Morgunblaðið - 25.05.1944, Side 1
L YÐ VELDISK OSJVINCÆRJVJtS:
kjörsókn um
Gamall draumur rætisl
98% A ÖLLU LANDINU
26 kjördæmi með 99% og yfir
Tvö kjördæmi mú 100%
Kjörsóknin
í Reykjavík
ÞF.GÁR lokið var atkvæða-
greiðslu hjer í Reykjavík kl. 12
á miðnætti í gær, voru als
greidd 25.277 atkvæði, af um
26..700 á kjörskrá. Eru það rúm-
íega 96 af hundraði.
s|lInd a'a íslendingar, og þá ekki síst eldri kynslóðin, þráð þá
me® Mhvæði sínu gætu stuðlað að því, að land
>rði alfrj-.-lst. Gamla konan á myndinni er að greiða lýð-
u atkvæði sitt. I þeiri'i athöfn rætist gamall draumur.
Lyðveldið sigrar
glæsilega
í 4 kaupstöðum í nótt
ATKV Æ'rvT
''ílr ýc't,l voru talin í gærkyöldi í 4 kaupstöðum: Reykja-
tölUr^ afnarfirði, ísafirði og Seyðisfirði. Úrslitin urðu þessi, en
ai eiga eftir að breytast eitlhvað:
^javíit.
Já Nei Auðir Ógildir
L.^bandsslit....... 24528 150 255 295
Veidisstjórnarskrá '. . 24015 405 658 150
f"sUrfjörður;
ambandsslit ........ 2235 11
yÖVeldisstjórnarskrá .. 2192 21 24 U
ÍS<*fjöíV:
sarn,
Lýð 3ndSSlÍt ....... 1402 16 35 35
Veldisstjórnarskrá . . . 1229 153 86 20
SeJ’óisf;..
^lorður:
l'Vð'vandSSlÍI ...... 470 2 9 7
Veldisst j órnarskrá 457 7 18 6
^ %ar f ...
’'lslu fólur sýna, aö lýðveldið sigrar glæsilega í þjóð-
aSveiðslunni.
breskra flugvjela
London í gærkveldi: —
Bretar sendu í nót sem leið,
'meira en 1000 flugvjelar til á-
‘ rása á meginland Evrópu og
var. ráðist á marga staði, bæði
í Þýskalandi. Belgíu og Frakk
landi. Aðalárásirnar voru gerð
ar á borgirnar Dortmund og
Braunschweig í Þýskalandi, en
einnig mikil atlaga að Orleans
j Frakklandi.
Veður var upp og ofan, heið-
skýrt yfir Dortmund, en mjög
skýjað yfir Braunschweig. Loft
orustur urðu miklar yfir borg-
um þessum og loftvarnaskot-
hríð var afar hörð. Bretar skutu
niður 2 þýskar orustuflugvjel-
ar, en mistu í leiðangrum næt-
urinnar als 35 sprengjuflugvjel
ar. Auk staða þeirra, er nefnd-
ir hafa verið ,var ráðist á Lud-
wigshafen og tundurduflum
lagt. — Reuter.
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLAN um niðurfelling
sambandslaganna og stofnun lýðveldis á íslandi er nú
lokið með þeim glæsileik hvað kjörsókn snertir, að slíks
eru engin dæmi hjer á landi og vafalaust hvergi í lýð-
frjálsu landi.
I 26 kjördæmum af 28 á öllu Iandinu hefir kjörsóknin náð
98 af hundraði og yfir. í 14 kjördæmum var kjörsóknin 99 af
hundraði og yfir. Tvö kjördæmi, Vestur-Skaftafellssýsla »g
Seyðisfjörður náðu 100% kjörsókn, — þ. e. allfr, sem á kjör-
skrá voru, greiddu atkvæði.
Með þeim tölum, sem fyrir lágu í gær, mun láta nærri, að
heild.arþáttlakan í atkvæðagreiðslunni á ölju landinu sje nálægt
98 af hundraði, eða jafnvel þar yfir.
SlöSugar árásir
á samgönguleiðir
í gær
London í gærkveldi: —
I dag fóru um 500 stórar
amerískar sprengjuflugvjelar
og rjeðust á samgönguleiðir í
Vestur-Þýskalandi, Hollandi,
Belgiu og víðsvegar um Frakk-
land. — Flugvjelum þessum
fylgdu alt að 1000 orustuflug-
vjelar, og hafa Ameríkumenn
aldrei sent fleiri slíkar frá
Bretlandi.
Þjóðverjar sendu ekki upp
flugvjelar sínar, og týndust að-
eins 4 flugvjelar Ameríku-
manna, ein stór og 3 orustu-
flugvjelar. — Þjóðverjar kvarta
um það í fregnum sínum, að
Bandaríkjamenn sjeu farnir að
ráðast á sjúkralestir og á fólk
við útivinnu, á flugferðum sín-
um yfir Þýskalandi. Reuter.
Roosevell lalinn
öruggur með
kosningu
Washington í gærkveldi.
— Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter. Eftir Paul
Rankine.
Það er nú fullvíst, að
Roosevclt einn kemur til
greina sem forsetaefni Demo-
krataflokksins við kosningar
þajr, sem í hönd farg, — eða
að minstakosti er þetta álit
stjórnmálamanna hjer í Was-
hington. Meiri hluti af flokks
ncfndum þeim, sem útnefna
forsetaefni flokksins, hafa nú
verið k.jörnar og eru þær all-
ar að því er talið er, fylgj-
andi Roosevelt, og er því bú-
ist við að flokksþingið sam-
þykki hann einum rómi.
Þá telja kunnugir menn,
að Roosevelt muni verða kos-
inn forseti og kjörorð hans í
kosningabráttunm verða:
„Forseti til að vinna stríð-
ið og friðinn“. —- Reuter.
Pólverjar misnota f je
Celler, fulltrúi New York
borgar sagði í dag, að Pól-
verjar kostuðu óhemju miklu
fje til áróðurs í Bandaríkjun-
uni. Sagði Celler, að sanikv.
áreiðanlegum heimildum, liefði
„pólska útlagastjórnin mis-
notað fjárfúlgur, sem hún
hefði fe'ngið frá Bandaríkja-
stjórinni í því sjerstaka augna
miði, að styrkja leynistarf-
semina í Póllandi. Nú hefir
sannast, að minstakosti tals-
verður hluti þesssa fjár liefir
aldrei verið fluttur frá Banda
ríkjunum“. — Reuter.
Fast við 100%
Þrjú kjördæmi vorti í gær
fast við 100%, þ. e. Gull-
hringu- og Kjósarsýsla, Iiang
arvallasýsla og Dalasýsla.
I Gullbringusýslu stóð það
þannig, að af um 2400 á kjör-
skrá vantaði kl. 11 í gær-
kvöldi aðeins eitt atkvæði
þeirra, sem dvelja hijerlendis,
en húist við að það kæmi
fram. Svo vorn 4 kjósendur í
Ameríku og búist við þeim
atkvæðum. Komi öll þessi at-
kvæði fram, verður kjörsókn-
in í Gkillbringusýslu 100%, en
ef ekki, þá 99.96%.
1 Kjósarsýslu var eins á-
statt. Þar höfðu allir kjósend
ur, sem dvelja hjerlendis greitt
atkvæði, að einum nndanskild.
um, er búist var við að kæmí
fram. I Ameríkn dvelja 4
kjósendur og búist við atkv.
þeirra. Verður kjörsókn þar
því, ef ekki full 100%, þá fast
að því.
I Dalasýslu og Rangárvalla
sýslu vantaði aðeins einn
kjosanda í hvorri sýslu. Komi
þeir ekki fram verður kjör-
sókn þar 99.9%.
Hreppar með 100%
kjörsókn.
Enn bættust við 22 hreppar
með 100 % kjörsokn, svo að als
eru þeir 108 hrepparnir, þar
sem allir kjósendur hafa greitt
atkvæði. Hjer koma þeir hrepp
ar, sem skiluðu 100% síðasta
kjördaginn:
Gullbringu- og Kjósarsýsla:
Hafnahreppur, Kjósarhreppur.
Borgarfjarðarsýsla: Andakils
hreppur.
Mýrasýsla: Stafholtstungna-
hreppur, Hraunshreppur.
V.-Húnavatnssýsla: Kirkju-
hvammshreppur, Hvammstanga
hreppur.
Skagafjarðarsýsla: Skefils-
Framh. á 2. siðu.