Morgunblaðið - 22.08.1944, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.08.1944, Blaðsíða 1
 BANDARIKJAMEIMN KOMNIR YFIR SIGNU BEGGJA MEGIN PARÍSAR ÞJÓÐVERJAR AÐ YFIRGEFA BORGINA FBANSKAR RUÐST S£fiS;'lífJ3 HA INN í TIUL0N Framsveitir banda- manna í Versailles London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Bandamenn komnir 80 kni. norkr fyrir þá borg BARIST ER í KYÖLD á götum flotahafnarbbrgarinnalr Toulon í Suður-Frakklandi, og eru það franskar hersveitir, sem komnar eru inn í borgina, en á hana hjeldu herskip banamanna uppi mikilli skothríð meiri hluta dags í dag. Yoru þar að verki orustuskip og beitiskip Breta. Mótspyrna Þjóðverja er sögð allsnörp í Toulon, en annars er hún ekki mikil neinstaðar í Suður-Frakklandi og eru hersveitir bandamanna komnar um 80 km. inn í iand. Hefir bærinn Valensone verið tekinn á þeim slóðum. AMERÍSKAR VJELAHERSVEITIR eru komnar yfir ána Signu, báðumegin Parísar og hafa náð öruggri fót- festu. Þjóðverjar segja, að Bandaríkjamenn þeir, sem fóru yfir Signu við Mantes, hafi byrjað sókn bæði upp og niður með fljótinu. — Þá hafa sjest merki þess, að Þjóð- verjar sjeu farnir að flytja sig úr París, og heyrst hefir á þýskum talsmönnum, að Þjóðverjar muni hafa í Hyggju að yfirgefa París. Róstusamt mun vera í borginni og fram sveitir Bandaríkjamanna eru komnar allt að Versailles, en sá bær er um 12 km frá París. Þá sækja bandamenn fram til norðvesturs frá Toulon, eru þar aðallega franskar hersveit ir á ferðinni, og hafa náð á sitt vald fjórum járnbrautarstöðv- um. Þarna er mótspyrna lítil sem engin. Farnir af spænsku landamærunum. Fregnir frá Madrid herma í kvöld, að franskar hersveitir sjeu nú aftur meðfram öllum landamærum Frakklands og Spánar og hafi lið Þjóðverja þar alt hörfað norður á bóg- inn. Er talið í þessum frjettum, að varla sje um neinar þýskar hersveitir að ræða lengur í Suðvestur-Frakklandi. Marseilles umkringd. Talið er, að Þjóðverjar hafi enn nokkurt lið í hafnarborg- inni Marseilles, en hún er nú þvínær einangruð, þar sem flugvjelar og- franskir skæru- liðar hafa rofið vegi frá borg- inni og sprengt brýr. — Lík- legt er talið, að brátt verði lagt til atlögu við setulið Þjóðverja í Marseilles og óstaðfestar fregnir skýra frá skærum í borginni. Hvar er Vichystjórnin? Þýskar fregnir herma, að Petain og stjórn hans öll sje nú farin frá Vichy, en ekkert er látið uppi um það, hvert stjórn in fór, annað en það, að hún sje enn í Frakklandi. Laval var nýlega sagður hafa farið frá París, en þar ^var hann fyrir skö'inmu. Islendingur fersl í Grimsby ÞAÐ Slys vildi til nýlega í Grimsby í Englandi, að íslensk ur maður, Olafur Hinriksson að nafni, varð fyrir bifreið. Var hann þegar fluttur í sjúkrahús, og þar andaðist j hann tveim dögum síðar. Olafur var ættaður úr Njarð víkum og hafði verið í Grims- by um 39 ára skeið. Sjómaður var hann alla ævi. Sir Henry Wood látinn. London: — Hinn frægi, breski hljómsveitarstjóri Sir Henry Wood er nýlátinn í Bret landi á áttræðisaldri. Banamein hans var hjartasjúkdómur, sem hann hafði þjáðst af við og við um nokkurt skeið. — Reuter. Loftárásir á Japan. WASHINGTON: — Risaflug- virki Bandaríkjamanna frá Kína hafa gert bæði nætur- og dagárás á stálframleiðsluborg- ina Yavate í Suður-Japan. Að sögn flugmanna urðu skemmdir miklar, sjerstaklega í nætur- árásinni. í dagárásinni kom til loft- bardaga og skutu flugvirkin niður 15 japanskar orustuflug- vjelar, en 4 af hinum stóru flugvjelum komu ekki aftur úr þessari árásinni. Japanar segjast alls hafa skotið niður 22 af hinum stóru árásarf lugvj elum. Valdamaður í skugg- anum Haldið er, að þessi maður standi bak við hina nýju stjórn Arg- entínu og hafi raunverulega öll völd í landinu í sínum höndum. Hann er annars mjög lítt þekt- ur utan argentínska hersins. — Nafn hans er Juan Peron og er hann ofursti að tign,' en korn- ungur maður. Fólk fluft úr sjúkra- húsum í London Heilbrigðismálaráðuneytið breska hefir svo fyrirskipað, að allir þeir sjúklingar, sem liggja í sjúkrahúsum í London og flutningafærir eru, skuli fluttir burtu úr borginni og á sjúkra- hús annarsstaðar í landinu. •— Thor Thors kjörinn heiðursdoktor IIERRA TIIOR TIIORS, sendiherra Islands í Washing- ton var á laugardag útnefnd- lir heiðursdoktor í lögum við Rider College, Trenton, á- samt herra Walter Edge, ríkisstjóra New Jersey. (Frá utanríkisráðuneytinu). (burchill heimsækir 5. herinn. CHURCHILL forsætisráð- herra dvelur enn á Ítalíu og hef ir hann heimsótt fimta herinn. Ljet Churchill svo um mælt við hermennina, að ólíklegt væri, að styrjöldin endaði bráð lega, en' þó gæti svo farið, að henni lyki alt í einu. Pólskar og franskar hersveit ir hafa sótt nokkuð fram á Adríahafsströndinni. — en ann arsstaðar er alt með kyrrum kjörum og breytingar ekki telj andi. Fasistar eru enn nokkuð á ferli í Florens og skjóta úr launsátrum á hermenn banda- manna. — Reuter. Kveikt á vifanum í Sjómannaskólan um FRÁ SKRIFSTOFU vitamála stjóra barst blaðinu eftirfar- andi í gær: Vatnsgeymisvitinn við Rvík hefir nú verið fluttur í turn Sjómannaskólans, sem verið er að byggja þar rjett hjá. Staður vitans er nú 64°08’15” n.br., 21°51’58” v.l. Hæð vitans yfir sjó er 71 meter. Ljóshorn vitans, Ijósmagn og einkenni er óbreytt frá því sem áður var. London í gærkveldi: — Flota málaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnir, að amerískir kafbát- ar hafi að undanförnu sökt 19 skipum Japana á Kyrrahafi og á höfunum nærri Japan. Eitt af þessum skipum var beiti- skip, og annað hersnekkja. Ávarp Montgomerys. Montgomery hershöfðingi gaf í dag út dagskipan og ávarpaði undirmenn sína. Sagði hann að Þjóðverjar hefðu beðið úrslita- ósigur í Normandie og færi her veldi þeirra í Frakklandi að hrynja til fulls. Sagði Montgo- mery að allir, sem að þessum sigri hefðu unnið, hefðu gert mikil þrekvirki. og vel gæti verið, að þessi ósigur Þjóð- verjar flýtti mjög fyrir enda- lokum styrjaldarinnar, sem nú mætti sjá fyrir. Þögn um framsókn. Frjettabann. er nú á þeim hersveitum Bandaríkjamanna, sem eru fyrir sunnan og suð- vestan París, þ. e. a. s: sveit- anna á Nantes og Tourssvæð- unum, hafa nú engar fregnir borist af sveitum þessum í tvo daga, og Þjóðverjar hafa ekk- ert um þær sagt, síðan þeir til- kyntu að þær væru komnar suð ur á Tours-svæðið. Orusturnar norðar. Enn eru miklir bardagar háð- ir á svæðunum fyrir austan Falaise og Argentan, þar sem bandamenn kveðast hafa inni- króað nokkurt þýskt iið og vera að vinna á því. Hafa banda- menn ekkert getað beitt flug'- her sínum í dag, vegna illviðr-. is. Þjóðverjar hafa að undan- förnu sent írarn miklu meira af orustuflugvjeium sínum, en þeir eru vanir. aðailega' til þess að vernda fiumingatæki sín á vegunnm, þar sem þeir hörfa undan. I Brcst og Lorient. Frá Bretagneskaganum ber- ast eng'ar frjeltir. Þjóðverjar munu enn verjast bæði í Brest og Lorient, en cfiki er vitað, hvernig bardögum um þessar Frarnli. á 2. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.