Morgunblaðið - 14.09.1944, Blaðsíða 12
52
iJEIl
Algjör stöDvun
a flutningum
vift Ölfusá
MJÖG MIKILL vöxtur hefir
hlaupið í Ölfusá og var ekki
hægt að ferja mjólk yfir ánna
í gær. —- Verður því bærinn
mjólkurlítill í dag, nema að
dragi úr vexti í ánni,
Blaðið átti tal við Sigurð Ól-
afsson, Selfossi í gærkveldi og
skýrði hann svo frá:
í rigningunum undanfarna
daga hefir vaxið mikið í Ölfus-
á. í fyrradag voru t. d. allir
þeir, er ferjaðir voru yfir ána,
með björg'unarbelti, en þau
hafa verið fengin að láni hjá
Slysavarnafjelaginu, — auk
tveggja þjörgunarhringa, og
eru þeir beggja megin árinnar.
Þá um kvöldið varð Ölfusá nær
ófær, en samt var haldið áfram
við að ferja mjólk. I gærmorg-
un var svo áin orðin með öllu
ófær og var ekki hægt að ferja
’ mjólk yfir í allan gærdag.
Bæði ofan og neðan við
brúna eru ferjustaðir, en þar
er ekki hægt að koma bifreið-
um að. En í ráði er að ferja
fólk yfir á þessum stöðum. —
Staðir þessir eru aó Auðsholti
og í Laugardælum. — Verður
fólk að ganga þar nærri einn
kílómetir, þar til það kemur
að bifreiðunum.
Ekkert rigndi á Selfossi í
gær og haldist sama veður í
dag, er ekki útilokað að hægt
verði að ferja^ yfir ána seinni
part dags í dag.
Bærinn mjólkurlítill.
Þá hefir blaðið átt tal við
Halldór Eiríksson, forstjóra
Mjólkursamsölunnar. — Sagði
hann, að bærinn myndi verða
mjólkurlítill í dag af þessum
orsökum, en eitthvað kynni þó
a,ð rætast úr þessu, síðari hluta
dags í dag.
Mun því verða, eins og þegar
bærinn hefir verið mjólkurlít-
ill, reynt að jafna mjólkinni
sem jafnast niður á heimilin.
Fomfræg brú í Florens
Eina brúin yfir Arnofljótið, sem rennnr gegnum ítölsku borgina Florens, er Þjóðverjar
skildu eftir óskemda, er fcrúin sem sjest hjer frcmst á myndinni, Ponte Vecchio, — gamla
brúin. Ilún er elst af öllum br im í horginni og mjög einkennileg að gerð.
W masins hafa sótl Kveðjuhljómieikar Hjeraðsmé! Ung-
m
anns
Is
im
EINS OG skýrt hefir verið
frá hjer í blaðinu, opnuðu þeir
Jóhann Briem listmálari og
Marteinn Guðmundsson mynd-
höggvari sýningu í Sýningar-
skála myndlistarmanna s. 1-
laugardag-
Um miðjan dag í gær höfðu
rúm 7 hundruð manns sóft sýn-
inguna.
Þeir, sem ekki sjá sýninguna,
fara mikils á mis, því að þar er
margt ágætra listaverka. Jó-
hann sýnir 27 olíumálverk og
margar vatnslitamyndir og lit-
aðar þjóðsöguteikningar. Mar-
teinn sýnir 18 höggmyndir.
Nýr hver myndasl
í Lifla víli
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri.
SÍÐASTLIÐINN laugardag
var Ólafur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri á Akureyri, aust
ur við Króelfu. — Skýrir hann
svo frá, að breyting hafi orðið
á jarðhita í gilinu suðvestur í
fjallinu Litla víti, sem var
gufuhver. Er það orðið að gjós
andi leirhver, er gýs stöðugt
1—3 metra í loft upp.
Nokkru ofar í gilinu hefir
myndast nýr gufuhver og engu
minni en Litla víti var áður.
Brýst gufan þar út með hávaða
miklum. Ólafur álítur, að gufu
hver þessi sje nýmyndaður.
Fangar gera verkfall.
LONDON: Nýlega gerðu 1000
ítalskir stríðsfangar í Bret-
landi verkfall vegna deilu, sem
þeir lentu í við yfirmenn. Voru
þeir samstundis settir í varð-
hald og hafa nú aftur farið til
vinnu.
408 þúsund eld-
sprengjur á Frank-
furl
LONDON í gærkveldi: —
' Breskar flugvjelar gerðu harð
ar loftárásir á borgirnar Frank
furt og Stuttgart s. 1. nótt. —
Höfðu njósnaflugvjelar banda-
manna orðið þess varar, að
Þjóðverjar höfðu safnað sam-
an miklum hergagnabirgðum í
þessum borgum, sem flytja átti
til virkja þeirra í Sigfried-lín-
unni. Bresku flugvjelarnar
Ijetu falla um 400.000 eld-
sprengjur á Frankfurt og um
200.000 eldsprengjur á Stutt-
gart. Komu upp miklir eldar í
báðum borgunum. — Bretar
mistu 25 flugvjelar í þessum á-
rásum.
Árás á olíustöðvar.
Flugvjelar, sem bækistöðvar
hafa á Ítalíu, fóru í dag til á-
rása á olíustöðvar Þjóðverja.
Var gerð hörð árás á olíuhreins
unarstöð eina, sem er rúmlega
100 km. fyrir vestan Bresldu
og ennfremur á olíustöðvar
við Krakow í Póllandi.
I FYRRAKVOLD hjelt Egg-
ert Slefánsson kveðjuhljóm-
leika.sína í Iðnó fyrir fullu
húsi..
Vilhjálmur Þ. Gíslason, skóla
stjóri, ávarpaði gestina nokkr-
um orðum og síðan söng Eggert
nokkur lög eftir Sigvalda Kalda
ólns, bróður sinn, með undirleik
tónskáldsins. Viðtökur áheyr-
enda voru með miklum ágæt-
um og var þeim bræðrum ó-
spart klappað lof í lófa. —- Á
milli dagskrárþátta las Lárus
Pálsson þrjú kvæði eftir Jónas
Hallgrímsson.
Á síðari þætti söngskemtun-
arinnar voru íslensk þjóðlög,
raddsett af Sveinbirni Svein-
björnssyni og lög eftir Pál Is-
ólfsson, Árna Thorsteinsson og
Áskel Snorrason og annaðist
Gunnar Sigurgeirsson undir-
leik þeirra. — Fóru undirtekt-
ir áheyrenda vaxandi er á
kvöldið leið og er Eggert hafði
sungið síðasta lag sitt, „Þótt þú
langförull legðir“ eftir Kalda-
lóns og með undirleik hans,
varð Eggert að syngja „Good-
bye“ eftir Tosti.
Söngvaranum bárust margir
blómvendir og þótti tilheyr-
endum söngurinn hafa verið
hinn besti.
Þótt Eggert hafi ekki sungið
opinberlega hjer í Reykjavík í
2 ár, verður 'ekki fært að end-
urtaka söngskemtunina, vegna
þess að hann er að fara af landi
burt.
iyjafjarðar
Viðræður (hurchills
og Roosevelts
ÞEIR Churchill forsætisráð-
herra og Roosevelt forseti hafa
átt langa fundi með hernaðar-
fræðingum sínum og er vitað,
að viðræðurnar snúast aðallega
um Kyrrahafsstyrjöldina. Til-
kynt er að viðræðurnar gangi
mjög að óskum.
Akureyri í gær.
Frá öfjettaritara vorum.
HJERAÐSMÓT Ungmenna-
sambands Eyjafjarðar var hald
ið á Dalvík í gær, sunnudag-
inn 10. sept.
Mótið hófst kl. 14 á íþrótta-
vellinum þar. Helgi Símonar-
son kennari setti mótið með
ræðu. Þá flutti og ræðu Jónas
Jónsson kennari frá Brekkna-
koti.
Þá fór fram kepni í frjálsum
íþróttum og sundi. Voru kepp
endur margir. Ennfremur ljek
Lúðrasveit Akureyrar mörg
lög undir stjórn Jakobs
Tryggvasonar. Um kvöldið var
svo stiginn dans í ungmenna-
fjelagshúsinu á Dalvík og
samkomuhúsinu á' Árskógs-
strönd.
Söngskemtun frú
Davínu Sigurðsson og
Einars Sturlusonar
á Akureyri
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri.
FRÚ DAVINA SIGURÐSSON
og Einar Sturluson með aðstoð
Páls Kr. Pálssonar, hjeldu
aðra söngskemtun hjer í Nýja
Bíó s.l. sunnudag. Var hún
haldin á vegum Tónlistarfje-
lags Akureyrar.
Tilheyrendur voru mjög
margir, sem tóku söngnum
með miklum ágætum.
Frjettaritari hafði tal af söng
gestunum, en þau fóru söngför
til Austurlands dagana 4. til 9.
þ m. og hjeldu söngskemtan-
ir á Húsavík, Eskifirði og Seyð
isfirði við hinar ágætustu und-
irtektir tilheyrenda. Heimsóttu
þau ýmsa fagra og merka staði
þar austur frá. Var frú Davína
mjög hrifin af náttúrufegurð-
inni og Ijet t. d. svo um mælt,
að hún vildi helst geta tekið
bergmál Ásbyrgis upp á hljóm
plötu.
Fimtudagur 14. sept, 1944.
Koma forsela
III Hafnarfjarðar
FORSETI íslands kom til
Hafnarfjarðar kl. 18. Bæjarfó-
geti, bæjarstjóri og bæjarstjórn
höfðu ekið til móts við hann.
Var ekið til Hellisgerðis, sem
var fagurlega skreytt. Þar
bauð bæjarstjóri forseta vel-
kominn með ræðu, að viðstödd
um fjölda fólks, sem forseti, á-
varpaði. Lítil stúlka færði for-
seta blóm. Karlakór söng undir
stjórn sjera Garðars Þorsteins-
sonar. Kristján Magnússon, for
maður Magna, afhenti forseta
fallega ljósmynd af Hellisgerði
að gjöf frá framkvæmdastjórn
Hellisgerðis. Síðan skoðaði for-
seti Flensborgarskóla og hið
nýja ráðhús bæjarins. Við sund
laug Hafnarfjarðar tók Hall-
steinn Hinriksson á móti for-
seta og afhenti honum fallegan
blómvönd með stuttri ræðu. —•
Þá heimsóttu forsetahjónin
bæjarfógeta og dvöldu þar um
stund. Um kvöldið sátu forseta
hjónin kvöldverðarboð bæjar-
stjórnar og sýslunefndar. Und-
ir borðum hjeldu þessir menn
ræður: Bergur Jónsson bæjárfó
geti, Björn Jóhannesson forseti
bæjarstjórnar, forseti Islands,
sr. Garðar Þörsteinsson, Emil
Jónsson alþm. og Bjarni Snæ-
björnsson læknir. Að kvöld-
verðinum loknum fylgdi bæj ar
stjórn forsetahjónunum til
Bessastaða.
Ungur Reykvíkingur
bjargar fjelaga
sínum
SÍÐASTLIÐIÐ laugardag
vann 17 ára sjómaður það þrek
virki að bjarga fjelaga sínum,
sem fallið hafði fyrir borð, frá
drukknun.
Um kl. 9 f. h. s. 1. laugardag
var vjelskipið „Jakob“ á sigl-
ingu í Faxaflóa á leið til lands.
Þá vildi það slys til að mat-
sveinninn fjell fyrir borð. Var
þess samstundis vart og var
þegar kastað til hans bjarg-
hring, sem honum tókst að ná
í. Um leið var skipinu snúið til
þess að ná í hann, en við fyrstu
tilraun mistókst að leggja þvx
að manninum. Sást þá um leið
að hann hafði misst taki af
b j arghr ingnum og var að
sökkva.
Skipti þá engum togum, að
17 ára piltur, Karl Kristjáns-
son, Sjafnargötu 12 í Reykja-
vík, sem er háseti á „Jakobi“,
kastaði af sjer sjóstígvjelunum
og fleygði sjer til sunds í öllum
fötum, synti á slysstaðinn, náði
matsveininum og synti með
hann að bjarghringnum, þar
sem þeir höfðust við þar til
þeir voru dregnir upp í skipið.
Var hvorugum meint af volk-
inu.
Bróðursonur Görings
fellur.
LONDON: Þjóðverjar til-
kynna að Helmut Göring, flug-
foringi, hafi nýlega fallið í loft
orustu yfir Normandie. Þetta
er hinn fimmti aí sonum syst-
kina Görings, sem fellur í
stríði þessu.