Morgunblaðið - 26.07.1944, Síða 12
12
Miðvikndagur 26. júlí 1944
íslendingur smíðar
nýja gerð margföld
unarvjela
Chicago, Illinois.
ÁRNI ÁRNASON, eini ís-
lenski vjelfræðingurinn hjer í
borg, hefir nýlega lokið við
smíði á nýrri gerð margföldun-
arvjela, sem er einfaldari og
hagnýtari en eldri gerðir. Árni
hefir starfað að smíði vjelar-
innar í nokkur ár.
Velþekt fyrirtæki í Cleve-
land, Ohio. sem hefir alls kyns
skrifstofuvjelar á boðstólum,
hefir fest kaup á vjel Árna.
Árni.'sem er 36 ára að aldri,
fæddist í Kanada; hann er son-
ur Sigurðar Áx-nasonar, forseta
íslendingafjelagsins í Chicago.
Árni hefir starfað við vjelfræði
síðastliðin 16 ár, nýlega lauk
hann við umbætur á vjel, sem
smíðar vírkaðla. Tveir bræður
Árna eru í Bandaríkjahernum,
þeir eru núna báðir í Nor-
mandí.
Verkfall í iðnaðín-
um 1. ágúsf
IÐJA, fjelag verksmiðju-
fólks, hefir sagt upp kaupsamn
ingum við Fjelag ísl. iðnrek-
enda 1. ágúst og gert allmikl-
ar kröfur um kauphækkun.
Hafa iðnrekendur ekki sjeð
sjer fært að ganga að kaup-
hækkunarkröfunum, m. a.
vegna þess, að viðskiftaráð leyf
ir ekki hækkun á verðlagi, þó
framleiðslukostnaður hækki
vegna kauphækkunar.
Formaður Iðju hefir skýrt
svo frá í Þjóðviljanum, að fje-
lagsmenn í Iðju sjeu mjög ein-
dregnir í kröfum sínum. Svo
allar líkur eru til þess, að verk-
fall verði ekki umflúið. Á 2.
þúsund manns leggur þá niður
vinnu um mánaðamótin.
Málið er í höndum sátta-
semjara.
Sendistöð í svif-
sprengjum.
STOKKHÓLMUR: — Berlín-
árfrjettaritari sænska blaðsins
„Aftonbladet“ segir í skeyti til
blaðs ’síns, að útvarpssendistöð
sje í svifsprengjum. Erá sendi-
stöðinni berast í sífellu merki,
þangað til sprengjan fellur til
jarðar eða eyðilegst á annan
hátt.
Reiknaður er út tíminn, sem
líður frá því að sprengjunni er
hleypt upp og þangað til búast
má við, að hún springi. Ef merk
in frá sendistöðinni hætta, áður
en sprengjan á að hafa náð á-
kvörðunarstað, þá er talið víst,
að hún hafi verið eyðilögð af
orustuflugvjelum eða með skot
hríð úr loftvarnabyssum.
m 9 m W
ÍTALÍUFÖR
BRETAKONUNGS.
Æapoli í gær: — Bretakon-
i ungur hefir ferðast hjer um og
átt tal við æðstu menn hers og
flota og flugliðs bandamanna.
Hefir hann heimsótt herstöðv-
ar og kynt sjer ástandið í her-
numdu hjeruðum Italíu.
— Reuter.
Frá (aen
Þessi mynd er frá borginni Caen í Normandþ sem mest var barist um( en sem
bandamenn hafa nú örugglega á valdi sínu.
400 lítrar af vatni á hvern íbúa
í Reykjavík á sólarhring
Á SEKÚNDU HVERRI
renna 227 lítrar af köldu
Gvendarbrunnavatni til
Reykjavíkurbæjar. — Þetta
svarar til þess, að hver ein-
asti íbúi í Reykjavík fái 400
lítra vatns á sólarhring. En
samt er vatnsskortur alltil-
finnanlegur í sumum hverf-
um bæjarins. Hjer er ekki
talið hitaveituvatn, en
vitað er, að á rnörgum heim-
ilum er það notað til upp-
þvotta og í þvotta allskonar.
Það er því ekki eðlilegt. að
vatnsskorlur skuli vera í Rvík
og það er hægt að gera ráðstaf-
anir til að allir bæjarbúar fái
nóg vatn, ef íbúar bæjarins eru
samhentir og vilja gera sitt til
að bæta úr skortinum.
Þar sem vatnið er selt eftir
mæli.
Það er ekki nokkur vafi á; að
Reykvíkingar bruðla með vatn-
ið. Sjest það til dæmis á sam-
anburði á vatnsnotkun í lönd-
um; þar sem kalt vatn er selt
eftir mæli; og vatnsnotkun þar
af leiðandi stilt í hóf.
Handbækur, sem verkfræð-
ingar bæjarins hafa að sýna,
að meðal vatnsnotkun í Berlín
fyrir stríð var 90 lítrar á mann
á sólarhring. í Hamborg var
meðal vatnsnotkun 145 lítrar;
en 170 í Köln. Af 37 þýskum
borgum. sem höfðu yfir 100
þúsund íbúa voru einar fimm
borgir, þar sem vatnsnotkunin
var meira en 200 lítrar á mann
á sólarhring.
í nokkrum þýskum borgum
var reynt að láta vatnið ólak-
markað, en þá kom í ljós^ að
neyslan varð helmingi meiri og
varð að setja mæla upp á ný.
Nú skyldu menn halda. að
ekki væri annað^ en að selja
vatn hjer í bænum eftir mæli
og þá myndi þetta lagast. En
því miður er það hægara sagt
Ráð til að bæta úr
vatnsskortinum
en gert. Eins og er; fást ekki
vatnsmælar og enda myndi það
hafa allmikinn kostnað í för
með sjer að setja vatnsmæla í
hvert hús, Það ætti líka að vera
óþarfý því hægt er að bæta úr
vatnsskortinum með því að
bæjarbúar sjeu samhentirum að
spara vatnið.
Vatnsleiðslur, sem leka.
Víða trassa menn að láta gera
við vatnsleiðslur, sem eru lek-
ar og eyðist mikið vatn á þann
hátt til ónýtis. Er mönnum
kannske vorkunn í þessum efn-
um því erfitt hefir verið að fá
rörlagningamenn í vinnu til að
gera við.
En nú hefir Vatnsveita Reykja
víkur ákveðið að reyna að
hjálpa mönnurn í þessum efn-
um. Ættu þeir; sem vita um
lekar vatnsleiðslur að tilkynna
það skriflega til Vatnsveitunn-
ar og mun þá verða reynt að
senda viðgerðamenn.
Látið ekki vatnið sírenna.
Það er mjög nauðsynlegt. að
fólk láti ekki vatn sírenna úr
leiðslunum.
Bæjarráð hefir gert samþykt
um þetta atriði og segir þar á
þessa leið:
„Á bæjarráðsfundi 21. þ. m.
var tekin upp samþykt bæjar-
ráðs frá 11. maí 1943; um bann
við misnotkun vatns; og ákveð-
ið að bæta inn í hana banni við
að vökva garða með slöngum.
Samþyktin hljóðar þannig:
Vegna þess; að tilfinnanlegur
vatnsskortur hefir verið í ýms-
um hverfum bæjarins undanfar
ið, er brýnt fyrir bæjarbúum.
að fara eins sparlega með vatn
og frekast er kostur.
Til þess að ráða bót á vatns-
skortinum, ákveður bæjar-
stjórn að banna með öllu, að
vatn sje notað á þann hátt, að
því sje sprautað úr slöngum
við gluggaþvott, húsþvott. gang
stjetíaþvott, bifreiðaþvott og
vökvun garða. Við slíkan þvott
má nota fötur eða önnur hæf
ílát, en þá er bannað að láta
sírenna í þau vatnsveituvatn.
Ennfremur er sjerstaklega
brýnt fyrir fólki að takmarka
eftir föngum vatnsnotkun við
þvotta á fatnaði, og láta ekki
sírenna þar heldur. nje við af-
vötnun á matvælum.
Brot gegn slíkum fyrirmæl-
um ber að líta á sem misnotkun
vatns og skal loka fyrir vatnið
hjá þeim sem brotlegir reyn-
ast, eftir reglum. sem bæjar-
ráð setur“.
ísfirsku slúlkurnar
fóru fil Þingvalla í
boði Reykjavíkur-
bæjar
S.L. LAUGARDAG bauð
bæjarstjórn Reykjavíkur ís-
firsku stúlkunum, sem keppá
í handknattleiksmótinu og
fararstjóra þeirra, forseta l.S.I
og nokkrum forystumönnuin
úr l.R. til Þingvalla.
Var fyrst ekið austur yfir
fjall og síðan upp með Sogi'
með viðkomu að Ljósafossi.
1 Valhöll á Þingvöllum var
snæddur kvöldverður, en síð-
an söfniiðust þátttakendur far,
arinnar saman upp undir Öx-
arárfossi. Þar ávarpaði Bene-
dikt Jakobsson, íþróttaráðu-
nautur, gestina f. h. Reykja-
víkurbæjar, en hann stjórnaðí
ferðinni. Fararstjóri ísfirðing
anna, Ágúst Leós, þakkaði
Reykjavíkurbæ fyrir ánægju-
legt ferðalag. Auk þeirra töl—
uðu Ben. G. Waage, forseti
l.S.l. og Þorsteinn Bernharðs-
son, form. I.R.
Veður var hið ákjósanleg-
asta og ferðin öll hin ánægju-
legasta.
I.
Jeppa-bílar rekasf
á við Geitháls
Afsfaða Brefa fil .
Indlandsmálanna
óbreyfi
London í gærkveldi:
Breska stjórnin hefir ekki
breytt neitt afstöðu sinni í
málefnum Indlands, en það er
að veita landinu sjálfstjónf
að stríðinu loknu, sem bygg-
ist á tillögum Sir Stafford
| Cripps og þegar eru kunnar.
Jarlinn af Munster, aðstoð-
ar innanríkisráðherra í Ind-
landsinálum, gaf þessar upp-
lýsingar í lávarðardeildinni í
dag, þriðjudag, þegar rætt
yar um Indlandsmálin vegná
tillagna, sem Gandhi hefir kont
ið með.
Strabolgi lávarður, fulltrúí
Verkamannaflokksins, bað urri
upplýsingar varðandi þessí
mál fyrir hönd flokks síns,
Munster kvað, að jafnvel ])ó!
að samkomnlag næðist milli'
Congress-flokksins og Moslem-
i’áðsins og væri hægt að'
mynda stjórn samkvæmt nú-
gildandi stjórnarskrá, þá ættí
ennþá eftir að ráða fram úi’
stórum vandamálum og rjett-
indi minnihlutaflokka værl
.ekki síst þeirra. Fram úr þess
um málum verður að ráðá
áður en bægt er að ganga fráj
nýrri st.jórnarskrá.
í GÆRDAG rákust á tveir
jeppa-bílar skamt frá Geit-
hálsi. Annar jeppinn var „ís-
lenskur", mun vera í þjón-
ustu sölunefndar setuliðsins,
og amerískur jeppi. Ekkert
slys varð á mönnum, en þíl-
arnir fóru báðir út af vegin-
,iim og skemdust nokkuð.
Ekki er kunnugt uin or-
sakir slyssins.
Mjög lítið um glæpi í
London.
LONDON: — Síðan innrásin
í Frakkland hófst, hefir mjög
lítið verið um glæpi í London.
Enginn stórglæpur og aðeins
fáeinir smáglæpip hafa verið
tilkyntir í Metropolitan lög-
regluumdæminu síðasta hálf-
an mánuð. Ætíð þegar einhverj
ar mikilvægar styrjaldarfrjett-
ir berast, minkar mjög um
glæpi í l^ondon.