Morgunblaðið - 06.09.1944, Side 1
81. árgangus.
199. tbl. — Miðvikudagur 6. september 1944
Isafoldarprentsmiðja h.f.
BAMPAMENN VIÐ ÞVSKU LAMOAIV1ÆRIM
Mesta árás
breska flot-
ans á þýsk
skip við
Noreg
Tirpitz laskað á ný
Eftir Arthur Oakeshott
(frjettaritara Reuters um. foorð
í flugvjelamóðurskipi við Nof -
egsstrendur).
BRESK FLOTADEILD hefir
gert mestU árás, sem breski
flotinn hefir til þessa gert í
stríðinu, á þýsk skip og hern-
aðarstöðvar við Noregsstrend-
ur. Stóð árás þessi yfir í 7 daga
og á þeim tíma voru gerðar
fjórar stórárásir á skip í Alt-
enfirði og hernaðarstöðvar í
nágrenninu. Flugvjelar gerðu
árás á orustuskipið Tirpitz,
sem enn liggur í Altenfirði. —
Telja flugmennirnir, að þeir
hafi komið sprengjum á Tir-
pitz, en gátu ekki sjeð, hve mik
ið það laskaðist, vegna þess, að
skipið var brátt hulið reykjar-
mekki miklum.
Mikið tjón.
j í þessum árásum, sem ef til
vill verða síðustu stórárásirn-
ar, sem breski flotinri gerir í
styrjöldinni í Evrópu, varð mik
ið tjóri á skipum og hernaðar-
raannvirkjum Þjóðverja. List-
inn yfir skemdimar lítur þann
ig út:
9 þýskar flugvjelar eyðilagð
ar; tvær flugvjelar laskaðar;
kveikt í flugvjelaskýli, sem var
fult af flugvjelum; einnig
kveikt í hermannaskálum og
öðru flugvjelaskýli; 6 loft-
skeytastöðvar eyðilagðar; 1
kafbátur mikið laskaður; kaf-
bátamóðurskip mikið laskað;
4 tundurspillar laskaðir og skil
ið við þá í ljósum loga; fimm
kaupskip urðu fyrir sprengj-
urn og sennilega kveikt í þeim;
kj/eikt í tveimur olíuflutninga
skipum; 1 loftvarnaskip lask-
að; 2 vopnaðir togarar stórlask
aðir; nokkur loftvarnaskip
löskuð og kveikt í sumum
þeirra; stór olíugeymir á landi
varð fyrir sprengjum og kvikn
aði í honum mikill eldur.
Landamæralið Sviss-
lands kvatt til vopna.
London í gærkveldi: — Landa
mæralið Svisslands hefir verið
kvatt til vopna. Þjóðráðið sviss
neska gaf út fyrirskipun um
þessa hervæðingu í dag.
AFSTAÐA landanna, sem liggja að vesturvígstöðvun-
um. Bandamenn eru komnir inn Belgíu, Holland og Lux-
emburg. Belfortdalurinn, sem Bandárík jamentx sækja nú
eftir inn í Þýskaland er skamt fyrir sunnan Strassburg.
Rússar segja
Búlgörum stríð
á hendur
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
RÚSSAR HAFA SAGT BÚLGÖRUM STRÍÐ Á HENDUR
(Brelar og Bandaríkjamenn eru í stríði við Búlgara). Molotov,
utanríkisráðherra Rússa afhenti búlgarska sendiherranum í
Moskva tilkynningu um stríðsyfirlýsingu Rússa í kvöld. í til-
kynningunni segir á þessa leið:
— í rúmlega þrjú ár hafa I
Búlgarar aðstoðað Þjóðverja íj 8700 SVÍfsprengjur.
Undanhaldsleiðum
Þjóðverja fró Frakk-
landi og Belgíu lokað
London í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
HERSVEITIR BANDAMANNA standa nú við landa-
mæri Þýskalands. Fregnir um, að Bandaríkjahersveitir
hafi þegar brotist inn á þýska grund, hafa ekki verið stað-
festar ennþá og af öryggisástæðum getur herráð banda-
manna ekki um staði þá, sem fremstu fjallahersveitir
þeirra eru komnar til. í Frakklandi verjast Þjóðverjar
nú aðeins í hafnarborgunum Brest, Boulogne, Calais og
Dunkirk. En sú vörn hefir ekki neina úrslitaþýðingu, því
Þjóðverjar berjast þar vonlausri baráttu. Kanadamenn
voru aðeins 5 km frá Boulogne um hádegi í dag.
DITTMAR HERSHÖFÐINGI ER SVARTSÝNN
Talsmaður þýsku herstjórnarinnar í útvarpinu þýska, Dittmar
hershöfðingi dró ekki fjöður yfir hve ástandið er alvarlegt fyr-
ir Þjóðverja, er hann flutti vikulegt hernaðaryfirlit sitt í þýska
útvarpið í kvöld. Dittmar benti á eftirfarandi:
1) Sókn bandamanna á vesturvígstöðvunum nú er að
eins hægt að líkja við sókn Þjóðverja á sömu slóð-
um 1940.
2) Nú höfum við verið sigraðir með vopnum, sem við
smíðuðum sjálfir.
3 Okkur vantar tækin til þess, að okkur gæti auðn-
ast sigur.
Ditlmar sagði hlustendum sinum, að til þess, að bjarga sjer
yrðu Þjóðverjar nú að tefla fram síðasta varnarliði sínu.
styrjöldinni gegn Sovjet-Rúss-
landi- Sovjetstjórnin tók tillit
til þess, að hin fámenna búlg-
arska þjóð hefði ekki aðstöðu
til að veita mótspyrnu gegn
hinum mikla her Þjóðverja, á
meðan Þjóðverjar höfðu mest
alla Evrópu á sínu valdi. —
Sovjetstjórnin þoldi þetta
lengi. Sovjetstjórnin þoldi einn
ig, að valdhafarnir í Búlgaríu
aðstoðuðu Þjóðverja, er þeir
hörfuðu frá Krímskaga og
hjálpuðu til að bjarga hinum
sigruðu þýsku hersveitum, er
flýðu þaðan.
En svo fóf, að á þessu sumri
komst þýski herinn í klípu. —
Það var sótt að þýska hernum
í tangarsókn, af hendi Rússa
að austan og bandamanna að
vestan. Þýski herinn komst í
hið mesta öngþveiti og sigraðir
herir Þjóðverja eru á undan-
haldi á öllum vígstöðvum.
Þjóðverjar hafa mist Italíu
fyrir fult og alt. Þjóðverjar
hafa mist Frakkland fyrir full
og alt. Er hjer var komið yfir-
Framh. á bls. 6.
London í gærkveldi: — Frá
opinberum heimildum hjer í
London berast í kvöld þær til-
kynningar, að alls hafi 8700
svifsprengjur fallið á Bretland
frá því Þjóðverjar byrjuðu
skothríðina. — Hafa nú engar
svifsprengjur fallið á Bretland
í nokkra sólarhringa. — Reuter
Óqurlegar loftárás-
ir á Norður-Ítalíu
LONDON í gærkvöldi: Harðir
bardagar geisa í Norður-
Italíu og hafa bandamenn enn
unnið nokkuð á, einkum á Ad-
ríahafsvígstöðvunum.
Fluglið bandamanna hefir
haft sig mjög í frammi og gert
einhverjar hörðustu arásir á
stöðvar Þjóðverja í Norður-
Ítalíu, sem gerðar hafa verið í
stríðinu. Hefir verið ráðist á
samgönguleiðir Þjóðverja fyr
ir norðan Gotnesku virkin.
Stríðsglæpamenn fá
ekki friðland í Svíþjóð
Stokkhólmi í gær. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
STRÍÐSGLÆPAMÖNNUM og kvisling-svikurum verður
ekki veitt friðland í Svíþjóð, segir í tilkynningu, sem fjelags-
málaráðherra Svía, Gustav Möller gaf út í kvöld.
í tilkynningu ráðherrans segir á þessa leið:
,,Það er hætta á, að ,,pólitískir“ flóttamenn muni leita inn
yfir landamæri Svíþjóðar í smáum eða stórum stíl og þessvegna
hefir verið ákveðið að loka landamærum Svíþjóðar fyrir slíku
fólki.
„Takist einhverjum að komast í gegnum landamæravarnir
Svíþjóðar, verða þeir sendir til baka til síns eigin föðurlands“.
Við landamæri
Þýskalands.
Ekkert hefir enn verið skýrt
frá því, hvar hersveitir úr
þriðja ameríska hernum undir
stjórn Pattons hershöfðingja
eru. I þýskum fregnum í dag
er skýrt frá því, að vjelaher-
sveitir bandamanna sæki nú
að Belfort-dalnum, en sá dalur
er milli svissnesku Alpanna og
Vogesa-hæðanna. Sú leið ligg-
ur inn í Þýskaland. Síðast, þeg
ar frjettist af hersveitum Patt-
ons, voru þær hjá Metz.
Frjettaritari einn símar í
kvöld, að á þessum slóðum hafi
mótspyrna Þjóðverja harðnað
allverulega í dag.
Antvverpen nærri
óskemd.
Þjóðverjar höfðu ekki tíma
til að eyðileggja hin miklu
hafnarmannvirki í Antwerpen
að neinu ráði, áður én banda-
menn tóku borgina. Fá banda-
menn þarna mikilvæga höfn,
sem þeir geta flutt vistir og
hergögn um til hersveitanna,
sem sækja að Þýskalandi.
Louvain fallin.
Það er opinberlega tilkynt,
að Bretar hafi tekið borgina
Louvain í Belgíu. Er sú borg
um 30 km. fyrir austan Brux-
elles. Ekki hefir þess verið get
ið enn opinberlega, að banda-
Framh. á bls. 11.