Morgunblaðið - 21.05.1944, Síða 1
81. árgangur.
111. tbl. — Sunudagur 21. maí 1944
Isafoldarprentsmiðja hi.
Herðum kjörsóknina, Reykvíkingar I
Þátttakendur í gær
aðeins 44%
IJNGIR OG GAMLIR komu til að greiða atkvæði í gær. Þessi
mynd var tekin í gærmorgun við gangstíginn fyrir norðan
barnaskólann. A myndinni sjest meðal annars blindur maður,
sem sjálfur vildi fara á kjöríund cg greiða atkvæði.
Margir hreppar skil-
uou 100% í gær!
FREQNIR ÞÆR, sem bárust utan af landi í gær —
íyi'.sta kjördaginn —■ voru allar á cinn veg, að þátttakan í
átkvæðagreiðslunni væri mjög mikil.
Vitað var í gær um 11 hreppa, sem höfðu að fullu lokið
atkvæðagreiðslunni með 100% þátttöku.
Auk þeas voru margir hreþpár á tíunda tugnuni í hlut-
fallstölunni, en ætluðu að halda áfrani í dag og freista
þess að ná hæstu tölunni — 100%,
100% kjörsókn.
Eftirtaldir hreppar höfðu
lokið atkvæðagreiðslunni fyrsta
kjördaginn, með 100% þátt-
töku:
Ongulstaðahreppur í Eyja-
fjarðarsýslu.
Grafningshreppur og Sand-
víkurhreppur í Arnessýslu.
Klofningshreppur, Hörðu-
dalshreppur, Haukadalshrepp-
ur og Ilvammshreppur í Dala-
sýslu.
Svalharðsstrandarhreppur,
Ljósavatnshreppur og Tjörnes-
hreppur í Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Fjallahreppur í Norður-
Þingeyjarsýslu.
Kjörsóknin í kaup-
stöðunum.
Fyrsta kjördaginn var kjör-
sóknin í kaupstöðunum út um
land sem hjer segir:
Framh. á bls. 5.
Tito hefir mikla
bækisföð á Bari
r
á llalíu
London í gærkveldi.
FREGNIR frá Bari á Snður-
Ítalíu herma, að þar hafi nú
skæruliðar Titos sett á stofn
mikla bækistöð, þannig, að
þessi bær sje nú einhver mesta
bækistöð skæruliðanna utan
Júgóslavíu. I Bari sjást bif-
reiðar skæruliðanna merktar
með hinni rauðu Sovjetstjörnu,
þar syngja skæruliðar bardaga
söngva sína og stúlkur úr
skæruliðaflokkum ganga um
strætin í einkennisbúningum.
— Fjöldi báta og skipa, sem
skæruliðarnir ■ hafa, liggja á
höfninni.
í DAG!
REYKVÍKINGAR!
Atkvæðagreiðslan um skiln-
aðarmálið og stofnun lýðveld-
isins heldur áfram í dag. Hefst
kl. 10 árd. í Miðbæjarskóían-
um.
Eftir daginn í dag verður úr
því skorið, hvort Reykvíkingar
verða eftirbátar annara í kjör-
sókn við lýðveldiskosningarn-
ar.
Reykvíkingar! Þjer, sem haf
ið valið yður bólfestu í Ingólfs-
bæ, hvcrnig ætlið þjer að verja
^það fyrir afkomendum yðar,
ef þjer gerið eigi skyldu yðar
nú?
Dagurinn í dag sker úr.
Rcykvíkingar munu áreiðan
lega gera skyldu sína í dag!
Aliir á kjörstað — og kross-
ið við hæðí „já“-in á kjörseðl-
inum.
Leiðbeiningar fyrir kjósend-
ur eru prentaðar á bls. 5.
Vísitalan
270
HAGSTOFAN og Kauplags-
nefnd hafa reiknað út vísitölu
framfærslukostnaðar fyrir maí
mánuð. Reyndist hún vera 270
stig, eða fjórum stigum hærri
en í aprílmánuði. Hækkun vísi-
tölunnar stafar aðallega af
hækkun á smjöri, er varð í
mánuðinum sem leið,
Landgræðsltisjóð-
urinn fær 10 þús.
króna gjöf
í GÆRKVÖLDI tilkynti for-
stjóri Olíuverslunar íslands að
Verslunin gæfi Landgræðslu-
sjóði íslands 10 þúsund kr. —
Er þelta stærsta gjöfin, sem
sjóðurinn hefir fengið enn.
Ekki er hægt að segja, hve
mikið safnaðist í sjóðinn í gær
því fjárscfnunin fór fram víða.
En þegar tillit er tekið til þess,
að nýlega hefir einn maður
gefið 300 þúsund krónur til
skógræklar á Þingvöllum, má
vænta þess, að upphæðin, sem
kemur í Landgræðslusjóð
verði samanlögð allhá. ,
Fjársöfnunin heldur áfram
hjer í bænum í dag. Þeir sjálf-
boðaliðar, sem kynnu að vilja
aðstoða við söfnunina eru
beðnir að gefa sig fram í skrif-
stofu Búnaðarfjelags íslands
kl. 10—11 árd. í dag.
I dag má enginn bregðast!
REYKVÍKINGAR verða að sýna í verki í dag,
að þeir verða ekki eftirbátar annara landsmanna í
kjörsókn við lýðveldiskosningarnar.
f gær voru alls greidd hjer í bænum 11934 atkvæði,
þar af um 2000 atkv. greidd utan kjörstaðar- Alls
höfðu því i gær greitt atkvæði um 44% þeirra, sem
á kjörskrá eru-
Þetta var oflítil þátttaka fyrsta kjördaginn.
•
í dag verða Reykvíkingar að reka af sjer sliðru-
orðið og mæta á kjörstað — hver einn og einasti
kjósandi.
HERÐIÐ SÓKNINA í DAG REYKVÍKINGAR!
•
Minnumst þess, að þið eigið að greiða atkvæði
um tvent — og aðeins tvent:
1. Brottfall dans-íslensku Sambandslaganna, og
2- Afnám hins erlenda konungsvalds.
Sjerhver sannur íslendingur setur kross framan
við bæði „já“-in á kjörseðlinum.
Hjeldu að
innrásin
væri byrjuð
Lævísleg
blekking
Þess varð vart hjer í bænum
í gær, að menn voru að reyna-
að fá fólk til þess að greiða at-
kvæði gegn lýðveldisstjórnar-
skránni.
Aðferð þessara manna var
lymskuleg. Aðferðin var sú, að
benda fólki á nokkur ákvæði
stjórnarskrárinnar, 'sem ýmsir
hafa verið óánægðir með og
reyndu að telja því trú um, að
alkvæðagreiðslan snerist um
þessi ágreiningsatriði.
En þetta er vísvitandi blekk-
ing.
Atkvæðagreiðslan snýst að-
eins iffcn það,
hvort stofna á al-íslenskt
Iýðveldi á Islandi, eða
flytja erlent konungsvald
inn í landið.
Enginn sannur Islendingur
bregst ætllandi sínu á þcssari
örlagaríku stund, með því að
greiða atkvæði gegn lýðveld-
inu.
Krossið þess vegna við bæði
„já“-in ó kjörseðlinum!
Tjarnarboðhlaupið
fer fram í dag
ANNAÐ Tjarnarboðhlaup
Iv.R. fer fram í dag kl. 4 og
liefst á Fríkirkjuveginum. 6
sveitir taka þátt í hlaupinn
ÞÝSKAR og spænskar út-
varpsstöðvar skýrðu frá því í
'fyrrinótt, að innrásin á megin-
landið væri byrjuð. Var þess-
um frjettum útvarpað í aðeins
einni frjettasendingu stöðv-
anna. Heyrðist þetta útvarp
hjer á landi og varð það til þess
’að í gærmorgun gengu sögur
um það í bænum að innréfein
væri hafin. ,
Tilefnið til þessara frjetta-
útsendinga munu hafa verið
hinar miklu loftárásir, er flug-
vjelar bandamanna gerðu á
franskar hafnarborgir í fyrra-
kvöld og í fyrrinótt. Voru gerð-
ar árásir á borgir á allri frönsku
strandlengjunni frá Hollandi
og suður eftir. Einna hörðust
var árásin, sem gerð var á Di-
eppe. Er ekki ólíklegt, að Þjóð-
verjar hafi haldið að innrásin
væri hafin.
Mihailovifch myrtur!
ZIJRICH í gærkveldi: — Blað
Mussolinis, „Regima Fascista“,
birtir í dag .þá fregn frá Bel-
grad, að skæruliðar úr liði Tit-
os hafi myrt Mihailovitch hers-
höfðingja. Fregn þessi hefir
ekki fengist staðfest af nein-
um öðrum heimildum.
*