Morgunblaðið - 15.03.1944, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.03.1944, Blaðsíða 12
12 Miðvikudagur 15. mars 1944. Ikíkr druknar á HelSissandi Frá frjettaritara vorum í Ólafsrúk. í>AÐ SLYS varð á Hellis- sandi, að Dagbjartur Þorsteins- son, bóndi að Varmalæk, drukn aði. Slysið vildi til um kl. 23 s. 1. ruánudagskvöld. Var Dagbjart- ur að vinna við útskipun á bíyggjunni, en fjell út af henni án þess að samverkamenn hans veittu því eftirtekt, enda var dimt orðið. Menn, sem voru í báti við brvggjuna urðu varir við manninn á floti og náðu hónum. Voru þegar hafnar bjöigunartilraimir . og náð í lækni til Ólafsvíkur; kom hann eins fljótt og unt-var. Var hald ið áfram með björgunartilraun ir alla nóttina, en árangurs- laust. Dagbjartur var 54 ára gam- all. Hann var giftur, en barn- laus. Mb. Vfðir failar úl ai Sigiufirði MB. VÍÐIR frá Akranesi varð fyrir því óhappi að brjóta eitt skrúfublað, er skipið var statt út af Siglufirði. — Báturinn komst þó hjálparlaust til Akur- eyrár og liggur hann þar. I síðustu ferð Esju vestur og norður um land, var ný skrúfa send. en sakir óviðráðan- lega örðugleika, hefir skipið ækki komist þangað enn. Skipaútgerð ríkisins hefir haft mb. Víðir á leigu, og ann- ast ferðir milli Akureyrar og Sauðárkróks. Skipaútgerðin hef ir fengið annan bát, á meðan, er það mb. Eldey (áður Olav). U byggingarlóðir rið Greniroe! - BÆJARRÁÐ hefir ákveðið að leigja 28 byggingarlóðir í Vesturbænum. Lóðir þessar eru við Greni- roel, sem er næsta gata fyrir sunnan Víðimel. Umsóknir skulu sendar bæj- arráði fyrir lok þessa mánaðar, en umsóknir skulu útfyltar á sjerstökum eyðublöðum, er fást í skrifstofu bæjarverk- fræðings. lokun veifingasloia Á FUNDI, er heilbrigðisnefnd hjelt þann 7. mars s. 1., var lögð fram skýrsla um veitinga- staði í borginni. Fundurinn samþykti að fallast á tillögu lögreglustjóra, að loka þeim veitingastöðum, sem ekki hafa veitingaleyfi í lagi, eða leyfi r.efndarinnar, svo og þeim veit- ingastofum. sem fengið, hafa bráðabirgðaleyfi, en ekki full- nægja að öllu leyti settum regl- utn. „Leikfjelag Reykjavikur sýnir leikritið „Jeg hef komið hjer áð- ur", annað kvöld og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í dag. Vegna broítfarar frk. Arndísar Björns- dóttur til Akureyrar, verður ) etta leikrit sýnt tvisvar hjer eftir “. Ms. Laxfoss í Slippnum Svona lítur ms. Laxfoss út i dag. Myndin er tekin af stjórnborðshlið, er skipið lá á mest allan tímann, sem það var á skerinu. Þá má sjá, hversu aftursigla þess hefir bognað og skemdir á stýris húsi þess o. fl. — Myndina tók Jón Sen. fíússar sækja að Nikolajev London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. NÆSTA MARKMIÐ Rússa í sókn þeirra í Suður- Ukrainu virðist vera borgin Nikolajev, en það er hafn- arborg éin allmikil við Svartahaf og sækja herir Malinovskis nú að henni og eru þar, sem þeir eru næst komnir, um 30 km. frá borg inni og sagðir fara hratt yf- ir. í herstjórnartilkynningu Rússa í kvöld segir, að her- sveitir þær, sem að borginni sækja, hafi tekið annan bæ, Shirokayja-IraLka, um 40 km. frá Nikolajev. Er þessi hertekni bær á norðurbökk- um Dnieperósa. Þá kveðast Rússar hafa innikróað nokkur þýsk her- fvlki á þessum slóðum og allar tilraunir þeirra, til þess að komast úr herkvínni mistekist til þessa, en marg- ir fallið eða verið teknir. Proskurov-vígstöðvar. Þar segjast Rússar hafa haldið áfram sókn, en auð- sjáanlega hefir mótspvrna Þjóðverja þar verið miklum mun harðari en sunnar, því Rússar segjast aðeins hafa náð nokkrum þorpum á þessum slóðum. Ennfremur er tekið fram, að Þjóðverj- ar hafi beðið mikið tjón í gagnáhlaupum þessum, sem þeir hafi gert með skriðdrek um og fótgönguliði. A Vinnitzasvæðinu kveð- ur tilkynningin Rúsga hafa tekið járnbrautarstöðina Gumenaya, en hún er 15 km. suðvestur af Vinnitza. Umansvæðið. Þar segir tilkynningin, að Rússar hafi sótt mikið fram og tekið meðal annars bæ- inn Gaithin, en það er járn- brautarstöð. Ennfremur kveðast Rússar hafa sótt enn lengra fyrir vestan Kir- ovograd. Þarna stefna Rússar sókn sinni að Bug-fljóti, en fregn ritarar halda því fram, að þar ætli Þjóðverjar að verj- ast til hins ýtrasta. Takist Rússum að komast yfir Bug, eru næstu góðar varnar- stöðvar ekki fyrri en við Dniesterfijótið. Þjóðverjar segjast gera gagnáhlaup á þessum slóðum, en hafa vf- irgefið Kherson. Norðurvígstöðvar. Þar virðist hafa verið lít- ið um að vera yfirleitt í gær, ekki nema viðureignir. er staðbundna þýðingu höfðu. Var aðallega barist á Ost- rovsvæðinu, þar sem Þjóð- verjar kveðast hafa hrundið nokkrum árásum Rússa. Kona Vilhj. Stefáns- sonar rilar um heimskaufalöndin New York: — KANADISKA RÍKISST J ÓRNIN hefir boðið frú Evelyn Stefánsson, konu landkönnuðsins, Vilhjálms Stef ánssonar, að ferðast um heim- skeutahjeruð Kanada og skrifa bók um ferðir sínar. Nýlega var gefin út bók eftir frú Stefánsson. Bók þessi fjall- ar um Alaska og nefnist „Here- is Alaska“, og er prýdd fjölda mynda. Nú þegar hafa selst nn 30.000 eintök af bókinni. Upp- haflega var bók þessi ætluð mentaskólanemendum, en hún hefir náð miklum vinsældum meðal fullorðinna. í bókinni er landinu og fólki þvi, sem þar býr, lýst. Frú Stefánsson er nú að ljúka við aðra bók, er nefnist ,,Within the Circle“, en það er lýsing 6 svæða innan heim- skautahringsins, þar á meðal Grímsey. Er frú Stefánsson mintist á safn sitt af bókum, er fjalla um Island, en í því safni eru um 700 bækur, komst hún svo að orði: ,,Það fyrsta, sem jeg ætla að gera, er ófriðnum lýk- ur, er að heimsækja Island“. Met í Atlantshafsflugi. -LONDON: Nýlega hefir verið sett nýtt met í fiugi yfir Atlantshafið. Flaug flugvjel kanadiska flug- sambandsins vestur um haf frá Bretlandi á 13 klst. og 18 mín., er þetta 14 mínútum styttri tími en bresk flugvjel flaug austur urú haf árið 1941. lyjólfur Jóhannsson endurkosinn formaður Varðar 20 þús. hr. í hús- byggingarsjóð AÐALFUNDUR VARÐAR var haldinn i gærkveldi í Sýn- ingarskálanum. Eyjólfur Jóhannsson. formað ur fjelagsins, setti fundinn og stjórnaði honum. Gaf hann skýrslu um störf fjelagsins á liðnu ári. Bar þessi starfs- skýrsla með sjer að fjelags- starfsemin hefir mjög blómgast á árinu og fjelagið eflst í hví- vetna. Hefir formaður fjelags- ins sýnt frábæra elju og ár- vekni í starfi sínu, og m. a. hef ir meðlimum fjelagsins stór-^ fjölgað á árinu. Öll starfsemin lýsir meiri fjölbreytni og lífi. Kom það berlega í ljós að fund armenn kunnu vel að meta hið ágæta starf formannsins og allrar stjórnarinnar á liðnu ári. Við stjórnarkosningu var for maðurinn, Eyjólfur Jóhanns- son, endurkosinn með dynjandi lófataki. Öll stjórnin að öðru leyti var sömuleiðis endurkos- in. En hana skipa: Einar Ás- mundsson, hrm., Guðbjartur Ólafsson, hafnsögumaður, Guð mundur Guðmundsson, kaupm., Gísli Jónsson, alþm., Jóhann G. Möller, bókari, og Ragnar Lár- usson, fátækrafulltrúi. I varastjóm voru endurkosn ir: Magnús Þorsteinsson, Gunn ar Benediktsson og nýr maður — Egill Guttormsson. Endurskoðendur voru kosn- ir: Ólafur Ólafsson og Ásmúnd- ur Gestsson. Fulltrúar fjelagsins í Fulltrúa ráði Sjálfstæðisfjelaganna voru endurkosnir. Þá var ákveðið, eftir tillögu stjórnarinnar, að verja af tekjuafgangi fjelagsins 20 þús. kr. i húsbyggingarsj óð' 76 nýir meðlimir gengu í fje- lagið á fundinum. Reynf að bjarga skipun- um á Fossfjöru SKIPAÚTGERÐ ríkisins hef- ir tekið að sjer að gera tilraun til að bjarga hinum erlendu skipum, er strönduðu á Foss- fjöru á Síðu, fyrir nokkru. í frásögn hlaðsins af strand- inu, var það sagt, að líkur væru til þess, að bjarga mætti tveim skipanna, en hinu þriðja væri lítil von um. Þetta skip er nú að mestu sokkið í sand, en hin tvö eru á þurru landi um fjöru og líkur til þess að takast megi að bjarga þeim. í gær fóru menn austur, á vegum útgerð- arinnar, til að athuga möguleik anna, höfðu þeir meðferðis ýms björgunartæki, m. a. dælur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.