Morgunblaðið - 05.01.1944, Page 7

Morgunblaðið - 05.01.1944, Page 7
Miðvikudagur 5. jauúar 1944 MORGUNBLAÐIÐ 7 HVERS VIRÐI ER HJÓNABANDIÐ FYRIR skömmu síðan var jeg stödd í samkvæmL Spurði þá frægur skáldsagnahöfundur mig að því, hvort hjónaskiln- aðir í Ameríku væru oftar sök eiginmannanna eða eiginkvenn anna. Rithöfundur þessi var kona, og skýrði jeg henni frá því, að samkvæmt athugunum mínum síðasta ' áratug væri sökin oftast hjá eiginmannin- um. „Ef eiginmaður veitti far- sæld hjónabands síns hálfa þá athygli, sem hann veitir at- vinnu sinni, þá er jeg viss um það, að hjónaskilnöðum myndi fækka verulega”. Hún varð hugsandi á svip. „Þetta hefir mjer ekki komið í hug. Ef til vill haíið þjer á rjettu að sjtanda”. Hvort sem jeg hefi á rjettu að standa eða ekki, þá gefa brjef, sem jeg hefi fengið bæoi frá körlum og komim til kynna að þegar karlmaður hefir tekið sjer konu, þá blátt áfram telur hann hjónaband sítt trygt æfi- langt. Honum kemur sjaldan í hug, að hann verði að fylgjast með æðaslögum þess, veita því næringu og við fyrstu hrörn- unarmerki réyna að finna ráð til þess að veita því heilbrigði á ný. Hagnýtið viðskiftaáðferðir yðar í heimilislífinu. ÞANNÍG fer hann einmitt að, þegar um atvinnurekstur hans er að ræða. Ef sölunni hrakar, ráðgast hann við versl unarfjelaga sinn. Sameiginlega léita þeir orsakanna. Ef keppi- nautarnir eru að verða þeim hættulegir, gera þeír fram- leiðslu sína enn gírnílegri. Ef þeir eru báðir ráðþrota, leita þeir ráða hjá sjerfræðingum. En þegar nýjabrumið hverf- ur af hjónabandi hans, og þannig er orðið ástatt um konu hans, að hún virðist einungis vera húsmóðir og eíginmaður- inn orðinn fullsaddur á heim- ilislífinu, þá telur hann það sjálfsagt, að öll hjónabönd reynist á þann hátt. Vegna hvers er eiginkona yðar ekki lengur annað en hús móðir? Hvers vegna talar hún nú ekki lengur um annað en börnin og heimilið, matarseðla og hátterni nágrannanna? Hvað er orðið af kátu og fjör- legu stúlkunni, sem þjer kvænt ust? Þjer getið fundið þessa slúlku ef þjer reynið til þess. Hringið i hana á morgun frá skrifstof- unni. Segið henni að fá ein- hvern til þess að líta eftir börn unum, hitta yður síðan niður í bæ og þar með yður morgun- verð. Þjer verðið að hafa dá- lítinn hátíðabrag á þessu. Far- ið með hana í skemtílegt mat- söluhús, biðjið um eftirlætis- rjetti hennar og farið síðan með hana í kvikmyndahús eða ein- hverja samkomu á eftir.Hjálp- ið henni til þess að gleyma því um stund, að hún sje f jölskyldu móðir, og gefið henni þannig tækifæri til þess að verða ung stúlka í annað sinn. Bjóðið einníg kunningjum yðar heim til miðdegisverðar. Kómið eiginkonu yðar aftur inn á braut lífs og gleði. Þjer EIGINMANNINUM? EFTIR ANNE HIRST Höfundur þessarar greinar hefir verið talin sjer- fræðingur í hjúskaparmálum, enda hafa skrif hennar þau efni jafnan vakið mikla eftirtekt. Ilafa þúsundir karla og kvenna leitað ráða hjá henni. Þótt greinin sje fyrst og fremst sniðin eftir amerískum staðháttum, er ekki ólíklegt, að mörgum hjer þyki hún þess virði, að lesa hana. munið komast að raun um það, að hún kann enn að umgang- ast gesti. Hún þarf einungis að fá fullvissu um aðdáun yðar og verða sannfærð um það, að hún hafi ekki enn glatað piltinum, sem hún giftist. Roðinn mun á ný færast í kinnar hennar, og þjer munið á ný heyra hlátur hennar, sem þjer elskuðuð svo mjög. Allar konur þrá að varðveita sem lengst æsku sína. ENGIN eiginkona tekur með glöðu geði því hlutskifti að vera einungis húsmóðir. En hún getur ekki ein varðveitt æskufjör sitt og eldmóð. Þeg- ar hún verður þumbaraleg við eiginmann sinn, kann orsökin að vera sú, að hann hafi verið þurr á manninn við hana. Þegar eiginkonan verður leiðinleg, skapast eiginmanni hennar ætið freisting til þess að veita laglegu andliti, sem fyrir aúgu ber, nánari athygli en áðúr. Hann meinar í raun- inni ekkert með þessu, en hon- um leiðist. Síðasti staðurinn, sem hann leitaði gleðinnar á, myndi verða hans eigið heim- ili, en svo kynni að fara, að hann yrði undrandi, ef hann beindi geislandi augnaráði sínu til eiginkonu sinnar. Þetta á ,sjer auðvitað stað á báða bóga. Mörg eiginkonan, sem hefir sjeð slíkt leiftur í augum annars manns, myndi aldrei endurgjalda það, ef hún væri sannfærð um ást eigin- manns síns. En ef þessi eigin- maður er alveg grafinn í starfi sínu, og ef hann skoðar hana einungis gæslumann bús og barna, þá er vart hægt að ásaka han'a, þótt henni kunni að hitna um hjartaræturnar við augnatillit óviðkomandi manns. Hún þráir að varðveita æsku sína og yndisþokka, og aðdá- un karlmanns mun framar öllu öðru styðja hana í þessari við- leitni sinni. Ef eiginkona yðar er þannig skapi farin, þá er hjónaband yðar orðið sjúkt — og þjer er- uð eini maðurinn, sem getið læknað það. Samkvæmt brjefum þeim, er mjer hafa borist í hendur, er ágreiningur við tengdafólk sá þriðji í röð skilnaðarástæðn- anna. Þegar þannig er ástatt, er það oftast rrióðir eiginmanns- ins, sem stormsveipurinn myndast í kringum. Ef til vill er orsökin sú, að mæður virð- ast fastheldnari á syni sína en dætur. Hún hefir að vísu áð- ur gert sjer það ljóst, að sá dagur muni koma, er hann kvænist, enda vonar hún, að syo verði, og stúlkart verði þannig úr garði gerð, að hún geti fengið ást á henni. En þegar stundin kemur, og hann fer að heiman, reynist margri móður það örðugt að eiga son sinn með öðrum. Eiginmaðurinn verður að vera sáttasemjari. MAÐIJR, sem þannig er deilt um af tveimur konum, er hann elskar heitast í lífinu, á við ömurlegt hlutskifti að búa. — Hann veit, að þær geta báðar rúmast í .hjarta hans — en vita þær það? Þegar fyrst verður ágreinings vart þeirra milli, hefir hann oft tilhneigingu til þess að draga sig í hlje með vanþóknun og láta konurnar sjálfar um að útkljá málið. — Arangurinn verður að sjálf- sögðu sá, að ekki reynist auð- ið að skapa neinn varanlegan frið á heimilinu. Þegar málum er þann veg háttað. getur eiginmaðurinn lagt lagt fram drjúpan skerf til þess að varðveita heimilis- friðinn. Hann getur fullvissað konu sína um það, að hann skilji fyllilega tilfinningar hennar og hafi samúð með henni. Jafnvel þótt móðir#hans geti ekki gert neitt rangt .í hans augum, getur hann þó reynt að skoða málið frá sjónarmiði konu sinnar og styrkt hana með umburðarlyndi og alúð. — En ef hann víkur af hólminum með svipbrigði, sem segja: „Geturðu ekki komið sómasam lega fram við móður mína”, þá eru miklir erfiðleikar fram- undan fyrir þau öll. Fyrst mun eiginkonan og síð an móðirin krefjast hollustu hans. Hann getur hæglega verið báðum trúr og veitt þeim báðum samúð sína, án þess að láta sig nokkru varða „rjett- indi” þeirra. Hann getur leyft sjer að láta ágreiningesefnin sem vind um eyru þjóta eins og honum kæmu þau ekki við. Tvímæla- laust varða þau hann miklu og kerfjast þess, að hann beiti allri sinni þolinmæði við úr- lausn þeirra. Mörg góð eiginkona revnii að leysa vandamálið upp á eigin spítur, en henni mun auðnast fyj að finna lausnina, ef hún veit, sig hafa samúð eiginmanns síns. Maður reynir að velja sjer verslunarfjelaga, sem hefir tii að bera álíka gáfur og reynslu og hann sjálfur, svo að þeir geti að minsta kosti vænst góðs árangurs af samvinnunni. Eig- inkonan er ekki síður fjelagi. Eiginmaðurinn verður að sýna henni sama trúnaðar- traust og manni þeim, sem veitir honum aðstoð í atvinnu- rekstri hans. Hún hefir rjett til þess að vita hverjar tekjur hans eru og rjett til þess að hafa hönd í bagga. þegar á- kveðið er, hvernig þeim skuli varið. Hvernig á að fá eiginkonuna til þess að spara? EF eiginmaðurinn fær konu sinni peninga með aðvöruninni „Eyddu þeim ekki öllum”, hvernig getur hann þá vænst þess, að hún verji peningunum með hagsýni? Sparsöm kona er hverjum manni mikil bless- un, og ef hann umgengst hana sem jafninga sinn á hverju því sviði og ræðir við fjárhaginn við hana, þá mun hún setja allt sitt í það, að tekjur hans verði sem drjúgastar. Myndu peningarnar þannig áreiðan- lega reynast mun drjúgari en ef með hana væri fario sem tíu ára barn, en þó talin ábyrg fyrir fje því, er gengi til heim- ilisins. Flestum eiginkonum er það mikil ánægja að spara með leynd nokkuru fje og vekja að dáun eiginmannsins á hugvits- semi þeirra. En er eiginmað- urinn telur henni fje í lófa eins og hverjum öðrum skrifstofu- manni með nákvæmum fyrir- sögnum um það. hvernig því skuli varið, finnur hún til eðli legrar gremju, sem getur var- að árum saman áður en éig- inmaðurinn kemst ao raun um órsökina. Eftir því sem jeg get ráðið af athugunum mínum, virðast flestir eiginmenn gleðjast yfir því að losna við alt váfstur við ráðstafanir fjár til heimilis- þarfarina, eftir að þeir einu sinni hafa varpað ábyrgðinni á herðar eiginkonu sinni. Ef þeim bara er treyst, þá bjarga þær sjer. Uppeldi barnanna. HAMINGJUSÖMUSTU heim- ilin eru þau, þar sem faðirinn lætur sjer eins ant um uppeldi barnanna og móðirin. Það er ekki nóg að segja: „Jeg er önnum kafinn. Þetta er hennar starf“. Börnin eru synir yðar eða dætur, og er þau vaxa, viljið þjer geta orðið stöltur af þeim. Þjer getið ekki vænst þess stolts, ef þjer hafið aldrei hald ið þeim í faðmi yðar á bernsku árunum og vakið hjá þeim þá tilfinningu, að pabbi sje fje- lagi þeirra, reioubúinn til þess að leggja frá sjer blað eða bók til bess að hlusta á alt það, er gerðist í skólanum í dag. Þau vilja eiga pabba, sem skilur, hversu mikilvæg þeirra smá- vandamál eru og vill ræða um þau við þau. Sjerhvert barn þarfnast beggja foreldra sinna. Dreng- urinn þarfnast föður síns svo að hann verði ekki „mömmu- drengur”. Hann þarfnast fje- lagsskapar hans sem karl- manns til þess að geta þroskað karlmannseiginleika sina. — Hann þarfnast hans til þess að róa með sjer út á sjó eða til þess að fara með sjer á knatt- spyrnukappleik. Faðir, sem aldrei hefir veitt syni sínum slíkar stundir til þess að minn- ast, getur ekki vænst þess, að drengurinn snúi sjer til hans með hin stærri vandamál ung- lingsáranna, sem svo oft verða hinum vaxandi æskumanni fjötur um fót. Iivern mann langar til þess að vera hetja í augum sonar síns. Flestir geta líka orðið það — ef þeir leggja nógu milrf-a alúð við það. Þjer munið ekki öðlast þá aðdáun með hvatvís- legum refsingum, eða með því að þylja yfir syni yðar af yf- irburðavisku yðar. Aðdáunina munið þjer því aðeins öðlast, að þjer hafið átt sameiginlegar stundir með hans unga huga, og þannig blásið honum í brjóst þá virðingu, sem skap- ast af gagnkvæmum skilningi. Barn þarfnast engu síður ör- yggis fyrir tilfinningar sínar . en íjárhagslegs öryggis. Ef það vex upp á heimili þar sem það getur treyst á skilning og um- . burðarlyndi, þar sem faðir ! þess og móðir eru þess bestu vinir, þar sem rjettlætið er ! blandið ást — þá er slíkt heim- . ili ómetanleg byrjun á lífs- brautinni. Þetta er einnig hlutverk föð- ur hans. Engin kona, hversu kappsöm og ástúðleg sem hun er, getur skapað slíkt heimili án samstarfs við höfuð heimil- isins. Til hans lítur hún sem öruggs og einlægs samherja. Hún þráir einnig að finna í eiginmanni sínum þann ást- ríka elshuga, sem hún giftist. Sundurlyndi og jafnvel skiln- aður, hefir oft átt rætur sínar að rekja til skeytingarleysis eiginmannsins um að sýna konu sinni að ást hans væri enn vak andi. Það er ekki heiðarlegt að giftast stúlku, f'á henni heim- ili til umsjónar, eiga með henni eitt eða tvö börn til þess að hún hafi nóg að starfa, og telja, að þá sje skyldurnar upp fyltar. Það er á sama hátt með hjúskápinn og annan fjelags- skap, að hann hvorki hepnast eða fer út um þúfur af sjálfu sjer. Hann þarf til þess virka aðstoð. Þegar jeg íhuga með rjett- sýni þær þúsundir vandamála, sem mjer hafa borist frá les- endum mínum víðsvegar að, get jeg ekki annað en komist að þeirri niðurstöðu, að marg- ur ráðþrota eiginmaðurinn finnur hjónaband sitt vera að fara í mola vegna þess eins, að hann ájbit hjúskaparvexnd- Framh. á bls. 10.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.