Morgunblaðið - 20.07.1943, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Þríðj'ddag'ur 20. júlí 1943.
tslensk húsagerð
Framh_^af bls. 4.
Margt hefir farið í
blómgast nú betur en
nokkru sinni fyr.
handaskolum hjá oss síðan
steinsteypuöldin hófst. Nú
er þó svo komið, að bestu
húsin í bæjum og sveitum
standa ekki að baki tilsvar
andi byggingum í ná-
grannalöndunum og að
sumu leyti framar. Þau
eru sterkari, endingarbetri
og eldtraustari en timbur-
eða múrsteir.shús. Ekkert
af erlendu húsunum jafn-
ast við bestu bæina, sem
hitaðir eru með jarðhitrí
og hafa ótæmandi heitt
vatn, kalda vatnsveitu,
baðklefa, vatnssalerni og
jafnvel raflýsingu.
íslensku húsasmiðirnir
geta líka svarað úr flokki.
Erlendu múrararnir eru að
vísu leiknir í sinni list,;
sem hefir þroskast öld eft
ir öld, og ótrúlega fljótir
að hlaða veggi úr múrstein
um. Þó mun flestum finn
>ast, að íslensku múrararn
ir standi þeim ekki að baki,.
hvorki að vinnuhraða^ nje
verklagi. Þeir steypa nú
ekki aðeins veggina, held
ur jafnframt loft og gólf,
stiga og þakrennur á svip
uðum tíma og hinir hlaðia
veggina.
★
Um síðustu aldamót
mátti með nokkrum rjetti!
segja, að landði væri ó-
byggt. Þá voru hjer aðeins
örfá hús úr varanlegu efni.
Alla torfbæina varð að
byggja upp á næstu 50
árunum, og iauk þess 200
—300 nýjar íbúðir á ári
hverju vegna fólksfjölgun
ar í landinu.
Þetta mikla starf áttum
vjer auðvitað að.vinna eft
ir forsögn bestu h/^ameist
ara, húsasmiða og verk-
fræðingia. Verkinu mátti
flýta með því að taka upp
þegnskylduvinnu.
Þetta vakti fyrir sumum
mönnum, jafnvel fyrir alda
mót, en það reyndust marg
ar torfærur á þessari leið.
Augun jeg hvíli T /I* | f
með gleraugum | yjj jj j
Ef Loftur ffetur það ekki
— bá hver?
Þá var hjer enginn húsa_
meistari, einn verkfræðing
ur og hiann var bundinn við
annað starf (vegagerð).
Húsasmiðir vorir þektu þá
lítið sem ekkert til stein.
steypu., einangrun húsa
var í bernsku og notkun
jarðhita ókunn.
Vjer hjeldum Ijó í þessa
áttina, eftir því sem þekk_
ing og ástæður leyfðu.
Margt fór í handaskolum,
en vjer vorum fljótir að
læna og eigu.:.i j A fjölda
af leiknum o.g lærðum
húsagerðarmönnum.
Vjer ættum nú að geta
byggt allt eftir forsögn
kunnáttumanna og betur
en nokkru sinni fyr.
Það á nú ekki lengur
við, sem Matthías kvað
fyrir rúmum mannsaldri:
Mín ástkæra þjóð, þú ert
enn í peysu,
þú ert enn að byrja þá
löngu reisu
úr amlóðans baðstofu gegn
um göng,
grafin af moldvörpum, lág
og þröng.
Finnleikaflokkur
Ármanns kominn
að norðan
F1MLEIKAFLOKKUR ÁR
MANNS, 20 stúlkur og 9
karlar, auk íþróttakennarans,
Jóns Þorsteinssonar, sem ver-
ið hafa á ferð um Norðurland
komu til bæjarins eftir hálfs-
mánaðar ferð síðastl. sunnu-
dag.
Sigurður Norðdahl, sem
var fararstjóri flokkanna
skýrði blaðimr svo frá í gær,
að ferð þessi hafi verið hin
ánægjulegasta í alla staði og
sýningunum allstaðar tekið
forkunnarvel svo ekki hefði
verið á betiv kosið.
Alls sýndi flokkurinn á 9
stöðum og voru móttökurnar
allsstaðar mjög rausnarlegar
og ánægjulegar. Bað Norð-
dahl blaðið að færa þeim, er
stóðu fyrir móttökunum á
hverjum stað bestu bakkir fyr
ir óríeymanlegar viðtökur og
viðkvnningu.
Eftir að flokkarnir höfðu
sýnt víðsvegar um Norður-
land dvöldu þeiry um viku-
tfma að Laugum og fóru
bá að Mývatni, til Ásbyrgis,
að Dettifossi og víðar.
iniiiiniiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiniiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiimiiiiiiiiiimn
|tilkynning I
| frá Morgunblaðinu |
| MYNDAMÓT
I blaðsins verða
lalls ekki lánuð
i hjer eftir (
innnniniiininiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiwiiiiiiiiiiiuiiiiiinniuuiiuuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiÍH
K.R keppir
á Akureyri
— Á LAUGARDAGINN
keptu K.R.-ingar við Akur-
eyringa í handknattleik
og sigraði K. R. með 12:4.
Einnig fór fram kepni í 200
m. hlaupi og sigraði Brynj-
ólfur Ingólfsson (K. R.) á
23,6. Er það sami árangur
og náðist bestur s. 1. sumar.
I 80 metra hlaupi sigraði Jó-
hann Bernhard (K. R.) á
9,5 sek. Þá fór fram sýning
í kúlu og kringlukasti.
Á sunnudaginn kl. 2 keptu
K.R. og Akureyringar í knatt
spyrnu og sigruðu Akureyr-
ingar með 2:1. — Brandur
Iirynjólfsson ljek með Akur-
eyringum. Um kvöldið hjelt
úrvalsflokkur K. R. fim-
leikasýningu undir stjórn
Vignis Andrjessonar í sam-
komuhúsinu. Tókst sýningin
prýðilega og hefir fimleika-
flokkur K. R. getið sjer hinn
besta orðstír í þessu ferða-
lagi K. R. til Norður- og
Austurlandsins.
Eftir fimleikasýninguna á
sunnudagskvöldið var sam-
steti fyrir íþróttafólk K. R.
Stjórnaði Jón Kristirisson for
maður Þórs á Akureyri hófinu
o" sá hann aðallega um mót-
tökur K. R. á Akureyri. —
Fararstjóri K.-R.-inga, Bene-
dikt .Takobsson, þakkaði Jóni
fvrir hina ágætu aðstoð er
hann ljet íþróttafólki K. R.
í tie.
í gærkvöldi kom hinn fjöl-
mennj íþróttaflokkur aftur til
bæjarins, eftir 14 daga fræki
lega og merkile.a íþróttaför
íim Norður- og Austurla.nd.
í kvöld heldur stjórn K. R.
íbróttafólkinu kaffisamsæti í
fjelagsheimili V. R. og býður
formaður það velkomið heim
með ræðu.
Hryðju verk
í Póllandi
London í gærkveldi.
AÐ ÞVl, er Pólverjar í
London segja, framdi Gesta-
po-lögreglan þýska viðbjóðs-
legt hermoarverk í Póllandi.
Pólskur maður að nafni Ho-
rodynski og kona hans hjeldu
veislu í tilefni af því, að eitt
ái' var liðið frá giftingu
þeirra, en í þessari veislu
voru hjónin bæði, 3 böm
þeirra, 4 þjónar og 11 gestir
myrt af þýskum Gestapo-
mönnum. Pólski þingmaður-
inn Stanislaw Wankowics
var einn gestanna.
I pólskum frjettum er
skýrt frá því, að Þjóðverjar
hafi haft að yfirskini ákæru,
sem umboðsmaður Þjóðverja
á næsta búi við Horodynski,
hafði borið á hendur honum
þess éfnis, að hann hafiiskot-
ið skjólshúsi yfir tvo spell-
virkja. En í raun og sann-
leika frömdu Þjóðverjar
þetta morð til þess að kló-
festa eignjir Horodynskis í
sína umsjá næsta dag.
—Reuter.
BEST AÐ AUGLÝSA í
MORGUNBLAÐINU.
Borgarstjórinn í Hvera-
gerði fertugur
í dag, 20. júlí, er þjóð_
hátíð okkar Hvergerðinga:
Þá er Herbert Jónsson,
,,borgarstjórinn“ okkar,
fertugur. Hann er án efa
einn vinsæladti maður í
Árnessýslu, og þótt víðar
væri leitað, því ekki vitum
við til þess að nokkur mað
ur beri kala til hans, og
engan Ölfusing þekkjum
við, sem ekki er vel við
hiann. Þetta eru í sjálfu
sjer allmikil meðmæli með
einum manni, en fleira
gott má um Herbert segja,
án þess að víkj.a af götu
sannleikans. Enginn er jafn
síhress og glaður Sem
hann, hvernig sem viðrar.
Og hann er þess ávalt bú_
inn að leysia hvers manns
vanda, hvort heldur er á
nóttu eða degi, og hversu
mikið ómak eða erfiði sem
það kann að kosta, án þess
nokkru sinni að líta til
launa eða ^akklætis. Þrátt
fyrir þiað, að hann hefir
átt við margra ára van_
heilsu að stríða, jafnan
verið fjelítill og fárra
kosta átt völ, getur ekki
bjartsýnni mann, og spurs
mál hvort hann er ekki, í
fátækt sinni, ríkasti mað-
ur Hveragerðis.
Ekki er lað undra þótt
ýms störf hlaðist á slíkan
mann sem Herbert og
margir leit'i til hans, en
hitt er annað, að oft hefir
okkur samferðamönnum
hans láðst að þakka hon-
um og launa sem vera bar.
Við vorum orðnir því svo
vanir að hóa í Herbert,
þegar mikils þurfti við:
,,Gerðu þetta eða hitt fyr_
ir mig, Hebbi minn!“ Og
Herbert brást aldrei, hvort
sem okkur vantaði einka-
ritara, læknisaðgerðir,
sálmabækur, hóstasaft, eða
fjórða mann í bridge.
Nú hefir það stundum
viljað við breníia að ósín_
gjarnir menn, sem aldrei
hugsa um eigin hag, hefj-
ist lítt til mannvirðinga og
skorti nafnbætur. En
Hveragerði, sem í flestu
er fyrirmyndarborg, hefir
kunnað að sjá sóma sinn
í þessu efni sem öðrum.
Og þótt „ekki skrapi pen-
ingar í pungi“ (eins og
komist er að grði í helgi-
sögu einni) hjá Herbert
okkar, þá hefir hann titla
og heiðursheiti á við hvern
meðal greifa, sjeff og
gúvernör. Er þá fyrst að
telja, að hann hefir um
langt skeið einróma af öll
um Hvergeiþingum verið
settur borgarstjóri staðar
inð 1 og gegnt því embætti
með slíkri ■ kurt og pí, að
vandgengið mun verða í
sporin hians. Þá er hann
ráðsmaður Kvennaskólans,
í fúlustu alvöru, kennari
ágætur, varasímstjóri og
varapóstmeistari, fram.
kvæmdastjóri Kristilegs
menningaf fjelags Ölfus.
hrepps, ritari í stjórn sama
fjelags og ráðgjafi hrepps
I nefndarinnar. Ennfremur
framkvæmdastjóri skipu-
lagningar bæjarins, mæl-
ingamaður og formaður
bygginganefndar, eftirlits-
miaður skrúðgarða og gróð
urhúsaeigendaráðunautur:
fyrv. framkvæmdastjóri
„Hot Spring Laundry“,
fyrv. kanínubústjóri, prím-
usaviðgerðamaður og apó-
tekarj, en lyfjabúð hans,
hefir þann öndvegiskost
framyfir aðnar slíkar, að
meðöl eru þar gefin, en
ekki seld. Þá er hann hand
læknir staðarins, fram.
kvæmdastjóri' h.'ó'kapar-
mála, fastur svaramaður,
skírniarvottur og sátta-
semjari, — og væru hjer
ekki þrjár yfirsetukonur
—, en hjer skal staðar
numið, þótt margar fleiri
nafnbætur hafi "ð mak-
legleikum hlaðist á Her-
bert. Þess eins skal fram_
ar getið, að sökum marg-
háttiaðrar menningarstarf-
semi sinnar út á við, í
þágu þorpsins, er í ráði að
gera hann að framkvæmda
stjóra ,Hot Spring CounciÞ,
þegar það verður stofnað.
Mikið verður um dýrðir
á þjóðhátíð okkar í dag,
sem vænta má. En þánn
skugga ber á gleðima, ao
afmæíisbarnið sjálft ligg-
ur rúmfast, með biksvart
alskegg, og því ekki íært
um, í þetta sinn, að drekka
gesti sína undir borðið. En
stjórna mun hann hófinu
úr rekkju sinni, og raka-
samt mun verða í sialar_
kynnum hans, þegar líður
á daginn.
Hérbert hefir um skeið
legið þungt haldinn í
lungnabólgu og brjóst-
himnubólgu, og sigrast á
hvoruteggja af miklum
dugnaði og skörungsskap,
eins og hans var von og
vísa. — Enginn veit hvað
átt hefir, fyr en mist hef-
ir, og siannaðist það á okk
ur Hvergerðirrgum, þegar
Herbert lagðist. Honum
var um skeið ekki hugað
líf, og vikum saman var
ekki um annað meira talað
í Hveragerði en líðan hans:
„Hvernig líður honum?“
Mar fy?sta spbrningin á
morgnana og sú síðasta á
kvöldin, er Hvergerðingar
hittust. Jafnvel innrásin á
Sikiley viarð að láta í minni
pokann sem umtalsefni.
Við fundum þá best hversu
mikils virði hann var okk
ur og þorpinu og að við
gátum ómögulega án hans
viarið.
Nú er Herbert úr allri
hættu. Við munum ganga
að rekkju hans í dag, og
drekka skál hans, með
spaugsyrði á vörum og
hlýju í hjarta, þakklátir
fyrir að hafa heimt úr helju
góðan vin og góðian ís-
lenskan dreng.
Þorvaldur Ólafsson,
Öxnalæk.
Ingimar Sigurðsson,
Fagrahvammi.
Kristmann Guðmundsson,
Hrauntúni.