Morgunblaðið - 04.01.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.01.1944, Blaðsíða 12
Þriðjudagur 4. janúar 1944. 12 « Yeslurbæing- arhandsama sjóiiða, sem stáiu skart- gripum Þrír ungir Vesturbæingar handsömuðu á nýársnótt 2 breska sjóliða, sem höfðu brot- ið rúðu í skartgripaverslun Magnúsar Benjamínssonar & Co. í Veltusundi og höfðu stol- ið úr glugganum 5 úruriT, 7 dýr mætum hringum og sigarettu- veski. Það var klukkan um 2 á ný- ársnótt, að þeir fjelagar Egill Guðmundsson, Bræðraborgar- stíg 14 (16 ára), Ólafur Guð- mundsson, Hofsvallagötu 22 (16 ára) og Páll Halldórsson, Hólavallagötu 1 (18 ára) heyrðu brothljóð í Vallar- stræti. Sáu þeir að rúðan hafði verið brotin hjá Magnúsi Benjamínssyni og ennfremur sáu þeir sjóliða á hlaupum frá versluninni vestur Vallar- stræti. Veittu þeir fjelagar þeim eftirför og náðu þeim í Grjótaþorpinu. Tókust þar með þeim nokkrar sviftingar, sem ekki stóðu þó lengi. Rifnaði frakki eins íslendingsins. Er piltarnir höfðu sjóliðana á -valdi sínu, fóru þeir með þá á lögreglustöðina og voru þeir afhentir breskri lögreglu. Ekki náðist alt þýfið af sjóliðunum, því þeir höfðu fleygt frá sjer hringum og úrum á leiðinni að lögreglustöðinni. Væri gott ef einhver skyldi finna þessa muni, að þeim yrði skilað til rannsóknarlögreglunnar. Það hefir komið í ljós, að þessir sömu sjóliðar brutu rúða í skartgripaverslun Jóns Sig- mundssonar á Laugavegi á dög -unum og stálu þar skartgrip- v.m með sama hætti. Lögreglan hælir mjög hin- um ungu Vesturbæingum fyr- ir rösklega framgöngu. Fjöldi manns á skíð- um nýársdagana FJÖLDI REYKVÍKINGA not aði hátíðisdagana um nýárið til að fara á skíði í nágrenninu. Á nýársdag voru um 200 manns á Hellisheiði við Skíðaskálann, þar af voru um 70 með Skíða- Ijelagi Reykjavíkur. 50 manns gistu í skálanum. Skíðafæri var gott á nýárs- dag (8 stiga frost). Á sunnu- dag fór að skafa og í gær var harðfenni þar efra. Milli 10 og ■20 manns voru á skíðum í gær. Snjór er ekki mjög mikill. Lítill snjór á háfjöllum og skaf ið milli hrauns og hlíða, en \íða má samt finna ágætis skíðabrekkur. London í gærkveldi. — Laval hefir endurskipulagt innanrík- isráðuneyti sitt, að því er fregn í r frá Vichy herma í kvöld. — Hefir Laval gert allmiklar breytingar með það fyrir aug- vm að fá betri tök á frönskum frelsisvinum en hann hefir haft hingað til. — Reuter. Frá hjáiparráðstefnunni Hjálparráðstefnan í Atlantic City situr enn á ráðstefnu, og birtist hjer mynd, sem tekin er á einum af fundum hennar. Hefir hver fulltrúi fyrir framan sig spjald með nafni lands síns. Maðurinn, sem stendur fyrir miðju fundarborðinu, er Dean Acheson, aðstoðarráðherra Bandaríkjanrva. Hann cr forseti ráð- stcfnunnar. \ Longbylgjustöðvar auðvelda Ilug- samgöngur Reistar á íslandi, Grænlandi, Nýlundnalandi og Labrador Rólegt gaml- árskvöl „Gamlárskvöld var með allra rólegasta móti“, sagði Er- lingur Pálsson, yfirlögreglu- þjónn, tíðindamanni blaðsins í gær. Það var mjög áberandi, hversu lítið var um unglinga úti á götunum, miðað við það, sem verið hefir á undanförn- um árum. Yngstu bæjarbúarnir voru yfirleitt í fylgd með fullorðn- um. Um íkveikjutilraunir var ekki að ræða, og þurfti lögregl- an því ekki að kalla á aðstoð slökkviliðsins af þeim orsök- um. Á öðrum tímanum var dá- lítið af hávaðasömum mönnum í Austurstræti. Þeir tóku upp á því að velta tunnum, sem notaðar eru til þess að afgirða trieð götur. Tunnum þessum veltu þeir fyrir bifreiðar og hlaust af þessu nokkur truflun á umferð, sem lögreglunni tókst fljótlega að greiða úr. Ölvun var með minsta móti, áþekk því, sem pft er á föstu- dags og laugardags kvöldum. Voru 9 menn teknir úr umferð á tímabilinu frá klukkan 8 á gamlársdagskvöld til klukkan 4 á nýársdagsmorgun. Að lokum gat yfirlögreglu- þjónninn þess, að hvatningar og aðvörunarorð þau, er birt- ust í blöðum og útvarpi frá lögreglunni, hafi borið góðan árangur. WASHINGTON. — Hermála- ráðuneyti Bandaríkjanna hefir upplýst, að mjög hafi greiðst úr flutningi flugvjela yfir Norð ur-Atlantshafið, síðan reistar voru sc.k langbylgjustöðvar er tengja Bandaríkin við Ný- Fundnaland, Labrador, Græn- Jand, ísland og Stóra-Bretland. Stöðvarnar voru i-eistai- af The SignaL Corps of the F. S. Army. lljer ltirtist úrdráttur úr til kynningu ráðuneytisins: Þessar , nýju langbylgju- stöðvar tryggja útvarpssam- band allan sólarhringinn, sem truflanir í andrúmsloftinu eða segulstorniar hafa engin áhrif á, en þær geta aftur á móti truflað mjög samlmndið á, ifiilli stuttbylgjustöðva. Með þessu móti fær flugher Banda ríkjanna stöðugt útvarpssam- band, samband fæst á miLli yfirst jórna r I Sanda ríkjahers- ins og Stóra-Bretlands og enn fremur fæst samband til út- varða í Norðurheimskautinu. Er stöðvarnar voru reistar, varð að jcomast yfir margvís- lega erfiðleika. Á Islandi og Grænlandi varð að festa loft- netastangirnar í traust berg. Á Ný-Fundnalandi varð að reisa 55 metra turn í óskapleg um hvassviðrum og á annari heimskautalandsstbð varð að koma upp loftneti, sem á að standast vinda, er geta kom- ist alt að upp í 250 km. á klst. Það varö að gera sjer- staka vegi til þess að koma byrgðum og útbúgaði að stöðvunum. Við J>rjar heim- skautalandastöðvar varð að reisa Dieselstöðvar, sem fram- leiða rafmagn, allt frá 3 upp í 75 kílóvött. Mest allur útbúnaðurinn, var fluttur í flugvjelum til staðanna, en þó varð að flytja sumt af þungavörunni s.jóleið- is. Skipin fluttu einnig varaút- búnað fyrir hverja stöð, er einhvei'jar skemmdir skyldu verða á tæk.jum stöðvanna. Æflaði að stela reiðhjóli, en datl í skurð í GÆRKVÖLDI gerði bresk- ur sjóliði tilraun til að stela reiðhjóli í Aðalstræti. Ekki tókst sjóliðanum að komast lahgt, því yf-ir Aðal- stræti liggur skurður, og þar sem maðurinn var alldrukk-- inn hefir hann ekki tekið eft- ir honum. Hjólaði maðurinn ofan í skurðinn, en skömmu síð ar kom lögreglan og handtók hann. Mál þetta mun hafa verið af- hent herlögreglunni. Loftárás á Augusta. Þýska frjettastofan tilkynn- ir, að þýskar sprengjuflgvjel- ar hafi 1 nótt sem leið, gert árás á hafnarbæinn Augusta á Suður-Ítalíu, sökt þar skipi, skemt birgðaskemmur og hafn- argarða. —Reuter. Eldur á Hverfis- götu S9A í fyrradag kom uþp eldur á annari hæð hússins Hverf- isgötu 59A hjer í bæ. Þegar slökkviliðið kom á staðinn, var eldurinn orðinn all magnaður, en þrátt fyrir vask- lega framgöngu slökkviliðs- manna, tókst ekki að ráða nið- urlögum eldsins fyr en íbúðin og innbú Haraldar Eiríksson- ar, sem býf á hæðinni, hafði eyðilagst. Auk þess urðu mikl- ar skemdir á neðri hæð húss- ins. Eldsupptök eru talin vera þau, að synir Haraldar, er voru að leik inni í svefnher- bergi þeirra hjóna, hafi farið óvarlega með eld. Innbú Haraldar var vátrygt. Fasislar vaða uppi á Suður-Ítalíu London í gærkveldi. Þess hefir orðið vart, að enn sje allmikið um starfsemi fas- ista í hinum hernumdu hjer- uðum á Suður-Italíu, og herma fregnir, að komist hafi upp um leynistarfsemi þeirra í allstór-’ um stíl. Mála þeir tíðum slag- orð á veggi húsa, og segjast skulu koma aftur. Ennfremur reyna þeir á allar lundir að gera bandamenn tortryggilega í augum ítala, spyrja fólk, hvort „þetta sje nokkru betra en fasisminn” og fleira því líkt. Lánsutboðið: 7,5 milj. kr. skráðar í gær Síððsfi dagur í dag SÍÐASTI dagur lánsútboðs Landsbankans á lánum Sogs- virkjunarinnar og Rafmagns- veitu Reykjavíkur er í dag. Hefir lánsútboð þetta geng- ið mjög vel, I gær var búið að skrá 7.5 milj. af þessum lánum, Má það teljast mjög gott. Skýrði Landsbankinn blaðinu svo frá í gær, að þátttakan í þessu lánsútboði hafi verið miklu almennari en nokkru sinni áður. í dag eru síðustu forvöð að láta skrá sig sem þátttakendur í þessu láni. Eftir daginn í dag verða þeir, sem kaupa skulda- brjef, að greiða %% auka- gjald. Eldur í íbúðarhúsinu á Gunnarshólma í GÆRMORGUN kom upp eldur í íbúðarhúsi á Gunnars- hólma i Seltjarnarneshreppi. Var hringt á slökkvistöðina frá Lögbergi og beðið um að- stoð. Slökkviliðsstjóri sendi þegar einn dælubíl og 6 varðmenn þangað. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var mikill eldur á efri hæð hússins. Loguðu eldar út um glugga. auk þess hafði kviknað í þaki hússins. Vatn til slökkvistafsins var sótt í Hólmsá, og var slökkvi- starfið allt hið erfiðasta. Urðu slökkviliðsmennirnir fljótlega gegndrepa, en þar sem frost var mikið, um það bil 10 stig, frusu fötin utan á þeim, en þrátt fyr- ir þetta tókst fljótlega að slökkva eldinn, en skemdir urðu nokkrar, einkum í tveim herbergjum, eldhúsi og her- bergi inn af því. Á neðri hæð urðu ekki aðrar skemdir en af vatni. Eldsupptökin eru ókunn. Húsbruni á Eskiilrði AÐFARANÓTT 2. janúar kom upp eldur í húsi Lúthers Guðnasonar, kaupmanns á Eskifirði. Kom eldurinn upp í herbergi í framenda hússins, sem bæði er verslunar- og í- búðarhús, en búið var í út- endanum. — Fólkið varð elds- ins vart kl. 2 um nóttina og komst úr húsinu fáklætt. Her- bergið, sem eldurinn kom upp í, var þá alelda og reykur mik- ill í húsinu. Kallað var á slökkvilið kaup túnsins og tókst því að slökkva eldinn eftir klukkustundar' við ureign. y Skemdir á húsinu urðu mikl ar. Innbú þess skemdist mikið af eldi og vatni og vörur versl- unarinnar nokkuð, en meiri hluti þeirra mun þó óskemdur. Álitið er að kviknað hafi út frá rafmagni. .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.