Morgunblaðið - 06.01.1944, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.01.1944, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLASIÐ Fimtudagur 6. janúar 1944, Góðtemplarareglan d íslandi 60 dra (ÍOODTEMPLAEA IiEGL- AN á íslancli á sextugsafmæli 10. þ. in. — Fyrsta stúkan hjerlendis var stofnuð 10. jan. 1884, stúkan ,,ísafolcV‘ nr. 1. 1 tilefni aí' afmælinu bauð framkvæmdanefnd Stórstúku Islands blaðamiintunií á fund sinn í gær. Stórtemplar, Krist- inn Stefánsson, skýrði í stór- um dráttum frá starfi og þró- tui reglunnar þessi sextíu ár. Stofnandi stúkunnar „Isa- fold“ var Norðmaður að nafni Ole Liecl, og' var stúkan stofn- iið frá Noregi. Lied hafði geng ið í regluna í heimalandi sínu. Stófnendur þessarar fyrstu stúku voru 12, þar af 4 Norð menn. Af íslensku stofnend- unum má m. a. nefna Frið- björa Steinsson, en það var í húsi lians, sem ísafold var stofnuð og Ásgpir Sigurðsson, síðar konsúll, sem var íyrsti umboðsmaður Ilástúkunnar hjer á landi. — Á fyrsta starfs árinu vann reglan talsveiða ’úthreiðslu norðan- og vestan lands, einkum við Eyjafjörð og lsafjarðardjúp. Björn Páls- son, ljósmyndari á Akureyri, sem var einn af stofnendum Isafoldar fór regluboðunarferð til Reykjavíkur 1885 og stofn- aði þar stúkuna Verðandi nr. 9. Aðeins einn af stofnendum liennar er irú lifandi, Sveinn Jónsson, trjesmíðameistari, en Iiann flutti regluna til Vest- mannaeyja. Þá voru stofnaðar lijeðan úr Reykjavík ýmsar stúkur sunnanlands og gekk ólafur Rosenkranz vel fram í því. Stórstúka íslands var stofn- nð á Jónsmessu 188G, en þang að til var reglan hjer undir Stórstúku Noregs. Fulltrúar á jþessu fyrsta Stórstúkuþingi voru 17 frá 14 stúkum, en templarar munu þá hafa verið ium 550. — Fyrsti stórtemplar var Björn Pálsson, ljósmynd- ari. — Fyrsta barnastúkan var stofnuð snemma á árinu 1886. Fjelagatala reglunnar var incst 1928, eða riimlega 11000, en fækkaði þá óðnm í nokkur ár þar til 1935. Nú er fjelaga- tala komin á tíunda þúsund. Reglan starfar í afarmörg nm deildum unclir yfirstjórn Stórstúkunnar. Höfuðdeildirnar tvær eru Unglingareglan fyrir hörn og mnglinga, og regla fullorðinna. Hver af þessum höfuðdeild um skiftast j, fjölda margar Regian hefur unnið merkileg menningarstörf undirstúkur og barnastúkur, sem hver um sig er sjálfstæð starfsdeild. Nú eru starfandi í landinu 53 undirstúkur, uuf 60 barnastúkur og Umdæmis stúka er fyrir livern lands fjórðung með sjerstökum framkvæmdanefnduin. Iþga þær að sjá um samstarf og framkvæmdir, hver í sínu um dæmi. Til þess að efla samstarf stúknanna á þrengri svæðum, hefur umdæmunum að nokkru verið skift niður í Þinghár. í hverri Þinghá starfar ein Þingstúka. Umdæmaskifting unni var komið á hjer á landi um síðustu aldamót. En Þing hárskiftingin er frá síðustu árum og hefur ennþá ekki verið komið á nema á þeim stöðum, sem hagkvæmt hefur þótt. Útgáfa blaða og bóka. Af blöðum, sem reglan hef ur stutt og gefið út, má ricfna Ileimilisblaðið, sem . Björn Jónsson, síðar ráðherra, gaf út, ísl. Goodteraplgr, Good temlarinn, Templar, 8ókn og nú síðast Eining í sambandi við SP.S, ISl. og UMFÍ. Fjöldamörg smárit um hind- indismál og nokkrar hækur 1 hefur reglan einnig gefið út. Kunnast áf því er óefað barna blaðið Æskan, sem um fjölda mörg ár hefur notið mikilla vinsælda og útlireiðslu um allt land. A forlagi Æskunnar hafa einnig koitiið út allmarg- ar unglingabækur, bæði frum- samdar eftir ísl. höfunda og þýddar. Ilefur þessi útgáfa unnið sjer vinsældar almenn- ings. Starfsemi reglunnar. Aðalstarfsemi reglunnar hefir að sjálfsögðu snúist í }»á átt að útrýma áfengis- neyslu í landinu, en reglan hefir unnið að mörgum öðr- um menningar- og þjóðfjc- lagsmálum. Hjer skulu tekin nokkur dæmi: Leikfjelag Reykjavíkur er stofnað af temjilurum 1897, BEST AÐ AUGLÝSA 1 MORGUNBLAÐINU TAFLMENN úr gerfi beini (Plastic) á aðeins 13 krónur. Sportvöruhús Reykjavíkur. Sjúkrasamlag Rcykjavíkur er stofnað fyrir áhhrif frþ templ- urum og af þeim, fyrsti vísir að fjelagsbundinni íþróttastarf semi, er skapaði Glímufjelagið Ármann, átti þar einnig upp- tök sín. Þá er það Samverjinn, fjelag stofnað til matgjafa fá- tækmn börnum hjer í hæ. Út frá því íjelagi er Ellihheimilið Grund stofnað og eiga templ- arar eingöngu sæti í stjórn þess, Dýraverndunarfjelag Is- lands, er runnið undan þeirra rif j urn, Alþýð ulest rarfj ela g Reykjavíkur, er kom á fót Al- þýðubókasafninu, sem nú heit- ir Bæjarbókasafnið. Ilúsbyggingarmál hefir regl an látið sjer miklu skifta. Það mátti heita svo, að hvergi hjer á landi væri til fundahús. Regl an hefir reist samkomuhús í öllum kaupstöðum laudsins og nrörgum kauptúnum. Á sum- um stöðum eru þau hús emi einu funda- og samkomuhúsin. Þá hafa verið starfandi inn- an reglunnar sjúkrasjóðir, söngflokkar og námsflokka- starfsemi. — Þá hefir reglan haft mikil áhrif á lagasetning ar er varða bindindismál. Af aðalframkvæmdum regl- unnar síðustu árin má nefna Gesta- og Sjómannaheimilið á Siglufirði, sem hlýtur vaxandi vinsældir að verðl§ikum, land- námið að Jaðri, Ilressingar- hælið í Kumbaravogi og síð- ast upplýsingarstöð um bind- indismál. 60 ára afmælið. Iíátíðahöld fara fram u/ allt land í tilefni 60 ára af- mælisins. Aðalhátíðahöldin hjer í Reykjavík fara fram á sunnudaginn 9. þ. m. — Templ arar munu safnast saman við Goodtemplarahúsið snemma um morguninn og ganga í skrúðfylkingu nokkuð um bæinn að Fríkirkjunni, en þar verður hlýtt á messu, sem Árni Sigurðsson flytur. Verð- ur messunni útvarpað. Lúðra- sveit leikur á Austurvelli kl. 1,30 e. h., en kl. 2 flytur Ein- ar Arnórsson, ráðherra, ræðu af svölum Alþingishússins og verður henni útvarpað. Ivl. 4 verður fundur í Stórstúkunni. Kl. 8,30 verður svo samkoma í Listamannaskálanum. Enn- fremur verður uin kvöldið samkoma fyrir templara í Goodtemplarahúsinu. Á mánudaginn verður hátíð arfundur í Goodtemplarahús- 3nu. Árni Óla, hlaðamaður, flyt' jur þann dag ræðu í útvarpssaF FTamhald á bls. 12. Nátturulækninga- fjelag íslands 5 ára Ætlar ú koma upp matstofu Náttúrulækningafjelag ís- lands verður 5 ára í þessum mánuði. í tilefni afmælisins bauð Jón as Kristjánsson, læknir og for- maður fjelagsins, frjettaritur- um blaða og útvarps til fundar við sig í gær. Ávarpaði lækn- irinn blaðamenn og fer hjer á eftir útdráttur úr erindi hans: „Þrátt fyrir aukna þekkingu og framfarir í skurðlækningum og lyfjafræði, fleiri og stærri sjúkrahús, aukinn þrifnað, þæg indi og fund vítamína, aukast ýmiskonar hrörnunarsjúkdóm- ar, svo sem sykursýki, maga- sár, botlangabólga og aðrir meltingarkvillar, krabbamein, taugabilun og sálsýki, og tekst lítt að ráða bót á þeim með hinum venjulegu aðferðum. Náttúrulækningastefna vill leita uppi orsakir sjúkdóm- anna. Með því að útrýma þeim, hverfa sjúkdómseinkennin af sjálfu sjer, og það er hin eina sanna og varanlega lækning. En auk þess leggur náttúru - lækningastefnan fyrst og frcmst áherslu á heilsuvernd, það, að koma í veg fyrir sjúk- dóma. Takmark hennar er full- komin heilbrigði allra manna. Líkami mannsins er nokkurs konar sjálfhreinsivjel. En of- neysla allskonar gervifæðu — en til þess má telja sykur, hvítt hveiti, fáguð hrísgrjón, sa-gó, súkkulaði o. fl. — veldur óeðii- legri kyrrstöðu í meltingarfær- unum og efnaskiftum líkam- ans, og auk þess verður starfi hreinsunartækja líkamans á- fátt, og af þessu leiðir, að mik- ið af afgangsefnum, sem mörg eru sterk eiturefni, safnast fyr ir í blóðinu og hvarvetna í lík- amanum. Þetta er ein helsta orsok sjúkdóma. Ef hægt er að halda líkamanum hreinum inn vortis, þá er heilsunni borgið. Lækningaaðferðir náttúru- lækna eru fyrst og fremst fólgnar í því, að leiðbeina fólki um mataræði. I annan stað 'eru notaðar ýmsar aðferðir, til þess að herða og stæla líkamann og hreinsa hann ytra og innra. Má þar til nefna gufuþöð, vatns- böð, bæði heit og köld, loft- böð, ljósböð, sólböð, burstun húðar og mikla hreyfingu. En alt þetta miðar að því að skapa nýjan og hraustan og betri mann. Sum af þessum ráðum eru alment viðurkend og mik- ií' notuð, svo sem ljós- og sól- böð. Hinsvegar er t. d. loft- böðum ■— viðrun líkamans í hreinu og fersku lofti ekki gef inn sá gaumur sem skyldi. Og h’eit vatnsböð — svitaböð —• eru nýjung í læknisfræði hjer á landi. Sjúklingurinn er látinn liggja í heitu vatni — eins heitu og honum þykir þægilegt — um stund, uns hann svitnar vel, vafinn síðan í teppi, og þar heldur svitastarfsemin áfram. Líkamshitinn hækkar upp í 38—9 stig <eða meir. Þetta ýtir við hinu syfjaða og hrörnandi lífsafli. Hjartað slær örar. Hreyfing allra vessa og vökva líkamans verður örari, og hreinsunartækin, lungu, húð, nýru og' þarmar starfa með nýjum þrótti. Með þessu er hafið nýtt endurbótastarf í lík amanum, sem ásamt neyslu lifandi fæðu, hófsemi í mat og drykk og öðrum hollum lifn- aðarháttum endurlífgar og magnar lækningakraft líkam- ans sjálfs. En um alt þetta er sjálfsagt að fara eftir leiðbein- ingum lækna, ekki síst varð- andi heitu böðin. Það er hæp- ið, að menn geri það rjett upp á eigið eindæmi, og getur jafn- vel hlotist verra af. Svitaböðin eru ein öflugasta lækningaaðferð, sem náttúru- læknar hafa yfir að ráða. Enda eru þau notuð á náttúrulækn- ingaheilsuhælum erlendis, svo sem í Þýskalandi, Sviss, Banda ríkjunum og víðar. Svitinn. rennur ~í stríðum straumum, eins og marka má af því, að menn ljettast stundum um 2—3 pund í einu baði. Með svitan- um hreinsast út úr líkamanum ógrynnin af skaðlegum úrgangs efnum, svo að vart er hægt að hugsa sjer betri innvortis hreins unaraðferð. Sjerstaklega reyn- ast þessi böð vel við hverskon- ar gigtarsjúkdómum, eksemi o. fl. húðsjúkdómum, ristilbólgu, offitu o. fl., en þó því aðeins næst fullur árangur, að sjúkling urinn breyti mataræði sínu jafnframt á viðeigandi hátt. Fimm ára reynsla hjer af þessum böðum bendir ótvírætt til þess, að mikils er af þeira að vænta hjer. Þó hafa hing- að til hlutfallslega fáir sjúk- lingar getað notið þeirra, vegna þröngra húsakynna. En nú hefir læknirirfn flutt í nýtt húsnæði, þar sem hann getur boðið sjúklingum sínum upp á meiri þægindi og fljótari af- greiðslu en áður. Þetta er fyrsta „baðstofan” af þessu tagi hjer á landi. En til þess að hún nái tilgangi sínum, þyrfti að vera matstofa í sambandi við hana, þar sem sjúklingar gætu fengið þann mat, sem læknir- inn ráðleggur þeim. Nú hefig Náttúrulækningafjelag íslands mikinn hug á að koma upp slíkri matstofu, og má segja, að ekki standi á öðru til þess ep hentugu húsnæði. Þetta tvent, lækningastarf- semi og matsala Náttúrulækn- ingafjelagsins, þegar hún kemst upp, verður sýnishorií og undirbúningur að rekstri heilsuhælis þess, sem er eitt stærsta framtíðarmál fjelags- ins og nú er verið að safna ija til”. Jónas Kristjánsson hefir, flutt lækningastofu sína á Gunnarsbraut 28. Er það nýtt hús. Á neðri hæð hússins eru lækningastofa, bað- og hvíld- arherbergi og biðstofa. í bað- Frli. á 4. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.