Morgunblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 01.07.1944, Blaðsíða 7
Laugardagur 1. júlí 1944 7 MORGONBL / 'lf) LANDK VILHJÁLMUR STEFÁNSSON VILHJALMUR STEFANSSON hafði engar eldspýtur, og Fitz- gerald, undirforingi í riddara- lögreglu Norðvesturhjeraðanna vildi ekki láta hann fá neinar eldspýtur. Vilhjálmur og menn hans mundu án efa ganga beint í dauðans greipar, ef þeir hjeldu áfram inn á hjnar auðu og lífvana snjóbreiður hejim- skautalandanna, eins og þeir á- formuðu að gera. Fitzgerald skipaði þeim því að taka sjer vetrarsetu í kofa í nánd við að- setursstað sinn og bauðst hann til að fæða þá, þar eð þeir voru bjargarlausir. Staður þessi var Herscel eyja á 67. breiddargráðu, rjett við Norður-íshafið. j Vilhjálmur neitaði að hlýða þessari skipun. Þremur árum síðar var hann við bestu heilsu í hlýjum kofa sínum í nánd við Mackenziefljótið. Var hann þá nýkominn þangað úr hinni mestu þjóðfræðírannsóknarför, sem nokkru sinni hefir farin verið til heimsskautslandanna.! Fjelagi hans kom þá inn og færði honum þær ömurlegu j fregnir, að hinn samviskusami Fitzgerald, undirforingi, hefði fundist hungurmorða ásamt þremur öðrum foringjum lög- reglujmar. Þessi raunasaga leiðir glögt í Ijós muninn á Vilhjálmi Stef- ánssyni og öðrum heimskauta- förum. Hann er síðaslur í röð heim- skautafaranna og um leið mest- ur þeirra. — Hann er Daniel Boone norðursins. Hann flutti landamæri vesturhvels jarðar þúsund mílur til norðurs, er hann sannaði það, að hægt væri að lifa í heimskautslöndunum. Landsvæði það, er hann kort- lagði, mun í framtíðinni verða mikilvægt fyrir heiminn, og nú þegar liggja flugleiðir yfir það. Land þetta er auðugt af kolum, málmum og olíu. Það getur fætt geisimiklar hjarðir heimskáuta landadýra, •— moskusuxa og hreindýr. „Jörðin er nú að síð- ustu að verða hagnýtt“, segir j Vilhjálmur. Vilhjálmur hefir unnið mikið afrek. VILHJÁLMUR Stefánsson varð að heyja allmikla baráttu fyrir kenningum sínum, þar til styrjöldin leiddi í Ijós hið mikla gildi þessara landsvæða. — Alaska reyndist vera mikilvæg bækistöð Ameríku til Verndar og þaðan var stysta flugleiðin til Tokio frá meginlandi Ame- ríku. Fólk flutti nú þangað í stríðum straumum, og alt heim skautasvæðið er í rauninni kom ið innan endimarka siðmenning arinnar, eftir að Alaska var gert 49. ríkið í Bandaríkjunum og það enn betur tengt við Bandaríkin með Alaskabraut- inni og tíðum flugferðum. , Vilhjálmur var skipaður ráðunautur herstjórnarinnar árið 1939. Hann hefir veitt að- stoð við skipulagningu á út- búnaði og flutningi nauðsynja og þjálfun flugmanna. Vegna náinnar þekkingar sinnar á heimsskautasvæðunum eru ráð hans bygð á víðtækari þekk- ingu en nokkur annar maður hefir til að bera. Rannsóknir Vilhjálms Stef- EFTIR GERARD PEEL Viíhjálmur Stefánsson mun án efa vera frægasíur allra núlifandi íslendinga.Hann hefir skapað tengsl milli menningarþjóðanna og feikivíðáttumikils landflæmis lengst norður á hjara veraldar. Mun sennilega mega telja Vilhjálm frægasían og merk- astan allra heimsskautakönnuða. —. Eftirfarandi grein um Vilhjáím birtist fyrir skömmu í ameríska ritinu „Coronet“, en er hjer dálítið stytt í þýðing- unni. anssonar eru svo stórkostlegar, að það er erfitt að átta sig á því, ao þær hafi verið fram- kvæmdar á vorum tímum. •—• Hann dró merki" sitt að hún, er hann skráði nafn sitt til innrit- unar í Norður Dakota háskól- * ann í hinum gamla stíl •— Vil- hjálmur'Síefánsson. Hann var ar.nars skýrður Wiliiam Stef- ánsson. Fæddist hann í Arne, Maniíoba í Kanada, árið 1879, og er af íslensku bergi brotinn. Efiir fjögur ár hvarf hann úr háskólanum í Dakota og innrit- aðist í háskólann í Iowa, þar sem hann tók að stunda námið fyrir alvöru og tók próf. Síð- an fór hann í Harvardháskóla og lagði þar í þrjú ár stund á guðfræði og mannfræði. Jafn- hliða námi sínu vann hann sem kennari, líftryggingarerindreki og frjettaritari. Hann hóf rann- sóknir sínar með ferð til íslands á eigin kostnað, en síðar á veg- um Hai;vardháskóla. — Seinna sendu háskólarnir í Harvard og Toronto hann til þess að rann- saka háttu Eskimóa við Mac- kenziefljótið. Það, sem gerði Vilhjálm Stef ánsson mestan allra heims- skautakönnuða var undirstöðu- lífsregla hans: „Lifðu á land- inu“. Hann sagði: „Þar sem Eskimóarnir geta lifað, get jeg einnig lifað“. Hann þekkir heimsskautslöndin betur en nokkur annar af þeirri ástæðu, að hann gat farið hvert sem hann fýsti og hafst þar við eins lengi og hann vildi. í síðustu rannsóknarferð sinni fór hann ásamt tveimur fjelögum sínum norður á ísbreiður heimsskauts landanna og týndist umheim- inym í fimm ár. Saga þessardr fimm \^ra rannsóknarferðar er stórfenglegasta saga Norður- heimskautslandanna. Vilhjálmur er góður vinur Eskimóanna. SÉLVEIÐARNAR eru aðal- bjargræðisvegur Eskimóanna. Selirnir eru alstaðar undir ísn- um, en þeir verða að koma upp um holur, sem þeir hafa nagað á ísinn, til þess að anda. Á dag- inn koma þeir upp og leggjast fyrir. Vilhjálmur varð betri selaSkytta en Eskimóarnir. Á veturnar eru selaholurnar snævi þaktar og álitu aðrir land könnuðir, að þá væru engir sel- ir. En Vilhjálmur varð mikill viijur Eskimóanna. Sýndu þeir honum, hvernig hundar þeirra gátu þefað uppi selaholurnar. Veiðimaðurinn rekur síðan hvítt bein, svipað í logun og stoppnál, gegnum snjóinn yfir gatinu. Þegar selurinn svo kem ur upp til þess að anda, ýtir hann upp nálinni, og veiðimað- urinn skýtur þá skutli sínum og nær i 100 til 150 pund af kjöti og lýsi. Það var því gnótt fæðu fyrir þann, sem vissi hvernig hann átti að finna hana. Eftir fimm mánuði höfðu þeir Vil- hjáimur og fjelagay hans aðeins solþð í hálfan annan dag. Munurir.n á Vilhjálm’i Stef- ánssyni og öðrum landkönnuo- um sjest ljósast af ferð Peary til Norðurheimsskaulsins og heim aftur. Hann setti ekki I vonir sínar hærra en komast J heim lifandi. Peary fór 410 j mílur frá bækistöð sinni ög1 þurfti 139 hunda, 24 menn og | tíu sleða. Vilhjáímur ferðaðist I 10,000 mílur yfir bæði kaldara | land og erfiðara yfirferðar — I I og varð eingöngu að ireysta á sjálfan sig. Hann hefði getáo farið til Norður-heimsskautsins _! og dvalið þar í mánuð. í reynd- inni úir og grúir af selum og hvítabjörnum umhverfis heim- skaulið, eflir því sem Rússinn Papanin uppgötvaði og not- færði hann sjer þar þekkingu Vilhjálms. En Kanadastjórn og náttúrusögusafnið í Banda- ríkjunum, sem stóð á bak við rannsóknarleiðangur Vilhjálms höfðu engan áhugá á þvr að láta festa upp extthvert spjald á Norðurheimskautið. Af snjóhúsum -Eskimóa lærði Vilhjálmur húsagerðarstíl, sem nútímahúsameistarar flestir styðjast við. Fjmsta snjóhúsið, sem Vilhjálmur reisti, tókst vel. Honum fanst snjóhúsið sá þægilegasíi bústaður, sem völ væri á. (Snjóhús þessi eru bvgð á sjerstakan hátt og skal ekki nánar út í það farið hjer). — Grútarlampi getur hækkað hit- ann í snjóhusinu upp í átta stig. Viíhjálmi fanst bæði eðlilegt og þægilegl að fylgja þeirri venju Eskimóanna að afklæðast áður en hann lagðist lil svefns í svefnpoka sínum. Eskimóarnir klæðast aðal- lega hreindýraskinnum. Hrein- dýrahjarðirnar reika um gras- lendi heimsskautslandanna og Eskimóarnir veiða þau að sumr inu. Vilhjálmur komst að raun um það, að Eskimóarni'r þola að engu leyti betur kuldann en hvílir menn. En þeir kunna að klæða af sjer kuldann. ínnst klæða eru þeir í þunnri skyrtu og buxum úr skinni af ungum hreindýrum og snýr loðnan inn. Þeir eru í skinnsokkum og sel- skinn er best í stígvjel. Yfir innri klæðunum bera þeir yf- irhöfn úr þyngri skinnum og er áföst við hana hetta, sem þeir draga fram yfir höfuð og and- lit. Hetta þessi er rúm, svo að hún frjósi ekki við andlitið. Sofið í stórhríð. EITT sinn þegar Vilhjálmur var einsamall á veioum, skall yfir hann ofsarok. Mikið frost var .pg hríð, og hann vissi ekki, hversy margar mílur hann þurfti að fara eða i hvaða átt. Hann settist því niður, kross- lagði hfendurnar á hnjám sjer, lagði höfuðið fram á þær og sofnaði. Þegar honum kólnaði vaknaði hann. Hann stóð upp, gekk um íil þess^að örfa blóð- rásina og settistsxðan aftur nið- ur og sofnaði. Daginn eftir lægði storminn óg hann gat átt að sig á hvar hann var staddur og var hann þá fullfríSkur. — Menn eiga aldrei að ganga á- fram, þegar þannig stendur á, segir hann. Það gerir menn að- eins örmagna. Frægur heimskautafari sl-fýr ir frá því, að einn manna sinna hafi fundið að kinn hans var farin að fi'jósa. Þeir tóku þegar í stað að núa kalið með snjó og hjeldu þvi áfram alla leiðina iil bækistöðvanna. Þá sáu þeir að öll kinn mannsins var kalin. Viihjálmur gerir gys að sliku hátterni. ,.Þeir gátu ekki gert neitt óheppilegra", segir hann. Ermarnar á yfirhöfninni eiga að vera svo víðar, að hægt sje ao draga hendurnar upp í þær. segir hann. Þegar þú' finnur, að andlit þitt er einhversstaðar tekið að kala, skaltu ylja kal- bleitinn með lófanum. Menn kelur aldrei á fótunum, ef þeir eru rjettilega klæddir. Nótt eina vöknuðu þeir við gelt hundanna. Þeir stukku á fætur, og Vilhjálmur greip riff- il sinn, þaut út nakinn í feikna frosli og skaut ísbjörn, sem komist hafði inn í tjaldstaðinn. Slík nokkurra mínútna kæling gex'ir engum mein. Isbirnirnir eru sjaldan hættu legir. Vilhjálmur lenti aðeins einu sinni i höggi við isbjörn. Rjeðist ísbjörn þessi að hund- um hans, sem bundnir voru við tjaldið, en Vilhjálmur sjálfur var í nokkurri fjarlægð. Vil- hjálmur hljóp til og lagðist nið- ur í snjóinn til þess að geta mið að byssunni betur. Þegar al- vara er á ferðum, fyrirlítur hann skotaðferoir þær, sem líðkast í kúrekamyndunum. — Hann hitti björninn næstum i hjartastað, og dýrið fjell til jarðar í tæpra tíu metra fjar- lægð frá ísbrúniryri. Særður björti reynir ætíð af eðlishvöt að komast í vatnið. Af bjána- skap segist Vilhjálmur hafa gengið milli dýrsins og vakar- innár. Allt í einu reis dýrið upp og stökk að honum. Vilhjálmur gat skotið dýrið í heilann, en það datt svo nálægt honum að blóðið úr því slettist ^ hann. Hann hefir aldrei þurft að leggja sjer hundakjöt iil munns á ferðum sínm. Hundar hans eru af St. Bernhard og Eski- móakyni og eru bæði tryggir og sterkir. Eskimóar hlæja meira en hvítir menn. EFTIR að hafa dvalist um 10 ára skeið meoal Eskimóa og hitt óþekta kynþætti og aðra, sem ekki höfðu sjeð hvíta menn í sextíu ár, sannfærðist Vil- hjálmur um það, að Eskimó- arnir væru heilsubetri og ham- ingjusamari en eyjaskeggjar Suðurhafseyja. „Það eina sem jeg saknaði var hljómlist og bækur“, segir hann. — Hánn kunni tungumál Eskimóanna og mállýskur þeirra og kom æ- tíð fram við þá sem jafningja sína, svo að þeir urðu bestu vinir hans. Hann kveðst ekki skilja, að menningin geti veitt þeim neina meiri hamingju en þeir nú njóta. ..Eskimói hlær meira á viku en hvítur maður á mánuði. Vilhjálmur Stefánsson á nú heima í New York og er enn stæltur og hraustbygður, þótt hann sje sextíu og fjöguri'a ára að aldri og hár hans sje orðið grátt. í bókasafni hans um heimskautalöndin eru tuttugu þúsund bindi, og er það stærra en samskonar safn í bókasafni Bandarikjaþings og bókasafni heimskautalandastofnunarinn ar í Leningrad. Höfuðatriðun- um úr öllu þessu mikla safni hefir hann safnað saman i nítján binda handbók til eigin nota, og hefir hún komið að miklu gagni í starfi hans fyrir herinn. HanA hefir verið heiðr- aður af öllum menningarþjó- um heims, en meðal hinna mörgu rita hans munu hinar tvær ódauðlegu bækur hans ,,Líf mitt meðal Eskimóa“ og „Heimsskautslöndin unaðslegu“ verða honum eilífur minnis- varði. I lok sögu sinnar segir hann: „Vjer höfum fært heimsskauts- löndin nær oss .... Það, sem hefir komið í veg fyrir það, að heimsskautslöndin hafi verið hagnýtt og i þeim búið sem öðr um löndum heims, er aðallega tregða vor á því að skifta um skoðun“. Hjarta hins nýja heims Vil- hálms Stefánssonar liggur þús- und mílur norður af Aleuteyja- klasanum, en vegna aðgerða hans, finst oss það liggja miklu nær. Eitt afrekaði hann. Hann kannaði heimsskautslöndin svo vel, að þau eru nú fullkönnuð. Nú er ekki annað eftir en nema þau. F jekk 12 ára fansclsi Þessi franska greifafrú, Dinecn að nafni, var nýlega dæmd í 12 ára fangelsi í Bandaríkjunum, fyrir að hafa haft hönd í bagga með njósnum fyrir Þjóðverja þar vestra. ■ A-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.