Morgunblaðið - 09.11.1943, Blaðsíða 2
»
MORGUNBLAÐIÐ
jÞriðjudagur 9. nóv. 1943.
Samningarnir um
hjálparstofnun
undirritaðir í dag
SAMÞYKKT Sl', er setur á
fót hjálpar- og viðreisnarstofn
mi liinna sanieinuðu ]»jóða,
verður undirrituð í ciag í Hvíta
húsinu í Washington, og kem-
nr framkvæmdarráðið saman
dagiim eftir í Atlantic City.
44 þjóðiun hefir verið gefinn
kostur á að gerast aðilar að
stofnun þessari, hinum 33 sam-
einuðu þjóðum og 10 öðrum,
sem eru riðnar við stríðið.
Lokauppkastið að samkomu-
lagi þessu var lagt fram þann
'20. sept. síðastl., eftir að
fvrsti texti þess hafði verið
undirbúinn af Bandaríkjun-
um, Breturn, Riissum og Ivín-
verjum, og þann 10. júní höfðu
verið gerðar nokkrar tillögur
1 iI breytinga frá hinnm öðr-
•um sameinuðu þjóðuin.
í samningnum er sagt að
ráðið muni „skipuleggjb, sam I
ræma og framkvæma eða sjá
um frakvæmdir til hjálpar scm
orðið hafa fyrir þunguin bús-
vfjum af völdum ófriðarins,
einkurn á sviðiun matvæla,
éldneytis, klæðnaðar, húsa-
•skjóls og annarra nauðþurfta,
og einnig sjá þeim fyrir lyfj-
um og hjúkrimargögnum.
Stjórn livers þess ríkis, sem
að stofnuninni stendur, mun
hafa einn fnlltrúa í ráði henn-
«r og mun ráð þetta koma sam
an tvisvar á ári, eða oftar, ef
miðstjórnin eða einn þriðji
hluti meðlimanna óskar.
Miðstjóm ráðsins verður
skipuð fulltrúum Bandaríkj-
anna, Bretlands, Rússlands og
Kína. Miðstjórnin mun leggja
ákvarðanir sínar fyrir ráðið,
og eirmig munu þær þjóðir,
sein verið er að hjálpa, fá
l.önd í bagga með gerðum
hennar, þegar það er hægt.
Sarnþykktar hafa verið eft-
irfarandi nefndir: Birgða-
nefud, Evrópunefnd, Austur-
landanefnd og tæknilegar
uefndir, sem fjaila um næring
arefni, heilsufræðileg atriði og
fjárniálaleg atriði, eftir óskum
m iðstjórnarinnar.
Franeis B. Sayrek, sjerstak-
ur fulltrúi ráðheira Bandaríkj
anna, sagði nýlega í ræðu í
New York, að lijálparstofnun
hinna sameinuðu þ.jóða yrði að
sjá sjer fyrir miklum matvæla
birgðum, sem hægt væri að
ganga á, er þörf gerðist. Þá
sagði hann að samræma þyrfti
birgðaáætlanii’ handamanna í
striðinu þannig að stjórn hjálp
arnefndarinnar gæti haft næg-
ar vÖrur fyrir hendi, er til
þyrfti að taka,
Sayre kvað hvert land þurfa
að leggja sinn skerf af inörk-
um. „Suni lönd geta varla lagt
frain mikið fje“, sagði hann,
,,en þau geta þá komið með
sínar eigin afurðir, — kakao,
sykur, kaffi, ost, ull, hveití,
skiprými, læknaþjónustu, lyfja
forða“.
„E-ftir að frandögin hafa ver
ið ákveðin, mun ráðið leggja
vandlega gerðar áætlanir um
alla framkvæmd starfseminn-
ar og um útvegun nauðsyn-
legra vörutegunda, bæði í
löndum þeim sem aðilar eru að
sáttmálanum, og annarsstaðar.
Ráðið mun svo að segja hafa
40—50 þjóðir í reikningi, og
fá sitt hjá hverri, eftir því
sem þörf er fyrir.
Þá þarf að sjá svo um, að
lönd þau, sem leyst eru úir á-
nattð, fái jafnan skamt mat-
væla, og verður því að spara
j»au, þar sem hætta er á að
knappt verði um matvæli yfir-
leitt á þessum tímum. Einnig
þarf að hafa nákvæmar gætur
á því, að nóg skiprými verði
til flutninga til hinna nauð-
stöddu þjóða.
Þá mun hjálparnefndin að-
stoða fólk í hinum hart leiknu
löndum við l»að að koma aft-
ur á fót framleiðsltt sinni, svo
það verði fljótt fært um að
sjá fyrir sjer sjálft, og kann-
ske aðstoða aðra.
„Þetta er cndurreisn“, sagði
Sayre. „Það þýðir^það, að
mæta’ þörfunum ekki einungis
með því að láta hina nauð-
stöddu fá birgðir, heldur og
með því að sjá svo um, að fólk-
ið geti byrjað að framleiða aft
ur. Endurreisn er ekki aðeins
fólgin í því að hjálpa fólki,
tneira en það. Hún hjálpar
fólki til þess að hjálpa sjer
sjálfu“.
TILKVIMIMIMG
frá
Viðskif taráði
Ef einhverjir kynnu að eiga vörur í Ameríku frá
því á árinu 1942, sem enn hafa eigi fengist fluttar,
eru þeir beðnir að gefa sig fram við Viðskiftaráð-
ið fyrir 15. þ. m. Jafnframt leggi hlutaðeigandi
fram skilríki fyrir því, að hann hafi í höndum inn-
flutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir vörunni og hafi
haft það, er hann keypti hana-
Reykjavík, 8. nóvember 1943.
VIÐSKIFTARÁÐIÐ.
75 ára:
Siprgeir ©íslason
IIANN Sigurgeir Oíslason í
Hafnarfirði á 75 ára afmæli í
dag. Framar þarf ekki að
kynna hann, því að hvert
mannsbarn í Hafnarfirði og
um öll Suöurnes og lnnneé
veit við hvern er átt. Svo er >
hann kunnur maður.
Það er fyrst nú, að honum I
finst sjálfum að liann sje að ,
eldast. Aðrir sjá ekki niikil
ellimerki á honttm, nje að hann
hafi breyst til muna seinasta
áratuginn. Ilann er enn beinn
í baki og fyrirmannlegur,
glaður og reifur. ()g þegar
hann lítur yfir farin veg í dag
hefir hann sjerstaka ástæðu
till að vera glaður, því að hann
hefir staðist alla brotsjói lífs-
ins og verið sinnar gæfu snnð-
'ur. Ilann hefir alltaf verið
falslaus, trúfastur við það,
sem hann taldi satt og rjett,
sífelt boðinn og búinn til að
rjetta öðrum hjálparhönd. —
Slíkum mönnnrn farnast alltaf
vel í lífinu. En ef þú spyrðir
hann að því í dag hvert hafr
verið mesta lán hans í lífinu,
þá nran hann hiklaust svara:
Að jeg gekk ungur í Clóðtempl
araregluna og hefi verið í
henni fram á þennan dag.
Sigurgeir var bláfátækur í
æsku, en varð velmegandi,
það þakkar'hann Rcglunni. -—(
IFann skapaði sjer gott heimili,'
eignaðist trúfasta konu og góð
börn. Það þakkar hann Regl-
linni. Hann hefir verið heilsu-
hraustur og glaðlyndur alla
ævi, það þakkar hann Regl-
unni. Honum hefir tekist að
hjálpa mörgúm til sjálfshjálp-
ar, ]»að ]>akkar hann áhrifum
Reglunnar. Og óta! traust og
óslítandi vináttuhönd segist
hann eiga helini að ]>akka.
Það er bjart yfi-r ævikvöldi
slíkra manna, sem Sigurgeir
er. Á.
6 MÁNAÐA FANG-
ELSI FYRIR EINS
DAGS SKRÓP.
1 K JELLER-V ERKSMIÐ J-
UNUM norsku voru fyrir
stríð smíðaðar orustu- og æ£-
inga|lugvjelar fyrir norska
herinn. Eftir hernám landsins
var aukið allmikið við verk-
smiðjuna og nú vinna þar 700
—800 manns. Fyrir nokkru
vonu allir verkamennirnir
kallaðir saman í borðsal verk-
smiðjanna til fundar. Dyrum
öllum var lokað og vopnaðir
þýskir herinenn stóðu vörð.
Því næst tók hinn þýski
yfirmaðu r ve rksm i ð j unnar,
Scharff, til máls. Ilann ávít-
aði verkamenn hörðum orðum
fyrir, að spellvirki hefðu vey-
ið framin í verksmiðjunni og
að í framtíðinni yrðu slílt mál
dæmd' af þýskum herrjetti. —
Eins dags skróp frá vinnu
varðar 6 mánaða fangelsi. —
(Sarnkv. frjett frá norska
bla ð af ullt rúanum).
ert Claessen
Einar Ásmundsson
hæstarjettarmálaflutningsmenn,
— Allskonar lögfrœðistörf —
Oddfellowhúsið. — Sími 1171.
T^T
SiHorbrúðkaup.
Þriðjudaginn 9. þessa mánaðar eiga silfurbrúðkaup hjónin Vigdís
Bjarnadóttir og Theódór Einarsson, Bæjarskerjum við Sandgerði.
Samsöngur á Húsavík
Frá frjettaritara vorum
á ITúsavík.
Sön gm á I ast j óri Þ j óð k irk j-
imnar, Sigurður Birkis, hefir
dvalið á llúsavík og æt't þar
nýstofnaðan kirkjukór. Á laug
ardagskvöldið hjelt kirkju-
kórinn sainsöng í Húsavíkur-
kirkju með aöstoö karlakórs-
ins Þrynrar, og söngmálastjóri
flutti' erindi um kirkjusöng.
Áheyrendur, sem voru mjög
margir, gerðu ágætan róm að
söngnuin og erindi Birkis. —■
Fyrir hönd safnaðarins þakk-
aði sýslumaður, Júlíus I lav-
steen', Sigurði Birkis fyrir kom
una og kórnum fyrir ágætan
söng. Stjórnandi kóranna er
prófastur Friðrik A. Friðriks-
son og organisti kirkjukórsins
er kona hans, frú Gertrud
Friðrilcsson.
Ungling
vantar til að bera blaðið til kaupenda á
Laugaveg innrá
og Skeggjagötu
'J Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600.
Brjefaskóli S. í. S.
Y
Y
£ kennir þessar námsgreinar: |
| Bókfærslu I og II, íslenska rjettritun, $
* Ensku handa byrjendum, Búreikninga, $
X Skipulag/og starfshætti samvinnufjelaga,
«
% Fundarstjórn og fundarreglur.
'{. Lágt kenslugjald, námshraði við hæfi hvers |
nemanda. Leitið upplýsin'ga hjá Brjefaskól- $
* anum, Sambandshúsinu, Reykjavík.. k
Tr jesmið
vantar mSg um óákveðinn tíma. Uppl- í síma
1792.
JÓN GAUTI.
Gunmlaugur JBriean
99 WALL STREET — NEW YORK.
Annast útvegun á allsskonar vörum frá Bandaríkjun-<
um og sölu á íslenskum afurðum þar.