Morgunblaðið - 19.09.1943, Blaðsíða 12
12
Aðulslátr-
un hefst
á morgun
Kjötverðið
ákveðið
VERÐ Á KINDAKJÖTI
hefir verið ákveðið þannig:
1. Heildsöluverð:
I. Verðflokkur, kr. 5,75
kílóið.
II. Verðflokkur, kr. 4,75
kílóið.
III. Verðflokkur, sem er
ærkjöt, kr. 4.20 kílóið.
IV. Verðflokkur, lakara
ærkjöt, kr. 3.60 kílóið.
2. Smásöluverð:
Dilka- og geldfjárkjöt
(súpukjöt) kr. 6.50 kílóið,
en í heilum kroppum til
neytenda kr. 6.00 kílóið.
Læri og kotelettur í sam-
ræmi við það.
Fyrsta flokks ærkjöt kr.
4.90 kílóið. ®
Meðan verð þetta gildir,
greiðir ríkissjóður uppbæt-
ur á það.magn dilkakjöts og
geldfjárkjöts, sem selt verð-
ur neytendum, með kr. 1.95
á hvert kíló.
Haustslátrun hefst á morg
un hjer í Reykjavík og ann-
arsstaðar á landinu.
llrslit í
Walferskepn-
inni í dag
í DAG verður úr því skor-
ið, hvort Val tekst að vinna
Waltersbikarinn til eignar,
eða hvort lengur verður
kept um þann góða grip. —
K. R.-ingar hafa fullan hug
á að halda bikarnum lengur
í „umferð“, meira að segja,
auðvitað, að vinna hann að
lokum. Verður því hörð við-
ureign á vellinum í dag,
leikur, sem marga mun fýsa
að sjá.
K. R. vann Walterskepn-
ina í fyrsta skipti er hún var
háð, en síðan hefir Valur
unnið tvisvar í röð. Munu
Valsmenn hugsa sjer að láta
ekki annan bikar ganga sjer
úr greipum, sem þeir hefðu
getað hrept til eignar, en
Víkingur tók af þeim hand-
knattleiksbikar karla í sum-
ar, svo sem kunnugt'"er. —
Verður gaman að sjá, hvern
ig þessi síðasti meistara-
flokksleikur sumarsins fer.
Tveir úrslitaleikir fara fram
í dag fyrir hádegi. Eru þeir í
H. flokki, Tv. lí. OR Valur
keppa og í IV. flokki, en þar
lceppa I\. R. o" Fram.
Æfifjelagar í. S. í. Jóri Sig-
nuuidsson framkv.stj. á Akra-
nesi hefir gerst æfifjelagi I.
S. í. Þar rneð eru æfifjelar sam
bandsins orðnir 270.
Brennandi skip
Ífjfp/fftftfi&f:.-?!.
;
Þessi gríðarlega reyksúla er úr brennandi seglskipi, sem
flugvjelar bandamanna kveiktu í undan ströndum Ítalíu.
- ITALIA
Framhald af bls. 1.
Flugvellir.
Bandamenn hafa tilkynt,
að þeir muni bráðlega byrja
að notfæra sjer allmarga
flugvelli á meginlandi ítal-
íu, og sje þeim það mikið
hagræði, þar sem það stytti
flugleið til vígvallanna að
mun.
Þing B. S. R. B.
Eiófsf í gær
ÞIXG Bandalags starfs-
starfsmanna ríkis og bæja var
sett í Austurbæjarbarnaskól-
anum í gær kl. 4. Mættir voru
52 íulltrúar frá 19 fjelögum.
Forsetar þingsins voru
kjörnir Ilelgi Hallgrímsson,
Steindór Björnsson og Ágúst
Jósefsson, og ritarar. þess þeir
Zophonías Pjetursson, Helgi
Elíasson, Björn L. Jónsson og
Þorsteinn Stefánsson.
Þá voru og kosnar fasta-
nefndir þingsins. Stjórnin gaf
skýrslu um störf sambandsins.
Fúndinum í gær var lokið
klukkan að ganga 9. Fundur
hefst að nýju í dag kl. 2.
Skrifsfofu-
stúlka
Stúlka vel að sjer í bók-
haldi getur fengið atvinnu
nú þegar hjá stóru hgild-
sölufirma. Umsókn merkt:
„September 1943“, sendist
afgreiðslu Morgunblaðsins.
Ágóði ai skemtun-
um Hringsins varð
10 þús. krónur.
KVENF.TELAGIÐ IIRTNG-
URINN hjelt tvær skemtanir í
þessum mánuði til ágóða fyrir
væntanlegan barnaspítala. —
Voru þær haldnar í Gamla Bíó
þann 3. og 17. þ. mán.
Ágóðinn af báðum þessum
skemtunum nam um 10.000 kr.
Stjórn fjelagsins hefir beðið
blaðið að skila besta þakklæti
til ailra er sóttu skemtanirnar,
en sjei’staklega til eigenda
Gamla Bíó, þeirra hr. alþm.
Garðars Þorsteinssonar og hr.
frkv.stj. Hafl. Ilelgasonar fjrr-
ir_að lána húsið ókeypis í bæði
skiftin. Einnig þakkar stjórn-
in öllum starfsmönnum og að-
stoðarmönnum við skemtanir
þessar.
Iðnþingið kýs nefnd
fil að ræða við
Alþingi
ANNAR 'FUNDUR Iðn-
þings íslendingia, sem stend
ur yfir þessa dagana í
Hafnarfirði, var haldinn í
gærdag. — Fyrir þinginu
liggja 14 mál.
Tekið var fyrir til um-
ræðu skýrsla Landsstam-
bandsstjórnarinnar,- reikn
ingar sambandsins og Tíma
ritsins, og f járhagsáætlun
fyrir 1943; einnig var kos-
in 5 manna sendinefnd, er
,ræða skyldi við Alþingi
um iðnaðlarmál. Nefndina
skipa: Ásgeir Stefánsson,
Indriði Helgason, Jóhann
B. Guðnason. Guðm. Guð-
laugsson og Helgi H. Ei-
ríksson.
Aðirar nefndir:
Kjörbrjefanefnd: Guð-
mundur H. Guðmundsson,
Vigfús Friðriksson, Vigfús
Sigurðsson, Einar Vestmann
Sveinbjörn Jónsson,
Fjármálanefnd: Guðm.
Guðlaugsson, Ásg. G. Ste-
fánsson, Sig. Símonarson,
Þorl. Gunnarsson, Einar B.
Kristjánsson, Guðj. Schev-
ing.
Skipulþgsnefnd: Jóhþnn
B. Guðnason, Þóroddur
Hreinsson, Gísli Jónsson,
Kristólína Kragh, Bjarni
Einarsson.
Löggjafarnefnd: Sveinb.
Jónsson, Magnús Kjartans-
son, Einar Reynis, Pjetur
G. Guðmundsson.
Fræðslunefnd: Jóhann
Frímann, Þorgeir Jósefsson
Bárður Tómasson, Emil
Jónsson, Helgi H. Eiríksson
Alsherjiarnefnd: Sveinn
Guðmundsson, Júl. Björns-
son, Guðj. Mlagnússon, Gast
, on Ásmundsson, Þórður
|Jónsson.
1 kvöld eru þingfulltrú-
ar boðnir í veislu, er Iðn-
aðarmannafjelagið í Hafn-
arfirði heldur á Hótel
Björninn.
Kirkjuhöfðingi
Rússa bannfærir
presta
London í gærkveldi.
IIINN nýskipaði yfinnaður
kirkjunnar í Rússlandi hefir
tilkynnt, að allir þeir rússnesk
ir prestar og aðrir kirkjunn-
ar |)jónar. sein uppvísir verði
að því að hafa haft samstarf
við Þjóðverja, meðan land-
svæði það, sem þeir bjuggu á,
var í höndum þýska hersins,
jskulu tafarlaust bannfærðir.
Reuter.
Reuter.
Sagarþjalir
þrístrendar
og SVERÐÞJALIR.
JARNVORUVERSL.
JES ZIMSEN h.f.
Brjefritari
Stúlku, vel að sjer í ensku,
góð í vjelritun og helst hrað
ritun vantar nú þegar eitt
af stærri fyrirtækjum bæj-
arins. Umsókn merkt: „Hól-
ar 1943“, sendist afgreiðslu
Morgunblaðsins.
Sunnudagur 19. sept. 1943
Rjelfir byrja
í dag
í DAG byrja rjettirnar.
í dag er Heiðarbæjarrjett
í Þingvallasveit.
Á morgun verður Þing-
vallarjett og Hraunrjett (fyr
ir Hafnarfjörð og nágrenni).
Á þriðjudag verða Hafra-
vatnsrjett (fyrir Reykjavík
og Mosfellssveit) og Eyja-
rjett í Kjós.
Kollafjarðarrjett (fyrir
Kjalarnes) og Ölfusrjett
verða á miðvikudag.
Á fimtudag verða Skaft-
holtsrjett fyrir Eystrihrepp
og rjettir fyrir Ytrihrepp í
Reyk j adalskoti.
Landrjettir verða svo á
föstudag.
Rjett að leila
samþykkb Alþingis
EINS og áður hefir verið
frá skýrt, skrifaði ríkisstjórn-
in þingflokkunum og leitaði
sam])ykkis þeirra á þeirri ráð
stöfun að halda áfrani að verð-
lækka kjöt og mjólk eftir 15.
sept., með framlagi úr ríkis-
sjóði.
Sjálfstæðisflokkurinn gat
fyrir sitt leyti fallist á frám-
hald milligreiðslnanria- í bili,
meðan Alþingi ynnist tími til
að taka dýrtíðarmálin til ýtar-
legri athugunar, en tilskildi
af sinni hálfu, að stjórnin leit-
aði tafarlaust úrskurðar Al-
þingis um það, hversu lengi
slíkar greiðslur sjeu intar af
hendi".
Til frekari árjettingar þessu
atriði, sendi flokkurinn ríkis-
stjórninni eftirfarandi brjef
þann 16. þ. mán.:
„Ut af brjefi hæstvirts fjár-
málaráðherra til Sjálfstæðis-
flokksins, dags. 15. þ. mán., þar
sem tilkynnt er, að ríkisstjórn-
in hafi ákveðið að halda fyrst
um sinn lægra verði á kjöti og
mjólk innanlands en niður-
staða vísitöluncfndar landbún-
aðarvara gefur til kynna, tek-
ur flokkurinn fram, að þó
hann, eins og segir í brjefl
flokksins til ráðherra dags. 14.
þ. mán., geti til bráðabirgða
sætt sig við, að fje sje lagt
fram úr ríkissjóði í umrædd-
um tilgangi, án frekari heim-
ildar en í lögum nr. 42 frá 14.
apríl 1943 greinir, þá heldui’
flokkurinn fast við það, að
leita l)eri samþykkis yfirstand-
andi þings til þeirra greiðslna
á formlegan hátt, undir eins
og því verður við komið, og
án þess að binda þær greiðslur
við nokkurn ákveðinn tekju-
stofn ríkissjóðs“.
Grossi með Þjóðverjum.
LONDON í gærkveldi: —■
Þjóðverjar hafa tilkynnt, að
ítalski sjóliðsforinginn Grossi,
sem stjórnar ítölskum kafbát-
um, er bækistöð hafa á Atlants
hafsströndum, hafi lýst því yf-
ir, að kafbátar hans muni fram
vegis lierjast með Þjóðverjum,
Reutúi’.