Morgunblaðið - 07.09.1943, Page 5
Þriðjudagur 7. sept. 1943.
MORGUNBLAÐIÐ
Jón frá Brúsastöðum sextugur
Vill heldur starfið en peningana
— M.JER ER SACIT, að þú
s.jert að verða sextugur, sagði
jeg á dögunum við Jón frá
Brúsastöðum, er hann kom inn
á skrifstofu blaðsins. En hann
er altaf kendur við Brúsastaði,
sem kunnugt er, þó hann hafi
þá einstöku virðíngarstöðu, að
hafa verið hóteleigandi á sjálf-
um Þingvöllum í 25 ár.
Jón á sextugsafmæli í dag.
Þó hann hafi verið gestgjafi
og hóteleigandi í aldarfjórð-
ung, þá er hann altaf fyrst og
fremst bóndi — og þykir heið-
ur að því.
Ilann kom að Brúsastöðúm
árið 1920, en bjó áður á
lleiðarbæ í Þingvallasveit.
Ilefir lífstíðarábúð á Brúsa-
stöðuni, en í landareign þeirr-
ar jarðar er Lögberg sjálft og
Almannagjá frá Öxarárfossi
niður að Hestagjá. Þá tekur
við Kárastaðaland.
—• Ilvernig var, þegar Þing-
vellir voru girtir og þú hættir
að hafa umráðarjettinn yfir
því landi, sem innan girðing-
ar er, en heyrði Brúsastöðum
til?
— Jeg var ekkert að vesen-
ast í því, Ijet það eiga sig.
■ — Þó þú að rjettu lagi hefð-
ir lífstíðarábúð á helgasta
stað landsins.
- — Þú hefir altaf kunnað
vel við þig í Þingvallasveit-
inni ?
— Já. Nú er jeg orðinn þar
rótgróinn að mjer finst. Það
er dálítið öðruvísi fjelagslíf
þar, en austur í Hreppum, þar
sem jeg var framanaf.
En eitt hefi jeg gert gott
síðan jeg kom þangað. Það
var vorið 1920. Það var hart
vor, eftir snjóavetur. Þá var
jarðlaust um lokin. Þá keyiúi
jeg fóðurbæti fyrir 12 þúsund
krónur, fjekk víxil í Lands-
bankanum og hjál]>aði bænd-
um. Annars hefði fjenaður
fallið það vor.
— Af hverjum keyptir þú
Valhöll?
— Sigmundur Sveinsson
hnfði haft hana á leigu. Hann
vildi að jeg leigði. Jeg vildi
það ekki. Annaðhvort ekkert
eða kaupa. Það var hlutafje-
lag, sem átti hana. Tryggvi
Gunnarsson hafði þar verið
aðalmaðurinn.
— Oft hefir þú haft marga
gesti.
— Á Alþingishátíðinni varð
jeg að sjá um mat handa 1000
manns að öllu leyti, fyrir utan
alt annað. Þá hafði jeg 100
manns í vinnu. Það.var mesti
spretturinn, sem jeg hefi kom-
ist í. Þá sofnaði yfirkokkurinn
minn ekki í þrjá sólarhringa.
Nú hefi jeg haft Valhöll
opna í þrjá vetur og oft. tekið
á' móti' niönnum hröktum og
illa á sig komnum.En mjer þvk
ir þeim niun skemtilegra að
taka á móti gestum, sem þeir
þurfa meiri aðhlynningar við.
Annars er ekki vert að
skj-ifa neitt hól um mig. Það
er oft betra að. skrifaðar sjeu
skammir um mann, en eitt-
hvað almennilegt. Eða það
finst mjer.
—• 'Úr því þú vilt ekki að
skrifað sje um þig sextugan,
þá getum við snúið því við og
þú sagt mjer, hvaða umbætur
þú vilt að gerðar verði á Þing-
völlum.
— Það skal jeg segja þjer.
Um þau mál héfi jeg mikið
hugsað. Á Þingvöllum þarf að
mínu viti margt að gera. Sumt
af því kostar mikið fje, og
vei-ður ekki gert nema á löng-
um tíma. En aftur annað eru
smávegisumbætur, sem ætti að
vera hægt að koma í fram-
kvæmd hvenær sem er.
Ejtt af framtíðannálunum
er það, að reisa veglega kirkju
á Þingvöllum. Hún þarf að
vera staðnum og þjóðinni til
sóma. Þar þyrfti ætíð að vera
einn af merkustu kennimönn-
um landsins, er Ijeti Ijós sitt
skína, til heilla fyrir alþjóð.
Þar þyrfti að reisa annað
gistihús, þó minna væri en
Valhöll, en með öllum nýtísku
þægindum, fyrir það ferða-
fólk, sem vill greiða fyrir slík-
an aðbúnað.
Og svo vildi jeg, að reistur
yrði bær á Þingvöllum í göml-
um stíl, þar sem geyíndir yrðu
alskonar gamlir munir. Bær-
inn yrði meö einum 5—6 burst-
um fram á hlaðið, steinstjett
fyrir framan, hestasteini og
íiskasteini, með hnöttóttri
steinsleggju. Þar yrði, auk
aðal bæjarhúsa, skemma,
smiðja, hjallur o. fl. Þar
mætti hafa margt, er minti á
fortíð Islands.
liíiga þarf ýmislegt umhverf
is Valhöll, t. d. gróðursetja
trje, og er jeg byrjaður á því.
Ræsa fram mýrina fyrir fram-
an hótelið og prýða þann flöt.
stækka bílastæðið, og byggja
hesthús fyrir hesta ferða-
manmi,
Vmislegt þarf og að gera,
sem ekki kemur Valhöll við.
T. d. að koma upp: ræstiklefa.
þar sem mönnum er leyft að
tjalda, laga götutroðninga,
sem eru að myndast, þar sem
mest er umferð, t, d. slóðina
yiir tættur Snorrabúðar.
Og gróðursetja þarf skóg í
Þingyaliahrauni. 11 iuu krækl-
ótti skógur, sem þar er, veitir
nýgraeðingi gott skjól. En
hanti vex ekki, syo teljandi sje
—. Hefir ekki koniið til orða
að ríkið keypti af þjer Val-
höll ?
— Jú. Satnþykt var gerð á
þingi um, að það mál yrði at-
hugað. Þingvallanefnd hefir
einmitt talað' um þetta við
mig. .Teg hefi svarað henni
því, að jeg sje reiðubúinn til
að halda starf'i mínu áfram á
Þingvöllum og verja þar allri
orku minni og öllu því fje, er
jeg kann að hat'a eða fá um-
ráð yfir. Jeg er reiðubúinn til
að vinna að því að koma upp
góðu húsi nálægt Valhöll og
•áða þar til forstöðu fyrsta
flokks fagmann. En Valhöll
rerður að standa áfram lík og
'iún er, og meðan ekki er hægt
iö sýna með skynsamlegum
rökum, hvernig hægt sje að
reka hana á annan hátt en nú
er gert, án of niikils kostnað-
ar fyrir ríkið, þá er það mín
trú, að þessu máli sje best
borgið með því að jeg fái að
vinna áfram að áhugamálum
uiínum og hugsjónum til um-
bóta. Jeg kýs frekar erfiði,
umstang og vinnu, en að fá
fullar henduj’ fjár, með sölu
til ríkisins á hinuin viðsjár-
vei-öustu tímum, sem yfir
þjóðina hafa nokkru sinni
koniið.
60
ara:
Jón Norðfjörð skemti Sigl-
firðingum í gær í bíóhúsinu
með upplestri og gamanvísum.
Aðsókn var góð og viðtökur
ágætar. (Erjettaritari Mbl. á
Siglufirði).
uiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiim
DISSTON
( Sagir |
á 34 kr.
| SLIPPFJELAGIÐ. |
Iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiml
Saumur
flestar stærðir
fyrirliggjandi.
Helgi Magnússon
& Co.
Hafnarstræti 19.
**♦ ♦%*t**t*^**t* *t**t**i**r**Í* 4* ♦!*
Tómas Jónsson kaupmaður
Eldfustur
. steinn
og LEIR
fæst nú aftnr
hjá
BIEBINC
Laugaveg 6.
Sími 4550.
X
TÓMAS JÓNSSON, kaup-
maður, er 60 ára í dag. —
Hann er fæddur í Reykja-
vík, 7. sept. 1883, og voru
foreldrar hans Jón Þórðar-
son sjómaður og kona hans
Alfífa Tómasdóttir.
Efni voru lítil og varð
Tómas að fara að
vinna, eins og margir aðrir
Reykjavíkurdrengir, þegar
hann var 10 ára og hefir
unnið margskonar störf. —
Hann hefir verið sendi-
sveinn, þjónn á es. Reykja-
víkin, sjeð um ,.BilIiard-
stofu“, verið umsjónarmað-
ur með ferðalögum, bílstjóri
o. s. frv.'
Það má af þessu marka,
að Tómas er liðtækur mað-
ur, og ekki vantar dugnað-
inn. Hann mun hafa verið
einn af fyrstu bílstjórum
hjer í bæ, og var hann mjög
öfundaður af Reykjavíkur-
piltunum, er hann ók hin-
um fræga Thomsens bíl um
bæinn.
Tómas gerðist svo deild-
arstjóri hjá Thomsens-
magasín, og lærði þar margt
því við þá verslun unnu
margir og prúðir menn, og
má rpprka það það í allri
framkomu Tómasar, að
hann hefir hitt slíka menn
og kunnað að læra af þeim.
Árið 1909 mun hann hafa
stofnað sína eigin matvöru-
verslun og hefir rekið hana
síðan. Mun þetta hafa verið
ein af fyrstu, ef ekki sú
fvrsta, sjerverslun í þeirri
grein. Tómas hefir tekið
upp ýmsar nýjungar á sviði
verslunar sinnar, bygt sjer
frystihús og reynt að fylgj-
ast með tímanum í stai'fi
sínu.
Kvæntur er Tómas Sig-
ríði Sighvatsdóttur alþm.
frá Eyvindarholti, er lengi
var þingmaður Rangæinga.
Heimili þeirra er orðlagt
fyrir gestrisni og prúð-
mensku. Sigríður er kona
góð og vel greind. Börnin
eru fjögur, einn sonur og
þrjár dætur.
Viðskifti Tómasar hafa
verið mikil frá því hann
byrjaði verslun fyrir sjálf-
an sig; hann hefir haft skifti
við fjölda bænda og bæjar-
búa, og munu þeir allir bera
honum vel söguna og veit
jeg að fjölda þeirra er mjög
vel til hans.
Hann þekkir fjölda manna
og er oft lengi í ferðum. því
Tömas þay± oft að stansa,
þegar hann er að skreppa
milli húsa, og tala við vini
sína og kunningja, eða þeir
við hann. Kemur það oft
fyrir að við vinir hans segj-
um: „Lengi hefir þú veíið
á leiðinni, Tómas minn,
núna“, en hann brosir bara
og segir: „Jeg þurfti að tala
við svo marga“.
Tómas er kurteis maður,
eins og áður um getur, vin-
semd og góðmenska er hon
um meðfædd. Mun þess jafn
an minst, hve vel hann kom
jfram gagnvart gömlum hús
(bónda sínum, þegar undan
fór að halla hjá honum. —
^ Það sýnir trygð hans, sem
við vinir hans þekkjum.
| En það er eitt, sem sjer-
staklega einkennir Tómas,
umfram flesta aðra menn
og það er skapfestan. Hún
er einstök. Og stundum höf-
um við sagt við hann, að
þetta sje nú þrái, en Tómas
heldur fast á sínu máli. þeg
ar hann er búinn að mynda
sjer skoðun á málum, og
lætur ekki hlut sinn.
Við vinir þínir og kunn-
ingjar sendum þjer kveðjur
og hamingjuóskir í dag.
Lifðu heill og lengi.
7/9 1943.
M.
X
4
*
4
4
|
x
Y
1
T
Y
í
x
4
'k i l ’ i *
.•X‘X*x.*:-:-:**:-:**:**:-:-:**x**:-:*x*x*
SuðufiUings
fyrirliggjandi.
Helgi Magnússon
& Co.
Hafnarstræti 19.
♦J. V
•X* <*<♦ <• <• ♦> \* <**X*v "X^X^X**!**!* v •!• *:
•♦***4Xm****‘**,X**X**X**X*4XhX*X**X**X**X*X**X44X4*XmXhX',*X**X**XmX<***
| Tvær stúlkur
X
•{• geta fengið atvinnu nú þegar, önnur við
skrifstofustöi*f, hin við innheimtu reikninga.
! Bifreiðastöð Steindórs
I
i
$
'•'X*'***X**X*X**X*4XMX**X**X**XMX**í,X****X*****i*,**X,X**X****X*X**X**l**^.