Morgunblaðið - 15.03.1944, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 15, mars 1944,
AF SJÓMHHÓLI SVEITAMANNS
OLAFUR BONDI í Brautar-
t'.olti virðist vera mjög hneyksl
aður yfir því, að ,,Gáinn“ og
,,JökuH“ skuli sendi Morgun-
blaðinu pistla sína undir dul-
nefni. Kemur það fram í grein
Ólafs, sem nýlega birtist í
,,Bóndanum“. Ekki skal jeg
fara að deila við þenna mæta
mann. En jeg vil benda honum
á, að það stendur honum nær,
að leiða útgefendur og kostn-
aðarmenn ,,Bóndans“ fram í
Öagsljósið, heldur en að gerast
rannsóknari um greinarhöf-
unda í öðrum blöðum.
* ★
BÆNDUM landsins mundi
áreiðanlega þykja það allfróð-
legt, að fá að vita, hverjir að
því blaði standa, sem skreytir
sig með nafni þeirra. — Þegar
,,Bóndinn“ hóf göngu sína var
frá því sagt (í Morgunbiaðinu)
að Sláturfjelag Suðurlands,
Mjólkursamsalan og S. I. S.
kostuðu útgáfu blaðsins. Mun
því ekki hafa veiið mótmælt af
þessum aðilum, og má því telja
víst að svo hafi verið.
★
NÚ ER aftur á móti fullyrt
(í Tímanum), að þessi fjelög
leggi ekki fram fje til þessa
fyrirlækis, og hlýtur það því að
koma á annan hátt. En hvað-
art? Blaðið mun gefið út í fjölda
eintaka og dreift víða um land,
avo útgáfa þess hlýtur að kosta
talsvert fje, enda þótt það sje
ekki stórt. Jeg veit, að alment
leikur bændum hugur á að vita,
hvaðan það fjármagn er, sem
þessir verndarenglav stjettar
þeirra hafa úr að spila.
★
„ÞAÐ BAR VIГ, heitir
greinarkorn, sem Arni G. Ey-
lands skrifar í síðasta tölubl.
,,Freys“, Viðburðurinn er sá,
að um næstliðin áramót ljet
Árni af forstöðu Grænmetis-
verslunar og Áburðarsölu, er
hann frá upphafi hefir haft á
hendi á vegum S. I. S. Þessar
verslanir eru víst þau einu rík-
isfyrirtæki, sem sjaldan eða
aldrei hafa orðið fyrir ádeilum
og gagnrýni. Sýnir saga þeirra,
að þeim hefir verið stjórnað af
fyrirhyggju, ráðdeild og mynd-
arskap, sem því miður eru allt
of sjaldgæfir eiginleikar í fari
ríkisins þjóna a. m. k. í seinni
tíð.
★
ÞRATT FYRIR ÞETTA, seg-
ir Á G. E. í grein sinni, að sj)er
h^fi ekki gefist þess kostur að
starfa framvegis við þessi fyr-
irtæki. Tók landbúnaðarráðu-
neytið þau að öllu leyti í sínar
hendur og rjeð sem framk.stj.
þeirra Jón ívarsson fyrrum
kaupfjelagsstjóra í Höfn í
Hornafirði. Má vel til takast,
óí honum á að fara stjórn
þeirra jafnvel úr hendi eins og
fyriri-ennara hans.
★ .
| UM verslunarhæfileika J. I.
ákal jeg ekki efast. Sagt er, að
kann hafi unnið mikið og gott
starf við Kaupfjelag A. Sk.
hóf hann það upp úr eymd og
vesöld, bætti hag þess og jók
starfsemi þess að miklum mun.
Má furðulegt heita. að þeir
Austur-Skaftfellingar skuli
hafa viljað sleppa slíkum manni
vr sinni þjónustu. — Maour
>000000000000000
Efti
r Gáin
>000000000000000
skvldi ætla, að hvert hjerað
reyndi að halda í allt sitt versl-
unarvit, ekki síst á þessum um-
brota- og ólgutímum í öllum
viðskiftum.
★
EN SVO var nú ekki. —- Jón
ívarsson var látinn ,,róa“ frá
Höfn í síðasta sinn um næst-
síðustu áramót, og gerðist skrif
stofumaður í Reykjavík, uhs
hann hlaut þessa fyrnefndu
forstjórastöðu. Getur maður
helst sett þessa burtför hans í
samband við hans pólitíska fer
il. Eins og rhenn muna, komst
J. í. á þing sem utanflokks-
maður, en studdur af Sjálf-
stæðis- og Bændaflokksmönn-
um. Á þingi gekk hann í Fram-
sóknarflokkinn. Þrátt fyrir
þá þjónustu, fjekk hann ekki
að vera í kjöri fyrir hann við
næstu kosningar, heldur tóku
þeir pilt einn úr Öræfum, og
hefir hann haldið þingsætinu
siðan.
★
PÓLITÍSKA sögu J. í. mætti
því orða á þá leið, að hann hafi
svikið þá, sem honum treystu
ög verið sjálfur svikinn af
þeim, sem hann treysti. Er það
stutt saga en ófögur, og er
vonandi að hann reynist bænd-
um landsins betur í hinni nýju
stöðu sinni, heldur en hann
reyndist andstæðingum Tíma-
liðsins, sem fólu honum umboð
sitt á AJþingi.
★
JEG BÝST VARLA VIÐ, að
borgarbúar geri sjer það Ijóst,
hve ríkur þáttur útvarpið er
orðið í daglegu lífi fólksins í
strjálbýlinu. Aðalatriði útvarps
ins á hverju kvöldi, eru frjett-
irnar. Þær hlusta allir á. Yfir-
leitt þykja erlendar frjettir út-
varpsins góðar( en þær innlendu
miður. E. t. v. stafar þetta af
því, hve lítið gerist í landinu,
en þó finst manni æði margt
hafa til tíðinda borið, þegar
maður les blöðin.
★
JEG HELD, að innlenda
frjettastofan geri of litið af því
að taka fregnirnar upp úr dag-
blöðunum í Reykjavík, eða þá
afla tíðinda eftir öðrum leið-
um. Þeir góðu menn sem við
þessa frjettastarfsemi fást,
verða að gera sjer það Ijóst, að
fólkinu úti á landi er jafnmikið
nýnæmi að frjettunum, þótt
þeir og allir Reykvíkingar sjeu
búnir að lesa þær í morgun-
blöðunum. Ef útvarpið hefði
góða samvinnu við blöðin um
frjettirnar, hlyti að vera hægt
að gera þær lengri og fjöl-
breyttari heldur en þær eru
nú.
★
UM AÐRA dagskrárliði út-
varpsins skal jeg ekki fjölyrða.
Þó verð jeg að minnast á út-
varpssöguna. Bör Börsson er
áreiðanlega sá skemtilegásti
gestur, sem komið hefir á mitt
heimili í háa herrans tíð. Það
sýnir vel, hver afburðamaður
Hjörvar okkar er, að hann skuli
ekki vera búinn að ganga sjer
til húðar í útvarpinu fvrir
langa löngu. Það er sama hvort
hann les sögu eða segir þing-
frjettir. Hann er alltaf jafn
ágætur. — Nokkrir aðrir ,,út-
varpsmenn“ eru honum næst-
um eins vinsælir, eins og t. d.
Jón frá, Kaldaðarnesi, Pálmi
rektor og Magnús Jónsson, en
þess ber að gæta, að þeir koma
miklu sjaldnar að hljóðneman-
um. En Hjörvar getur þulið ár
eftir ár og er alltaf jafnvelkom-
inn til hlustenda.
★
SAMT HAFA tvisvar verið
gerðar tilraunir til að bola hon
um frá útvarpinu. Að þeim
báðum stóðu Tímamenn, eins og
þeirra var von og vísa. Einu
sinni breyttu þeir útvarpslög-
unum á Alþingi, til að setja
Hjörvar frá formensku í út-
varpsráði og koma að Sigfúsi
Sigurhjartarsyni, sem þá gekk
berserksgang í bitlingahjörð
Alþýðuflokksins og fjekk sig
aldrei fullsaddan. Seinna sveik
Sigfús, og þá varð að breyta
lögunum aftur til að koma hon
um burt.
★
AFTUR var veitst að Hjörvar
og hann látinn hætta að flytja
þingfrjettir, og Tímamaður tek
inn í hans stað, mesti sómamað
ur að vísu, en óhæfur til starfs-
ins. Neyddust þeir því von
bráðar til að taka Hjörvar aft-
ur, og síðan hafa hlustendur
fengið að hafa hann í friði við
þingfrjettirnar. Hefir Hjörvar
því staðist hvorttveggja: lítil-
mannlegar árásir andstæðinga
sinna og nýungagirni hlust-
enda, sem erfitt er að svala í
okkar fámenna þjóðfjelagi.
— írland
Framh. af bls. 1.
Búist við lokun
landamæra.
Sú skoðun er nú að ryðja
sjer til rúms í Belfast, höf-
uðstað Norður-írlands, að
landamærum Norður-ír-
lands og Eire verði lokað
hvenær sem vera skal. —
andamærin eru alls 320 km.
að lengd og mjög bugðótt.
Iággur landamæralínan
sumsstaðar í gegnum bónda
bæi og víða yfir vegi. Er álit
ið að auka þurfi landamæra
vörslu að miklum mun, en
verðir þeir, sem nú eru, eru
aðallega hafðir til þess að
sjá um að engu sje smyglað
frá Eire.
Fjérir karlakórar
syngja til ágóða
fyrir danska flótta
menn
F J O R I R KARLAKORAR
bæjarins hafa orðið við tilmæl-
um fjársöfnunarnefndar vegna
danskra flóttamanna, um að
halda samsöng í fjáröflunar-
skyni fyrir söfnunina og fer
hann fram sunnudaginn 19. þ.
m. kl. 2 V2 síðdegis í Gamla Bíó.
Kórar þeir, sem hjer er um að-
ræða, eru Karlakórinn Fóst-
bræður, söngstjóri Jón Hall-
dórsson, Karlakór Reykjavík-
ur, söngstjóri Sigurður Þórðar-
son, Karlakór Iðnaðarmanna,
söngstjóri Robert Abraham og
Karlakórinn Kátir fjelagar,
söngstjóri Hallur Þorleifsson.
Er hjer um mikla fórnfýsi og
velvild af hálfu kóranna að
ræða, með því að senn líður að
þeim tíma, er þeir halda söng-
skemtanir sínar á ári hverju.
Mun marga fýsa að heyra hvers
kórarnir eru megnugir sjer og
sameiginlega, en samsöng hafa
þeir ekki haft frá því árið 1934,
á síðasta söngmóti Sambands
íslenskra karlakóra. Að þessu
sinni mun hver kór syngja þrjú
lög, en að lokum syngja allir
kórarnir sameiginlega þjóð-
söngva íslands og Danmerkur.
Eigendur Gamla Bíó hafa
jafnframt sýnt þá rausn að láta
húsið í tje endurgjaldslaust, og
láta sýningu falla niður í hús-
inu á þessum tíma dagsins.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Bókaverslun Sigfúsar Eymund-
sen, Bókaverslun I.árusar Blön
dal og Verslun Sigríðar Helga-
dóttur.
Sjómannablaðið Víkingur, 3.
tbl., 6. árg., hefir borist blaðinu.
Eins og venjulega er það vandað
að efni og frágangi. í þessu hefti
eru m. a. þessar greinar: Of-
hleðsla togaranna eftir ritstjór-
ann, Halldór Jónsson, Þrír vjel-
bátar farast, Esja siglir stýrislaus,
viðtal við skipstjórann, Höfn út-
hafsins eftir Ólaf Magnússon,
Loftskeytamenn á hvert skip
eftir Henry Hálfdánarson, Er það
þetta, sem koma skal? eftir Hall-
freð Guðmundsson, Sjóleiðin til
Norður-Rússlands eftir Grím Þor
kelsson, Gleypigangsstefnan eft-
ir Kristján Jónsson, Þetta skeð-
ur á hafinu eftir Birgi Thorödd-
sen, Frívaktin, frjettaopna o. fl.
Loftárás á Limoges
Stór hópar Ilalifax-sprengju
fiugvjela breskra gerðu í nótt
sem leið árás á Limoges, járn-
hrautarstöð eiua þýðingar-
mikla í Frakklandi, þar sem
járnbrautir koma saman, þær
er síðan liggja til hafua á;
Norður- og Vesturströnd
Frakklands. Komu upp eldar
á árásarsvæðinu.
Mosquitoflugvjelar rjeðust
á Frankfurt am Main, en aðr-
ar flugvjelar lögðu tundur-
duflum á siglingalciðum Þjóð-
verja. — Alis íórust 3 flug-
vjelar í árásum þessum.
1 dag gerðu Thunderbolt-
flugvjelar árásir á mgrga staði
Mótspýrna í lofti var engin.
Norskir forystumenn
handteknir.
FREGNIR frá OsJo herma, að
Þjóðverjar hafi handtekið einn
af kunnustu mönnum norska
trúboðsins, Harald Hjelm-Lar-
sen, ritstjóra. Hann er 65 ára.
Ekki hefir verið gefin upp nein
ástæða fyrir handtökunni. —•
Meðal þeii'ra Norðmanna, sem
nýlega hafa verið handteknir,
er hinn kunni kaupmaður Ingar
Dobloug, einn af eigendum
firmans Brödrene Dobloug. Á-
stæðan fyrir handtöku hans
hefir ekki verið láin uppi. Hann
var um tíma í fangabúðum
Þjóðverja í Grini. (Samkv.
fregn frá norska blaðafulltrú-
anum).
Göbbels segir
bandamenn smeyfca
London i gærkveldi,
Göbbels flutti ræðu fyrin
nokkru í Austurríki í tilefní
af því, að 6 ár voru liðin síð-
an Austurríki var innlimað í
Þýskaland. Sagði Göbbels, aö’
bandamenn sæn það nú, að
Þýskaland yrði ekki sigra'ðl
öðruvísi en með innrás, og;
vœru smeykir við slíka áhættu.
svo smeykii’, að þeir væm a'ö
reyna að fá hin hlutlausil
lönd til þess að berjast með
sjer, „og víst er það, kvað
Göbbels, að óvinirnir leggasU
á tæpasta vaðið með innrás“«
Reuter.
Nýtt blað á döfinni í
Stokkhólmi.
Stokkhólmi: — Blaðið ,,Ny
Dag“ segir, að Thorsten Kreu-
ger, eigandi Aftonbladet og'
Stockholms Tidningen sje að
undirbúa útgáfu nýs síðdegis-
blaðs, sem heita eigi „Stock-
holms Dagblad“ og kosta 10
aui'a eintakið. (Önnur blöð
kosta 15 aura). Verður blað
þetta að sögn prentað í prent-
srniðju Stockholms Tidningen
og einnig er sagt að reynslublöð
hafi þegar verið prentuð.
Fundur um bind-
indismál
ÞINGSTÚKA Reykjavíkur
hjelt almennan fund um bind-
indismál í Listamannaskálan-
um s. 1. mánudag.
Formaður útbreiðslunefnaar
þingstúkunnar, Pjetur Sigurðe
son, setti fundinn með snjallri
í’æðu. Þá tók Pjetur Ottesen
alþm., til máls. Var ræða hans
sköruleg að vanda. Sýndi hann
fram á, að ástand það, sem nú
ríkir í áfengismálunum, verði
ekki þolað. — Næstur talaði
Guðm. Sveinsson, stud. theol..
Kom hann víða við. Ræddi
einkum um tísku þá, sem, illu
heilli, væri nú ríkjandi um á-
fengisneyslu og drykkjuskap í
landinu. — Síðastur talaði Þor-
steinn J. Sigurðsson, þingtempl
ar. Sagði hann frá ýmsum dæm
um um afleiðingar drykkju-
skapar.
Var gerður góður rómur að
máli í'æðumanna, og virtust
fundarmenn einhuga um að
auka bai'áttuna fyrir meira
bindindi og sterku almennmgs
áliti gegn drykkjuskap og
drykkjutísku.
Fundarstjóri var Helgi Helga
íon, vei'slunarstjóri. Hann er
nær 60 ára Goodtemplar. —•
Stýrði hann fundinum með
röggsemi og myndarbrag. Á
milli ræðanna var almennur
söngur að venju templara. Enn-
fremur söng Ólafur Magnús-
son frá Mosfelli einsöng með
undirleik Fritz Weisshappel.
sem hvoi'ttveggja þótti takast
hið besta. Þurftu þeir að end-
urtaka sum lögin. Þá sýndu
þeir Sig. Guðmundsson og
Viggó Natanielsson kvikmynd
frá Norðurlandi.
Húsið var þjettskipað, og
munu um 500 manns hafa sótls
samkomuna.
Fundarmaður. I