Morgunblaðið - 06.01.1944, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.01.1944, Blaðsíða 5
rimtudag'ur 6. janúar 1944. MORGUNBLAÐIÐ 5 JJf óncibcm J uí cir er vinnct HJÓNABAND yðar getur orðið happdrætti, kaupsamn- ingur, barátta eða ástaræfin- týri, alt eftir því, hvernig skap- gerð yðar er. En ef hjónabandið á að hepn ast vel, verður fyrst og fremst að líta á það sem vinnu. Ef til vill er það vegna þess, að svo margir gleyma því, að eins mörg hjónabönd fara út um þúfur og raun ber vitni. Ef við lítum á hjónabandið sem vinnu, þá kemur til greina: I fyrsta lagi: Enginn ætlast til þess, t. d. á skrifstofunni, að nýliðinn jafnist á við þann, sem þar hefir starfað í mörg ár, eða verði leikinn í starfinu strax. Mörg ung húsfreyjan verður fyrir sárum vonbrigðum, gefur nærri því upp alla von, ef alt leikur ekki í lyndi og heimilis- störfin ganga ekki eins og í sögu strax. Hjónabandið er mjög flókið, og jafnframt skemtilegt vanda- mál. Það er gátan, sem mörg- um tekst aldrei að leysa, en öðrum strax. Hamingjusöm hjón eru yfirleitt þau, sem gera sjer fulla grein fyrir, hversu mikil og stöðug vinna liggur á bak við það, að öðlast fullkom- ’ ið traust og ást annars ein- staklings. Þau eru með allan hugann við það og öflun dag- legs brauðs, og verður því lít- ill tími til þess að lenda í ást- aræfintýrum utan hjónabapds- ins. í öðrtt lagi: Sje hjónabandið skoðað sem vinna, verður að læra þá vinnu, sem alla aðra. Við verðum að reyna að taka framförum í starfinu, ef við ekki viljum missa það. Húsbónd inn getur ef til vill ekki rekið okkur úr vistinni fyrirvara- laust, heldur verður að sitja með okkur, hvort sem honum er það ljúft eða leitt. En hjóna- bandinu er hægt að tapa fyrir því, hvort sem húsbóndinn yf- irgefur heimilið eða dvelur þar áfram. Húsfreyja ein, ung og nýgift, neitaði að þiggja aðstoð við heimilisstörfin fyrstu sex mán- uðina, sem hún var gift, enda þótt hún hefði vel ráð á því og ætti kost á hjálp. Hún sagði, að engin húsmóðir væri fær um að skipa fyrir um heimilisstörf, fyrr en hún kynni þau sjálf upp á sína tíu fingur, og var það rrijög svo skynsamlega mælt. I þriðja lagi: Enginn ræður sig í fasta atvinnu, nema hann hafi athugað gaumgæfilega öll vinnuskilyrði fyrirfram. Þúsundir kvenna og karla giftast, án þess að hafa hug- mynd um þær skyldur, bæði við maka sinn og þjóðfjelagið, sem hjónabandinu fylgja. Ast- in er blind, segja sumir, og hvað svo sem til kann að vera í því,. er það víst, að maður, sem er ástfanginn, getur auð- veldlega talið sjer trú um, í fyrstu ástarvímunni a. m. k., að stúlkan sín sje fullkomin vera, og með henni verði lífið ein paradísarsæla. Og viti menn! Þau giftast og hafast við í sjöunda himni í nokkra mán- uði, en þá falla þau skyndilega niður á jörðina aftur. Þá upp- götvar hann, sjer til mikillar undrunar, að hún er alt öðru vísi en hann hjelt. Hún vill þetta, hann vill hitt, og svo ríf- ast þau. Ef þjer eruð trúlofuð, hafið þjer þá athugað, hvort unnust- inn vill lifa sama lífinu og þjer, hefir sömu lífsskoðanir eða svipuð áhugamál, sömu skoð- anir t. d. í peningamálum, og hvort þið getið yfirleitt átt nokkra samleið í lífinu? Ef þjer hafið ekki athugað þetta, - þá gerið það sem fljótast, því að annars getur hjónabandið orð- ið einn harmleikur, jafnvel þótt ykkur þyki vænt hvoru um annað. í fjórða lagi: Ef hjónabandið er vinna, já, þá er um að gera að VINNA. Margar stúlkur ala þá von í brjósti, ef til vill án þess að gera sjer fyllilega grein fyrir því sjálfar, að með því að ganga í heilagt hjónaband, geti þær sest í helgan stein og haft það gott. En það er sjaldgæft, að svo sje, jafnvel þótt þær hafi krækt sjer í vellríkan stríðs- gróðamann. Því fylgja ef til vill minni gólfþvottar, en það er stöðugt ætlast til þess, að þær taki sig vel út, og það er ef til Hvítur minkapels Hjer sjáið þið fyrsta liyíta minka pelsinn* sem framleiddur hefir verið í öllum heiminum. vill ennþá meira þreytandi en gólfþvottarnir. I fimta lagi: Gerum enn ráð fyrir, að hjónabandsvinna yðar sje venjuleg skrifstofuvinna. Þjer munduð án efa vera kurt- eis, svo að maður ekki segi elskuleg við kunningja og vini samstarfsmanna yðar. Margar konur reyna að fá húsbændur sína til þess að slíta öllu sambandi við gamla kunn- ingja og vini. Ekki svo að skilja að karlmennirnir geri þetta ekki líka. Það er aðeins sjald- gæfara. Þetta er eigingirni á hæsta stigi. Það er hreint eng- inn, sem ætlast til þess, að þjer hafið brennandi áhuga á öllu, er við kemur manni yðar, æsku hans og leikbræðrum, ættingj- um og vinum. En þjer gætuð a. m. k. sýnt svo mikla háttvísi, að láta þá afskiftalausa, ef þjer ekki getið verið vinsamleg við þá. Ef þjer revnið að koma því inn hjá manni yðar, að ættingjar hans og fjelagar sjeu í rauninni ekki merkilegt fólk, standið þjer ekki vel í stöðu yðar. Þjer get- ið ekki minkað álit hans á þeim án þess að honum komi í hug, að hann sje nú, ef til v’i'll, ekkí mikils virði heldur. I sjötta lagi: Þjer vitið, að við hvað sem þjer starfið, fer sam- komulagið við samstarfsmenn- ina eftir því, hversu góð sjálf- stjórn yðar er. Þjer stökkvið ekki upp á nef yðar út af smá- munum við þá, cða eruð stöð- ugt að kvarta og kveina vfir öllum þeim erfiðleikum, sem þjer hafið við að stríða. Eða ef þjer gerðuð það, fengjuð þjer brátt kuldalegan kærulevsis- svip í stað meðaumkvunar. En það er oft svo, að hjón i;ta á það sem sjálfsagðan nlut að kvarta yfir öllum sköpuðum hlutum hvort við annað. Ein frumundirstaða hjóna- bandsins er traustið, að geta treyst hvort öðru, þegar erf:ð- leikarnir koma. En það er ekki hægt, ef hjónin nota hvort ann- að sem nokkurs konar rusla- kistu og henda þar í öllum smá sorgum og skaupraunum dag- lega líísins. Og í síðasta Iagi: Sumar þær konur, er gengið hafa í heilagt hjónaband, ætla það hlutverk sitt að reyna að hafa bætandi áhrif á menn sína og laga þá til eftir sínu eigin höfði. Það er vitanlega göfug hugsun að reyna að hafa bætandi áhrif á einhvern. Það er aðeins ekki sama hvernig farið er að því. Konan vinnur manni sínum mest gagn með því að reyna að finna fyrst út, hvað í hon- um býr, hverjir sjeu hæfileik- ar hans og hvað hann vilji helst verða, m. ö. o., reyna að skilja hann. Hvetja hann áfram og sýna honum* að hún treysti hon um til þess að ná settu marki. yera, full sainúðar og skilnings, ef gitthvað mistekst eða blæs á mótí. Vandasamt að velja sjer skó Svona líta nýtísku skór út. ÞAÐ er margt sem kemur til greina, þegar valdir eru skór. Fyrst og fremst er að sjá um að skórnir sjeu ekki of litlir, því að ekkert fer eins illa með fæturna og of litlir skór. Einn- ig er vont fyrir fótinn ef lagið á skónum á ekki vel við hann. Þá er að reyna að velja þá * * skóna, sem sterkastir eru, og því er ekki hyggilegt að horfa of mikið í skildinginn. þegar keyptir eru skór, þvi það ef oft svo, að því ódýrari sem skórn ir eru, því ónýtari eru þeir. — Og þegar á allt er litið er sparn aðurinn meiri við að kaupa vandaða og dýra skó, og þurfa sjaldnar að fá sjer skó, heldur en kaupa-ódýra skó, sem verða ónýtir þegar þeir hafa verið notaðir nokkrum sinnum. Þá er ekki sama á hvaða tíma dags við veljum okkur skó. Við eigum ekki að velja þá á morgn anna, heldur seinni hluta dags, helSt þegar við höfum gengið mikið, vegna þess að fæturnir þrútna oftast er á daginn líður. NU. eru alpahúfurnar aftur komnar í tísku. Er það Montgo- mery, hinn sigursæli breski herforingi, er hefir skapað þá tísku með því að nota hana alt- af. — Stúlkumar taka þessari tísku fegins hendí, því að alpa- húfan er mjög handhægt og ó- dýrt höfuðfat, og það má láta hana á ótal vegu á höfuðið og hún fer vel við hvaða andlit seip e?. Alpahúfurnar eru_mest notaðar kollstórar. Húsráð Að hengja upp myndir. Til þess að naglinn, sera myndin ér hengd á, komi að fullum notnm, þarf hann a8 vera vel fastur í. Xaglann má festa l>annig: Pyrst er hann rekinn inn í vegginn, þannig, að hæfilega stóit gat myndast. Svo er hann dreginn út aftur, dálitlu af vatt-i vafið utan ura hann og dýft síðan niður í lím. Þá er hann rekinn í vegg- inn á ný, og á nú að tolla vel „The American Scandinavian Review“ heíir um langt skeið flutt hinum enskumælandi heimi margvíslegan fróðleik um Norðurlönd, sögu þeirra og menningu, og túlkað úrvalsbók mentir þeirra í Ijóðum og lausu máli í enskum þvðingum. í síðasta heffi þessa tímarits er skemtileg grein um. íslenskar konur, „The Women of Ice- land“. Þar er lýst rjettindum þeirra að fornu og nýju og hlutdeild þeirra í íslenskri menningu og starfslífi þjóðar- innar. Greininni fylgja mypdir af Kvennaskólanum í Reykja- vík og ýmsum konum í íslensk um þjóðbúningi: Ríkisstjórafrú Georgíu Björnsson, Huldu og Jakobínu Johnson skáldkonum, Stefaníu Guðmundsdóttur leik- konu, Maríu Markan óperusöng konu og sendiherrafrú Agústa , Thors.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.