Morgunblaðið - 27.08.1944, Blaðsíða 1
81. árganguR
191 tbl. — Sunnudag'ur 27. ágúst 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Fer&amestn trá frýsksBÍsandi seeggea:
ÞJÓBVERJAR SIGRABIRINNAN MÁNABAR
BANBAMENN SAGBIR KOMNIR AÐ REIMS
Baráttu-
kjarkur Þjóð
verja að
bresta
SÆNSKUR FERÐAMAÐ
UR, sem nýlega er kominn
frá Þýskalandi, segir, að
Þjóðverjar muni gefast upp
innan mánaðar. Baráttu-
kjarkur Þjóðverja, bæði
borgaranna og hersins sje að
bresta. Þannig var ástandið
áður en París fjell og áður
en Rúmenar gengu í lið með
bandamönnum.
Björn Björnsson, frjetta-
ritari NBC útvarpsfjelagsins
skýrði frá þessu í útvarpi
frá Stokkhólmi í gærdag.
En nasistar munu verjast.
Ferðamaðurinn segir, að hins
vegar muni nasistar verjast á
meðan þeir geta í Þýskalandi,
þó herinn gefist upp og borg-
ararnir. Telur ferðamaður
þessi, að nasistar muni búa sig
um í borgum og virkjum víða
í Þýskalandi og verjast þar til
yfir lýkur eins og SS-sveitirn
ar hafa gert í hafnarborgum
Frakklands.
Þjóðverjar óttast erlendu
verkamennina.
Björn hafði það eftir ferða-
manninum, að Þjóðverjar væru
nú farnir að óttast, að þær milj
ónir erlendra verkamanna, sem
fluttir hafa verið til Þýska-
lands frá herteknu löndunum
undanfarin ár, myndu gera upp
reisn.
I Berlín, segir ferðamaðurinn
er rússneska annað aðalmálið,
sem talað er í borginni, því þar
eru svo margir rússneskir
verkamenn, sem Þjóðverjar
hafa farið með sem þræla.
Hemaðaraðstaðan í Norður-Frakklandi
°AmiPn&
Bpússzis
^Rp.ims
Djor?
Strikaða svæðið sýnir land það, sem bandamenn hafa nú á valdi
sínu í Norður-Frakklandi, eða höfðu í gærmorgun. En breytingar
verða nú örar og munu bandamenn vera komnir umhverfis Rou-
en og ennfremur er ekki fullljóst. hve langt hersveitir Pattons*
hafa sótt austur af París. í óstaðfestum fregnum í gærmorgun
var sagt að bandamenn væru komnir til Reims, sem er 175 km.
frá þýsku landamærunum.
Búlqarar hafa beðið
bandamenn um frið
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
BÚLGARAR HAFA BEÐIÐ UM FRIÐ og er nú verið að at-
huga tillögur og boð Búlgara í London. Það er nú hægt að skýra
frá þvþ að s. 1. fimtudag kom Nicholas Balabanov, sendiherra
Búlgara í Ankara, til Istambul til að ræða við búlgarska stjórn-
málamanninn Stoyteche Mochanov, fyrverandi forseta búlgarska
þingsins, en hann hafði meðferðis friðartilboð frá búlgörsku
stjórninni.
Balbanov sendiherra sagði
við blaðamenn við komu sína
til Istambul: „Það gengur alt
sínar eðlilegu leiðir. Búlgarar
munu brátt fylgja hinu skyn-
samlega fordæmi Rúmena“.
Á föstudag afhenti Mochanov
sendiherra Breta í Tyrklandi,
Sir Hugh Knachbull Hugeson,
friðartilboð Búlgara. Sendiherr
Fáni forsela Islands
ann kom friðartilboðinu áleiðis
til London. Þar hafa tilboð Búlg
ara verið til athugunar hjá full
trúum Bresku stjórnarinnar og
fulltrúum Bandaríkjastjórnar.
Rússneska stjórnin hefir ver
ið látinn fylgjast vel með þess-
um málum, þó Rússar eigi ekki
í ófriði við Búlgara.
Merki forseta íslands
Fyrirskipað að
fækka hreindýra-
lörfum
DÓMS- og kirkjumálaráðu-
jieytið hefir fyriskipað eftir-
litsmanni hreindýranna, Frið-
jriki Stefánssyni, Hóli í Fljóts-
dal, að skóta elstu hreindýra-
tarfana.
Forsetaúrskurður
um fána forseta íslands: „For-
seti íslands gjörir kunnugt:
Jeg hefi, samk'væmt tillögu
forsætisráðherra, úrskurðað
þannig:
Fáni forseta íslands er hinn
íslenski tjúgufáni, en í honum
þar sem armar krossmarksins
mætast, skjaldarmerki íslands
og skjaldberar í hvítum, fer-
hyrndum reit“.
URSKURÐUR FORSETA um
merki forseta íslands:
%
Jeg hefi, samkvæmt tillögu
forsætisráðherra, úrskurðað
þannig:
Merki forseta Islands er
skjöldur, að lögun og lit sem
skjöldurinn í skjaldarmerki Is-
lands, en þar sem armar kross
marksins mætast er hvítur, fer
hyrndur reitur og í honum
skjaldarmerki íslands og skjald
berar-
Hersveitir bandamanna
fara í stríðum straum-
um yfir Signu
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
SAMKVÆMT ÞÝSKUM fregnum eru framsveitir banda
manna í Norður-Frakklandi komnar alla leið til Reims
fyrir norðan París, en sú borg er aðeins 175 kílómetra frá
landamærum Þýskalands, en auk þess er Reims ein þýð-
ingarmesta umferðarmiðstöð í Norður-Frakklandi. Fregn
þessi hefir ekki verið staðfest af bandamönnum, þegar
þetta skeyti er sent. Þeir segja, að vjelahersveitir sjeu
komnar til Troeys, sem er um 200 km. frá þýsku landa-
mærunum.
Hröð sókn
Bússa til
Dónárósa
London í gærkveldi:
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
Eftir Dulcan Hooper.
HERSVEITIR Malinovskis og
Tolbuhkins sækja hratt frá
Bessarabíu. Rúmenskar her-
sveitir hafa nú lagt niður vopn
gegn Rússum, nema þar sem
Þjóðverjar stjórna þeim og
rúmensku hermenirnir eiga
ekki annars úrkostar en að berj
ast með Þjóðverjum. Rúmensku
hersveitirnar nálgast stöðugt
Galatz-olíusvæðið og Dónará-
ósa.
100 þúsund Þjóðverjar
króaðir inni.
Það er talið, að ekki sjeu
færri en 100.000 þýskir her-
Framhald á 8. síðu.
Antonescu
horfinn
Stokkhólmur í gær.
Berlínarfrjettaritari „Svenska
Dagbladet“ skýrir frá því, að
til Antonescu fyrverandi for-
sætisráðherra Rúmeníu og fyr-
irrennara hans í þeirri stöðu,
hafi ekkert spurst, síðan þeim
var stefnt til ráðstefnu í kon-
ungshöllinni.
Sagt er, að þeir hafi aldrei
komið út úr höllinni..
Sótt að Rouen.
Hersveitir bandamanna við
neðanverða Signu sækja fram
og einnig meðfram ströndinni.
Á ströndinni hafa bandamenn
tekið Honfleur og Beuzeville.
Þeir hafa farið yfir ána Risle
á mörgum stöðum og hafa báða
bakka árinnar alla leið til Mont
fort sur Risle. Lengra til suð-
austurs eru bandamenn komnir
til Epaignes og Saint George du
Vievre er á baldi bandamanna.
Hersveitir Bandaríkjamanna,
sem sækja niður með Signu og
Kanadamenn, sem sóttu fram til
móts við þá, hafa ná mæst. Um
miðjan dag í gær voru Kanada-
menn 12 km. frá Rouen.
40—50 þúsund Þjóðverjar
innikróaðir.
Þjóðverjar gera nú alt, sem
á þeirra valdi stendur, til að
koma liði sínu, sem enn er á
vesturbökkum Signu, yfir fljót-
ið. En erfiðleikar þeirra eru
miklir og ekki er nokkur von
til að þeir geti komið vjelaher-
gögnum sínum og flutninga-
tækjum austur yfir ána. Flug-
menn bandamanna hafa sjeð
þúsundir flutnin;;avagna og
skriðdreka á vcg'unum fyrir
vestan ána.
Er talið að enn hafi Þjóð-
verjar 40—^50 þúsund manna
lið á ves' arfcökkum Signu.
Flugl • fcanc’smanna gerir
stöðug r árásir á lið Þjóðverja
á þestum slóðum.
Sókn Paítons-
Hersveitir Pattons hershöfð-
ingja rækja fram suðaustur og
norðaustur af París. Lítið er
birt um sókn fcassara Banda-
ríkjahersveita af öryggisástæð-
um, en svo mikið cr vitað, að
Framli. á 2. siðu.