Morgunblaðið - 13.09.1944, Side 1

Morgunblaðið - 13.09.1944, Side 1
Bl. árgangriE. 205. tbl. — MiSvikudagur 13. september 1944. Isaíoldarprentsmiðja h.f. BANDA STÓR TAKA mALMEDY VIÐ ALBERTSKLRÐINIM 4 4 4 4 < 4 4 4 Stöðug loft- sókn gegn Þýskalandi London í gærkveldi. 1 36 klukkustundir hefir nú Aærið haldið uppi loftsókn gegn Þýskalandi, aðallega gegn olíuvinslustöðvúm. 1 gær var ráðist á þesskonar skot- niÖrk af 1000 amerískum flug- vjelum, og fóru sumar þeirra til Rússlands af afloknum ár- ásum. 1 nótt sem leið fóru svo breskar flugvjelar og rjeðust á Darmstadt og Berlín. 16 flugvjelar komu ekki aftur. ) I dag hófu svo amerískar flugvjelar aftur- stórárásir á margar olíuvinslustöðvar víða um Mið- og Suður-Þýskaland, en flugvjelar frá Italíu rjeð- ust á verksmiðjur í Suður- Þýsknlandi. t kvöld seint rjeðust ‘bresk- ar sprengjuflugvjelar á líuhrhjeraðið. Eisenho'Wer hefir aðvarað þýska borgára um að forðast verksiniðjur, herstöðvar og samgönguleiðir í Ruhr og Rínarhjeruðum, þar sem óg- urlegar árásir verði gerðar á stöðvar þessar á næstunni. — Reuter. FlugmálaráSstefna í Bandaríkjunum Washington í gærkveldi. Bráðlega verður haldin í Bandaríkjunum 'ráðstefna, er fjalla á um flugsamgöngur í framtíðinni. Hefir eftirtöld- um löndum verið boðið að senda fulltrúa á ráðstefnu ]>essa: Afghanistan, Ástralíu, Belgíu, Bolivíu, Brasilíu, Can- áda. Chile, Kína, Ivosta Ríca, Kúba, Tjekkoslovakíu, Dom- inica, Equador, Egyptalandi, Ethiopiu, San Salvador, Frakk landi, Grtkklandi, Guatemala, Bretlandi, Honduras, íslandi, Indlandi, Iran, Iraq, Libanon, Liberíu, Luxemburg, Mexiko, Ilollandi, Nýja-Sjálandi, Nor- egi, Pa-mama. Paraguay, Fil- ipseyjum, Póllandi, Portúgal, Saudi Arabíu, Spáni, Svíþjóð, Sviss, Sýrlandi, Tyrklandi, Suður-Afríku og Sovjetrlkj- unum, Urugyay, Venezuela og Jugoslavíu. Reuter. Fallinn hersleflnai Svo sem kunnugt er orðið, átti 7. herinn þýski í mestum orust- um af öllum herjum Þjóðverja í Frakklandi, einkum við bæinn Falaise. Þar fjell yfirmaður hers þessa, Dollmann hershöfðingi. Hami sjest hjer á myndinni að ofan, — yst til vinstri. 1 Stórkostlegir vatna- 8 vextir ó Suðurlondi Brýr loskost Samgöngnr teppast ÍIITAR og rigningar hafa undanfarin dægur gengið um vissan hluta Suðurlands, Mýr- dal og Eyjafjöll. Jökulbráð hefir verið ó- venjumikið, svo að hlaup hef- ir komið í jökulsár. Svo mik- ið óx í fyrrinótt og gærdag í ánni Klifandi í Mýrdal, að gróf undan vesturenda svo mjög, að brúin laskaðist- og seig allmikið og teptist bíla- urnferð þar algerlega. Brúin í hættu og hefir henni verið lokað, óvíst hvernig eða hve- nær-tekst að gera við hana. Ain er að öðru leyti ekki fær bílum. Hlaup í Jökulsá . 1 Jökulsá á Sólheimasandi' kom mikið hlaup með jaka- burði og töldu menn í gær að hætta væri við skemdum et' áin legðist með þunga við austuröldurnar, en þar hefir hún áður grafið undan brúnni. Undir Eyjafjöllum Undir Eyjafjöllum varð vatnsaginn svo mikill, að flóði yfir bakka og runnu ut- an við brýrnar, svo að ill- fæN var yfir. Má því segja að eigi sje ein báran stök nú hjer á Suð- urlandi, að því er samgöngur snertir. Japönsku beitiskipi sökt. London: — Nýlega sökti amerísk flugvjel japönsku beitiskipi undan Hong Kong. Varð beitiskipið fyrir þrem sprengjum, en ein kom nærri því. Sáu flugmennirnir skipið sökkva, áður en frá var horfið. Farið yfir þýsku landa- mærináöðrumstaðídag London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. BANDARÍKJAMENN eru nú komnir yfir þýsku landa- mærin á tveim stöðum og hafa tekið borgirnar Malmedy og Eupen, rjett við landamærin. Bretar eiga í stórorstum fyrir norðan Albertskurðinn, þar sem Þjóðverjar hafa lagt til allsherjar gagnáhlaupa. — Fyrir ^unnan Belfortskarð- ið sækir sjöundi ameríski herinn fram gegn harðri mót- spyrnu þýskra skriðdrekasveita, en við Mosel hafa Banda ríkjamenn treyst aðstöðu sína. Ánnars berast fáar fregn- ir um bardagana á þessum slóðum og engar fregnir eru sagðar af ástandinu á Calaissvæðinu. Rússar við ungversku landamærin Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. I herstjórnartilkynningum Rúmena í kvöld er sagt að rúmenskar og rússneskar her- sveitir nálgist nú mjög' landa- mæri Ungverjalands og eigi í hörðum bardögum um 10 km. frá þeim. Ekki er þetta að vísu staðfest í herstjórnartilkynn- Rússa, en í henni er sagt, að Rússar hafi með hjálp rúm- enskra sveita tekið allmörg þorp og bæi í Transylvaniu. Þá segir herstjórnartilkynn- ing Rússa að miklir bardagar hafa verið háðir nærri borginni Lomza í Norður-Póllandi og hafi þeim þar tekist að bæta aðstöðu sína nokkuð. Ekki staðfestir herstjórnar- tilkynningin fregnina um það, að framsveitir Rússa hafi farið könnunarferð yfir landamæri Austur-Prússlands. Annarsstaðar á vígstöðvum Rússa, segja þeir ekkert hafa verið um að vera, nema smá- vægilegar skærur, og sumsstað ar staðbundnar orustur. Póstgöngur stöðvast. London: — Svissneska póst- stjórnin hefir tilkynt, að vegna samgönguerfiðleika í Frakk- landi sje ekki lengur hægt að senda póst til Bretlands, ír- lands og Spánar, nema þá loft- leiðis. Einnig er ekki lengur hægt að koma pósti til Rúm- eníu og annara landa í Suð- austur-Evrópu. Eupen og Malmedy teknar. í dag fóru amerískar sveitir úr fyrsta hernum inn í belgísku borgirnar Eupen og Malmedy, rjett við þýsku landamærin. — Fregnritarar með herjun- um segja, að þeim hafi brugðið mjög í brún við móttökurnar þarna, frá því, sem þeir áttu að venjast annarsstaðar. Var fólkið þögult og fjandsamlegt, enda margt þýskt. Banda- ríkjamenn skjóta nú af fall- byssum frá Eupen á virki Þjóðverja handan landa- mæranna, og framsveitir hafa farið yfir þau. Engar fregnir hafa borist af hinni fylkingunni, sem áður var komin yfir landamærin. Við Albertskurðinn. Þar hafa Þjóðverjar dreg ið að sjer allmikið lið, og gera gagnáhlaup í sífellu og eins þar sem Bretar epu komnir yfir Maas- Shelde- skurðinn. Eru bardagar mjög harðir þarna og á- standið svo að segja óbreytt. Viðurkenna Þjóð- verjar að Bretar sjeu komn- ir yfir hollensku landamær- in, en hafa ekki enn viður- kennt að herir andstæðing- anna væru komnir á þýska grund. Sjöundi herinn, sem sæk ir fram að sunnan, hefir lent í skriðdrekaorustum við Þjóðverja nokkru fyrir sunnan Belfortskarðið. Tal- ið er að þetta lið hafi kom- ið að vestan, frá Bordeaux- svæðinu. London: — National-útvarps fjelagið í New York hefiiuiitil- kynt, að einn af stríðsfrjetta- riturum þess hafi beðið bana í Frakklandi. Fórst hann, er amerískur skriðdreki ók yfir bifreið hans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.