Morgunblaðið - 17.02.1944, Page 4
4
M 0 R (r U N V, L A Ð I Ð
Fimtudagur 17. febrúar 1944.
IViinningarorð um
Steinarr Þorsteinsson verslunarmann
STEINARR ÞORSTEINS-
SON verslunarmaður andaðist
7. þ. m. á Landakotsspítalan-
um. Hann var fæddur 26. nóv-
ember 1920. Foreldrar hans
voru merkishjónin Ingveldur
Guðsteinsdóttir og Þorsteinn
Þorsteinsson frá Eyvindar-
tungu, sem dó árið 1935.
Jeg kom á heimili hinna á-
gætu foreldra Steinars, sá
litla, fallega drenginn stækka
frá ári til árs og gleði foreldra
hans vaxa að sama skapi. Jeg
kom inn á þetta sama heimili 2.
apríl 1935 á skilnaðarstund,
þar sem móðir og sonur kvöddu
eiginmann og föður, og svo
mjög sem jeg fann til með
ekkjunni, gekk það ennþá nær
hjarta mínu að sjá Steinar litla
föðurlausan. Ár liðu og jeg kom
á heimili Ingveldar, sem með
óvenjulegum dugnaði vann og
vann fyrir sjer og syni sínum,
og samgladdist jeg þeim yfir
því.
Það má augljóst vera; að
minningargrein um 23 ára
mann getur ekki grundvallast
á löngum upptalningum um
mörg og margbreytileg störf,
ýmist unnin fyrir sjálfan hann,
einstaklinga, bæjarfjelag, sveit,
sýslu eða þá þjóðfjelagið i
heild. Slíkar uþptalningar er
gott og þægilegt að nota, þegar
rituð er minningargrein um
mann, sem þreyttur og saddur
Hfdaga dó í hárri elli. En þótt
Steinar sje dáinn aðeins 23
ára, þá átti hann hlutfallslega
langan og góðan starfstíma að
baki. Hann byrjaði sem barn,
innan við fermingu, á sendi-
sveinsstarfi, en það varð oft
upphaf ævistarfs margra nýt-
ustu athafnamanna þessa bæj-
ar. Jeg sá hann þá á ferð og
flugi á hjóli sínu hingað og
þangað um bæinn og drengs-
andlit hans ljómaði af áhuga
og starfsgleði. Nokkru síðar
varð hann afgreiðslumaður í
einni af búðum Sláturfjelags
Suðurlands, en hjá því fjelagi
hafði faðir hans starfað um
mörg ár. Enn síðar rjeðist
Steinar sem aðalafgreiðslumað
ur til verslunarinnar Vitinn,
Mánagötu 18 og mjer er víst
óhætt að fullyrða, að þar vann
hann sjer traust og vixðingu
húsbónda síns og versluninni
aukin viðskifti með framúr-
skarandi Ijúfmensku og lip-
urð við viðskiftavini hennar.
En nú dró ský fyrir sól.
Steinar varð fyrir byltu, sem
leiddi til þess, að hann veikt-
ist svo alvarlega, að hann varð
að hverfa frá starfi sínu, leggj-
ast á sjúkrahús og dvelja þar
um tveggja ára skeið. Sjúkra-
húsvistin gaf þó góðar vonir
um bata og bjarta framtíð, því
að Steinar komst á fætur,
kvaddi sjúkrahúsið og náði
þeirri heilsu, að hann hóf
starf á ný á síðastliðnu ári sem
skrifstofumaður hjá Steindóri
Einarssyni bílaeiganda og
vann þar í nokkra mánuði. En
brátt syrti í lofti, sjúkdómur-
inn tók sig upp og það svo
heiftarlega, að engri hjálp
varð við komið til bjargar frá
bráðum dauða.
Steinar var fallegur maður
og sakir góðrar greindar, sjer-
stakrar Ijúfmensku, látleysis
og samviskusemí efni í mikinn
mannkostamann og mannvin.
Ollum, sem kyntust honum,
þótti vænt um hann, og svo
hefði verið um framtíð alla,
þótt hann hefði fengið að lifa
til hárrar elli. Hann notaði frí-
stundir sínar til þess að afla
sjer mentunar í stað þess að
eyða þeim í aðgerðarleysi, sem
mörgum ungum mönnum hætt
ir við.
Þótt síðustu æviár Steinars
Húsnæði
fyrir Ijettan iðnað óskast til leigu, ca. 200
fermetra gólfflötur. Upplýsingar í símum
3094 og 411-2.
TILKYNIMING
lil h úseigenda
Samkvæmt ákvörðun húsaleigunefndar er heimilt
að jafna 9%— níu af hundraði — af heimæðagjaldi
Hitaveitunnar hlutfallslega á leigugjald hvers húss.
Stjórn Fasteignaeigendafjel. Reykjavíkur.
væru harmleikur eins og lífið
verður jafnan ungum, efnileg-
um og góðum drengjum, sem
með fangið fult af fögrum fram
tíðarvonum eru dæmdir til
þess að liggja vikum, mánuð-
um og jaínvel árum saman í
sjúkrahúsi, fjarri vandamönn-
um, vinum, kunningjum og
starfi, þá eignaðist hann fagra
sólskinsdaga mitt í rökkri
sjúkdómsbaráttu sinnar. Þessa
sólskinsdaga eignaðist hann
við það að kynnast og vinna
ást unnustu sinnar, Huldu,
dóttur hinna ágætu hjóna Sig-
ríðar Pálsdóttur og Ágústs
Guðmundssonar yfirvjelstjóra.
Það var síðaltliðið sumar, að
jeg sá hina ungu elskendur,
Huldu og Steinar, í návist
hvors annars á heimili móður
hans og jeg samgladdist þeim.
innilega yfir ótvíræðri ástar-
gleði, sem birtist í augum
þeirra. Unnustinn ungi átti þá
aðeins eftir að fara á sjúkra-
húsið, berjast við sjúkdóm
sinn og deyja og unnustan að
dvelja öllum mögulegum
stundum við sjúkrarúm vinar
síns, horfa á helstríð hans og
dauða. Hvílíkur h^rmleikur.
En hinn ungi maður horfði
hetjuaugum móti dauða sínum.
Þótt hann sæi allar vonir jarð-
lífsins, hverja af annari hrapa,
gátu bros leikið um varir hans
til hinstu stundar. Hann dó
auðugur, með hreina og sanna
æskuást í hjarta, þakklátur
unnustu sinni fyrir ást, unað,
huggun og styrk, sem hún hafði
frá fyrstu kynningu til síðustu
stundar veitt honum í óvenju-
lega ríkum mæli.
Jég veit, að Steinars er sárt
saknað af vandamönnum, vin-
um og kunningjum, en mestur
harmdauði er hann móður sinni
og unnustu. Jeg veit einnig, að
vandamenn þeirra, vinir og
kunningjar taka í dag innileg-
an þátt í sorg þeirra og feginn
vildi jeg geta endað þessar ó-
fullkomnu línur mínar með
einhverjum huggunarorðum,
|sem deyft gætu sárasta sviða
‘harmsins, en jeg treysti mjer
jekki að finna þau orð. Þar sem
mikið er grátið, virðast mjer
Jorð svo vanmáttug og því bet-
ur viðeigandi að drúpa höfði í
þögn. En aðeins það langar mig
t’W að benda á, að Steinarr hefir
eftirlátið syrgjandi móður,
unnustu og öðrum vandamönn
um mikinn fjársjóð fagurra
I minninga, sem aldrei gleym-
ast.
> I
J Ljúfmenska Steinars, látleysi
hans, ást hans á öllu fögru og
góðu fylgir honum yfir hín ó-
sýnilegu landamæri og þrosk-
ast þar, en lifir hjer í hugum
Astvina hans meðan augu
þeirra sjá geisla sólarinnar og
blóm vallarins eða eyru þeirra
he.vra fagran fuglasöng og
hrífandi tónlist. Og minnumst
þess, að sá er ríkari, sem eign-
ast djúpa sorg vegna þess, að
hann misti mikið, heldur en
hinn, sem eignast aldrei meira
en það, að hann við missi þess
verður ekki verulega sorgbit-
^inn.
Kjartan J. Gíslason
frá Mosfelli.
Sýning á myndasafni
Markúsar Ivarssonar
EINS og Morgunblaðið hefir
áður skýrt frá, gengst Fjelag
ísl. myndlistarmanna fyrir sýn
ingu á myndasafni Markúsar
heitins ívarssonar. Verður sýn-
ing sú haldin í Listamannaskál
anum og hefst á laugardaginn
19. þ. m. Mun hún standa í 10
daga. Matthías Þórðarson, þjóð
minjavörður, setur sýninguna.
A sýningunni verða allar þær
myndir, sem Markús heitinn
hafði safnað, en þær eru yfir
200, eftir 32 íslenska listamenn.
Verður þetta sennilega yfir-
gripsmesta sýning, sem hjer
hefir verið haldin, hvað aldur
listaverkanna snertir og höf-
undaíjölda. — Heitasta ósk
Markúsar var, að safnið kæm-
ist á éinn stað, en gat það ekki
orðið á meðan hans naut við.
Ætlar Myndlistarfjelagið að
framkvæma þenna draum hans
nú, -þótt ekki geti það orðið
nema eina 10 daga.
Ágóðinn af sýningunni renn
ur í Minningarsjóð Markúsar
Ivarssonar.
Myndin hjer að ofan. ,,Sið-
ustu geirfuglarnir“, verður á
sýningunni. Er hún eftir Finn
Jónsson, listmálara.
Tifo hrindir áhlaupi Spánskf blað gramt
Þjóðverja í garð Japana
London í gærkveldi: — Ut-
varp frjálsra Júgoslafa skýrði
frá því í kvöld, að hersveitir
Titos hershöfðingja hefðu
hrundið allhörðum áhlaupum
vjelahersveita Þjóðyerja, sem
þær gerðu hjá Ogulin, um 65
km. suðaustur af Fiume. Þjóð-
verjar hörufðu aftur -til fvrri
stöðva sinna og skildu eftir 54
dauða í valnum. — Reuter.
MADRID í gær: — Blaðið
Arriba lætur í dag í ljósi
gremju í garð Japana fyrir með
ferð þá, sem það segir, að Spán-
verjar og hin kaþólska kirkja
hafi orðið fyrir af hendi Japana
á Filippseyjum. Segir blaðið frá
árásum og illri meðferð Japana
á mörgum kunnum Spánverj-
um, sem dvelja austur þar og
sem unnið hafa á Filippseyjum
<t<$x>><í><W$><i>,$>^‘<5>>$>">sx$>'$><t'\>>>^>''*>>*><*> .i\*><*.'<*x*\:*>.'í,'<£‘>;x*><*><$>'.x*><*>>$><*>^>>;.>*>\xxý<*>''.*>'*>/*>
Tilboð óskast I
í mjólkur- og vöruflutninga milli Kjalarness
og Reykjavíkur frá 1. maí n. k. til 1. maí 1945.
Tilboð í lokuðu brjefi merkt „Tilboð“ send-
ist fyrir 1. mars n. k-. til undirritaðs, sem gef-
ur allar upplýsingar. Rjettur áskilinn að taka
hvaða tilboði sem er, og einnig að hafna ölhun
ÓLAFUR BJARNASON,
Brautarholti.
*><$><M><S><?><$><$>G><&&§>$><$>4>&S><$>&&$><$*$>$»Mx$>$><S><$><$><&$><&$<$>^^
I
Vanur afgreiðslumaður
getur fengið atvinnu nú þegar við verslun í
miðbænum.
Umsóknir, ásamt meðmælum, sendist blað-
| inu fyrir 19. þ. m. merktar: 1740.
I ..
^^VVVVVVVVVVVVVVVVVVV^^VVVVVVVVVVVVVVVVVVVVV'V'VV ♦a'v-Vá’-
: í . ' i ■ . : . : ; 1 i u . f í. » \ ; ; i