voru einnig gerðar á fallbyssustæði.
ÁRÁS Á r~-
MERSA MATRUH.
Bresk herskip hafa enn skotið
úr fallbyssum á Mersa Matruh.
Skygni var slæmt, og varð því
ekki sjeð, hver árangur varð. Vit-
að er, að mikið tjón varð í fyrri
árásum breskra herskipa á þessa
höfn, bæði á hafnarmannvirkjum
og byggingum. Skip, hlaðið skot
færum, var sprengt í loft upp fyr-
ir utan Mersa Matruh, svo og
skip, sem hafði fullfermi af beu-
síni.
Hafa bresk herskip nú gert 6
árásir á höfnina á fám dögum og
skotið alls 2000 sprengikúlum á
borgina.
í bardögunum á fimtudag bar
mest á stórskotaliðinu. Binnig
voru minniháttar skriðdrekaorust-
ur háðar. En áttundi herinn hjelt
öllu því landsvæði, sem hann
hafði tekið, segir Williams frjetta-
ritari, sem er með áttunda hernum
Enn hefir ekki komið til átaka
milli þýskra og breskra vjela-
hersveita. Hlje það, sem, var á
fimtudag, var sennilega notað til
undirbúnings af beggja hálfu.
Aðstaða áttunda hersins við El
Alamein er engan veginn óvænley
og hann hefir enn frumkvæðið.
Á norðurvígstöðvunum halda
Ástralíumenn ennþá velli. Þeir erli
komnir fram fyrir hina upphaf-
legu víglínu sína.
Suður-Afríkumenn halda einnig
landsvæði því, sem þeir tóku af
PRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐTJ,
lorðmen eru
ósamfinnoþfðir
jóðverjar kvarta yfir því, að
Norðmenn sjeu mjög ósam-
vinnuþýðir og þrjóskufullir. Dóms
málaráðherra Quislings hefir látið
svo um mælt, að eðlilegt væri, að
Þjóðverjar hertu á tökunum vegna
þessa, og í svipaðan streng taka
norsku blöðin, sem eru á valdi
quislinga.
Til dæmis skrifar blaðið Stavan
ger Aftenblad, að þess sje ekki
að vænta, að Þjóðverjar horfi á
inótspyrnu Norðmanna með hend-
ur í vösum. Segir blaðið, að það
sje undarlegt, að Norðmenn sýni
slíka ándúð þeirri þjóð, sem vilji
færa henni frelsi og betri kjör.
Loftárás á Mðlti
Sprengjum var varpað á
Möltu í gærmorgun. Var
árásinni beint gegn flugvelli á
eynni. Skotið var á óvinaflugvjel-
arnar úr loftvarnabyssum og or-
ustuflugvjelar Breta rjeðust gegn
þeim.
Nokkrir óbreyttir borgarar biðu
bana og nokkrir særðust. Nokkurt
eignatjón varð. Þrjár þýskar
sprengjuflugvjelar voru skotnar
niður og eiu orustuflugvjel.
von Bock gerir gagn-
áhlaup við Voronezh
Þjóðverjar hafa tilkynt, að Rostov sje á valdi
þeirra og hafi þýskar og slóvakiskar hersveit-
ir brotist inn í borgina eftir harða bardaga.
Rússar hafa ekki staðfest þetta.
Við Voronezh hefir von Bock byrjað gagnárásir, sem
Rússar segjast hafa hrundið. Hersveitum Timosjenkos
hefir tekist að afstýra því, að Þjóðverjar kæmu fjöl-
mennum liðsveitum yfir fljótið.
Rússar hafa hinsvegar játað, að ástandið sje mjög ískyggi-
legt við Rostov og að harðar orustur geisi við Novo Cherkask. —
Útvarpið í Mosku hefir þirt ávarp til Rauða hersins, þar sem
skorað er á hvern og einn að gera sitt ítrasta til þess að hrekja
fjandmennina á brott. Segir í ávarpinu, að nú verði fyrir hverst
mun að stöðva sókn Þjóðverja.
Júgóslafar fá
Iáns- og leigu-
kjör
Tilkynt hefir verið í Wash-
ington, að láns- og leigu-
samningur hafi verið undirrit-
aður milli Júgóslafíu og Banda-
ríkjanna. Samkvæmt honum
munu Bandaríkin aðstoða Júgó
slafa og hafa samvinnu við þá
meðan á styrjöldinni stendur,
og eins að henni lokinni.
Bandaríkjamenn
auka herafla sinn
i trlandi
Tilkynt hefir verið, að geysi-
mikil skipalest sje nýlega
komin til Norður-írlands með
Bandaríkjahermenn og hergögn.
Eru þetta bæði fótgönguíiðar og
flugmenn, búnir öllum nýtísku
vopnum, þar á meðal skriðdrek-
um.
Hertogftnm m,f
Gloucesfteir
i Eriftren
Hertoginn af Gloucester, bróð-
ir Bretakonungs, sem verið
hefir á ferðalagi í Indlandi, hefir
heimsótt Eritreu, ítölsku nýlend-
una við Rauðahaf.
Hertoginn skoðaði sjúkrahús og
verksmiðjur, og átti tal við ítali,
búsetta þar í landi.
Spreogjum varp-
að á sænskt land
Stokkhólmi í gær.
TP vær flugvjelar flugu yfir
Öland, sem er í Eystrasalti,
skamt undan landi, og vörpuðu
sprengjum. Komu þær niður í
skógi, skamt frá Borgholm. Mynd
uðust þar miklir gígir, og hús
skulfu í Borgholm. Plugvjelarnar
hurfu síðan á hrott, og er ókunn-
ugt um, hvaðan þær komu.
GAGNÁHLAUP
VONBOCKS
Denis Weaver, frjettaritari
Reuters í Stokkhólmi, símar, að
von Boek tefli fram miklu liði á
160 km. breiðri víglínu, frá Tsi-
mlyansk í norðri til Rostov í
suðri. Við Tsimlyansk reyna
Þjóðverja að brúa Donfljót og
sækja svo áfram til KákasúS.
Engin staðfesting hefir feng-
ist á þeirri fullyrðingu Þjóð-
verja, að Rostov sje á valdi
þeirra, en það er augljóst mál,
að lokaorustan um borgina er
að hefjast. Talið er, að megin-
her Þjóðverja hafi enn ekki
brotist í gegnum varnir borgar-
innar, heldur smærri áhlaupa-
flokkar. Þykja hinir hörðu bar-
dagar við Novo Cherkask og
Tsimlyansk benda til, að svo sje.
I Moskvufregnum segir, að
áhlaupum Þjóðverja norður af
Rostov hafi verið hrundið.
Að frátalinni sókn Þjóðverja
við Rostov og þar fyrir norðan,
má segja, að litlar breytingar
hafi orðið á öðrum hlutum suð-
urvígstöðvanna í Rússlandi, seg
ir frjettaritari Reuters í Stokk-
hólmi að lokum.
Harold King, frjettaritari
Reuters í Moskvu símar í gær
um bardagana á austurvígstöðv
unum:
Þýski hershöfðinginn vo»
Bock hóf mikla sókn til að reyna
að koma í veg fyrir árangur af
gagnárásum rauða hersins, e»
sókn hans hefir ekki boðir ár-
angur. Hann var að gera tilraun
til að bjarga vinstri fylkingar-
armi hers síns, sem var í hættu
við Voronezh, fyrir vestan Don
fljót.
NÝ SÓKN RÚSSA VIÐ
VORNESH
Það lítur út fyrir, að Rússar
sjeu í þann veginn að hefja sókn
araðgerðir við Voronezh. Þjóð-
verjar hafa átt í vök að verjast
á þessum slóðum síðan 10. júlí,
en frá þeim degi hafa skrið-
di'ekasveitir og fótgöngulið
Rússa haft sig mjög í frammi.
Þjóðverjar sendu öflugar skrið-
drekasveitir, fótgöngu- og stór-
skotalið og flugvjelar til þess að
reyna að stemma stigu við gagn
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.