Morgunblaðið - 16.02.1944, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.02.1944, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 16. febrúar 1944 Jón Guðmundsson bóndi í Ljárskógum HINN 25. f. m. andaðist Jón Guðmundsson bóndi í Ljár- skógum í Laxárdal i Dalasýslu. Verður hann jarðsunginn_ í dag. Gamall maður, úr öðru hjer- aði, nefndi Guðmund sál., föð- ur Jóns, jafnan „bændaöðling- inn“, og mintist hans til dauða- dags, vegna frámkomu hans við bróður sinn sjúkan. Eplið fjell ekki langt frá eik- inni þar sem Jón var._Er nú hins nýlátna bændaöðlings í Ljárskógum með þakklæti minst, eigi aðeins meðal sveit- unga og samsýslunga, heldur og meðal allra þeirra mörgu, er notið hafa gestrisni þeirra Ljárskógahjóna fyr og síðar. Jón Guðmundsson fæddist í Ljárskógum 7. maí 1870. Fað- ir hans var Guðmundur bóndi í Ljárskógum Guðmundsson, bónda á Valþúfu á Fellsströnd, Guðmundssonar Jónssonar bónda í Hvammsdal í Saurbæ. Móðir Jóns, kona Guðmundar í Ljárskógum, var Sólveig Jónsdóttir bónda i Ljárskógum Bergþórssonar bónda í Ljár- skógum Þórðarsonar frá Vörðu felli á Skógarströnd. Flutti Bergþór að Ljárskóg- um í Móðuharðindunum 1783, og hafa ættmenn Jóns því búið í Ljárskógum í full 160 ár sam fleytt. Þeim Guðmundi og Sólveigu Ljárskógahjónum, varð 13 barna auðið og var Jón yngstur þeirra. Lifir nú aðeins eitt þeirra systkina, frú Guðríður Guðmundsdóttir, Leifsgötu 32, i Reykjavík. í LAXÁRDAL er ilmur úr kvisti og góðir landkostir. En víða þykir þar þó frekar harð- býlt. Engjar óvíða miklar* en vetrarríki nokkurt. Munu þar og sjaldan hafa búið miklir auðmenn, en jafnan farsæll búskapur. Var það haft eftir Riis gamla kaupmanni á Borðeyri, að fáir væru meiri skilamenn en Lax- dælingar, enda lögðu þeir kapp á að vera sjálfstæðir menn. — Var gömlum verslunarmanni á Borðeyri það minnisstætt, að þegar bændur tóku aftur að geta heyjað vel, eftir harðinda kaflann 1882—88, bauð Riis Laxdælingum að láta biða greiðslu vöruúttektar, svo að þeir gætu sett því fleira fje á vetur og aukið bústofninn þeg- ar aftur. En Laxdælingar þökk uðu boð hans og sögðu: „Við viljum ekki fóðra skuldir11. Þótt rík væri sjálfstæðisþrá- in voru Laxdælingar miklir samhjálparmenn.Þá voru færri pappirslögin og forðagæslulög eigi til komin. En hinir betri bændur höfðu hinsvegar sam- tök með sjer um það, að.líta til með þeim, er miður máttu, að þeir kæmust ekki í hey- þrot, eða brysti vetrarbjörg. — Kunnu þeir og holl ráð að þiggja, er þeir vissu af heilum hug gefin. Tókst Laxdæling- um þannig að styðja margan efnalitinn sveitunga sinn til sjálfstæðrar og góðrar afkomu. Við þennan góða fjelagsanda og sjálfstæðis- og sámhjálpar- hng ólst Jón í Ljúfskógum upp. Minningarorð eftir Þorstein Briem Og sá hugur entist honum til dauða. # ★ Úr ÞESSUM heimaskóla fór Jón 16 ára gamall til náms hjá Birni gullsmið Árnasyni í ísa- fjarðarkaupstað. Nam hann þar gullsmíði árin 1886—’88. Voru þá harðæri til sjávar sem sveita og þótti Jóni mikið fyrir, er hann sá ísfirska fiski- menn koma dag eftir dag feng- ^jitla úr róðri heim til bjargar- lítillar fjölskyldu, eftir erfiðan sjóbarning á árabátum. Sýndist honum þá eigi glæsi legur framtíðarvegur að setj- ast að í kaupstað og hvarf hann því heim til Ljárskóga aftur. Er í söguþáttum landpóstanna skemtilega skrifuð frásögn Jóns um svaðilför þeirra Odds pósts Háifdánarsonar, er Jón var á heimieið frá Isafjarðar- kaupstað, 18 ára gamall. Ber þó af hve glögg er mannlýsing- in á Oddi. Nokkrum árum síðar fór Jón til Reykjavíkur til náms. Nam hann þá ljósmyndagerð hjá Sig fúsi Eymundssyni og aðstoðar- manni hans, Daníel Daníels- syni, síðar dyraverði í Stjórn- arráðinu. Mun það hafa hvatt Jón til hvorttveggja námsins, að hann var hagvirkur að eðl- isfari og hitt jafnframt, að hann kendi útþrgr sem ungum er titt. Ramari varð þó sú taugin, er dró hann heim aftur til föður- túna, og fjekk hann eigi slitið sig frá ættaróðali sínu. Guð- mundur faðir hans andaðist árið 1894, og tók Jón þá að sjer forstöðu fyrir búi móður sinn- ar í Ljárskógum. ÁRIÐ 1900 kvæntist Jón Önnu Hallgrímsdóttur Bjarna- sonar bónda í Laxárdal í Hrúta firði, hinni ágætustu konu. — Hófu þau hjón þá búskap í Ljárskógum og hafa þau síðan haldið við heiðri ættaróðalsins um greiðvikni, hjálpsemi, rausn og vinsældir. Þeim hjónum varð 9 barna auðið. Eru átta þeirra á lífi, en einn sonur þeirra, Ragnar, dó ungur. Hafa aðeins fjögur þeirra .flutt að heiman: Hallgrímur, símstöðvarstjóri í Búðardal. Yngvi, bóndi í Lax árdal á Skógarströnd. Jófríð- ur, kona Þorsteins Matthías- sonar, skólastjóra á Suðureyri við Súgandafjörð og Jón, cand. phil., kennari í Isafjarðarkaup stað, hinn góðkunni söngvari, og skáld á ljóð og lög. Heima eru þeir bræður, Bogi og Guðmundur, refaræktar- ráðunautur og ungfrúrnar Sól- veig og Ragnheiður. Ekkert þessara mörgu syst- kina fluttist að heiman fyrir giftingu, nema til náms, eða til þess að leita sjer læknis- hjálpar, enda var Ljárskóga- fjölskyldan samgróin og heim- ilíð skemtilegt. ★ . EKKI stefndi hugur Jóns að apðéöfnun. Er og í ærinn sjó.ff fjekk heiðursverðlaun á næstu refasýningu þar í hjeraði. Þessarar þekkingar hafði Jón að mestu aflað sjer með eigin athugun og nákvæmri eftirtekt, jafnvel í minstu smá- atriðum.. Kom sú athugunar- gáfa hans einnig fram á öðr- um sviðum. ir MEÐAN Jón gat, heilsu sinn ar vegna, sjálfur gætt sauðfjár síns á vetrum var hann manna lagnastur að koma fram fje í góðu lagi á litlum heyjum. Kom þar hvorttveggja til, að hann safnað, þegar átta börnum er var manna veðurglöggastur og komið vel til manns. — Þá mundi og sá sjóður allgildur, ef í einum stað væri allt það, er Ljárskógaheimilið hefir lagt fram með gestrisni sinni og greiðasemi á marga lund. Jón í Ljárskógum var aldrei heilsusterkur. Munu vökur hans við grenjavinslu á vorum og við melrakkaveiðar á vetr- um hafa snemma spillt heilsu hans. Tók hann á síðari árum aidrei á heilum sjer. Eigi að síður var jafnan gott bú í Ljárskógum og heimilið myndarlegt og aðlaðandi, svo að frá bar. Á dýrtíðarárunum eftir heimsstyrjöldina fyrri íók Jón ofan bæ sinn og reisti í hans stað steinhús mikið og nærgætnastur um þörf skepna sinna og aðbúð í hvert sinn. • Þá var Jón ekki síður glögg- ur á menn, eigi aðeins útlit þeirra, heldur og innra mann- inn. Tók hann þar mark á mörgu, og eigi síður því, sem smátt var. Enn kom athugunargáfa Jóns fram í því, hve hann var glögg- ur á mælt mál. Mun hann vart hafa átt svo tal við ókunnan mann, að hann gæti eigi að ó- spurðu gert sjer ljósa grein fyrir því, úr hvaða hjeraði hann væri upprunninn. Sjálfur var Jón manna málhagastur og sjer þess og glögg merki í fyrgreindri ritgerð hanS og þá eigi síður í köflum þeim, sem vandað. Hann sljettaði og tún hann á í Söguþáttum landpóst- sitt og kom upp girðingum um tún og beitiland. MIKILL stólpi undir búi Jóns var refaræktin. Tók hann snemma þann hátt upp, að ala yrðlinga af grenj- um þangað til skinnin urðu góð söluvara. Þar kom og að hann tók að ala upp inlenda refi til undaneldis, og gerðist hann brautryðjandi í þeirri grein. Við þetta óx honum æ ná- kvæmari þekking á eðlishátt- um dýra þessara og hafði hann þannig aflað sjer gagnmikillar fræðslu um allt, er að refarækt laut, áður en farið var að flytja inn i landið eldisrefi frá út- löndum. Ber.um það gleggstan vott ritgerð sú, er hann skrif- aði um íslenska melrakka í Búnaðarritið 1922.Þótti erlend- um fræðimönnum í þessum efnum svo mikið til ritgerðar þessarar koma, að þeir ljetu snúa henni á norska og þýska tungu, með því að hún var tal- in merk viðbót við vísindaþekk ingu manna í þeirri grein. Þegar innflutningur hófst á erlendum refakynjum, vildi Jón ekki láta kylfu ráða kasti um það hverskonar dýr er- lendir seljendur ljetu af hönd- um. Sendi hann því Guðmunch son sinn til Noregs til þess að veija dýr að Ljárskógum, og kynnast meðferð þeirra þar, sem hún átti best. Er það til marks um þá undirstöðuþekk- ing, er sonurinn hafði með sjer úr föðurgarði, að góður refa- ræktarmaður norskur leyfði honum eitt sinn að velja sjer eitt dýr úr hjörð sinni, en brá heldur, i brún,..er þetta eina dýr anna, er fyr getpr. Jón var og minnugur á hnyttin tilsvör og stuttar hnitmiðaðar setningar í íslensku máli að fornu og nýju. ★ JÓN í LJÁRSKÓGUM var áhugamaður um landsmál. Las hann flest, sem um þau var ritað, með athygli. Skapaði sjer síðan ákveðnar skoðanir og fylgdi þeim fram með hæglátu kappi, ef í odda skarst. — Gat hann þá stundum eigi neitað sjer um að króa andstæðing sinn laglega_af í rökræðum. En eigi ljet hann skoðanamun spiila vinfengi við andstæð- inga. Jón var heimastjórnarmað- ur og fylgdi þeim flokki fast að málum, á sinni tíð. En pef- sónulega voru þeir þó góðir vinir, Bjarni frá Vogi og hann, því að hvorugur ljet það góð- um sáttum og samlyndi spilla, þótt þeir stæðu á öndverðum meiði í stjórnmálum, og voru þó báðir kappsmenn. Svo var og um hvern andstæðing er Jóni þótti mannsbragð í vera. Vinum sínum var Jón allra manna tryggastur. Eftir að heimastjórnarflokk- urinn lagðist niður, fylgdi Jón jafnan þeim landsmálaflokki að máli, er honum þótti bera af mestri einlægni fyri,r brjósti mál landbúnaöarins. Ljet hann það engin áhrif á sig hafa, hvort sá flokkur var stór eða lítill, ef stefnan var rjett, að dómi hans. EKKI var Jóni í Ljárskógum um það gefið að sitja í sveitar- stjórn eða opinberum nefnaum. Síst er heilsan tók að bila. Eigi að síður vann hann í hrepps- nefnd og var sýslunefndarmað- ur Laxdæla um skeið. HanrT var einn áf stofnendum Kaup- fjelags Hvammsfjarðar og sat í stjórn þess meðan mestir voru frumbýlisörðugleikar ijelags- ins. Hin síðari ár fjekk Jón vart notið sín vegna vanheilsu. En er hann mátti eigi lengur starfa að búi sínu, iðkaði hann pví meir lestur, bæði fornra iræða og ritgerða um almenn efni. Fylgdist hann manna be-s'c með öllu, sem gerðist, fram til hins síðasta. LJARSKOGAHEIMIIJD var ástúðlegt svo sem best mátti verða, og þau hjónin og börn þeirra öll sem einn maður. Því fanst gestum svo sem þeir væru heima hjá sjer í Ljárskógum. Senda þeir nú fjölskyldu Jóns heitins innilegar samúðar- kveðjur með þakklæti fyrir margar góðar stundir á heim- ili hans, þar sem saman fór rausn og ógleymanleg alúð. Vinir hans munu aldrei gleyma órofa trygð hans. En Laxdælingar allir og aðrir hjer- aðsmenn kveðja nú þenna bændaöðling með söknuði og þökk. Þ. Br. STIÍLKA óskast Kjötbúð Sólvalla Sólvallagötu 9. ^* ( Góð jörð í Fljótshl til sölu Góð jörð í Fljótshlíð fæst til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Bílvegur heim í hlað. Sljett tún og engjar og góð skilyrði fyrir rafvirkjun. Jörðin er vel hýst og hefir góða afkomukömuleika. Upp- lýsingar gefur: Ingólfur JónsSon, Hellu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.