Morgunblaðið - 30.01.1943, Page 7
Laiigardagur 30. janúar 1943
MORGUNBLAÐIÐ
Gróa Guðmundsdðttir,
Ijósmððir 85 ára
Attatíu og fimm ára er í dag
ekkjan Gróa Guðmunds-
dóttir, ljósmóðir, Austurkoti á
Vatnsleysuströnd.
Hin góðkunna og duglega
kona er búin að liggja rúmföst
í 15 ár, og er það langur tími,
en guð hefir gefið henni sálar-
þrek. Þó líkaminn sje hrumur,
þá er lífsgleðin mikil. Hún á
marga andvöku nóttina að baki
sjer, er hún gengdi ljósmóður-'
störfum í Sandgerði og Garði.
Hún varð að fara fótgangandi
allar þær ferðir, en guð gaf
henni þrek. Sjálf er hún búin
að eiga 10 böm og eru 8 af
þeim á lífi. Hún á 28 bama-i
böm og 9 barnabarnaböm. Nú
dvelur hún hjá yngstu börnum
sínum, er hugsa vel um sína
góðu móður, sem lagt hefir sig
í sölurnar fyrir börn sín. í dag
mun mörg móðirin hugsa með
þakklæti og blíðu til hinnar
duglegu og góðu konu, sem svo
mörgum hefir hjálpað. Jeg vil
sjerstaklega þakka yngstu
börnunum fyrir þá miklu um-
önnun er þau hafa látið henni í
,tje og bið guð að launa þeini
. það. Það mætti minnast á margt
fleira um hina merku ljósmóð-
nr. En hjer læt jeg staðar num
ið og bið guð að gefa henni æfi
kvöldið bjart og hlýtt.
Þ. V. H.
Atfcvæðagreiðsla
tim átvarpið
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
atkvæði allra einstaklinga, sem
atkvæði hlutu. En honiun voru
greidd atkvæði sem þulur, leik-
ari og upplesari.
Fara hjer á eftir nokkrar nið-
urstöðutölur: 1502 kjósendur
greiddu ! alls 34.904 atkv. Fjellu
16.284 atkv. á málefnin, en
18.620 atkv. á einstaldinga og
sveitir. Atkvæði fengu 14 þulir,
67 éinsöngvarar, 13 karlakórar,
10 kvartettar, 13 hljómsveitir,
11 blandaðir kórar, 7 barnakórar,
3 lúðrasveitir, 9 orgelleikarar, 11
fiðluleikarar, 23 píanóleikarar, 5
cellóleikarar, 36 harmonikuleik-
arar, 31 leikarar, 86 rithöfund-
ar, 99 upplesarar, 38 tvísöngv-
arar og 97 ræðumenn.
Eftir landshlutum skiftust at-
kvæðin þannig hlutfallslega:
Sveitimar greiddu 48%. Þorp
og kauptún 18%. Kaupstaðir,
aðrir en Reykjavík 17.33%.
Reykjavík 16.67%.
Glgur Dallesby
upptœhar
Fró norska blaðafulltrúanum:
Hin svokallaða norska ríkis-
lögregla hefir gert eigur
Hallesbys prófessors og tveggja
presta, upþtækar. Ástæðan til
þess er bráðabirgða nýársboð-
skapur kirkjustjórnarinnar, er
lesinn var upp í öllúm kirkjum
iandpins 17. janúar.
Hæstirjettur
Sddarverksmiðjur
rfkisins greiði 30 þús.
kr. slysabætur
Hæstirjettur dæmdi í gær
Síldarverksmiðjur ríkisins
til þess að‘ greiða 30 þúsund
króna slysabætur til verka-
manns, er vann hjá verksmiðj-
unum og slasaðist í vinnutíma.
Haustið 1937 var Jón
Björnsson stúdent í vinnu hjá
Síldarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði. Hann vann ásamt
öðrum manni að því, að skrapa
og mála reykháf á suðurhelm-
ingi S. R. N. verksmiðjunnar
svonefndu. Til þess að komast á
vinnustað urðu þeir fyrst að
fara upp stiga, sem reistur var
upp með norðausturhorni verk-
smiðjunnar; síðan urðu þeir að
skríða upp á mæni þaksins og
þaðan eftir mæninum að svo-
nefndu ,,skeletti“ (rimluð upp-
bygging á þakinu — loftræst-
ing) og fikruðu sig með fram
því, að reykháfnum.
1 einni ferðinni frá vinnustað
misti Jón Björnsson taks á
„skelettinu" og rann niður þak-<
ið og niður á skúrþak, ca. sex
metrum neðan við þakbrún. Við
fallið brotnuðu bæði hælbein
Jófris og lá hann lengi. Eftir
leguna var orka hans metin
45%.
Jón krafðist skaðabóta af
hálfu Síldarverksmiðjanna og
studdi kröfuna á því, að út-
búnaðurinn við vinnuna hefði
verið óforsvaranlegur. Krafðist
hann 45 þúsund króna bóta.
Lögmaðurinn í Reykjavík
dæmdi málið í undirrjetti. Hann
dæmdi Síldarverksmiðjurnar til
að greiða 30 þúsund króna slysa
bætur.
Hæstirjettur staðfesti dóm
lögmanns og dæmdi auk þess
Síldarverkstniðjur ríkisins til
að greiða 4000 kr. í málskostn-
að fyrir báðum dómum,
1 forsendum dóms Hæstarjett
ar segir m. a.:
„Telja verður, að óverjandi
hafi verið að láta gagnáfrýj-
anda framkvæma starfa þann,
er í málinu greinir, án nokkurs
öryggisútbúnaðar. En hinsveg-
ar sýndi . gagnáfrýjandi ekki
fulla aðgæslu, er hann fór til
staríans án þess að kvarta und-
an öryggisskortinum“.
Einar B. Guðmundsson hrl.
flutti málið fyrir Síldarverk-
smiðjurnar og Sveinbjöm Jóns-t
son hrl. fyrir Jón Björnsson.
Til Strandarkirkju: Tveir sjó
menn 50 kr. ÍM. Ö. 20 kr. S. J. J.
20 kr N. N. 10 kr. Ingibjörg
Guðmundsd., Selnesi, Breiðdals-
vík 20 kr. Gamalt áheit 10 kr.
Gamalt áheit 5 kr. Nýtt áheit 5
kr. Þ. V. S. 10 kr. S. M. 25 kr
Strandamaður 5 kr. Gamalt á-
heit 10 kr. Gamalt áheit 15 kr.
S. G. 10 kr. S. S. 20 kr. Ó. J 18
kr. Sigga 10 kr. R. 10 kr. N. N.
60 kr. Vestfirðingur 10 kr. J. S.
25 kr. N. N. 10 kr. H. H. 25
kr. G. H. (gamalt áheit) 100
kr. S. G. 30 kr. N. N. 10 kr.
Kona 20 kr. E. ,1. 10 kr.
KAUPÞINGIÐ
ÍÖstud. 29. jan. 1943. Birt án ábyrgðar
•H í > Verðbrjef 4% K> C >§ ÉAl c8 44 g Umsetn. bús. kr.
4 Veðd. 13. fl. 101
5 — ■ ’.12. fl. 1051/*
5 - 11. fl. 105 V*
5 - 10. fl. 106 196 5
5 9. fl. 106
41/1 — 4. fl. 102
4V* Rikisv.br. ’41 101*/*
5'h Rikisv.br. ’38 103 103 5
5V* Jarðr.br. 3. fl. 107
5V* Kreppubr. 1071/*
5 Nýbýlasj br. 103'/. 5
41/* Sildarv.br. 100
4 Hitaveitubr. 100 133
31/* Hitaveitubr 100 40
«••••*•••••••
Dagbók
□ Edda 5943227 — 1. Atkv.
Ungling vantar til að bera
Morgunblaðið til kaupenda á
Framnesveginn.
Næturlæknir er í nótt Björg-
vin Finnsson, Laufásvegi 11. —
Sími 2415.
Næturvörður er í lngólfs apó-
teki.
Messur í dómkirkjunni á
rnorgun: kl. 11 síra Friðrik
Hallgrímsson, kl. 1.30 Bama-
guðsþjónusta (sr. Fr. Hall
grímsson), kl. 5 síra Bjami
Jónsson.
Hallgrímsprestakall. Á morg-
un: Kl. 11 barnaguðsþjónusta í
bíósal Austurbæjarskólans, síra
Sigurbjörn Einarsson. Kl. 14
messa á sama stað, síra Jakob
Jónsson. Kl. 10 f. h. sunnudaga-
skóli í gagnfræðaskólanum við
Lindargötu.
Nesprestakall. Messað í kap-
ellu Háskólans kl. 2.30 á morg-
un.
I.augarne.sprestakall. Messað í
Laugarnesskóla á morgun kl. 2.
Sr. Bjöm O. Bjömsson prjedik-
ar. — Bamaguðsþjónusta í
Laugaraesskóla á morgun kl. 10
árd.
Fríkirkjan í Reykjavík. Kl. 2
messa, sr. Árni Sigurðsson. KI.
11 Unglingafjelagsfundur í kirkj
unni. Ingimar Jóhannesson kenn-
ari talar 0. fl. Fjölsækið! Nýir
fjelagar velkomnir.
Frjálslyndi söfnuðurinn. Méss-
að á morgun kl, 5, síra Jón Auð-
uns.
I kaþólsku kirkjunni I Reykja-
vík hámessa kl. 10 og bæna-
hald kl. 6y2 síðd. f Hafnarfirði
hámessa kl. 9 og bænahald kl. 6
síðd.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mess
að á morgun kl. 2, síra Jón Auð-
uns.
Ólafur Eyvindsson húsvörður
Landsbankans verður 65 ára í
dag. Hann fer austur að Arnar-
felli, sveitasetri Matthíasar Ein-
arssonar læknis og mun dvelja
þar fram yfir helgi.
Útvarpið í dag.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur.
19.00 Enskukennsla 2. flokkur.
19.25 Hljómplötur: Samsöngur.
20.00 Frjettir.
20.30 Kvöld Slysavarnafjelags Is
lands: Ávörp og ræður. — Ein
21.50 Frjettir.
söngur. — Tónleikar.
22.00 Danslög.
fslensk fyndni nýjasta bókin
er komin út. Fæst á afgreiðslu
Morgunblaðsins.
i
3EST AÐ AUGLYSA I MORGUNBLAÐINU.
Hjer með tilkynnist vimun og ættingjum, að
GUÐM. HELGI PJETURSSON prentari
andaðist i spítala fimtudaginn 28. janúar 1942.
Ragnheiður Jónsdóttir.
Pjetur HafUðason.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að
JÖSEFÍNA WAAGE
andaðist á Elliheimilinu Grund 29. þ. m. Jarðarförin verð-
ur auglýst síðar,
Pvrir hönd vandamanna
Ólafur Teitsson.
Móðir okkar
JÓHANNA ELÍN ERLENDSDÓTTIR
andaðist 27. janúar á heimili sínu, Vesturgötu 3, Keflavífe.
Marín Jónsdóttir. Erlendur Jónsson.
Svafa Jónsdóttir. Ólafur Jónsson.
Jarðarför konunnar minnar
VALGERÐAR KAPRASlUSDÓTTUR
frá Akranesi, fer fram frá Inmbastöðum á Seltjamameííi
miðvikudaginn 3. febrúar og hefst kl. 1% e. hád.
Fyrir hönd mína og annara vandamanna
Ólafur Magnússon.
Kveðjuathöfn konu minnar
SVÖVU EINARSDÓTTUR
frá Sandi fer fram á Elliheimilinu Grund kL 5 í dag.
Fyrir hönd mína og bama minna
Guðgeir Ögmundsson.
Þökkum hjartanlega öllum nær og fjær, sem auðsýndu
okkur samúð og margskonar aðstoð við fráfall og jarðarför
DAGBJARTAR BENÓNÝSDÓTTUR,
Sellátrum.
Aðstandendur.
Jeg þakka öllum þeim, sem sýndu mjer og mínum sam-
úð og vinsemd í tilefni af fráfalli og jarðarför manusins mins
ÁRNA ÓLAFSSONAR.
Guðríður Jónsdóttir,
Hlíðarendakoti.