Morgunblaðið - 26.04.1944, Side 1
HÁMARK SKEMDARVERKA í
DANMÖRKIJ
NORWA.Y
SWEDEN
HORTH
TUTOW
J BERLIN f £
iRuns**V O 1^9 S
\ \ GOTHA Vá!^ÍG '
> \\germany
STUTTGART N •»
MUNléH^/”
FKANCE
CSWITZ-
IERLAND
(UTlTALr
<
Á þessum uppdrætti sjást nokkrar þeirra borga í Þýskalandi,
sem har.Sast hafa orðið fyrir loftsókn bandamanna undanfarið
Vz miljón eldsprengja á
Karlsruhe og IVlunchen
London í gærkvöldi. — Einkasktyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
Þ'ESS S-IÁS'F ENGIN MÍERKÍ, að nolckuð dragi úr hinum
gríðarlegu loftárásum bandamanna gegn Evrópuvirki Þjóð-
verja sem nú hefir staðið látlaust í 8 daga, Seinast í kvöld
(þriðjudag) voru birtar aðvaranir í þýska útvarpinu um að
úvinaflugvjelar væru á leið'iim yí'ir Suðvestur Þýskaland.
Sextíu stórsprengingar í Kaup
mannahöfn á einni nóttu
Þjóðverjar hóta Döuum hörðu
Stokkhólmi í gærkveldi. Einkaskeyti til Morg-
unblaðsins frá Reuter.
Eftir Thomas Harris.
ÞAÐ ER NÚ KOMIÐ í LJÓS hvernig á því stendur,
að Þjóðverjar hafa einangrað Kaupmannahöfn frá öllum
samgöngum við Svíþjóð og bannað símtöl og skeytasend-
ingar milli Hafnar og Stokkhólms. Ástæðan er sú, að
daginn áður en Þjóðverjar gerðu þessar ráðstafanir, náði
skemdarverkasíarfsemi Dana hámarki sínu. Hefir slík
skemdarverkaalda ekki áður gengið yfir Danmörku sem
á sunnudagskvöldið s. 1. og aðfaranótt mánudags. Mest
var um skemdarverk danskra föðurlandsvina í Kaup-
mannahöfn.
60 STÓRSPRENGINGAR í KAUPMANNAHÖFN
Danska frjettastofan hjer í Stokkhólmi tilkynti í kvöld
(þriðjudag), að á sunnudagskvöld hefðu orðið að minsta
kosti 60 stórsprengingar víðsvegar í Kaupmannahöfn, en
þó einkum í miðbænum og eingöngu í byggingum, sem
Þjóðverjar hafa á leigu, eða hafa tekið eignarnámi til
afnota fyrir sig.
Um 20 einstök skemdarverk voru unnin í verksmiðjum
eða byggingum, sem Þjóðverjar nota til framleiðslu eða
sem menn áttu, er unnu fyrir Þjóðverja.
„AlmenningsálHlð
vinnur slyrjaldir"
NEW YORK í gærkveldi: —-
Dwight D. Eisenhower yfir-
hershöfðingi heíir sent skeyti
til fundar amerískra blaðaút-
gefenda, sero haldinn er í New
York þessa dagana. I skeyti sínu
segir hershöfðinginn:
..Almenningsálitið vinnur
styrjaldir. Jeg hefi haft það
fyrir reglu að greiða fyrir
frjettariturum blaðanna, eins og
mjer hefir verið unt, þar sem
jeg hefi haft herstjórn á hendi.
Jég vonast til að reynslan, sem
við höfum haft í því, að veita
blaðamönnum, sem bestan að-
gang að frjettum, muni verða
til þess, að frjettir aí hinni kom
andi innrás verði enn meiri, en
áður hefir tíðkast.
Jacob L. Devers, aðstoðaryf-
irhershöfðingi bandamanna í
Miðjarðarhafi, hefir einnig sent
fundinum skeyti, sem fer mjög
í sömu átt. Hann bætti við, að
bardagarnir í Italíu væru harð-
ari en orð fengju lýst og væri
ekki hægt að líkja bardögum
þar við neina aðra herferð.
— Reuter.
Bandaríkjamenn
stórauka flota sinn
Þýsku herliði boðið út.
Þýskt herlið var kallað út á
götur Kaupmannahafnar og
kom víða til átaka og var skiptst
á skotum milli danskra föður-
landsvina og þýskra hermanna.
Arás á Karlsruhe og
Múnchen.
Breskar sprengjuflugvjelar
gerðu aðalnæturárásir sínar á
Karlsruhe og Miinchen í nótt,
sem leið og. vörpuðu samtals
V2 miljón eldsprengja á þessar
borgir, auk tundursprengja.
Njónsarflugvjelar, sem flugu
yfir borgirnar klukkustund eft-
ir, að sprengjuflugvjelarnar
höfðu gert árásirnar, segja, að
eldar hafi logað á stórum svæð
umM borgunum.
Fiugvjelar bandamanna
hjeldu uppi dagárásum sínum í
dag og fóru ekki færri en 1000
flugvjelar til árása á hernaðar-
staði í Norður-Frakklandi og
Belgíu. — Stórar amerískar
sprengjuflugvjelar gerðu árásir
á marga staði í Norður-Frakk-
landi. Var árásum þessum hag-
að líkt og undanfarna daga og'
árásir gerðar eins og fyr aðal-
leg'a á sarhgöngumiðstöðvar,
flugvelli og flugvjelaverksmiðj
ur. Flugvjelar • bandamanna
skutu. niðúr margar þýskar
flugvjelar og eyðilögðu aðrar
á jörðu niðri með sprengjum og'
vjelbyssuskothríð.
Flugvjelar hafa farið til árása
á Suð-austur Evrópu frá bæki-
stöðvum í Ítalíu.
Bandaríkjamenn
taka Ujelang
á Marshalleyjum
WASHINGTON í gærkveldi:
Í herstjórnartilkynningunni frá
Kyrrahafssvæðinu, sem barst í
kvöld, er skýrt frá því, að
Bandaríkjamenn hafi tekið Uje
lang hringrifin í Marshalleyja-
klasanum. Hernámið fór fram
þann 22. apríl og mættu Banda
ríkjamenn ekki mikilli mót-
spyrnu af Japana hendi. Eyja-
klasinn er nú algjörlega undir
stjórn Bandaríkjamanna.
Ujelang eyjaklasinn var einn
af aðalstöðvum Jþpana, sem
þeir höfðu enn á sínu valdi á
Marshalleyjum. Hann er um
264 mílur norðaustur ag Pon-
ape og 644 mílur austur af
Truk. Ujelang er á austur Mars
halleyjum, suður af Enivetok.
Sóknin á Nýju Guineu.
Sókn Mac Arthurs á hol-
lensku Nýju Guineu gengur að
óskum. Hafa Bandaríkjamenn
náð á sitt vald flugvelli einum
nálægt Hollandia. — Reuter.
Sjóorustur smáher-
skipa á Ermarsundi
LONDON í gærkveldi: Flota-
málaráðuneytið skýrir frá því
í kvöld, að til sjóorustu hafi
komið milli breskra og þýskra
smáherskipa á Ermarsundi.
Breskir tundurskeytabátar rjeð
ust á þýska tundurskeytabáta
við Frakklandsstrendur á mánu
dagsmorgun. Þjóðverjar urðu
fyrir tjóni og Bretar mistu einn
bát.
Síðar um daginn reyndu þýsk
ir tundurskeytabátar að ráðast
á breska skipalest á Ermar-
sundi og kom þá enn til átaka.
Þýsku bátarnir flýðu, en þó
tókst að valda tjóni á einum
beirra. Síðar gerðu flugvjelar
árásir á þýsku bátana.
Verkfall hjá Montgo-
mery Ward.
WASHINGTON í gærkveldi:
Roosevelt forseti hefir krafist
þess, að hið mikla fyrirtæki,
Montgomery Ward, sem er eitt
af stærstu sölufyrirtækjum
Bandaríkjanna, semji við verka
fólk sitt, en verkfall hefir stað-
ið hjá þessu fyrirtæki um tíma.
WASHINGTON í gærkveldi:
Lagt hefir verið fvrir öldunga-
deild Bandaríkjanna frumvarp
um hæstu fjárlög til Banda-
ríkjaflotans, sem sögur fara af,
eða alls 32.645 miljón dollarar.
Frumvarpið var samþykt í öld-
ungadeildinni í dag og verður
nú sent til fulltrúadeildarinn-
ar, þar sem búist er við að það
fái skjóta afgreiðslu.
Margir þing'menn ljetu í ljós
þá skoðun, að Bandaríkin yrðu
að auka flota sinn til muna og
Ovefton, þingmaður frá Louisi-
ana, ljet svo um mælt, að Banda
ríkjaflotinn yrði að koma úr
þessum ófriði sem sterkasta
sjóveldi heimsins. — Reuter.
Mannljón
Kanadamanna
30 þúsund
OTTAWA í gær: — Birtur
hefir verið listi yfir manntjón
Kanadamanna frá styi-jaldar-
byrjun til 29. febrúar síðast-
liðinn. Als nemur manntjónið
30.538. Þar af hafa 14.999 fall-
ið, 7.889 særst og 2.849 hafa
fallið. — Reuter.
6 hæða hús sprengt.
Sex hæða bygging við Vestre
Boulevard nr. 25 var sprengt í
loft upp. í þessari byggingu
voru áður til húsa aðalskrifstof
ur kvikmyndafjelaganna Para-
mount og Universal. (Mun hjer
vera átt við stórbyggingu, sem
er á milli Stormgade og aðal-
slökkvistöðvarinnar, beint á
móti Arena).
Ráðstafanir til að
hindra flótta.
Það er talið, að fyrirskip-
nnin uni að stöðva allar sam-
göngur niilli Svíþjóðar og
Kaupmannahöfn hafi komið
beint frá Berlín og sje ráð-
stöfun þessi aðallega gerð til
að hindra danska föðurlands-
vini í að komast ttndan á flótta
til Svíþjóðar. Þjóðverjar hafa
strangan vörð á Eyrarstmdi,
Annars berast litlar fregnir
enn frá Danmörku af skemd-
arverkaöldunni, vegna þess.
að símasamþandslaust er enu
við Kaupmannahöfn. Var síma
og skeytasamband ekki komið
á seint í kvöld.
1 Þjóðverjar hóta Dön-
um illu.
Dr. AVerner Best, land-
Framh. á 2. siðu.