Morgunblaðið - 28.06.1944, Blaðsíða 6
6
MOi. GUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 28. júní 1944
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar:
Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: fvar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Óla
Ritstjórn, augiýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands,
kr. 10.00 utanlands
í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók.
Frelsi og menning
ÞAÐ ER fylsta ástæða til að hvetja menn til þess að
skoða sögulegu sýninguna í Mentaskólanum. Enda þótt
tíminn væri mjög stuttur til undirbúnings sýningarinnar,
er hún stórfróðleg og merkileg. Ber sýningin þess glögg
merki, að þar hafa lagt á ráðin menn, sem kunnu full skil
á hlutunum, enda mun aðalstarfið hafa hvílt á herðum
tveggja ókkar ágætustu fræðimanna, þeim prófessor
Ólafi Lárussyni og *dr. Einari Ól. Sveinssyni.
Það er leitt, að þessi sýning skuli ekki geta verið hald-
in meðan skólarnir starfa. Unga kynslóðin þarf að leggja
meiri rækt við sögu þjóðar sinnar, en hún alment gerir.
Nákvæm athugun á sýningunni í Mentaskólanum er áreið
anlega besta kenslustundin í sögu þjóðarinnar, sem hægt
er að fá. Verður þessvegna að finna einhver ráð til þess,
að sýningin geti orðið endurtekin næsta haust, þegar
skólarnir eru að hefjast. Það myndi glæða ættjarðarást
skólafólksins, að kynnast sýningunni, með góðri leiðsögn.
★
Ekki er vafi á því, að margan mun hafa fýst að sjá
Þjóðfundarmynd Gunnlaugs Blöndals, listmálara. Þjóð-
fundurinn gnæfir hæst í allri frelsisbaráttu þjóðarinnar.
Frá honum stafar meiri ljómi en nokkrum öðrum við-
burði í okkar stjórnmálasögu. Þar var því tilvalið verk-
efni fyrir listmálara.
Við því var ekki að búast, að takast myndi að gera þessu
verki full skil á þeim stutta tíma, sem hjer var til umráða.
Enda er mynd Gunnlaugs Blöndal ekki mynd af Þjóð-
fundinum, eins og hann gekk til, heldur hefir listamaður-
inn safnað saman ljósmyndum af þeim fulltrúum Þjóð-
fundarins, sem til eru og síðan málað þær upp á eina
hópmynd.
Þjóðfundinum verður að gera betri skil. Það verður
að gera málverk af fundinum, eins og menn hugsa sjer
að hann hafi verið á því sögulega augnabliki, er fundinum
var hleypt upp og Jón Sigurðsson og aðrir þjóðfundar-
menn mótmæltu einum rómi. Þessa mynd verður Alþingi
að láta gera. Ætti vissulega vel við, að hún yrði fullgerð
á næsta ári, en þá eru 100 ár liðin frá því, að Alþingi
kom saman, eftir að þingið var endurreist. Gunnlaugur
Blöndal listmálari mun áreiðanlega geta gert þessa mynd.
En fróðustu menn verða að leggja á ráðin um, hvernig
þingskipan hefir verið á fundinum.
Alþingi verður að koma þessu í verk.
★
Níunda og síðasta sýningarstofan í Mentaskólanum er
ekki mikil yfirferðar, en þó er hún svo merkileg og tákn-
ræn, að hún á að verðveitast og fullkomnast. „Sjálffor-
ræði“ heitir þessi sýningardeild. Henni er ætlað að sýna
nokkuð af þeim breytingum, sem orðið hafa hjer á landi
síðan 1874, er íslendingar fengu aftur vald yfir málum
sínum innan lands og alt til síðustu ára. Breytingarnar eru
sýndar með línuritum, teikningum og ljósmyndum.
Sagan, sem skráð er í þessari sýningarstofu er tákn-
ræn. Hún sýnir, að sjerhvert skref, sem þjóðin megnaði
að stíga til aukins frelsis og sjálfsforræðis, hefir fært
henni auknar framfarir á öllum sviðum. Og því stærra,
sem frelsisskerfið var, því meiri urðu framfarirnar.
í sýningarskránni segir svo m. a. um þenna þátt sýn-
ingarinnar: „Árið 1874 eru hjer enn miðaldir, 1944 er hjer
nútíðarmenning. Svo mikil eru stakkaskiftin. Hugmynd
þessa herbergis er því þessi: „Sú þjóð, sem þetta alt hefur
unnið og ekki leitað á aðrar þjóðir, á skilið að vera frjáls
og fá að lifa lífi sínu í friði“.
Margir þpirra, sem mest og best hafa starfað síðan
1874, eru nú horfnir. En það er verk þessara manna og
fjölmargra annara, sem enn eru í fullu fjöri, að okkar ást-
kæra land er nú alfrjálst á ný.
En nú er það okkar og hinnar upprennandi kynslóðar
að sýna næstu áratugina sömu þróun á sviði menningar
og framfara og fyrirrennararnir gerðu við sjerhvert nýtt
skref, sem stigið ýar til aukins frelsis.
Kröfur bifreiða-
sijóranna
EINS og skýrt hefir verið frá
í blöðunum hefir fjelag vöru-
bifreiðarstjóra í Reykjavík,
Vörubifreiðastöðin Þróttur, sagt
upp samningi við Vinnuveit-
endafjelag íslands. Samningur
hefir ekki tekist á ný og hafa
vörubifreiðarstjórar boðað verk
fall frá og með 1. n. m.
Samningur sá, sem gilt hefir
undanfarin ár milli fjelags
vörubifreiðastjóra og Vinnuveit
endafjelags íslands, hefir verið
bygður á tilteknu tímakaupi
bifreiðastjóra og greiðslu fyrir
bensín, gúmmí, smurningsolíu,
viðhald o. fl. samkvæmt grund
velli reistum á hlutfallstölum,
sem samkomulag hefir verið
um, en eftir þeim grundvelli
hefir borgun fyrir vörubifreiða
keyrsluna hækkað í hlutfalli
við hækkun verðs á bensíni,
gúmmí o. fl. og hækkun við-
haldskostnaðar, og hefir aldrei
verið neinn ágreiningur milli
aðila á því sviði.
Fjelag vörubifreiðastjóra hef
ir lagt fram upkast að nýjum
samningi, þar sem gerðar eru
auknar kröfur frá því, sem ver-
ið hefir, og eru þær aðallega
þessar:
1) Leigugjald fyrir bifreiðar
allt að tveggja tonna hækki úr
núverandi grunngjaldi kr. 10.11
um klst. (bifreið kr. 7.61, bíl-
stjóri kr. 2.50) upp í kr. 12.50
eða um ca. 23TÆ%.
En fyrir bifreiðar stærri en
tveggja tonna er krafist kr.
15.20 grunngjálds hvort sem
þær eru með afhleðsluvjelum
eða ekki og er það ca. 50%
hækkun frá því, sem verið hef-
ir fyrir slíkar bifreiðar án
afhleðsluvjela.
2) Ef ekið er 100 km eða
meira á 8 klst. skal greiða við-
bótargjald samkv. langferða-
taxta fjelagsins fyrir hvern km
sem ekið er fram yfir 100 km,
kr. 1.38 pr. km fyrir allt að
2 Vi tons bíla og kr. 1.50 pr. km
fyrir stærri bíla.
3) Tímakaup bílstjóra reikn-
ist kr. 3.25 pr. klst. í stað nú
kr. 2.50. Er þetta 30% hækkun
á grunnkaupi. Auk þess greið-
ist full dýrtíðaruppbót á kaup
4) Samkv. núgildandi samn-
ingi er ekki samið um neina
sjerstaka kaffitíma. Nú gerir
fjelagið kröfu til þess að fá 20
mín. kaffihlje tvisvar í dag-
vinnu (kl. 9.40 til kl. 10 árd.
og kl. 3 til 3.20 síðd.) og einu
sinni 15 mín. í eftirvinnu (kl.
5—5.15 síðd.) og þrjú 15 mín.
kaffihlje í næturvinnu.
Oll kaffihljein eiga að greið-
ast með fullri borgun, og því
ekki aðeins fyrir bílstjóra held-
ur einnig fyrir bílinn sjálfan.
Vinnuveitendafjelag Islands
hefir neitað að ganga að þess-
um auknu kröfum, en boðið að
hækka kaup bifreiðastjóranna
sjálfra í samræmi við kaup-
hækkun þá, sem samið var um
við V.m.f Dagsbrún hjer í bæn
um 22. febr. síðastl., en við það
var 16.6% hækkun og mundi
sá grunnkaup vörubifreiða-
stjóra verða kr. 2.92 um klst.
Til samanburðar má geta þess
að samkvæmt tjeðum samningi
við V.m.f. Dagsbrún er grunn-
kaup bifreiðastjóra, sem vinna
á annara manna bílum, aðeins
kr. 2.75 um klst.
Eggert Claessen.
yjílvct'ji iiriiar:
A
Y
A
|
%
ijr ílcicjleaa líÍinu
4*K“KhK,<,44,M"H',K*
Forsetaheitið.
ÞAÐ HEFIR tíðkast allmikið
hjer á landi, að fjelög og þó eink
um fjelagasambönd hafi gefið
formönnum sínum nafnið forseti.
Virðist þetta ekki hafa farið eftir
neinum föstum reglum, þannig,
að t. d. fjelagatala rjeði, heldur
er að sjá, að tilviljun ein hafi
komið til um það, hvort fjelags-
formenn eru kallaðir forsetar,
eða formenn.
Það má segja, að þetta hafi
ekki komið að sök undanfarið og
litlu máli hafi skipt hvaða nafn
fjelagsformönnum var valið. En
nú er viðhorfið gjörbreytt.
íslendingar hafa nú embættis-
mann, sem heitir forseti. Hann
er æðsti maður þjóðarinnar og
það getur ekki verið nema einn
forseti í landinu i einu og sá mað
ur er Ríkisforseti Islands. Það er
ekki fremur hægt að hafa fleiri
forseta í einu landi en hægt er
að hafa fleiri en einn konung í
seijn.
Af þessum ástæðum verða fje-
lög öll, sem hafa nefnt formenn
sína forseta, að leggja það nafn
niður. Hefir nýlega komið fram
ályktun um þetta á þingi fjelaga
sambands og hlýtur tillagan að
fá góðan byr hjá þjóðinni.
í nefndri ályktun er að vísu
gert ráð fyrir, að alþingisforset-
ar haldi sínu nafni óbreyttu, en
að mínum dómi getur það verið
álitamál.
Um þetta mál þyrfti að setja
lög hið fyrsta.
•
Hvernig á að ávarpa
forsetann?
Á ÍSLANDI hefir ekki verið,
fyrr en nú, innlendur þjóðhöfð-
ingi og þar af leiðandi eru engar
venjur, eða reglur til um, hvern
ig á að ávarpa forseta landsins.
Um þetta atriði gilda misjafn-
ar reglur hjá erlendum þjóðum.
Sumsstáðar eru forsetar ávarp-
aðir „yðar hágöfgi“, eða „yðar
göfgi“. Hjá öðrum þjóðum er for
setinn ávarpaður „herra forseti“.
Þannig er það t. d. hjá Banda-
ríkjamönnum.
Vitanlega þarf að setja reglur
um það, hvernig ávarpa skuli for
setann. Skiptir það í sjálfu sjer
ekki mestu máli, hvernig það á-
varp er að forminu til á meðan
þess er gætt, að það sje virðu-
legt, eins og þjóðhöfðingja sæmir
Vikulegar Iauna-
greiðslur.
SKULUM VIÐ NÚ snúa okk-
ur að ólíku efni, en það er til-
högun á launagreiðslum. í grein,
sem jeg skrifaði hjer á dögun-
um, mintist jeg lauslega á, að
heppilegt væri að taka upp þá
venju að greiða laun vikulega, í
stað mánaðarlega, eins og nú
tíðkast. í sambandi .við þetta hefi
jeg fengið mörg brjef og menn
hafa talað við mig um, að hjer
h.afi verið drepið á nauðsynja-
mál, sem myndi gjörbreyta versl
unarháttum til hins betra.
Meðan mánaðargreiðslu fyrir-
komulagið er haft, fer ekki hjá
því að allmikið verði um láns-
verslun, sem kaupmönnum er
eðlilega illa við af ýmsum ástæð
um og er óheppileg fyrir við-
skiptavinina lika.
Mánaðargreiðslu fyrirkomulag
ið þykir nú orðið úrelt í mörg-
um löndum og jafnvel íhaldsöm
þjóð eins og Bretar hafa fyrir
alllöngu breytt til hjá sjer og eru
laun þar í landi greidd viku-
lega í flestum atvinnugreinum.
Sömu sögu er að segja frá Banda
ríkjunum og fjölda annara þjóða
**♦ «*« ♦!♦ »*♦ "1* •** «*♦
HvaS myndi vinnast?
MENN, sem ekki hafa kynt
sjer þetta mál, eða um það hugs-
að, spyrja, hvað myndi vinnast
við vikulegar launagreiðslur í
stað mánaðarlegra útborganna?
Þá er því til að svara, fyrst og
fremst, að viðskipti myndu yfir-
leitt fara fram gegn staðgreiðslu.
Menn fengju oftar fje milli
handa og gætu betur áætlað
þarfir sínar fyrir vikuna og þar
af leiðandi minni hætta á, að
menn eyddu fje um efni fram.
Eitt atriði enn, sem vert er að
minst sje á er það ósamræmi,
sem nú ríkir. I sumum starfs-
greinum hjer á landi eru laun
greidd vikulega, en í öðrum mán
aðarlega.
Þetta mál ætti að ræða innan
stjettarfjelaga, bæði launþega og
atvinnuveitenda. Það er hægt að
koma á vikulegum launagreiðsl-
um í flestum eða öllum atvinnu-
greinum á landinu með lítilli
fyrirhöfn.
Jeg vildi með ánægju eyða dá-
litlu rúmi hjer í dálkunum til
umræðna um þetta mál.
•
Þegar limirnir dansa
ekki eftir höfðinu.
SAGT ER, að „eftir höfðinu
dansi limirnir“. En þetta er ekki
ávalt rjett, sem betur fer.
Fyrir þjóðhátíðina voru menn
hvattir mjög eindregið til að
hreinsa til hjá sjer. Mála hús sín
og svo framvegis. Hjer í bænum
brugðust menn vel við áskorun-
unum yfirleitt — allir nema hið
opinbera.
Það er á allra vitorði, að
gamla Bernhöftsbakarís-eignin í
Bankastræti er eign ríkisins. Ó-
hreinni og sóðalegri hús er varla
að finna í þessum bæ. Ekkert,
bókstaflega ekkert var gert til að
hreinsa til í kringum þessi hús,
að ekki sje nú talað um, að þau
væru máluð. Það var sannarlega
gott, að „limirnir“ skyldu ekki
dansa eftir stjórnarhöfðunum í
þetta sinn.
•
Annað dæmi — engu
betra.
ANNAÐ DÆMI um það, hve
margar opinberar byggingar eru
vanhirtar er Safnahúsið við
Hverfisgötu.
Það hlýtur að hafa kostað
Hannesi Hafstein ráðherra mikið
átak, að fá Safnahúsið reist og
vissulega var það mikill stórhug-
ur og framsýni af þeim merka
manni, að ráðast í slíka bygg-
ingu á þeim tíma, enda líkt og úr
ingu á þeim tíma, enda líkt við
æfintýri, og fanst sumum firra
mikil að láta sjer detta í hug að
ráðast í byggingu slíks stórhýsis.
í Safnahúsinu eru geymd mörg
af dýrmætustu verkum, sem
þjóðin á. Ómetanlega verðmæti
eru þar til húsa. En ekki getur
nokkur maður, sem ekki veit,
betur trúað því, er hann horfir
á, hvernig húsi þessu^ er við
haldið.
Er það of mikil fórn, að mála
húsið að utan, þó ekki sje nema
á svo sem 10 ára fresti?
Þakið er að ryðga í sundur og
hriplekur.
Er þetta hús og það, sem það
hefir að geyma, ekki meira virði
í augum ráðamanna þessa lands,
að það þyki hæfa að hafa það í
slíku ástandi sem það er nú?
Kennaraprófi í íslenskum fræð
um við háskóla íslands hafa lok-
ið: Eiríkur Kristinsson með 1.
einkunn (102i/3 stig) og Snæ-
björn Jóhannsson með 1. eink.
(90y3 stig).