Morgunblaðið - 22.08.1944, Síða 1
BANDARIKJAMEIMN KOMNIR YFIR
SIGNU BEGGJA MEGIN PARÍSAR
ÞJÓÐVERJAR AÐ YFIRGEFA BORGINA
FBANSKAR
RUÐST
S£fiS;'lífJ3 HA
INN í TIUL0N
Framsveitir banda-
manna í Versailles
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Bandamenn komnir 80 kni.
norkr fyrir þá borg
BARIST ER í KYÖLD á götum flotahafnarbbrgarinnalr
Toulon í Suður-Frakklandi, og eru það franskar hersveitir,
sem komnar eru inn í borgina, en á hana hjeldu herskip
banamanna uppi mikilli skothríð meiri hluta dags í dag.
Yoru þar að verki orustuskip og beitiskip Breta.
Mótspyrna Þjóðverja er sögð allsnörp í Toulon, en
annars er hún ekki mikil neinstaðar í Suður-Frakklandi og
eru hersveitir bandamanna komnar um 80 km. inn í iand.
Hefir bærinn Valensone verið tekinn á þeim slóðum.
AMERÍSKAR VJELAHERSVEITIR eru komnar yfir
ána Signu, báðumegin Parísar og hafa náð öruggri fót-
festu. Þjóðverjar segja, að Bandaríkjamenn þeir, sem
fóru yfir Signu við Mantes, hafi byrjað sókn bæði upp og
niður með fljótinu. — Þá hafa sjest merki þess, að Þjóð-
verjar sjeu farnir að flytja sig úr París, og heyrst hefir
á þýskum talsmönnum, að Þjóðverjar muni hafa í Hyggju
að yfirgefa París. Róstusamt mun vera í borginni og fram
sveitir Bandaríkjamanna eru komnar allt að Versailles, en
sá bær er um 12 km frá París.
Þá sækja bandamenn fram
til norðvesturs frá Toulon, eru
þar aðallega franskar hersveit
ir á ferðinni, og hafa náð á sitt
vald fjórum járnbrautarstöðv-
um. Þarna er mótspyrna lítil
sem engin.
Farnir af spænsku
landamærunum.
Fregnir frá Madrid herma í
kvöld, að franskar hersveitir
sjeu nú aftur meðfram öllum
landamærum Frakklands og
Spánar og hafi lið Þjóðverja
þar alt hörfað norður á bóg-
inn. Er talið í þessum frjettum,
að varla sje um neinar þýskar
hersveitir að ræða lengur í
Suðvestur-Frakklandi.
Marseilles umkringd.
Talið er, að Þjóðverjar hafi
enn nokkurt lið í hafnarborg-
inni Marseilles, en hún er nú
þvínær einangruð, þar sem
flugvjelar og- franskir skæru-
liðar hafa rofið vegi frá borg-
inni og sprengt brýr. — Lík-
legt er talið, að brátt verði lagt
til atlögu við setulið Þjóðverja
í Marseilles og óstaðfestar
fregnir skýra frá skærum í
borginni.
Hvar er Vichystjórnin?
Þýskar fregnir herma, að
Petain og stjórn hans öll sje nú
farin frá Vichy, en ekkert er
látið uppi um það, hvert stjórn
in fór, annað en það, að hún
sje enn í Frakklandi. Laval var
nýlega sagður hafa farið frá
París, en þar ^var hann fyrir
skö'inmu.
Islendingur fersl
í Grimsby
ÞAÐ Slys vildi til nýlega í
Grimsby í Englandi, að íslensk
ur maður, Olafur Hinriksson
að nafni, varð fyrir bifreið.
Var hann þegar fluttur í
sjúkrahús, og þar andaðist j
hann tveim dögum síðar.
Olafur var ættaður úr Njarð
víkum og hafði verið í Grims-
by um 39 ára skeið. Sjómaður
var hann alla ævi.
Sir Henry Wood látinn.
London: — Hinn frægi,
breski hljómsveitarstjóri Sir
Henry Wood er nýlátinn í Bret
landi á áttræðisaldri. Banamein
hans var hjartasjúkdómur, sem
hann hafði þjáðst af við og við
um nokkurt skeið. — Reuter.
Loftárásir á Japan.
WASHINGTON: — Risaflug-
virki Bandaríkjamanna frá
Kína hafa gert bæði nætur- og
dagárás á stálframleiðsluborg-
ina Yavate í Suður-Japan. Að
sögn flugmanna urðu skemmdir
miklar, sjerstaklega í nætur-
árásinni.
í dagárásinni kom til loft-
bardaga og skutu flugvirkin
niður 15 japanskar orustuflug-
vjelar, en 4 af hinum stóru
flugvjelum komu ekki aftur úr
þessari árásinni.
Japanar segjast alls hafa
skotið niður 22 af hinum stóru
árásarf lugvj elum.
Valdamaður í skugg-
anum
Haldið er, að þessi maður standi
bak við hina nýju stjórn Arg-
entínu og hafi raunverulega öll
völd í landinu í sínum höndum.
Hann er annars mjög lítt þekt-
ur utan argentínska hersins. —
Nafn hans er Juan Peron og er
hann ofursti að tign,' en korn-
ungur maður.
Fólk fluft úr sjúkra-
húsum í London
Heilbrigðismálaráðuneytið
breska hefir svo fyrirskipað, að
allir þeir sjúklingar, sem liggja
í sjúkrahúsum í London og
flutningafærir eru, skuli fluttir
burtu úr borginni og á sjúkra-
hús annarsstaðar í landinu. •—
Thor Thors kjörinn
heiðursdoktor
IIERRA TIIOR TIIORS,
sendiherra Islands í Washing-
ton var á laugardag útnefnd-
lir heiðursdoktor í lögum við
Rider College, Trenton, á-
samt herra Walter Edge,
ríkisstjóra New Jersey.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
(burchill heimsækir
5. herinn.
CHURCHILL forsætisráð-
herra dvelur enn á Ítalíu og hef
ir hann heimsótt fimta herinn.
Ljet Churchill svo um mælt
við hermennina, að ólíklegt
væri, að styrjöldin endaði bráð
lega, en' þó gæti svo farið, að
henni lyki alt í einu.
Pólskar og franskar hersveit
ir hafa sótt nokkuð fram á
Adríahafsströndinni. — en ann
arsstaðar er alt með kyrrum
kjörum og breytingar ekki telj
andi. Fasistar eru enn nokkuð
á ferli í Florens og skjóta úr
launsátrum á hermenn banda-
manna. — Reuter.
Kveikt á vifanum
í Sjómannaskólan
um
FRÁ SKRIFSTOFU vitamála
stjóra barst blaðinu eftirfar-
andi í gær:
Vatnsgeymisvitinn við Rvík
hefir nú verið fluttur í turn
Sjómannaskólans, sem verið er
að byggja þar rjett hjá. Staður
vitans er nú 64°08’15” n.br.,
21°51’58” v.l. Hæð vitans yfir
sjó er 71 meter.
Ljóshorn vitans, Ijósmagn og
einkenni er óbreytt frá því sem
áður var.
London í gærkveldi: — Flota
málaráðuneyti Bandaríkjanna
tilkynnir, að amerískir kafbát-
ar hafi að undanförnu sökt 19
skipum Japana á Kyrrahafi og
á höfunum nærri Japan. Eitt
af þessum skipum var beiti-
skip, og annað hersnekkja.
Ávarp Montgomerys.
Montgomery hershöfðingi gaf
í dag út dagskipan og ávarpaði
undirmenn sína. Sagði hann að
Þjóðverjar hefðu beðið úrslita-
ósigur í Normandie og færi her
veldi þeirra í Frakklandi að
hrynja til fulls. Sagði Montgo-
mery að allir, sem að þessum
sigri hefðu unnið, hefðu gert
mikil þrekvirki. og vel gæti
verið, að þessi ósigur Þjóð-
verjar flýtti mjög fyrir enda-
lokum styrjaldarinnar, sem nú
mætti sjá fyrir.
Þögn um framsókn.
Frjettabann. er nú á þeim
hersveitum Bandaríkjamanna,
sem eru fyrir sunnan og suð-
vestan París, þ. e. a. s: sveit-
anna á Nantes og Tourssvæð-
unum, hafa nú engar fregnir
borist af sveitum þessum í tvo
daga, og Þjóðverjar hafa ekk-
ert um þær sagt, síðan þeir til-
kyntu að þær væru komnar suð
ur á Tours-svæðið.
Orusturnar norðar.
Enn eru miklir bardagar háð-
ir á svæðunum fyrir austan
Falaise og Argentan, þar sem
bandamenn kveðast hafa inni-
króað nokkurt þýskt iið og vera
að vinna á því. Hafa banda-
menn ekkert getað beitt flug'-
her sínum í dag, vegna illviðr-.
is. Þjóðverjar hafa að undan-
förnu sent írarn miklu meira af
orustuflugvjeium sínum, en
þeir eru vanir. aðailega' til þess
að vernda fiumingatæki sín á
vegunnm, þar sem þeir hörfa
undan.
I Brcst og Lorient.
Frá Bretagneskaganum ber-
ast eng'ar frjeltir. Þjóðverjar
munu enn verjast bæði í Brest
og Lorient, en cfiki er vitað,
hvernig bardögum um þessar
Frarnli. á 2. síðu.