Morgunblaðið - 13.09.1944, Síða 1
Bl. árgangriE.
205. tbl. — MiSvikudagur 13. september 1944.
Isaíoldarprentsmiðja h.f.
BANDA
STÓR
TAKA mALMEDY
VIÐ ALBERTSKLRÐINIM
4
4
4
4
<
4
4
4
Stöðug loft-
sókn gegn
Þýskalandi
London í gærkveldi.
1 36 klukkustundir hefir nú
Aærið haldið uppi loftsókn
gegn Þýskalandi, aðallega
gegn olíuvinslustöðvúm. 1 gær
var ráðist á þesskonar skot-
niÖrk af 1000 amerískum flug-
vjelum, og fóru sumar þeirra
til Rússlands af afloknum ár-
ásum.
1 nótt sem leið fóru svo
breskar flugvjelar og rjeðust
á Darmstadt og Berlín. 16
flugvjelar komu ekki aftur. )
I dag hófu svo amerískar
flugvjelar aftur- stórárásir á
margar olíuvinslustöðvar víða
um Mið- og Suður-Þýskaland,
en flugvjelar frá Italíu rjeð-
ust á verksmiðjur í Suður-
Þýsknlandi.
t kvöld seint rjeðust ‘bresk-
ar sprengjuflugvjelar á
líuhrhjeraðið.
Eisenho'Wer hefir aðvarað
þýska borgára um að forðast
verksiniðjur, herstöðvar og
samgönguleiðir í Ruhr og
Rínarhjeruðum, þar sem óg-
urlegar árásir verði gerðar á
stöðvar þessar á næstunni.
— Reuter.
FlugmálaráSstefna
í Bandaríkjunum
Washington í gærkveldi.
Bráðlega verður haldin í
Bandaríkjunum 'ráðstefna, er
fjalla á um flugsamgöngur í
framtíðinni. Hefir eftirtöld-
um löndum verið boðið að
senda fulltrúa á ráðstefnu
]>essa: Afghanistan, Ástralíu,
Belgíu, Bolivíu, Brasilíu, Can-
áda. Chile, Kína, Ivosta Ríca,
Kúba, Tjekkoslovakíu, Dom-
inica, Equador, Egyptalandi,
Ethiopiu, San Salvador, Frakk
landi, Grtkklandi, Guatemala,
Bretlandi, Honduras, íslandi,
Indlandi, Iran, Iraq, Libanon,
Liberíu, Luxemburg, Mexiko,
Ilollandi, Nýja-Sjálandi, Nor-
egi, Pa-mama. Paraguay, Fil-
ipseyjum, Póllandi, Portúgal,
Saudi Arabíu, Spáni, Svíþjóð,
Sviss, Sýrlandi, Tyrklandi,
Suður-Afríku og Sovjetrlkj-
unum, Urugyay, Venezuela og
Jugoslavíu. Reuter.
Fallinn hersleflnai
Svo sem kunnugt er orðið, átti 7. herinn þýski í mestum orust-
um af öllum herjum Þjóðverja í Frakklandi, einkum við bæinn
Falaise. Þar fjell yfirmaður hers þessa, Dollmann hershöfðingi.
Hami sjest hjer á myndinni að ofan, — yst til vinstri.
1 Stórkostlegir vatna-
8 vextir ó Suðurlondi
Brýr loskost
Samgöngnr teppast
ÍIITAR og rigningar hafa
undanfarin dægur gengið um
vissan hluta Suðurlands, Mýr-
dal og Eyjafjöll.
Jökulbráð hefir verið ó-
venjumikið, svo að hlaup hef-
ir komið í jökulsár. Svo mik-
ið óx í fyrrinótt og gærdag í
ánni Klifandi í Mýrdal, að
gróf undan vesturenda svo
mjög, að brúin laskaðist- og
seig allmikið og teptist bíla-
urnferð þar algerlega. Brúin í
hættu og hefir henni verið
lokað, óvíst hvernig eða hve-
nær-tekst að gera við hana.
Ain er að öðru leyti ekki fær
bílum.
Hlaup í Jökulsá .
1 Jökulsá á Sólheimasandi'
kom mikið hlaup með jaka-
burði og töldu menn í gær að
hætta væri við skemdum et'
áin legðist með þunga við
austuröldurnar, en þar hefir
hún áður grafið undan brúnni.
Undir Eyjafjöllum
Undir Eyjafjöllum varð
vatnsaginn svo mikill, að
flóði yfir bakka og runnu ut-
an við brýrnar, svo að ill-
fæN var yfir.
Má því segja að eigi sje
ein báran stök nú hjer á Suð-
urlandi, að því er samgöngur
snertir.
Japönsku beitiskipi
sökt.
London: — Nýlega sökti
amerísk flugvjel japönsku
beitiskipi undan Hong Kong.
Varð beitiskipið fyrir þrem
sprengjum, en ein kom nærri
því. Sáu flugmennirnir skipið
sökkva, áður en frá var horfið.
Farið yfir þýsku landa-
mærináöðrumstaðídag
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
BANDARÍKJAMENN eru nú komnir yfir þýsku landa-
mærin á tveim stöðum og hafa tekið borgirnar Malmedy
og Eupen, rjett við landamærin. Bretar eiga í stórorstum
fyrir norðan Albertskurðinn, þar sem Þjóðverjar hafa lagt
til allsherjar gagnáhlaupa. — Fyrir ^unnan Belfortskarð-
ið sækir sjöundi ameríski herinn fram gegn harðri mót-
spyrnu þýskra skriðdrekasveita, en við Mosel hafa Banda
ríkjamenn treyst aðstöðu sína. Ánnars berast fáar fregn-
ir um bardagana á þessum slóðum og engar fregnir eru
sagðar af ástandinu á Calaissvæðinu.
Rússar við
ungversku
landamærin
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
I herstjórnartilkynningum
Rúmena í kvöld er sagt að
rúmenskar og rússneskar her-
sveitir nálgist nú mjög' landa-
mæri Ungverjalands og eigi í
hörðum bardögum um 10 km.
frá þeim. Ekki er þetta að vísu
staðfest í herstjórnartilkynn-
Rússa, en í henni er sagt, að
Rússar hafi með hjálp rúm-
enskra sveita tekið allmörg
þorp og bæi í Transylvaniu.
Þá segir herstjórnartilkynn-
ing Rússa að miklir bardagar
hafa verið háðir nærri borginni
Lomza í Norður-Póllandi og
hafi þeim þar tekist að bæta
aðstöðu sína nokkuð.
Ekki staðfestir herstjórnar-
tilkynningin fregnina um það,
að framsveitir Rússa hafi farið
könnunarferð yfir landamæri
Austur-Prússlands.
Annarsstaðar á vígstöðvum
Rússa, segja þeir ekkert hafa
verið um að vera, nema smá-
vægilegar skærur, og sumsstað
ar staðbundnar orustur.
Póstgöngur stöðvast.
London: — Svissneska póst-
stjórnin hefir tilkynt, að vegna
samgönguerfiðleika í Frakk-
landi sje ekki lengur hægt að
senda póst til Bretlands, ír-
lands og Spánar, nema þá loft-
leiðis. Einnig er ekki lengur
hægt að koma pósti til Rúm-
eníu og annara landa í Suð-
austur-Evrópu.
Eupen og Malmedy teknar.
í dag fóru amerískar
sveitir úr fyrsta hernum
inn í belgísku borgirnar
Eupen og Malmedy, rjett
við þýsku landamærin. —
Fregnritarar með herjun-
um segja, að þeim hafi
brugðið mjög í brún við
móttökurnar þarna, frá því,
sem þeir áttu að venjast
annarsstaðar. Var fólkið
þögult og fjandsamlegt,
enda margt þýskt. Banda-
ríkjamenn skjóta nú af fall-
byssum frá Eupen á virki
Þjóðverja handan landa-
mæranna, og framsveitir
hafa farið yfir þau. Engar
fregnir hafa borist af hinni
fylkingunni, sem áður var
komin yfir landamærin.
Við Albertskurðinn.
Þar hafa Þjóðverjar dreg
ið að sjer allmikið lið, og
gera gagnáhlaup í sífellu og
eins þar sem Bretar epu
komnir yfir Maas- Shelde-
skurðinn. Eru bardagar
mjög harðir þarna og á-
standið svo að segja
óbreytt. Viðurkenna Þjóð-
verjar að Bretar sjeu komn-
ir yfir hollensku landamær-
in, en hafa ekki enn viður-
kennt að herir andstæðing-
anna væru komnir á þýska
grund.
Sjöundi herinn, sem sæk
ir fram að sunnan, hefir
lent í skriðdrekaorustum
við Þjóðverja nokkru fyrir
sunnan Belfortskarðið. Tal-
ið er að þetta lið hafi kom-
ið að vestan, frá Bordeaux-
svæðinu.
London: — National-útvarps
fjelagið í New York hefiiuiitil-
kynt, að einn af stríðsfrjetta-
riturum þess hafi beðið bana í
Frakklandi. Fórst hann, er
amerískur skriðdreki ók yfir
bifreið hans.