Morgunblaðið - 17.08.1944, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudag'ur 17. ágúst 1944,
Innrásarsvæðið í Suður-Frakklandi
Miðjarðarhafsströnd
Frakklands
Miðjarðarhafsströnd Frakk-
Jatids er um 480 km. löng. Frá
Marseilles til Ajaccio eru 310
fcm. loftleiðis; til Cagliari 550,
. Róm 600, París 675, Algiers 780,
Tunis 840, Berlín 1180.
Franska Miðjarðarhafsströnd
in takmarkast beggja vegna af
háfjöllum, annarsvegar af Pjrr-
erteafjöllunum og hins vegar af
Alpafjöllunum. Upp af henni
rís hásljetta.
Yfir þessa hásljettu er farið
eftir Careassonne skarðinu til
Toulouse, og þaðan eftir Gar-
onnedalnum til Bordeaux og
Atiantshafsstrandarinnar.
Nær Alpafjöllunum myndar
áin Rhone dal yfir hásljettuna.
Sá dalur hefir verið notaður
sem innrásarvegur síðan á dög-
um Juliusar Caesars.
Frá Pyreneafjöllunum að
imynni Rhonefljótsins er strönd
in lág og flöt, með stórum salt-
lónuih, að sumu leyti aðskilin
frá sjónum af töngum og skög-
um. Aðeins ein góð höfn er á
þessari strandlengju, í Sete.
Xiöndun þungra hernaðartækja
mundi verða torvelduð mjög af
hinum grunnu lónum.
Sete (eða Cette) er um 150
km. frá spönsku landamærun-
um. Þar er höfn gerð af manna
völdum, varin 1600 metra löng-
iim brimbrjóti,
Sete er endastaður skipa-
skurðar (Canal du Midi). sem
éndar hinum megin í ánni'Gar-
ónne við Toulouse. Þessi skurð-
ur stytfir mjög leiðina frá Mið-
jarðarhafinu til Atlantshafsins.
Fyrst liggur skurðurinn sam-
hliða ströndinni frá Sete til
Narbonne, sem liggur örlítið frá
ströndinni um 85 km. frá
Spönsku landamærunum, síðan
heygir hann til norð-vesturs,
gegnum Carcassonne skarðið.
Armar skurður tengir 'Sete við
ána Rhone.
Landsvæðið upp af þessari
strandlengju er mjög frjósamt.
Þar er mikil vínviðarrækt, ein-
hver sú mesta í Frakklandi. Að
al borgirnar eru Perpignan,
Carcassonne, Beziers, Mont-
pellier og Nimes.
Umhverfis árósa Rhone en
víðáttumikið votlendi (Camar-
gue). Þar er aðallega stunduð
nautgriparækt. Strandlengjan
frá mynni Rhone og austur á
bóginn er þjettsett lónum. Upp
af ströndinni eru vötn og mýr-
ar. I slærsta lóninu, Etang de
Barre, sem er austan við aðalós
árinnar, er hinn litli hafnarbær
Marlgues.
Austar er hafnarborgin Mar-
seilles, slærsta og þýðingar-
mesta höfnin við vestanvert
Miðjarðarhaf. Þar eru 60.000
feta langar skipakvíar, sem
taka stór skip. Árás á Mar-
seilles er mjög miklum erfið-
leikum bundin. Þar var mið-
stöð allrar vérslunar við Afríku
og Asíu, og eftir að skipaskurð-
urinn til Rhone var bygður, ár-
ið 1902, var Marseilles miðstöð
allra afurða Rhonedalsins. íbúa
talan var lítið undir 700.000.
Höfnin samanstendur annars-
,vegar af gömlu höfninni, sem
nú er aðeins notuð af fiskiskip-
um og skemtisnekkjum, og svo
hinsvegar af röð af saman hang
andi skipakvíum, sem bygðar
hafa verið á seinustu öld. Þjóð-
verjar hófust handa um víg-
girðingu Marseilles óðara er
þeir höfðu hertekið hana 11.
nóvember 1942. Allri gömlu
höfninni var breytt og er hún
nú notuð undir birgðaskemm-
ur, byssur og skriðdreka. Um-
hverfis Marseilles eru strjál-
bygðar hæðiy sem gera árás á
borgina mun érfiðari.
Um 25 km. fyrir austan Mar-
seilles er lítill hafnarbær, La
Ciotat, en þar er þýðin^rmikil
skipasmíðastöð.TJm 50 km. fyr-
ir austan Marseilles er hafnar-
borgin Toulon, sem áður var
aðal flotahöfn Frakklands. Þar
er ágæt höfn og stórar skipa-
smíðastöðvar. Sem flotaltöfn
var hún mjög vel víggirt af
Frökkum, gegn árásum af sjó.
Þjóðverjar hafa lagt mikla á-
herslu á að styrkja þessar víg-
girðingar. Höfnin er full af sokn
um herskipum franska flotans,
orustuskipum, beítiskipum,
tundurspillum og kafbálum,
sem sökt var er Þjóðverjar
reyndu að taka þau í nóvember
1942. | *
Fyrir austan Toulon ná fjöll-
in niður lil strandar, og er þar
erfitt yfirferðar. Við borgirnar
er strandlengjan yfirleitt send-
in, enda eru þær fleslar bað-
staðir og menn fara þangað sjer
til heilsubótar. Þess á milli er
ströndin klettótt.
Stærslu borgirnar eru Nice
og Cannes, báðar með sæmileg-
um höfnum. Taka þessarar
slrandlengju mundi rjúfa alger-
lega aðal samgönguleiðina milli
Ítalíu og frönsku Miðjarðar-
hafsslrandarinnar.
Þjóðræknisfjelagið
þakkar mállökur
Frá utanríkisráðu-
neytinu:
Utanríkisráðherra barst í
morgun skeyti frá stjórnar_
nefnd Þjóðræknisfjel. Islend-
inga í Vesturheimi, og er
skeytið á þessa leið:
„Þjóðræknísfjelagið vott
ar forseta Islands, ríkis-
stjórn og þjóð, hjartfólgnar
þakkir fyrir framúrskarandi
viðtökur og fyrirgreiðslu í
sambandi við heimsókn full
trúa síns og Vestur-lslend-
inga á lýðveldishátíðinni.
Plugheilar kveðjur“.
Reykjavík, 1G. ágúst 1944
UtanríkisráSuneytið,
Kínverjar byrja
gagnsókn
Chunking í gærkveldi:
Kínverskur her á Gulárvíg-
stöðvunum hefir hafið gagn-
sókn gegn Japönum nærri borg
inni Ichang, sem er mikil sam-
göngumiðstöð nokkru vestan
Hankow; Þetta er tilkynt af yf-
irherstjórn Kínverja í kvöld og
sagt, að kínverskar hersveitir
sæki að borginni eftir bökkum
Gulár, og hefðu í gær getað
brotist gegnum varnarstöðvar
Japana á nokkrum stöðum. —
Eru nú háðar þarna allmiklar
orustur. — Um borgina Ichang
eru miklir flutningar, sjerstak
lega á fljótinu, milli fylkjanna
Hupeh og Hunan. — Reuter.
MikilS síldarafli
fyrir Norðurlandi
Aflinn nokkru meiri
en á sama tíma í fyrra
Frá frjettaritara vorum
á Sigiufirði.
Miðvikudagskv. 16. ág.
SlLDARAFLINN er nú u’m
3000 málunt meiri hjá ríkis_'
verksmiðjunum, en á sama'
tíma í fyrra og ennfremur er
alt útlit fyrir að all-
ar þrær síldarverksmiðjanna
hjer á Siglufirði fyllist alveg
á næstunin _en undanfarna
daga hefir veður verið mjög
gott og mokafli á báta hjeð-
an. Mest er síldin á Grímseyj-
arsundi, Skjálfanda og Þist-
ilsfirði.
Vegna þess gífurlega afla er
borist hefir á land, hefir fram
kvæmdástjóri Ríkisverksmiðj-
anna ráðstafað 40% af flot-
anum annarsstaðar. Er ætlun-
in að floti þessi fari með afla
sinn til Raufarhafnar, en þar
austurfrá hafa verið fá ski]>
að undanförnu, en þau aftur,
á móti aflað mjög vel, en þó
ekki meira en það, að allay
þrær voru tómar fcgær.
Nú er ekki að vita nema svo
mikið síldarmagn berist A
land að hvorki á Siglufirði
eða Raufarhöfn takist að hafa
undan, mun síldin þá verða
flutt í Krossanesverksmið j -
una, en hana tók S. R. á leigii!
en þar mun hún verða brædd,
en til þessa hefir ekkert verið
brætt af síld.
Hjer á Siglufirði var í
kvöld búið að salta, um 18000
tunnur síldar og er veður hjer
með ágætum.
Vestur-
vígstöHvarnar
Framh. af bls. 1.
frjettariturum að nefna nokkur
nöfn á þorpum eða hæðum um
hverfis Falaise, því fregnir um
þetta mættu koma Þjóðverjum
að gagni, þar sem þeir oft ekki
vissu hvaða staðir væru í hönd
um bandamanna og- hverjir
ekki. — Þykir oss frjettamönn
um þetta slæmt, segir Camp-
bell, en nauðsyn brýtur lög,
jafnvel um frjettaflutning.
Dinard fallin.
Á Bretagneskaga hafa Banda
ríkjam. náð bænum Dinard eft
ir harða bardaga. Nokkuð af
setuliðinu þar komst á brott, en
í St. Malo verjast Þjóðverjar
enn í kastala borgarinnar og
hafa þeir alls þrisvar hafnað
áskorunum um uppgjöf. — Frá
Brest og Lorient er ekkert að
frjetta, en franskar hersveitir
hafa náð tveim smábæjum á
Bretagneskaga, en þær sækja
þar fram með skriðdrekum.
Herstjórnartilkynning.
Tilkyningin frá aðalbæki-
stöðvum bandamanna í Frakk-
landi í kvöld er á þessa leið:
„Unnið er að sigra sjöunda
þýska herinn. Ekki hefir hann
þó verið yfirbugaður enn. Und
anhaldsleiðin við Falaise er
enn um 12 mílna breið.
Falaise og Argentan eru enn
í höndum Þjóðverja. Fram-
sveitir eru komnar til Flers, eft
ir að hafá sótt fram 5—7 mílur
frá Tintebray og St. Pierre
Deneremont.
Sótt hefir verið fram á suð-
urhlið orUstusvæðisins og skóg
ur einn tekinn þar. Barist er í
Ecoucche, nokkru vestur af
Argentan11.
Lárus Pálsson
les upp á Akureyri
Frá frjettaritára vorum
á Akureyri.
Miðvikudagsk. 16. ág.
LÁRÚS PÁLSSON, ’leikari,.
las upp í samkomuhúsi bæj-
arins í gærkveldi. — Efni var
Pjetur Gautur, eftir II. Ibsen
í þýðingu Einars Benedikts-
:sonar. Upplesturinn, er stóð'
yfir hátt á annan tíma endaði
á „dauða Ásu“, ljek þá Jak-
ob Tryggvason á orgel, á bak
við, tilheyrandi lög eftir Edv.
Grieg. Þrátt fyrir hvað þetta
kverkefni er afar örðugt við-
fangs tókst Lárusi frábærB
,lega vel að gefa hvorri per-
sónu leikritsins sín sjerkenni,
sjerstaklega aðalpersónunni,
PjetriGaut.
Listamanninum var tekið
með ágætum, var hann mjög
hyltur að lokum og barst
blómvöndur, - er hann koni
fyrst fram á leiksviðið.
Tíðindamaður blaðsins hef-
ir haft tal af Lárusi og spurt,
hann frjetta, Eins og kunnugt
er, fór hann upplestrarför til
Austurlands er hófst á Hólma-
AÚk og endaði á Djúpavogi.
(hurchill ræðir
við Tito
Róm í gærkAældi. .
Chiirchill forsætisráðherra
Breta, sem nú dvelur á Italíu,
hefir átt viðræður við Tito
marskálk, forsprakka skæru-
liðanna í Jugo-Slavíu og enn-
fremur við forsætisráðherra
júgoslavnesku útlagastjórnar-
innar í Cairo. Hafa viðræð-
urnar gengið prýðilega. Aðal-
lega var rætt um hermál, og
nýjar sóknir á Balkanskaga
og Italíu. — Vel er sagt að
hafi fallið með þeim Tito og
forsætisráðherranum,