Morgunblaðið - 22.08.1944, Qupperneq 2
o
MORGUNBLAÐIÐ
Þriöjudagur 22. ágúst 1941-
Verkfall hafið
í olíustöðvum
SAMNINGAR DAGSBRÚNAR viö Olíufjelögin gengu
lir gildi í dag. Samníngaumléitanir hafa farið fram undanfarið
fyrir milligöngu sáttasemjara ríkisins, en í gærkvöldi slitnaði
npp xir samningaumleitunum og hófst því í morgun verkfall í
eftirtöldum olíustöðvum: Olíuverslun Islands h.f., h.f. Shell
á íslandi og Ilins ísl. steinolíufjelags.
Skólakerfið samræmt:
Milliþinganefnd í skólamálum
semur drög ú frumvörpum
Kröfur Dagsbrúnar voru
þær, að grunnkaup verka-
manna yrði hækkað um kr.
2f> á mánuði, en krónur 40
hjá bifreiðarstjórum, auk )>ess
|>au hlunnindi, er verkamenn
hafa haft utan samnjnga.
Atvinnurekendur hafa ekki
'ídljað fallast á neina grunn-
kaupshækkun, nje aðrar breyt
jngár á eldri samningi, sem
máli skipta. Hinsvegar hefir
H.f. Nafta gert samning og’
gengið að kröfum Dagsbríinar
og kemur því ekki til vinnu-
stöðvunar þar.
Stnásala á'bensíni mun þó
halda áfram meðan birgðir
endast á tönkum bensínaf-
greiðslanna.
Greinargerð Vinnu-
veitendafjelagsins
ÚT AF verkfalli því, er nú
er hafið hjá olíustöðvunum
hefir Vinnuveitendafjelag Is-
lands skýrt blaðinu frá því,
sem nú skal greina:
1. liður. Fyrir mánuði síðan
framlengdi Dagsbrún samning
sinn við Vinnuveitendafjelag-
ið, um hið almenna tímakaup
verkamanna, um 6 mánuði,
mejð því að segja honum ekki
upp.
2. liður. Um miðjan s.l. mán-
uð samdi Dagsbrún við Vinnu
veitendafjelagið um framleng-
ingu á samningi mánaðarkaups
manna hjá heildsölum og Lýs-
issamlaginu, án grunnkaups-
hækkunar á mánaðarkaupinu.'
3. liður. Nú krefst Dagsbrún,
að því er snertir mánaðarkaups
menn hjá olíufjelögunum:
a) Grunnkaupshækkun á
mánaðarkaupi, um alt að 9%,
og hafa þó mánaðarkaupsmenn
hjá olíufjelögunum miklu
meiri yfirvinnu en mánaðar-
kaupsmenn hjá heildsölum,
sem Dagsbrún, eins og fyr seg-
ir, hefir framlengt samning
fyrir án grunnkaupshækkunar
á, mápaðarkaupi þeirra.
b) Að margvísleg hlunnindi,
sem olíufjelögin hafa hingað
til látið ýmsum starfsmönnum
í tje af frjálsum vilja og án
þess að um væri samið, t. d.
framlög til eftirlaunatrygg-
inga, bílaakstur, lán á bílum,
veikindakaup, jafnvel stundum
svo mánuðum skifti o. s. frv.,
verði nú bundin með óákveðn-
um ákvæðum í nýjum samn-
ngi, um að allir mánaðarkaups
menn fái framvegis öll élík
hlunnindi óskert.
c) Að bílstjórar hjá olíufje-
lögunum fái nokkuð hærra
manaðarkaup en bilstjórar hjá
heildsölum fá, samkv. ofan-
greindum samningi Dagsbrún-
ar og Vinnuveitendafjelagsins
•í s.l. mánuði, þó yfirvínna hjá
olíufjelögunum sje mikið meiri
:en hjá heildsölum, eins og fyr
segir, og hjá þeim sje ekki um
að ræða hin mikilsverðu hlunn
indi, sem olíufjelögin hafa lát-
ið mánaðarkaupsmönnum sín-
um í tje.
Vinnuveitendafjelag Islands
sá sjer því eigi fært að ganga
að kröfum Dagsbrúnar.
Börnin koma heim
úr sumardvölinni
S UM ARDVAL ARNEFND
hefir nú ákveðið heimflutn-
ingsdaga fyrir þau börn, er
dvalið hafa á barnaheimilum
nefndarinnar í sumar.
Að öllu forfallalausu koma
þörnin í bæinn eins og hjer
segir:
1. sept. Börnin frá Reyk-
hoíti, Borgarf.
3. sept. Börnin frá Staðarfelli,
Dalasýslu.
4. sept. Börnin frá Menta-
skólaselinu.
4. sept. Börnin frá Löngu-
mýri, Skagafirði.
,5. se]>t. Börnin frá Brautar-
, holti, Skeiðum.
0. sept. Börnin frá Sælings-
dalslaug, Dalasýslu.
7. sept. Börnin frá Silunga-
polli.
Bifreiðarnar, sem flytja
börnin og farangur þeirra,
nema staðar við Iðnskólann.
Nauðsynlegt er að aðstand-
endur barnanna taki þar á
móti börnum sínum og far-
angri þeirrá, sem mun koma
samtímis þeim.
Nefndin hefir ekkert hús-
næði til þess að geyma þann,
farangur, sem skilinn verðixr
eftir, og tekur því enga á-
byrgð á honum.
Skrifstofan mun reyna að
gefa upplýsingar um komu-
tíma bifreiðanna í bæinn. eft-*
ir því sem hægt verður, að
hafa samband A Íð þá, komu-
daginn. Sími skrifstofunnar
er 2648.
Nefndin óskar þess, að þeir
aðstandendur, sem enn hafa
eklci sótt, stofna af skömtun-
arseðlum barna sinna, vitji
þeirra sem fyrst til skrifstof-
unnar, í Kirkjustræti 10, op-
ið kl. 2—6 e. h.
Þar sem dvalartími barn-
anna er rnx fullráðinn, er þess
A’insamlega óskað, að aðstand-
endur hafi lokið greiðslu á
umsömdum dA’alarkostnaði
harna sinna, þegar þau koma
hekn.
Árásir á flugvelli.
Róm í gærkveldi: — Flug-
vjelar bandamanna frá Italíu
hafa aðallega unnið að því í
dag að ráðast á flugvelli Þjóð-
verja í Júgóslavíu og varð
þeim þar mikið 4gengt. Sumar
flugvjelanna fóru til árása á
samgöngukerfi í Suður-Frakk-
landi, til þess að hindra Þjóð-
verja í liðflutningum þar.
Kappreiðar Fáks
KAPPREIÐAR Heslamanna-
fjelagsins Fákur fóru fram s.l.
sunnudag 20. ágúst á skeiðvell-
inum við Elliðaár.
Reyndir voru hestar á skeiði,
hlaupabraut 250 metra, stökki,
hlaupabraut 200 m og einnig
á hlaupabraut 350 m og loks
var svo úrslitasprettur á skeiði
og stökki.
Skeiðhestar
Fimm hestar voru reyndir og
hlupu þeir allir upp nema Rand
ver, Jóns. Jónssenar í Varma-
dal, rann hann skeiðið á 26.2
sek.
Stökkhestar — hlaupabraut
300 metrar
Reyndir voru "sex hestar og
varð Ör úr Dalasýslu eig-
andi h.f. Sprettur fyrst, rann
hún skeiðið á 23.2 sek., eða
einni sekúndu við mettíma. Ör
er 9 vetra. —■ Annar varð
Þröstur, Sigurðar Hallbjöriis-
sonar Rvík, rann hann skeiðið
á 24.4 sek. og þriðji varð Sindri,
Jóhanns Guðmundssonar Rvík,
rann hann skeiðið á 25.6 sek.
Stökkhestar — 350 metra
hlaupabraut.
Reyndir voru sex hestar. Var
þeirra fyrstur Hörður, Finn-
boga Einarssonar á Melum,
rann hann skeiðið á 27.2 sek. —
Annar varð Kolbakur Rósmund
ar Eyjólfssonar, Gufunesi, rann
hann skeiðið á 27.7 sek. og 3.
Ljettir, einnig á 27.7 sek. Ljetl-
ir er eign Þorgeirs Jónssonar,
Gufnesi.
Á úrslitaspretli skeiðhesta bar
sigur úr býtum Randver, rann
hann skeiðið á belri tíma en
fyrst, eða 25.8 sek.
Á úrslitaspretli slökkhesta,
hlaupabraut 300 m varð Ör enn
á ný fyrst, hljóp hún vega-
lengdina á sama tíma, 23.2 sek.
Þeir Þröstur og Sindri bættu
einnig tíma sinn. Tími Þrastar
varð 24.3, en Sindra 24.9 sek.
Á úrslitasprelti síökkhesta
350 metra hlaupabraut, komu
fimm heslar til greina. — Þar
sigraði Hörður einnig, bætti
hann tíma sinn nokkuð,’ rann
hann skeiðið á 26.7 sek. Ann-
ar varð Ljettir á 27.0, bætti
einnig sinn tíma og þriðji Kol-
bakur á sama tíma 27.0 sek.
Óvenju fátt fólk var á skeið-
vellinum þennan dag, og mun
verður hafa átt sinn þált í því.
Vestur-
vígstöðvarnar
Framh. af 1. síðu.
borgir er nú háttað. — Sumar
fregnir herma, að franskar her-
sveitir sitji nú um borgir þessar
í slað Bandaríkjamanna, og þá
segir önnur, óstaðfest fregn, að
von Auloch ofursti, sem lengst
varðist í St. Malo, hafi komist
með nokkuð af liðsmönnum sín
um út í ey eina litla fyrir landi
og verjist þeir þar nú. (
Þriðja flókks mótið. í gær-
kvöldi fóru fram tveir leikir.
Valur vann Víking 3—0 og Fram
vann K. R. 2—0. Úrslitaleikirnir
fara fram annað kvöld, keppa þá
K. R. og Víkingur og Fram og
Valur til úrslita. — Þá keppa
einnig Valur og K. R. í landsmóti
Milliþinganefnd í skólamálum
er nýkomin aftur til bæjarins
frá Laugarvatni, þar sem hún
hefir starfað undanfarnar sex
vikur. Gat hún fengið þar hús-
næði út af fyrir sig og trygt
sjer ágæt starfsskilyrði og full-
an vinnufrið.
Nefndin hjelt sameiginlega
fundi flest dagana. en skifti að
öðru leyti með sjer störfum.
Var það mikið verk, að fara
yfir öll þau svör, er nefndinni
höfðu borist. Að vísu voru þau
færri en hún hefði kosið, en
skifta þó mörgum hundruðum.
Og enn eru svör að koma.
Nefndin hefir þegar samið
Mrög að nokkurum frumvörp-
um til laga, og eru þessi hin
helstu:
I. Um skólaskyldu og fræðslu
skyldu.
II. Um fræðslu barna.
III. Um gagnfræðanám.
IV. Um mentaskóla.
Mun nefndin væntanlega
ganga til fulls frá þessum frum
vörpum nú í haust.
Enn er of snemmt að rekja
tillögur nefndarinnar, en þess
má geta, að hún hefir í ýmsu
stuðst við fræðslulöggjöf Breta
frá þessu sumri.
Höfuðverkefni, sem nefnd-
inni var falið, var að samræma
skólakerfi íslands og gjöra það
hagfeldara. Hyggst nefndin að
leggja það til, að skólar þeir,
sem kostaðir eru eða styrktir
af almannafje, myndi samfelt
skólakerfi, er skiftist í þessi 4
sti^: 1. barnafræðslustig, 2.
gagnfræðastig, 3. mentaskóla-
og sjerskólastig, 4. háskólastig.
Fræðsluskyld eru börn og ung-
lingar á aldrinum frá 7—15 ára.
Barnafræðslunni er ætlað að
ljúka fyr en nú er, eða á því
almanaksári, er barnið verður
13 ára. Fræðsluskylda barna
hefjist á sama aldri og verið
hefir.
Gagnfræðanám á að taka við
að loknu fullnaðarprófi barna^
en skólar gagnfræðastigsins
grefnist í tvennskonar deildir,
bóknámsdeild og verknáms eft
ir 'því, á hvort námið sje lögð
meiri áhersla. Tvö fyrstu árin
á nám þetta að vera skyldunám
unglinga á aldrinum 13-15 ára.
Þriggja ára gagnfræðanámi í
bóknámsdeild ljúki með lands-
prófi, er veiti rjett til inngöngu
í mentaskóla og' ýmsa sjer-
skóla. Enn er gert ráð fyrir
gagnfræðanámi hið fjórða ár.
Aðalbreytingin á mentaskól-
unum á að verða sú, að þeir
verði samfeldir fjögurra ára
skólar og gagnfræðanámið
greint frá þeim. Aðstöðumunur
til inngöngu í þá á að verða
minni en verið verið undanfar-
ið, en þó í engu slakað á náms-
kröfunum við þá.
Nefndin þakkar mörg ágæt
svör og tillögur og biður þá,
sem enn eiga ósvarað spurning-
um hennar, að láta það ekki
dragast að senda svör.
Sigurður Guðmundsson skóla
meistari, kom frá Akureyri til
þess að sitja nokkra fundi með
nefndinni og bar fram ýmsar
merkar tillögur.
Nefndin heldur áfram dag-
legu starfi hjer í Reykjavík að
svo miklu leyti sem því verður
við komið.
Útiskemtun í Kjós
U.M.F. Drengur í I\jós,
gekst fyrir útisamkomu þ. a.
20. þ. m, í svonefndum Kvísl-
um A’ið Laxárhrú.
Gestur Andrjesson hrepp-
.stjóri á Hálsi setti samkom-
una með ræðu.. Þar á eftir
sýndi leikfimisflokkur lir L
R. leikfimi undir stjórn,
Davíðs Sigurðssonar. Þótti
leikfimin takast mjög vel, og
aðstæður síður en svo góðár,
því sleipt var á pallinum, sem
leikfimin fór fram á. Eigi að
síður voru margar æfingar
mjög Arel gerðar og á flokk-
urinn og stjórnandi hansi
þakkir skyldar fyrir komuna.
Síðan var stiginn dans, og
skemti fólk sjer hið besta.
„Útvarp M" heyrS
ist á Húsavík
Húsavík í gær. — Ffá
frjettaritara vorum.
HINN þjóðþekkti gamanleik-
ari Alfreð Ándrjesson, hefir
leyft'Húsvíkingum að hlusta á
hina þróttmiklu útvarpsstöð
síha „Útvarp A. A.“ Við útsend-
ingu aðstoðuðu Jón Aðils og
Sigfús Halldórsson.
Skemtu þeir fjelagar hinum
fjölmörgu áheyrendum með
ágætum.
J a rða rf a r ir
Við tökum að okkur að skreyta kistur við
jarðarfarir yður að kostnaðarlausu, gegn
því að blómin sjeu keypt hjá okkur.
iKransar — Rósir — Nellikur
í miklu úrvali. — Hringið í síma 2567.
Við sendum.
|Nýja Blómabúðin