Morgunblaðið - 24.03.1945, Blaðsíða 1
82. árgangur,
70. tbl. — Laugardagur 24. mars 1945
Isafoldarprentsmiðja n.f
ÞHiejI HEH
i GÆR
SPEYER
Róssar að sjó milli
Danzig og Gdynia
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
RÚSSAR tilkynna í kvöld,
að þeim hafi tekist að komast
til sjávar milli Danzig og
Ddynia eftir harða bardaga og
hafa þeir þar með rofið sam-
bandið milli borganna. Einnig
hafa hersveitir Konievs unnið
frekar á í sókn sinni til Hudeta-
fjallanna. Eru þar háðar mikl-
ar orustur, og eins í Ungverja-
landi, þar sem Þjóðverjar segja
frá liarðri sókn Rússa og telja
þá hafa unnið allverulega á.
— Reuter.
Morrison býsf við
auknum lofiárásum
London í gærkveldi.
HERBERT MORRISON, inrt-
anríkisráðherra Breta sagði í
ræðu í dag, að ekki mætti hætta
við loftvarnir, þar sem frekast
liti út fyrir það, að Þjóðverjar
myndu reyna að herða loftárás
ir sínar á Bretland, alt þar til
að þeir yrðu sigraðir. — Hann
kvað varnarliðið á suðurströnd
inni hafa reynt ákaflega mikið
á sig í vetur, og í norðurhlut-
um landsins væri nú stöðugt
ónæði af rakettusprengjum
Þjóðverja og einnig af flugvjel
um þeirra, sem nú eru yfir
Bretlandi svo að segja á hverri
nóttu. — Skemdir verða á
hverri nóttu og manntjón all-
mikið. — Reuter.
Lambrechf flug-
málafullfrúi
Frá norska blaðafull-
trúanum.
FRÁ LONDON berast fregn-
ir um það, að hinn kunni
norski flugmaður, Finn Lam-
brechts kommandörkapteinn,
sem einnig er vel kunnur á ís-
landi, hafi tekið við stöðu flug-
málaráðunauts við norsku sendi
sveitina í Stokkhólmi. Lam-
brechts hefir flogið nokkrum
sinnum yfir Noreg á styrjald-
arárunum, einu sinni var Nor-
dahl Grieg með honum. Fyrir
þvínær 3 árum fjekk hann
æðsta hernaðarheiðursmerki
Norðmanna, Stríðskrossinn með
sverðum. Um skeið stýrði hann
flugvjelum milli Englands og
Svíþjóðar. Hann er 45 ára, varð
sjóliðsforingi 1921, kapteinn
1937 og hefir svo verið hækk-
aður í tign eftir að stríðið skall
á. —
ORRUSTUSKIP sjöunda Bandaríkjaflotans bruna í röð inn á Lingayenflóa við Fil-
ipseyjar, til þess að ryðja innrásinni á Luzoney braut með st órskotaliríð sinni. —
GÍFURLEGT VEIBARFÆRATAP
RÁTA VIR FAXAFLÓA
Tjónið illbætanlegt
1 fyrrinótt gerði afspyrmi
rok og allur fjöldi báta við
Faxaflóa er voru á sjó, urðu
að fara frá veiðarfærum sín-
um og hefir tjón á þeini orðið
nijög ínikið og óbætan'legt.
1 fyrrakvöld uni miðnætti
var besta veðut- og rjeri allur
fjöldi báta frá verstöðvum
við Faxaflóa. — Fyrrihluta
nætur, þegar bátar höfðu lagt'
jóðir sínar. gerði sunnan á-
hlaupaveður og var ofsarok
þar til eftir miðjan dag í gær.
Fjöldi báta, sem var á djúp
miðum uáði sáralitlu inn af
veiðarfærum sínum og nokkrir
bátar töpuðn þeim öllum. Fá-^
einir bátar höf ðu lagt línu sínæ
á grunnmiðum og urðu þeiri
fyrir minna tjóni. Aðeins ör-1
fáir bátar sneru við, án þess
að leggja lóðir sínar og komu
til landss með öll sín veiðar-
fiCJ'Í. . * 1
Bátarnir voru að koma til j
hafpar frá því snemma í g'ær-
morgun þar til seint í gær-
kvöldi. Þó er vitað um fjóra '
eins og stendur
þáta, sem hafa legið á fiski-
miðunum yfir línunni og munu
þeir freista þess að draga hana
með morgninum.
Það sem bjargaði að ekki
urðu stór áföll á bátunum í
veðri þessu var, að sjór var
ekki úfinn. Af bátum þeim,
sem ekki voru komnir að landi
seint í gæx-kvöldi, hafði heyrst
til í talstöðvum. Ekki er vitað
til að slys hafi orðið í veðri
þessu. *
I Vestmannaeyjum skall veðr
ið svo snemma á, að bátar þar
voru ekki rónir.
Þegar þessi fregn er skrifuð,
seint í gærkvöldi, er útlit fyr-
ir, að veður lægi og mun allur
tjöldi þeirra báta, er urðu fyr-
ir veiðarfæratjóni, fara út á
miðin að leita veiðarfæra sinna.
Fróðir menn hafa skýrt
Morgunblaðinu svo frá, að tjón
það, er orðið hefir á veiðarfær-
um hjer í Faxaflóa, verði ekki
metið á minna en um 200 þús.
krónur.
Svo sem kunnugt er, er landið
alveg veiðarfæralaust og er
mikill vafi, hvort nokkrir
þeirra báta, sem verst hafa orð
ið úti, geti bætt sjer veiðar-
færatapið.
Ailsherjarvefklall
áraba I Jerúsalem
ARABAFLOKKURIN.N í Gyð
ingalandi gaf út áskorun til
meðTima sinna að hefja alls-
herjarverkfall á morgun, til
mótmæla gegn ákvörðun stjrón
arinnar um framtíðartilhögun
vi.ð kosningu borgarstjórans í
Jerúsalem, en Gort lávarður,
landstjóri í Gyðingalandi, gaf
i gær út tilskipun þess efnis,
að borgarstjórinn skyldi kjör-
inn af Múhameðsmönnum,
Kristnum og Gyðingum.
Loftsókn yfirum
Hín norðar
London í gærkveldí.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
SEINT í KVÖLD berast
þær fregnir frá vesturvígr
stöðvunum, að þriðji Banda
ríkjaherinn sje kominn yfir
Hín sunnan Koblenz og hafi
þegar komið talsverðu af
mönnum og hergögnum vf-
ir fljótið. Ekki er enn vitað
nákvæmlega hvar það er,
sem þriðji herinn er kominn
yfir, en herfræðingar telja
þetta sjerstakt þrekvirki,
þar sem herinn hefir sótt
hratt fram í marga sólar-
hringa. En vegir eru yfirleitt
góðir, svo hægara er fyrir
birgðasveitir að fvlgja herj-
unum eftir.
SPEYER, hin stóra þýska
boxg við Efri-Rín, fjell í hend-
ur bandamanna i dag sexnt. —•
B xrg þessi er um 13 km sunnan
Ludwigshafen Hafa nú banda-
menn náð því .nær öllum vest-
urbökkum Rínar, aðeins tvístr-
aðar sveitir Þjóðverja verjast
þarna á víð og dreif, og er ekki
hægt að kalla það skipulega mót
spyrnu. Hafa Þjóðverjar flestir,
sem komist hafa yfir Rin, slopp
ið yfir brúna hjá Karlsruhe.
Allar brýrnar á Rín sunnan Ko-
blenz munu nú vera sprengdar,
nema aðeins ein. — Þar verjast
Þjóðverjar af hörku mikilli.
Sóknarundirbúningur.
Denis Martin, fregnritari vor
með 21. herjasamstæðunni, þ. e.
a. s. herjum Montgomerys vest-
an Rínar, símar í kvöld, að
hver flokkur af flugvjelum
bandamanna hafi eftir annan
farið austur um Rín til árása.
Einnig segir Martin, að enn sjeu
reykský og gerfiþoka yfir vest-
ui-þökkum Rínar á rúrrilega 100
km svæði. í dag var þriðji dag-
ur allsherjar loftsóknar gegn
varnarstöðvum og liðsstyik
Þjóðvei-ja austan fljótsins.
Stór svæði í rústum.
Talið er að allir bæir og þorp
á mjög stóru svæði austan Rín-
ar liggi nú í rústum eftir hinar
ákaflegu atlögur flugvjela
bandamanna undanfarna þrjá
daga. Herfræðingar telja engan
vafa á því, að Montgomery geti
lagt til attögu yfir fljótið hve
nær sem vera skal. Þjóðverja
seg'ja, að menn Montgomerys
■Framhald á 8. síðu.