Morgunblaðið - 19.02.1944, Side 1
31. árgangur.
39. tbl. — Laugardagur 19. febrúar 1944
Isafoldarprentsmiðja h.t
IUEGIIMATÖK VIRÐA8T BYRJIiÐ UM TRUK
Enn er þó ekki víst
um landgöngu
London í gærkvöldi. —• Einkaskiyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
Frá New Yorkberast þær fregnir, að japanska útvarpið
hafi sagt í kvöld, að japanski flotinn, flugherinn og land-
herinn haldi áfram ógurlegri orustu í sameiningu gegn
liðsstyrk Bandaríkjamanna, sem ráðist hafi gegn eyvirk-
inu Truk. Þótt heldur sjeu fregnir af skornum skamti
af því, sem þarna gerist, hafa Japanar frá því snemma
í morgun stöðugt verið að segja frá stórfeldum loftárás-
um á virkið, og segja þeir þær vera gerðar af mörg hundr-
uð sprengju- og orustuflugvjelum.
Ný árás
á Marshðll-
eyjar
Flotamálaráðuneytið tilkynn-
ir| að innrás hafi verið. gerðJá
Bniwetokeyjar, hinar nyrstu af
Marshalleyjum, og þeirri sem
næst er .meginlandi Japans af
eyjaklasa þessum. Hefir land-
gonguliðið náð fótfestu, en áð-
U<r en herinn gekk á land voru
gerðar miklar árásir á varnar-
stöðvar Jápana þarna, en síðan
gengu hersveitirnar á land og
meðan á því stóð, hjeldu ame-
rjsk herskip, þar á meðal or-
ustuskip, mikilli skothríð á
Japana. Það voru sjóliðar, sem
gengu þarna á land, en fyrir
þeim ræður Watson hershöfð-
ingi, en flotastjóri er’ Turnar
flotaforingi. — Reuter.
Helming verslunar-
ilola Norðmanna
sökf
Frá norska blaðafull-
trúanum:
" FORSTJÓRI fyrir „Nor-
vjegian Shipping and Trade
Mission" (Nortraship) í Lond-
on, Hysing Olsen útgerðarmað-
ur, skýrir svo frá, að á árinu
1943 hafi skipatjón af völdum
h'ernaðaraðgerða farið mjög
minkandi. Það ár var tjónið
ekki nema þriðjungur af skip-
töpum árið 1942. Og það sem af
er þessu ári, hefir skipatjónið
enn farið minkandi.
Þegar Þjóðverjar rjeðust á
Noreg vorið 1940, tók Nortra-
ship við stjórn 1000 skipa, eða
allra þeirra, er frjálsir Norð-
menn höfðu ráð yfir.
Forstjórinn segir ennfremur,
að af þessum 100 skips-flota sje
nú aðeins 500 skip eftir, er nemi
samtals 3% miljón smálesta. En
En þá eru ekki talin ný skip, er
bygð hafa verið í Svíþjóð á
þessum árum síðan, nje 10
skip, sem Norðmenn hafa feng-
ið hjá Bandaríkjamönnum.
Hann gat þess ennfremur, að
unnið væri nú að því, að fá því
framgengt, að allir norskir sjó
nienn fengju eftirlaun. Bjóst
liann við, að það kæmist í
kring.
Sænskt skip rekst á
tundurdufl.
.Stokkhólmi: — Sænska
skipið Carelia, 2.920 smálestir
að stærð, hefir rekist á tundur-
dufl náíægt Saloniki í Grikk-
landi og' meiddust 7 af áhöfn-
inni.
Rússar veita Eisen-
hower orðu
London í gærkveldi.
Eftirfarandi. tilkynning- var
gefin út í Moskva í kvöld:
..Dwight D. Eisenlvower hers-
h'öfðingi hefir veið sæmdur
Suvarov-orðunni af fyrsta
flokki fyrir hina miklu sigra,
sent hersveitir undir stjórn
hans hafa ttnnið, og fyrir
framkvæmdir mikilla áætlana,
er innrásir voru gerðar í
Norðttr-Afríku og Ítalíu, gegn
sameiginlegunt óvini Sovjet-
ríkjanna og Bandaríkjanna,
Þýskalandi Ilitler. — Emt-
fremur hafa þeir hershöfðingj
arttir Carl Spaatz, Ira Eaker,
og Anderson verið sæmdir,
Suvarov-orðumn af , öðrttm
flookki, Kutusov-orðunni af
öðrum flokki og Suvarov-orÖ-
tinni af þriðja flokki.
— Reuter.
Norræn samvinna
rædd.
Stokkhólmi: — Fulltrúar
fjelagsins Norden hafa nýlega
setið á ráðstefnu í Saltsjöba-
den.
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Þ.IÓÐVERJAR tilkynua í
dag, að þeir hefðu yfirgefið
Idð mikla virki Staraya Rússa
fyrir sunnan Ilmenvatn, þar
sem þeir hafa haft ramgervar
bækistöð var síða.n 1941 ttm
haustið. Segjast þeir hafa yf-
irgefið horgina og svæðið
stmnan Ilmenvatns, til þess að
stytta víglímt sína og attka
þar með við varalið sitt. —
Rússar tilkyntu í kvöld, að
Staraya Rússa væri í þeirra
höndum, en gátu ekki um<
neina hardaga þar. Ennfremur
segjast þeir hafa tekið mörg
Jiorp í náimtnda við borgina.
Um 7000 Norð-
menn íþýskum
fangabúðum
Frá norska blaðafull-
trúanum:
Eftir síðustu fangaflutninga
frá Noregi eru. Norðmenn í
fangabúðum og fangelsum
Þýskalands orðnir um 7000.
Faúgarnir eru þessir:
Um 1200 liðsforingjar, er
flestir voru handteknir í ágús^
síðastliðnum. Eru þeir aðallega
í fangabúðum í Posen.
I ýmsum fangabúðum eru um
3000 Norðmenn, meðal þeirra á
annað hundrað konur, og er
fæst af þessu fólki í hinum
Oramienborgar-búðum.
Yfir 700 Norðmenn sitja í
tugthúsum Þýskalands, er
dæmdir hafa verið af þýskum
dómstólum í Noregi. Flestir eru
þeir í tugthúsum Fuhlsbultel
við Hamborg.
Um 700 Norðmenn af Gyð-
ingaættum eru fangar í Efri
Schlesiu og Póllandi. Þeir voru
teknir fastir og fluttir frá Nor-
egi í febrúar 1943.
Stúdentarnir, sem fluttir
voru til Þýskalands í desem-
ber og janúar eru um 700. Þeir
éru í haldi víðsvegar um Þýska
land.
Smákaupmenn kvaddir
til þjónustu.
Londan í gærkveldi: — All-
miklar deilur urðu í breska þlng
inu í dag um það, hvort kveðja
bæri alla smákaupmenn til
stríðsþjónustu. Var þessu mót-
mælt harðlega og borin fram
þau rök, að óhjákvæmilegt væri
að atvinnu þessara manna væri
mikil hætta búin, ef þetta yrði
gert. — Reuter.
meðal annars járnbrautar-
stögina Simsk.
Þá segja Kússar, að her-
sveitiu þeirra fyrir norðan
Zvenigorodka hafi lokið við
að hreinsa til á svæðini því,
sem hinar innikrónðu |)ýsku
hersveit ir hafi hafst við á, og
hafi verið sigrast á nokkruni
sveitum, sem hafst hafa viQ í
skóg'um á svæði þessu. — En
Þjóðverjav segja í dag', að
þoim hafi mí tekist að koma,
til hjálpar innikróuðu þýsku:
liði á þéssum slóðum, sem þú-
ið liafi verið að verjast ein-
íingrað í mai’gar vikur.
Rússar greina frá áfram-
haldandi sókn sinni fyrir
sunnan og suðvestan Luga og:
Bretum gengur
belur í Burma
London í gærkveldi.
I tilkynningu Mountbattens
í dag er skýr frá því, að þar-
áttan á Arakanvígstöðvunum
í Burma gangi nú Bretum í
vil, þótt orustur sjeu enn mjög
harðar víða uni þessar slóðir.
Hafa Japanar þarna öflugt'
stórskotalið og verjast fast,
einkum við skarð það, sem
.áður hefir verið getið um í
frjettum. Eru bardagar sagðir
mjög mannskæðir. — Rcuter.
Sektaður fyrir að kalla
mann „nazista“
Saokkhólmi: — Lögreglu-
rjettur Gautaborgar varð á dög
unum að skera úr því, hvort
það skyldi teljast móðgandi og
meiðandi fyrir mann, að nefna
hanp nazista. Niðurstaðan varð
sú, að orð þetta var dæmt
skammaryrði, og maður sá, sem
notað hafði það, var sektaður
um 25 krónur.
segjast pækja þar fram í hörð-
nm bardögum. Seg'jast Rúss-
ar hafa náð þarna nokkruin
þorpum. Einnig segjast Iiúss-
ar hafa sótt fram vestan Nov-
gorod og teki<5 þar nokkrar
stöðvar.
Á öð i'iim hlutum vígstöðv-
anna segja Riissar framvarða-
skærur, on Þjóðverjar geta um
bardaga fyrir vestan Nikopol,
þar sem návígisorustui' ha.fi
verið háðar af mikilli grimd.
— Harold King fregnritari
vor seg'ir, að veður hafi ver-
ið kaldara á þessum vígstöðv-
um uiulanfarna daga, en þýð-
viðri eru enn á suðurvígstöðv-
unum og alt þar í aur og
leðju.
Við þetta bættu svo Jap-
anar eftirfarandi: „Hvort
sem óvinirnir ætla sjer að
gera innrás á Truk, — þá
hefir ofsi styrjaldarinnar nú
aukist til stórra muna“. •—•
Segja Japanar stvrk árásar-
liðsins við Truk mjög mik-
inn.
Bandaríkjamenn hafa enn
lítið tilkynt um árás þessa.
Þó hafa þeir sagt, að flota-
og flugstyrkur sá, sem árás-
ina gerði á Truk, hafi verið
mjög mikill, en það er tekið
fram, að nákvæmra fregna
sje ekki að vænta fyrstu
daga viðureignarinnar, þar
sem skinin geti af hernaðar-
ástæðum ekki notað loft-
skeytatæki sín.
Roosevelt forseti sagði
blaðamönnum í dag, að hann
gæti ekkert um árásina sagt,
en Knox flotamálaráðherra
Ijet svo um mælt í kvöld, að
árásin á Truk væri tákn-
ræn vegna þess að hún
sýndi, að sóknin á hendur
Japönum værí nú farin að
ganga miklu hraðar en áður.
Þá kom það í ljós af orð-
um Knox, að ekki taldi hann
innrás á Truk líklega, held-
ur taldi eðlilegra, að árásin
væri aðallega gerð úr lofti,
til þess að eyðileggja sem
mest af hernaðarmætti óvin
arins.
Mjög mikið er gert að því
að reyna að komast að hinu
sanna í máli þessu af fregn-
unum, sem þegar eru komn-
ar, með því að reyna að lesa
út úr þeim annað en þar er
sagt með berum orðum.
Njósnarar handteknir
í Svíþjóð.
Stokkhólmi: — Fjörutíu og
einn maður, þar af 32 Svíar
hafa verið handteknir í Sviþjóð
á s. 1. ári, ákærðir fyrir njósnir
eða svipuð afbrot, sem við lög
varða. Voru allir þessir menn
dæmdir, en 10 aðrir, sem einn-
ig voru handteknir, var slept,
þar sem ekkert sannaðist á þá.
Þjóðverjor yfirgeia Storoyo Russa