Morgunblaðið - 07.09.1943, Blaðsíða 1
Vikublað: Isafold.
30. árg., 201. tbl. — Þriðjudagur 7. september 1943.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
FYRSTU ÁTÖKIN A ALÞIINIGI:
STJÓRNIN FÆR STÓRFELDAN TEKJUAUKA
Churchill
heiðursdoktor
við Harvard
('11 UR( 'IIILL forsætisráð-
herra Breta var í dag gerður
heiðursdoktor í löguni við
hinn fræga Ilarvard-háskóla í
Bandaríkjunum, og flutti for-
seti háskólans við það tæki-
færi ræðu, þar sem hann hrós-
aði Churchill mjög og sagði
hann vera sögulega persónu
og björgunarmann frelsisins,
þegar verst hefði horft.
Churchill svaraði með ræðu,
og var hún einkum um sam-
band og samvinnu Breta og
Bandaríkjamanna, og lagði
Churchill áherslu á það, að
samvinna þessi yrði að halda
áfram um stríðið, annars
myndi ekki takast að vinna
bug á ofbeldinu í heiminum.
„Bretland og Bandaríkin
verða altat’ að standa samein-
uð og reiðubújn að rísa gegn
sjerhverjum, sem hefir á-
gengni í huga“, sagði Churc-'
hill, og bætti við, að ráðstefn-
ur Breta og Bandaríkjamanna
væru svo árangursríkar, að
undrum sætti, og' ættu að
halda áfram. Ilann sagði, að
ekkert svipað þeim hefði þekst
í síðasta stríði, og væri þessi
samvinna nú orðin svipuðust
öflugri og ganggóðri vjel, sem
mesta heimska væri að stöðva.
Þá vjek Churchill að ófriðn-
um og sagði, að hann væri nú
að líkindum að komast á það
stig, sem dýrkeyptast yrði
fyrir bandamenn, sem nú væru
þannig' á vegi staddir, að ekki
dygði annað en að halda á-
fram til leiðarloka án nokkurr
ar hvíldar.
Ræðu Churchills var tekið
með miklum fögnuði i
Mikilvægur
kardinálafundur
London í gærkveldi.
ÍTALSKA frjettastofan
sagði í dag', að allir kardínál-
ar í Vatíkanborginni hefðu
verið kvaddir á fund af Mag-
lione kardínála, forsætisráð-
herra Páfaríkisins. Forsætis-
ráðherrann sagði, að þessi
fnndur væri álitinn hafa verið
hinn þýðinarmesti. Iiann stóð
yfir í tvær klukkustundir.
— Renter.
FLUGVIRKI NAUÐ-
LENDA í SVISS.
Bern í gærkveldi.
FJÖGUR amerísk fljúg-
andi virki nauðlentu í Sviss-
landi í clag, ep hið fimta hrap-
aði í Constanz-vatn, að því er
opinberlega er tilkynt hjer.
— Reuter.
Vildi fá óbundnar hendur um ráð-
stöfun fjársins en Ed. synjaði
Sjö kafbáum
sökkt
Breska flug- og floba-
málaráðuneytið gaf út sam
eiginlega tilkynningu í
kvöld, þar sem sagt er frá
því. að nýlega hafi 7 þýsk
um kafbátum verið sökkt
í Biskayaflóa. Voru þarna
að verki skip úr breska
flotanum, strandvarnlar-
flugvjelar og flugvjelar úr
flugher Bandaríkjamanna.
— Þessir kafbátar voru
annaðhvort á leið heim til
herferð eða heiman til
hernaðaý. Reuter.
Verð á tóbaki og áfengi
hækkar stórlega
t i
i ______
MIKLAR OG Á ÝMSAN HÁTT MERKILEGAR um-
ræður fóru fram á Alþingi í gær í sambandi við nýtt
stjórnarfrumvarp, sem ríkisstjórnin bað um afgreiðslu á
í skyndi.
Frumvarp þetta var um heimild til að hækka hámarks-
álagningu á tóbaki úr 50 í 150%. En talið er, að ríkis-
stjórnin vilji með þessum skattauka — og einnig með
verðhækkun á áfengi, sem ekki þarf lagabreyting til —
fá auknar tekjur í ríkissjóð, sem nema hvorki meira nje
minna en 9 — níu miljónum króna!
En til hvers á að nota þetta mikla fje? Um það var
spurt á Alþingi í gær, án þess að greið svör fengjust.
búast víðo við innrús
Bretar taka 10 þorp
á Kalabria
London í gærkveldi Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
ÞÝSKA FRJETTASTOFAN sagði ‘í kvöld, ,„*að all-
ar líkur bentu til þess, að Bretar og Bandaríkjamenn
myndu í náinni framtíð gera aðra mikla innrás ein-
hversstaðar á Miðjarðarhafssvæðinu, eða jafnvel fleiri”,
mintist frjettastofan meðal annars á líkindi þess, að
ráðist yrði á Sardiniu, Korsiku, eða eyjar við Grikk-
land. á var sagt svo, |að „Bandamönnum myndi finnast
Korsika hin ákjósanlegasta bækistöð til árásar á Suð-
ur-Frakkland.
Á Kalabríuskaga heldur áttundi herinn hægt á-
fram sókn sinni, og eru miklar torfærur í vegi hans.
Hafa Þjóðverjar og ítalir eyðilagt alla vegi, lagt
sprengjur í jörðu, og auk þess er landið fjöllótt. Átt-
undi herinn hefir tekið bæinn san Stefano og 10 þorp,
meðal þeirrja eru San Roberto, Fiumare og Santa Lucia.
Þjóðverinr
Mannheim
Ráðist á
- Ludwigs-
hafen
London í gærkveldi.
BRESKA R sprengjuflug-
vjelar hjeldu áfram loftsókn
sinni gegn Þýskalandi í nótt
sem leið, og var að þessu sinni
ráðist á borgirnar Mannheim
og Ludwigshafen, sem standa
sín h’vorum megin Rínarfljóts,
en í báðum þessum borgum er
mikill iðnaður, og hafa hinar
heimsfrægu efnasmiðjur, I. G,-
Farben, aðsetur sitt í Mann-
heim, en þær smiðjur hafa
framleitt marga hluti, sem
þarflegir eru til hernaðar.
Varnir Þjóðverja voru mjög
öflugar. Var fjöldi orustuflug-
vjela þeirra á sveimi alla leið-
ina og sífelt ráðist á sprengju
flugvjelarnar, enda fórust 34
þeirra. í ferðinni. Tjón af á-
rásunum er álit-ið allmikið.
-— Reuter.
London í gærkveldi.
ÞING breska verkalýðsfje-
lagasambandsins var sett í
dag', Er það mjög fjölment, og
mæta þar fulltrúar frá Rúss-
landi, Bandaríkjunum, Sví-
þjóð, Póllandi- og Tjekkósló-
vakíu, auk breskra fulltrúa.
— Reuter.
Þýska frjettastofan sagði í
kvöld, að bandamenn hefðu í
dag gert tilraun til þess að
setja lið á land bak við varn-
arlínur Þjóðverja á Kalabríu-
skaga, en að þessi tilraun hefði
mishepnast. Sagði frjettastof-
an, að landganga þessi hefði
verið gerð til þess að um-
kringja varnarlið Þjóðverja.
LITLIR BARDAGAR.
Frjettaritarar með áttunda
hernum og herjrnn Kanada-
manna segja," að bardagar á
Kalabríuskaganum sjeu yfir-
leitt mjög litlir enn sem kom-
ið er, og' bendi allar líkur til
þess, að Þjóðverjar og Italir
hafi komið sjer upp varnar-
kerfi norðar á skaganum,
vinni að því að treysta það, og
geri Bretum förina sem erfið-
asta með eyðileggingum og
sprengingum á meðan. Alls
hafa Bretar enn sem komið er
tekið 3000 fanga, og eru það
nærri alt ítalir.
MESSINASUND
HREINSAÐ.
Bretar hafa nú sótt svo
langt norður á skagann Sikil-
eyjarmegin, að möndulherirn-
Framh. á 2. síðu.
Að loknum hinum venju-
lega deildafundi í neðri
deild í gær (sem stóð fáar
mínútur), skýrði forseti frá
því, að nýr fundur yrði sett
ur svo að segja strax og þá
tekið til meðferðar mál, er
ríkisstjórnin óskaði að fá
skyndiafgreiðslu á í báðum
deildum.
Þegar svo nýr fundur var
settur í deildinni, var út-
býtt fyrnefndu stjórnar-
frumvarpi, um heimild til
að hækka stórkostlega álagn
ingu á tóbak.
Greið afgreiðsla
í Nd.
Málið fekk tiltölulega
greiða afgreiðslu í Nd. Að-
eins tveir þm. (Sigf. Sigur-
hjartarson og Sig. Krist-
jánsson) andmæltu frum-
varpinu, en að öðru leyti
gekk það viðstöðulaust á-
fram. Felt var með 17:7 at-
kvæðum, að láta fjárhags-
nefnd fjalla um málið, en
fjármálaráðherra hafði ósk-
að þess, að málið fengi að
ganga nefndalaust í gegnum
deidina.
Fyrirspurnum var beint
til ráðherra varðandi það,
til hvers ætti að nota þetta
fje, en ráðherra skaut sjer
undan að svara. Var svo
málið afgreitt með afbrigð-
um gegnum allar umræð-
urnar og sent Ed.
Þungur róður
í Ed.
Kl. 5 síðd. hófst fundur
í Ed.
Framh. á 2. siðu.