Morgunblaðið - 21.04.1945, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 21.04.1945, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laiigardagur 21. apríl 1945 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)- Frjettaritstjóri: Ivar Guðmundsson. p.t. Jens Benediktsson. Auglýsingar: Árni Óla. Rilstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands. í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. ísland og Svíþjóð SAMKVÆMT tilkynningu frá ríkisstjórninni, sem birt er á öðrum stað í blaðinu, hefir verið undirritaður samningur um loftflutninga milli íslands og Svíþjóðar. Er samningur þessi samhljóða samningi þeim, sem rík isstjóm íslands gerði við stjórn Bandaríkjanna 27. jan- úar s.l. og var sá samningur birtur. Það er vitað máþ að Svíar hafa að undanförnu haft mik- inn hug á, að taka upp fastar flugferðir milli Svíþjóðar og Ameríku, með viðkomu á íslandi, strax og mögulegt væri. Hafa Svíar verið að undirbúa þetta mál og m. a. gert samhljóða samning við stjórnir beggja landanna, Bandaríkjanna og íslands. Eru því miklar líkur til, að Svíar sjeu nú langt komnir með nauðsynlegan undirbún ing þessa máls og að ekki verði langt að bíða þess, að þeir geti hafið flugferðir á þessari leið. Við íslendingar fögnum því af alhug, að viðskiftin milli íslands og Svíþjóðar eru hafin á ný. Fyrir stríð voru mikil viðskifti milli þessara frændþjóða og benti margt til þess, að þau myndu fara vaxandi. Svo kom stríðið og lokaði þessum samböndum. En nú eru á ný hafin viðskifti milli þessara landa og þau fara myndarlega af stað. Samkvæmt hinupa nýja viðskiftasamningi landanna er gert ráð fyrir, að Svíar kaupi af íslendingum a. m. k. 125 þúsund tunnur af saltsíld, af þessa árs framleiðslu. Enn fremur að Svíar selji okkur ýmsar iðnaðarvörur, sem okkur vantar tilfinnanlega, svo sem efni til rafstöðva, raf- vjelar, efni til vitabygginga, vjelar í báta, landbúnaðar- vjelar. trjávörur og ýmislegt fleira. Áður höfum við sam- ið við Svía um smíði vjelbáta, sem kunnugt er. Allt bendir því til þess, að strax og stríðinu lýkur, verði mikil viðskifti milli íslands cg Svíþjóðar. Er það íslend- ingum fagnaðarefni, því að þeim hefir fallið vel að eiga viðskifti við Svía. Með reglubundnum flugferðum milli landanna, munu viðskiftin verða greiðari og er það vel farið. Hiiln nýi viðskiftasamningur íslendinga og Svia getur að sjálfsögðu ekki komið að fullum notum, fyrr en sam- göngur hefjast á ný milli landanna. En það veltur hins- vegar á því, hvenær stríðinu lýkur. Það er einlæg ósk Islendinga, að þessi viðskiftasamn- ingur verði upphaf mikilla og varanlegra viðskifta milli þessara frændþjóða. Vottur skilnings ÞAÐ VAR ÖLLUM íslendingum mikið fagnaðarefni, er tekist hafði að greiða úr farþegaflutningi milli íslands og Ameríku. Eftir að sökt hafði verið báðum farþega- skipunum, sem íslendingar höfðu í þessum ferðum, mátti segja. að allar leiðir væru þeim lokaðar. Þeir áttu ekk- ert farþegaskip, sem hægt var að setja í þessar ferðir, í stað skipanna sem sökt var. Voru því fyrirsjáanleg stór- vandræði, ef ekki hefði greiðst úr á annan hátt. En þegar verst horfði, komu þau gleðitíðindi, að her- stjórn Bandaríkjanna hefði greitt úr erfiðleikum okkar, með því að veita Islendingum far með flugvjelum hersins, sem fara milli landanna. Með þessu hefir Bandaríkjastjórn enn á ný sýnt hug sinn til okkar íslendinga. Því að það vita íslendingar mjög vel, að Bandaríkin hafa nóg verkefni fyrir þær flug- vjelar, sem herinn hefir í förum milli landanna. Það þarf því vissulega næman skilning á. þörfum íslendinga, að þeir skuli vera Iátnir sitja fyrir um flugferðir á vegum hersins, milli landanna. íslendingar þakka stjórn Bandaríkjanna af heilum hug fyrir góða láUsn á þessu máli. 'Uílar ihrijar: ÚR DAGLEGA LÍFINU ; Skemtileg: útvarps- | dagskrá. ÞAÐ ER ekki úr vegi að minn- j ast svolítið á dagskrá útvarpsins á súmardaginn fyrsta, úr því hún var eins skemtileg og raun var | á. Mátti með sanni segja, að fólk gæti hlustað á útvárpið sjer til j mikillar ánægju allan daginn og fram á nótt. Kórsöngurinn frá Laugarvatni veitti tilbreytingu milli danslaganna og ferðasögur og frásagnir voru prýðilega vald ar og yfirleitt vel fluttar. Mátti glögt heyra á dagskránni allri, að mikil vinna hafði verið lögð i undirbúning hennar og að sú ■-■inna bar einnig tilætlaðan ár- angur. Eiga þeir þakkir skilið, sem að þessu stóðu, og mun vera 'angt síðan að menn hafa lokið svo upp einum munni um ágæti dagskrárinnar. • Leikstaðir barna. J. M. SKKIFAR: „Flestir Reyk- víkingar, sem börn eiga, vita hversu erfitt er með leikstaði handa þeim hjerna í þjettbýl- inu. Ekki er hægt að halda stálp- uðum börnum altaf á lítilli lóð, göturnar.síst ákjósanlegar, enda stórhættulegar vegna bílaum- ferðarinnar. Barnaleikvellirnir eru því mjög kærkomið afdrep, end.a margir foreldrar meir en fegnir að geta sent börn sín þang að og vita þau á öruggum stað. Við búum nálægt Grettisgötu- leikvellinum og notum hann. Leikvöllurinn er vel hirtur, en þó stundum rakur og hefir borið á því, að jarðvegurinn hefir spor ast upp og myndast for undir rólunum, þó eigi meiri en svo, að nægja myndi að bera möl eða sand undir þær“. • Hættulegar hellur. NÚ ER verið að lagfæra völl- inn og setja nýjar rólur á tveim stöðúm, og er það ágætt, en veistu hvað svo er gjört? Til þess að þrifalegt sje undir rólunum, eru settar sex eða átta steinhell- ur, eins og notaðar eru í gang- stjettar, undir hverja rólu. Nú eru rólurnar það stórar, að 10 ára börn geta rólað sjer tvö í einu og gjöra það oft, og smærri börn stundum fleiri, en 4—6 ára börn verða að teygja handleggina út til þess að halda sjer. Rólurn- ar eru sterklegar og kaðlarnir líka, en engin grind, hvorki fyr- ir framan nje aftan. • Gæti valdið slysi. GÆTI NÚ ekki hugsast, að barn dytti einhverntíma úr rólu, og þarf hún ekki að vera á mik- ílli ferð, til þess að slys verði, beinbrot eða jafnvel eitthvað verra, ef höfuðið lendir á und- an. Engin merki sjást þess, að endurnýja eigi gömlu rólurnar og erfitt mun að setja grindur á þær, svo að vel fari. Hinsvegar, eru hellurnar undir einni ról- unni farnar að aflagast, tommu- háar steinbrúnir hafa myndast og dregur það ekki úr slysahætt- unni. Að lokum vil jeg taka það fram, að jeg skrifa )>etta ekki sem ádeilu á neinn, og veit jeg ekki, hverjir þessu ráða, en að- eins til þess að reyna að afstýra slysi og til þess að þora að senda barnið rnitt á leikvöllinn“. — Þannig er brjef J. M. og kem jeg hjermeð umkvörtunum henn ar til rjettra aðila. Áætlunarferðir í Þvottalaugarnar. KONA skrifar: „Viltu birta eftirfarandi, svo það komist til þeirra, er hlut eiga að máli: Fyr- ir nokkru hefir verið endurreist og stækkað hús það, sem notað er til þvotta við þvottalaugarnar hjer í nágrenni bæjarins, og ým- klegt lagfært þar innanhúss til mikilla bóta, þó margt mætti bet ur fara, og er því slept hjer að sinni. — Sjálfságt hefir hús þetta einkum verið bygt fyrir ]>á, sem ekki geta þvegið tau sitt heima, eða hafa ekki aðgang að þvotta- húsi, og hefir reynslan sýnt, hve ómissandi þetta hús er, því mik- ill fjöldi fólks fer þangað með tau til þvotta, og hygg jeg, að mörgum sinnum fleiri færu, ef ekki væri slíkum erfiðleikum bundið að komast fram og til baka. Enda þótt margir sjeu þann ig settir, að geta flutt þvottinn í einkabílum, þá er allstór hóp- ur af fólki, sem ekki á annars úrkosta en að kaupa bíl tvisvar í hvert sinn sem þvegið er, og er það mikill kostnaður, eins og öllum má vera ljóst, þar sem eftirvinnugjald kemur í flestum tilfellum á ökulaunin aðra leið- ina, — eða heim úr laugunum. • Þurfa að koma fastar ferðir. OG ÞAÐ er einmitt þessi hlið málsins, sem jeg vildi vekja at- hygli á og mælast til j)ess, að þeir, sem hafa umsjón með hús- inu og starfrækslu þess, komi því í framkvæmd, að áætlunar- bílar færu þessa leið, og þeir væru þannig útbúnir að geta flutt bæði fólk og farangur, og þar eru að sjálfsögðú hálfkassa- bílarnir heppilegastir. Ennfrem- ur, að ferðum væri hagað svo, að þær kæmu að sem mestum og bestum notum. — Hjer er mikið rætt um þrifnað utan húss og innan, og ekki verður það talinn hvað minstur þáttur í þeim efn- um, að þvo þvott heimilanna og væri það vel, að þessu máli væri gefinn gaumur og myndu margir fagna því, ef úr þessu væri bætt hið bráðasta". FRÁ FRÆNDÞJÓÐUNUM FRÁ GAUTABORG frjettist, að Þjóðverjar, sem flúið hafa frá Noregi til Svíþjóðar, haldi því fram, að búast megi við, að öll þýsk herskip, sem sjeu nú í Noregi, muni sigla til Strömstað í Svíþjóð eftir vikutíma. ★ Hinar tíðu árásir á þýsk skip á Noregsleiðinni hafa orðið til þess, að margir þýskir hermenn í Noregi hafa mist kjarkinn. Á föstudaginn langa ætluðu þýskir hermenn að gera upp- steit, er þeim var skipað að fara út í þýsk í Óslóarhöfn. Til þess að losna við norska áhorfend- ur, gáfu Þjóðverjar loftvarna- merki. Síðan var miðað byssum á dát- ana og þeim tilkynt, að ef ])eir færu ekki út í skipin, þá yrðu þeir skotnir á hafnarbakkanum. Þá ljetu þeir undan og fóru. ★ Mælt er, að 20 menrt hafi unn- ið bug á varðmönnum þeim, er gættu Berggravs biskups. Síðan fóru þeir á brott með biskupinn. Talið er, að hann sje úr allri hættu. ★ Frá London er símað: Hákon konungur hefir heimsótt fólkið frá Suðureyju í Vestur-Finn- mörku, þar sem það dvelur nú nálægt Glasgow. En eins og kunn úgt ér björguðu breskir tundur- spillar niilli 500 og 00 manns, konum og börnum, frá Suður- eyju fyrir nokkfum vikum og fluttu það til Skotlands, þar sem það dvelur nú. Anthony Eden, utanríkismálaráðherra Bret- íands, hefir áður heimsótt fólkið. í fylgd með konunginum voru Bjart Ording majór, Sven Niel- sen ráðherra og fjöldi norskra og skoskra embættismanna. En Ro- bertson, fyrv. ráðherra frá Finn- mörku, og breski höfuðsmaður- inn Fergusson fóru með honum um bústaði Norðmannanna. Kon- ungurinn ræddi við fólkið og kynti sjer vel hagi þess. Bauð konungurinn fólkið frá Suður- eyju velkomið með ræðu og sagði m. a.: „Einstaka sinnum er það gott, að við getum ekki sjeð hið ókomna. Jeg hefi oft hugsað um það, hvað við hefð- um gert 9. apríl 1940, ef Við hefð um vitað, að það væri fimm ár, hvort við hefðum megnað að taka þá afstöðu þann dag, sem við gerðum. Föðurlandsástin, sem þjer hafið sýnt, hefir styrkt okkur í vissunni um, að við gerð- um hið rjetta 9. apríl. Við hugsum öll hið sama: að fá að sjá Noreg frjálsan aftur. Jeg vona, að þess verði ekki langt að bíða, að við náum því tak- marki. Jeg ætla ekki að gerast spámaður. Jeg segi ekki, að það verði á morgun og ekki hinn dag inn, og ekki heldur eftir hálfan mánuð, en svo mikið get jeg sagt, að lengsti tími útlegðarinnar er á enda. Þegar þjóðernistilfinn- ingin og samheldnin hefir hald- ist allan þennan langa tíma, sem ' er liðinn, er jeg ekki í minsta 1 vafa um — eftir það sem jeg hefi heyrt og sjeð í dag — að | við höldum heim með góða sam- ' visku í vissu um það, að hver J einstaklingur hafi gert skyldu sína til að ná því marki, sem við settum okkur 9. apríl: Frjáls og fullvalda Noregur". Nýlega hafa verið brend 500 lík þýskra flóttamanna og her- manna í bálstofu Kaupmanna- hafnar. f Höfn deyja 50' Þjóð- verjar á dag að meðaltali, flótta- menn og hermenn. Margir her- menn andast á skurðarborðum. Meðal flóttamanna er heilsu- farið hræðilegt. Fyrir nokkru síðan fór flokk- ur þýskra hermanna frá Ring- köbing á Jótlandi til vesturvíg- stöðvanna. Einn þeirra kom aft- ur eftir nokkra daga. Fjelagar hans allir vorú teknir til fanga' sama dag og þeir komu til vig- stöðvanna. Þessi eini náði í lest og flúði alla leið til baka til Ringköbing. Talið er líklegt, að Hipo-lög- reglan verði leyst upp. Illræðis- verk Hipo-manna orðin svo gegndarlaus í Danmörku, að jafn vel Þjóðverjar telja sjer henta að láta liðið hverfa. Eitthvað af Hipo-mönnum á að fara í svo- nefnda „öryggisþjónustu“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.