Morgunblaðið - 25.07.1942, Qupperneq 7
Laugardagnr 25. ;úlí 1942.
MOEGUNBLAÐIÐ
I
Frásðgn Holts práfessors
FRAMH, AF ÞRIÐJU SÍÐU.
öngvit og þá er sparkað í þá
aílvána og varnarlausa.
— Hafa fangar ekki látið líf-
ið eftir slíka meðferð?
Prófessorinn þegir við eitt
augnablik. Auðsjeð að hann vill
ekki að neitt orð komi út yfir
bans varir, sem hann hefir ekki
fullar sannanir fyrir.
— Það hafa margir dáið í
fangelsunum, segir hann. — Qg
maður kann að geta látið sjer
detta í hug, að meðferðin hafi
ílýtt fyrir dauða þeirra.
Það er einkennilegt að hugsa
til þess, heldur prófessorinn á-
fram, að undanfarna áratugi
hefir verið mikið samband milli
norskra og þýskra vísinda-
manna. — Þýskir vísindamenn
gerðu sjer far um að bjóða
norskum vísindamönnum heim
og þáðu með ánægju boð okkar.
Þegar þröngt var í búi hjá Þjóð
verjum eftir fyrri styrjöld, kept-
ust norskir mentamenn að taka
börn þýskra mentamanna á
heimili sín. Og svo eru þessi
fósturbörn okkar send til Nor-
egs sem leiðsögumenn þýska
innrásarhersins með vopn í
hönd. Jeg hitti marga þýska
hermenn, sem teknir voru til
fanga við Gjövík og lágu særð-
ir á norsku sjúkrahúsi, er töl-
uðu eins góða norsku og væru
þeir Norðmenn í húð og hár.
En aldrei hefir um það heyrst
síðan Þjóðverjar gerðu innrás í
Noreg, að nokkur þýskur menta
maður hafi hreyft nokkrum and
mælum gegn framferði Þjóð-
verja í Noregi.
— Hvernig var útlitið í Nor-
egi er þjer fóruð þaðan fyrir ári
síðan?
— Það leyndi sjer ekki, að á-
standið fór að öllu leyti hríð-
versnandi. Eins og kupnugt er,
reyndu Þjóðverjar fyrst í stað
að koma sjer sæmilega við
norsku þjóðina. En þeir vildu
strax skifta sjer af öllu, croða
sjer inn á heimili okkar, eyði-
leggja alt, sem snerti norska
menningu, umturna öllu, breyta
hugsunarhætti þjóðarinnar. —
Þegar þeir fundu andstöðuna
gegn þessari „nýskipan“ menn-
ingar sinnar, espuðust þeir
meira og meira.
Matvælaskorturinn var ekki
orðinn mjög tilfinnanlegur fyr-
ir ári síðan. En eftir síðustu
fregnum að heiman má búast
við hungri næsta vetur.
Og hætt er við að börn og
unglingar líði þann skort þessi
árin, að af því hljótist æfilöng
vanheilsa eða að minsta kosti
minni lífsþróttur en annars
hefði verið.
Síðan barst talið að heilbrigð
is og spítalamálum Norðmanna,
þeirra sem eru landflótta.Skýrði
prófessorinn svo frá:
Spítala- og læknamál okkar
Norðmanna, sem dveljum utan
Noregs, eru sameiginleg fyrir
herlið og aðra. Við höfum aðal
spítala okkar í Edinborg og í ná
grenni þeirrar borgar. í aðal-
spítalanum í borginni eru 100
rúm, en viðbót verður brátt gerð
við þann spítala, svo þar verði
200 sjúkrarúm.
Þar er skurðlæknadeild, lyf-
læknadeild og röntgendeild. í
sambandi við þann spítala, er
sjerstakur spítali fyrir sjóliðið
með 40 rúmum, hressingarhæli
með 70 rúmum og berklahæli
með 80 rúmum. Auk þess er
norskt sjúkra- og hjúkrunar-
heimili í London, annað hress-
ingarhæli í Skotlandi og her-
mannaspítala við aðal herstöðv-
ar okkar í Skotlandi.
Hvergi er gerður greinar-
munur á hermönnum og öðrum,
enda koma fleiri menn til okkar
særðir, sem eru utan hers, en
hermenn, þegar sjómenn okkar
eru ekki taldir í hernum. En í
raun rjettri eru þeir á þessum
tímum ekki síður hermenn en
hinir, sem klæddir eru einkenn-
isbúningum.
Aðal viðfangsefni okkar eru,
að lækna særða, og hafa hemil
á útbreiðslu berklaveikinnar. —
Unnið er ötullega að því, að
gera alla, sem hafa smitandi
'berkla, smitfría. En það reyn-
ist vera hægt með handlæknis-
aðgerðum, að gera 80% af
berklaveikum smitfría. Haft er
mjög strangt eftirlit með út-
breiðslu berkla innan herliðsins
með því að skoða alla hermenn
á ákveðnum fresti. Allir eru
bólusettir fyrir þeim næmu sjúk
dómum, sem hægt er að verjast
a þann hátt.
Þetta snýr að heilbrigðismál-
unum á meðan við erum laud-
flótta, segir prófessorinn. Eu
auðvitað verðum við líka að
gera undirbúning sem mestan
og bestan undir ,,heimkomuna“
hvenær sem hún verður, safna
saman lyfjum, hjúkrunargögn-
um og öllu, sem til þarf til þess
að hjálpa sjúkum og særðum er
þar að kemur.
★
Holst prófessor kvartaði yfir
því, hve margir læknar hjer í
Reykjavík væru í sumarfríi, og
fjarverandi úr bænum þessa
■daga. Hann hefir kynst ýmsum
íslenskum læknum, er komið
hafa á læknafundi í Oslo und-
anfapin ár, og hefði hugsað sjer
að hitta þá að máli.
Hann er ákaflega viðkunnan-
legur maður í tali, hefir þessa
stiltu, mjúku framkomu, sem
einkennir mikilhæfa lækna, er
hafa haft umsvifamiklum
vandasömum störfum að gegna.
— Það er einkennilegt að
koma hingað til lands, sagði
hann, að því leyti að manni
finnst nærri því, sem maður
vera kominn heim. Fólkið, sem
maður sjer og mætir er yfirleitt
svo líkt norsku þjóðinni á svip
og í framgöngu. — Og þeg-
ar jeg heyri íslensku talaða án
þess að heyra orðaskil, finnst
mjer hreimur málsins líkur og
norskan. En því miður var jeg
svo hirðulaus á mínum ungu ár-
um að jeg lærði lítið í okkar
forna máli. Þó get jeg altaf
skilið svo mikið í blöðunum, að
jeg kemst að efni frjettgrein-
anna.
BlygQaoarleysl
Jénasar
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU
unnt er að flvtja stónnál til sig-
urs, án þess að nota lygar og róg
að vopnum. Jónas ætti að íhuga
vandlega, hvað felst í orðunum
sannleikur og rjettlæti. Honum
ætti að veíða ljóst, hvert stefnir
um framtíð íslensku þjóðarinnar,
ef forystumönnum í stjórnmálum
á að leyfast að bera slík vopn og
hann hefir leyft sjer á sínum
langa stjórnmálaferli. Honum ætti
að verða Ijóst, að íslenska þjóðin
er í hættu stödd, ef þéssu heldur
áfram. Einhverntíma kemur að
leiðarlokum og þá gæti það orð-
ið honum nokkur ljettir að hafa
á síðustu árum æfi sinnar lagt nið-
ur vopn ódrengskapar og samið
sig að háttum siðaðra manna.
Særði mafiurinn
á Landsspitalanum
FRAMH. AF ÞRIÐJU Sfi)U.
sem er særður og þarfnast hjúkr
unar. Það er viðurkend mannúð
arregla, jafnvel þar sem óvinir
berast á banaspjót, að veita
sjúkum og særðum alla þá að-
hlynningu, sem unt er að veita.
Á það má og minnast í þessu sam
bandi, að oft og mörgum sinn-
um hafa særðir íslendingar, er
orðið hafa fyrir slysum, verið
fluttir á hermannaspítala hjer á
landi, þar sem tekið hefir verið
við þeim og þeim veitt öll sú
hjúkrun og umönnun, sem í tje
hefir verið hægt að láta.
Morgunblaðið keyndi í gær
að ná tali af Guðmundi Thor-
oddsen yfirlækni spítala'ns til
að spyrja hann hver gæti verið
afsökun fyrir slíku framferði,
sem hjer hefir átt sjer stað, en
hann er ekki staddur í bænum
þessa dagana. En sennilega
geta yfirvöld spítalans gefið
einhverja skýringu á því hvern-
ig slíkt getur komið fyrir sem
hjer er frá sagt.
Egyptaland
FRAMH. AF ANNARI Sfi)U.
Þjóðverjum á þriðjudagskvöldið.
Á miðvígstöðvunum standa Ind
verjar og Ný-Sjálendingar föstum
fótum, þrátt fyrir ákafar gagn-
árásir Þ.jóðverja. Þeir hafa hrakið
Þjóðverja af hinum mikilvæga
Ruweisat-ás.
Á þessum slóðúm standast og
vjelahersveitir bandamanna vjela-
hersveitum Þ.jóðverja fullkomlega
snúning.
Á Suðurvígstöðvunum hafa
breskar fótgönguliðssveitir sótt all
la.ngt fram.
Ferðafjelag íslands ráðgerir að
fara gönguför á Botnssúlur næst-
komandi sunnudag. Lagt verður á
stað ld. 10 árdegis og ekið til
Þingvalla, og að ' Svartagili, en
gengið þaðan á hæstar Súlur (1995
m.) Til haka verður gengið á
Þingvöll og ekið heimleiðis. Far-
miðar seldir á skrifstofu Kr. Ó.
Skagfjörðs. Túngötu, í dag kl. 3
til 12 f. h. og 6 til 8 e. li.
Mýfaf slldav-
veiksmið|ar
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍBU.
magni en það er nú, þá er það
augljóst mál, að hjer hafa svo
stórkostleg verðmæti farið for-
görðum, að óverjandi er að láta
það viðgangast áfram eftir að
nægir peningar eru til bæði hjá
ríki og einstaklingum til þess að
ráða bót á því.
En það verður ekki gert svo, að
það komi að verulegu gagni nema
með byggingu nýrra síldarverk-
smiðja. Ekki aðeins með 10 til 15
þúsund mála afköstum á sólar-
hring, eins og Finnur Jónsson
hefir stungið upp á, heldur með
auknum afköstum um 60 þúsund
mál á sólarhring.
Af þeirri stækkun ætti ríkið að
framkvæma helminginn. En það
verður ekki gert nema samþykki
alþingis komi til. Stjórn síldar-
verksmiðjanna ætti að greiða fyrir
því, en ekki að spilla, eins og
meirihluti hennar hefir nýlega
gert gagnvart byggingarleyfi fyr-
ir nýrri verksuiiðju, sem Óskar
Halldórsson vill reisa á Siglufirði,
að aðrir aðilar gætu komið upp
hinum helmingi aukningarinnar.
Öll aukningin þjrrfti að fram-
kvæmast strax og vjelar og bygg-
ingarefni fengist. Afköst síldar-
verksmiðjanna í landinu myndi þá
komast upp í ca. 100 þúsund mál
á sólarhring, í stað ca. 40 þús-
und mála, sem þau eru nú.
Nýjar verksmiðjur með þessum
afköstum myndu hafa kostað um
24 miljónir króna fyrir stríð. Gter-
um ráð fyrir að þær vrðu alt að
þrefalt dýrari nú, myndu þær
samt ekki vera ólíkt betri eign
að ófriðnum loknum, ef hægt væri
að koma þeim upp, en pappírs-
peningar þeir, sem nú fylla hirsl-
ur bankanna ufanlands og innan
og altaf eru að falla í verði.
Næsta alþingi verður að sam
þykkja að bygðar sjeu nýjar rík-
isverksmiðjur með 30 þúsund
mála afköstum á sólarhririg og
ríkisstjórnin að leyfa öðrum aðil-
um að byggja nýjar síldarverk-
smiðjur með sömu afköstum. Þetta
væri besti búhnykkurinn sem al-
þingi og ríkisstjórn gætu gert
þjóðinni og drjúgt spor í áttina
til þess að hagnýta þann milljóna
auð, sem síldarmergðin við strend-
ur landsins léggur upp í hend-
urnar á oss íslendingum.
Sveinn Benediktsson.
Setuliðsstjórnin tilkynnir: Skot-
æfingar fara fram nálægt Auðs-
holti í Hvalfirði 25., 26. og 27.
júlí daglega klukkan 10.00—19.00.
Dagbók
Næturlæknir er í nótt Kjartan
Ólafsson, Lækjargötu 6B. SÍHii
2614.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki.
Messa í dómkirkjunni á mörg-
un kl. 11, sjera Friðrik Hállgríms-
son.
HalLgrímsprestakall, Messa 11 í
bíósal Austurbæjarskólans á rnorg
un kl. 2 e. li. Sjera Jakob Jónsson.
Laugarnessókn. Messað á morg-
un í Laugarnessskóla kl. 2 e. hf
Sjera Gai’ðar Svavarsson.
Lágafellskirkja. Messað>á morg-
un, sunnudag 26. júlí, kl. 12,30
e. h. Sjera Halfdán Helgason.
Sjera Eiríkur Brynjólfsson á Út
skálum messar í Keflavík kl. 2 á
sunnudag.
í Landakotskirkju: Lágmessákk
6y2 árd. Hámessa kl. 10 f. h.
í kaþólsku kirkjunni í Iíafnar-
firði: Hámessa kl. 9 f, h.
80 ára er í dag Jóhann Gísla-
son, fiskimatsmaður, Kárastíg 5.
Ekkjan Sigurbjörg Sigurðardótt
ir, Hverfisgötu 89, verður 86 ára
í dag.
45 ára hjúskaparafmæli eiga 26.
júlí Guðrún Magnúsdóttir og Odd-
freður Oddsson. Bröttugötu 3B.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af sjera Jóni
Thorarensen, ungfrú Ágústæ
Björnsdóttir, Sólvallagötu 21, og
Loftur Ámundason, járnsmiður,
Barónsstíg 27.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband Ásta Björns-
dóttir Leví og Þorsteinn Finn-
bjarnarson, gullsmiður. Heimili
briiðhjónanna er á Bergþórugötu
32.
Sveinsbrjefin. í blaðinu í gær
voru taíin upp nöfn þeirra iðn-
nema, sem fengu afhent sveins-
brjef sin í fyrrakvöld. En riöfn
þessara iðnnema fjellu niður. Hár-
greiðslukonur: Ánna Vigfúsdóttir,
Guðrún Matthíasdóttir og Bertha
Karlsdóttir. Skósmiður: Jóhann
Ingibergsson. Húsgagnasmiðir:
Auðunn Þorsteinsson, Hauknr
Björnsson og Óskar L. Ágústsson.
Útvaroið í dag.
12.10 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Samsöngur.
20.00 Frjettir.
20.30 Hljómplötur: Vatns-svítan
eftir Hándel.
20.45 Upplestur: „Signýjarhárið“,
ræða eftir síra Magnús Helga-
son (frú Rósa B. Blöndals).
22.10 Hljómplötur: Lög leikin á
celló.
21.20 Lúðrasveit Reykjavíkur leik-
ur.
21.50 Frjettir.
22.00 Danslög til 24.00.
Faðir minn.
JÓN JÓNSSON,
fyrv. hreppstjóri,
andaðist að Munaðarhóli á Snæfellsnesi þ. 22. þ. m.
Jarðförin er ákveðin laugardaginn 1. ágúst.
Jarðað verður að Ingjaldshóli.
Fyrir mína hönd, systkina minna og annara vandamanna.
Kjartan Jónsson.