Morgunblaðið - 27.08.1944, Síða 1

Morgunblaðið - 27.08.1944, Síða 1
81. árganguR 191 tbl. — Sunnudag'ur 27. ágúst 1944 Isafoldarprentsmiðja h.f. Fer&amestn trá frýsksBÍsandi seeggea: ÞJÓBVERJAR SIGRABIRINNAN MÁNABAR BANBAMENN SAGBIR KOMNIR AÐ REIMS Baráttu- kjarkur Þjóð verja að bresta SÆNSKUR FERÐAMAÐ UR, sem nýlega er kominn frá Þýskalandi, segir, að Þjóðverjar muni gefast upp innan mánaðar. Baráttu- kjarkur Þjóðverja, bæði borgaranna og hersins sje að bresta. Þannig var ástandið áður en París fjell og áður en Rúmenar gengu í lið með bandamönnum. Björn Björnsson, frjetta- ritari NBC útvarpsfjelagsins skýrði frá þessu í útvarpi frá Stokkhólmi í gærdag. En nasistar munu verjast. Ferðamaðurinn segir, að hins vegar muni nasistar verjast á meðan þeir geta í Þýskalandi, þó herinn gefist upp og borg- ararnir. Telur ferðamaður þessi, að nasistar muni búa sig um í borgum og virkjum víða í Þýskalandi og verjast þar til yfir lýkur eins og SS-sveitirn ar hafa gert í hafnarborgum Frakklands. Þjóðverjar óttast erlendu verkamennina. Björn hafði það eftir ferða- manninum, að Þjóðverjar væru nú farnir að óttast, að þær milj ónir erlendra verkamanna, sem fluttir hafa verið til Þýska- lands frá herteknu löndunum undanfarin ár, myndu gera upp reisn. I Berlín, segir ferðamaðurinn er rússneska annað aðalmálið, sem talað er í borginni, því þar eru svo margir rússneskir verkamenn, sem Þjóðverjar hafa farið með sem þræla. Hemaðaraðstaðan í Norður-Frakklandi °AmiPn& Bpússzis ^Rp.ims Djor? Strikaða svæðið sýnir land það, sem bandamenn hafa nú á valdi sínu í Norður-Frakklandi, eða höfðu í gærmorgun. En breytingar verða nú örar og munu bandamenn vera komnir umhverfis Rou- en og ennfremur er ekki fullljóst. hve langt hersveitir Pattons* hafa sótt austur af París. í óstaðfestum fregnum í gærmorgun var sagt að bandamenn væru komnir til Reims, sem er 175 km. frá þýsku landamærunum. Búlqarar hafa beðið bandamenn um frið London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. BÚLGARAR HAFA BEÐIÐ UM FRIÐ og er nú verið að at- huga tillögur og boð Búlgara í London. Það er nú hægt að skýra frá þvþ að s. 1. fimtudag kom Nicholas Balabanov, sendiherra Búlgara í Ankara, til Istambul til að ræða við búlgarska stjórn- málamanninn Stoyteche Mochanov, fyrverandi forseta búlgarska þingsins, en hann hafði meðferðis friðartilboð frá búlgörsku stjórninni. Balbanov sendiherra sagði við blaðamenn við komu sína til Istambul: „Það gengur alt sínar eðlilegu leiðir. Búlgarar munu brátt fylgja hinu skyn- samlega fordæmi Rúmena“. Á föstudag afhenti Mochanov sendiherra Breta í Tyrklandi, Sir Hugh Knachbull Hugeson, friðartilboð Búlgara. Sendiherr Fáni forsela Islands ann kom friðartilboðinu áleiðis til London. Þar hafa tilboð Búlg ara verið til athugunar hjá full trúum Bresku stjórnarinnar og fulltrúum Bandaríkjastjórnar. Rússneska stjórnin hefir ver ið látinn fylgjast vel með þess- um málum, þó Rússar eigi ekki í ófriði við Búlgara. Merki forseta íslands Fyrirskipað að fækka hreindýra- lörfum DÓMS- og kirkjumálaráðu- jieytið hefir fyriskipað eftir- litsmanni hreindýranna, Frið- jriki Stefánssyni, Hóli í Fljóts- dal, að skóta elstu hreindýra- tarfana. Forsetaúrskurður um fána forseta íslands: „For- seti íslands gjörir kunnugt: Jeg hefi, samk'væmt tillögu forsætisráðherra, úrskurðað þannig: Fáni forseta íslands er hinn íslenski tjúgufáni, en í honum þar sem armar krossmarksins mætast, skjaldarmerki íslands og skjaldberar í hvítum, fer- hyrndum reit“. URSKURÐUR FORSETA um merki forseta íslands: % Jeg hefi, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, úrskurðað þannig: Merki forseta Islands er skjöldur, að lögun og lit sem skjöldurinn í skjaldarmerki Is- lands, en þar sem armar kross marksins mætast er hvítur, fer hyrndur reitur og í honum skjaldarmerki íslands og skjald berar- Hersveitir bandamanna fara í stríðum straum- um yfir Signu London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. SAMKVÆMT ÞÝSKUM fregnum eru framsveitir banda manna í Norður-Frakklandi komnar alla leið til Reims fyrir norðan París, en sú borg er aðeins 175 kílómetra frá landamærum Þýskalands, en auk þess er Reims ein þýð- ingarmesta umferðarmiðstöð í Norður-Frakklandi. Fregn þessi hefir ekki verið staðfest af bandamönnum, þegar þetta skeyti er sent. Þeir segja, að vjelahersveitir sjeu komnar til Troeys, sem er um 200 km. frá þýsku landa- mærunum. Hröð sókn Bússa til Dónárósa London í gærkveldi: Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Eftir Dulcan Hooper. HERSVEITIR Malinovskis og Tolbuhkins sækja hratt frá Bessarabíu. Rúmenskar her- sveitir hafa nú lagt niður vopn gegn Rússum, nema þar sem Þjóðverjar stjórna þeim og rúmensku hermenirnir eiga ekki annars úrkostar en að berj ast með Þjóðverjum. Rúmensku hersveitirnar nálgast stöðugt Galatz-olíusvæðið og Dónará- ósa. 100 þúsund Þjóðverjar króaðir inni. Það er talið, að ekki sjeu færri en 100.000 þýskir her- Framhald á 8. síðu. Antonescu horfinn Stokkhólmur í gær. Berlínarfrjettaritari „Svenska Dagbladet“ skýrir frá því, að til Antonescu fyrverandi for- sætisráðherra Rúmeníu og fyr- irrennara hans í þeirri stöðu, hafi ekkert spurst, síðan þeim var stefnt til ráðstefnu í kon- ungshöllinni. Sagt er, að þeir hafi aldrei komið út úr höllinni.. Sótt að Rouen. Hersveitir bandamanna við neðanverða Signu sækja fram og einnig meðfram ströndinni. Á ströndinni hafa bandamenn tekið Honfleur og Beuzeville. Þeir hafa farið yfir ána Risle á mörgum stöðum og hafa báða bakka árinnar alla leið til Mont fort sur Risle. Lengra til suð- austurs eru bandamenn komnir til Epaignes og Saint George du Vievre er á baldi bandamanna. Hersveitir Bandaríkjamanna, sem sækja niður með Signu og Kanadamenn, sem sóttu fram til móts við þá, hafa ná mæst. Um miðjan dag í gær voru Kanada- menn 12 km. frá Rouen. 40—50 þúsund Þjóðverjar innikróaðir. Þjóðverjar gera nú alt, sem á þeirra valdi stendur, til að koma liði sínu, sem enn er á vesturbökkum Signu, yfir fljót- ið. En erfiðleikar þeirra eru miklir og ekki er nokkur von til að þeir geti komið vjelaher- gögnum sínum og flutninga- tækjum austur yfir ána. Flug- menn bandamanna hafa sjeð þúsundir flutnin;;avagna og skriðdreka á vcg'unum fyrir vestan ána. Er talið að enn hafi Þjóð- verjar 40—^50 þúsund manna lið á ves' arfcökkum Signu. Flugl • fcanc’smanna gerir stöðug r árásir á lið Þjóðverja á þestum slóðum. Sókn Paítons- Hersveitir Pattons hershöfð- ingja rækja fram suðaustur og norðaustur af París. Lítið er birt um sókn fcassara Banda- ríkjahersveita af öryggisástæð- um, en svo mikið cr vitað, að Framli. á 2. siðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.