Morgunblaðið - 07.06.1945, Page 2
MOEGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 7. júní 194Ú,
e*
Sjómannodagurinn ut um lund
Hákon konungur
Akureyri.
Frá frjettaritara vorum
á Akureyri.
Sjómannadagsins á Akureyri
var minst þannig að kvöldið
áður, á laugardag fór fram
'kappróður á Akureyrarhöfn, er
hófst kl. 9. Svæðið var 1000 m.
Kept var um bikar, gefinn af
litgerðarfjelagi Akureyrar. —
Handhafi frá í fyrra var A-sveit
vjelstjórafjelags Akureyrar. —
Átta sveitir keptu og urðu úr-
sslit þau, að fyrst varð sveiti
vjelsmiðjunnar Oddi á 5 mín.
1.8 sek., 2.—3, varð sveit vjel-
Ktjórafjelagsins og sveit skipa-
Kfioiða á 5 mín., 5 sek., 4. varð
Kveit sjómannafjel. á 5 mín. 5.6
sek. og 2. sveit sama fjelags
varð sú 5. með tímann 5 mín
€.4 sek., 6. varð B-sveit vjel-
‘ stjórafjel. ó 5 mín. 14 4 sek. 7.
varð sveit ms Narfa á 5 mín.
22.6 sek. 8. varð sveit G.s.
Hjarki á 5 mín. og 30.3 sek. —
"Veðbanki var starfræktur í sam
fcandi við kappróðurinn. Aðeins
einn maður veðjaði á Odda til
■úrslitavinnings á 5 kr. miða og
vann 900 kr.
Á sunnudag hófust hálíða-
Jiöldin með því, að fánar voru
•dregnir að hún um allan bæinn
<og á skipum. Kl. 10 hófst hóp-
ganga sjómanna, er endaði við
Firkjuna. Þar prjedikaði sjera
ZFriðrik J. Rafnar, vígslubiskup.
3C1. 1.30 hófst björgunarsýning.
"Var línu skotið út í skip og 2
Kienn dregnir í land í björgun-
arstóli frá skipinu. Klf 12.30 var
ísíakkasund í sundiaug bæjar-
ins. Var synt 50 m. Fyrstur að
marki var Jónas Þorsleinsson
á 58.2 sek. Þá var sýnt 25 m.
"björgunarsund. Sigurv. varð
IBaldur Ingólfsson 30.7 sek.
Þá var háð knattspyrnukepni
milli sjómannafjelagsins og vjel
stjórafjelagsins. Sjómenn unnu
með 5-0. Reiptog fór fram milli
jpriggja fjelaga og bar sjómanna
ijelagið þar sigur úr býtum.
Vjelsmíðjan Atli hafði gefið
íorkunnarfagra fánastöng, sem
verðlaun til þess manns, sem
iæfki þátt í flestum íþróttakepn
virn dagsins og best afrek sýndi.
JStöngina hlaut Jónas Þorsteins
«3on. Fjéjík hann 46 stig. Lúðra-
fiveit Akurejrrar Ijek ýms lög
táf og til um daginn og um kvöld
tð voru dansleikir sjómanna í
Kamkomuhúsi bæjarins og á Hó
•tei Norðuriand. Sjómannsdags-
Hlaðið var selt á götum bæjar-
Kns um daginn.
Jíiiglufjörður.
ZFrá frjettaritara vorum,
•Jiglufirði, mánudag.
Sjómannadagsins var minst
Fijer með ýmsum samkomurn,
«m messa var .flutt í kirkjunni.
3KL 10 um morguninn var geng
3ð fylktu liði að kirkju og þar
Klýdd messa sr. Óskars Þor-
Áelssonar. Kl. 13.30 hófst sam-
Jcoma á hafnarbryggjunni.. —
UVTagnús Vigfússon, fyrrum skip
•stjóri setti skemtunina. Þessu
Dnæst fór fram kappróður. —
IKeptu sex svcitir. Skipveriar
.3 Krisljönu sigrUðu. Er þetta
1 þriðja sinn sem þeir sigra
«og hlutu þeir nú bikarinn til'
eignar. Bikarinn gaf Gústaf
Þórðarson. Þá fór fram reiptog
milli skipshafna og milli Síld-
-arverksm. ríkisins pg Rauðku.
Ahöfn Drangey sigraði í reip-
drætti milli skipshafna, en
Rauðka vann S. R. Kl. 16 fór
fram knattspyrnukappleikur
milli Rauðku og S. R. Sigraði
S. R. með 3 gegn 0. Þá var kept
í pokahlaupi og sigraði piltur
að nafni Einar Árnason. Leið-
inda veður var hjer um dag-
inn, en "þrátt fyrir það. skemtu
menn sjer hið besta. — Um
kvöldið var dans stiginn í sam-
komuhúsum bæjarins.
Isafjörður.
Frá frjettaritara vorum,
ísafirði, þriðjudag.
Sjómannadagurinn hjer hófst
með skrúðgöngu sjómanna, en
sjómannakór annaðist kirkju-
söng. Kl. 1 e. h. hófst útiskemt-
un við bátahöfnina. Kristján H.
Jónsson, hafnsögumaður setti
samkomuna, en að því loknu
hófust skemtiatriði. Fyrst fór
fram reiptog milli skipshafna
af Morgunstjörnunni og Hug-
inn 3. Skipshöfnin af Huganum
sigraði og \%nn þar með til
eignar reiptogsbikarinn, en
hann þarf að vinna þrisvar. Þá
fór fram kappsund, voru kepp-
endur 9 og vegalengd um það
bil 50 m. Fyrstur varð Kristján"'
S. Kristjánsson á 55.2 sek. Þá
fór fram kappróður, þátttak-
endur voru 8 skipshafnir, en
vegalengd sú, er róið var um
500 m. Fyrst varð skipshöfn
mb Sæbjarnar á 3 mín. 15 2
sek. og skipshöfn Valbjarnar á
3 mín. 16 sek. Að síðustu fór
fram knattspyrnukepni. milli
sjómanna og starfsmanna íshús
fjelags ísfirðinga og sigruðu
hinir síðarnefndu. Kl. 8 um
kvöldið hófst skemtun í Alþýðu
húsinu. Kristján Jónsson lýsti
dagskrá og las upp skeyti til
sjómannadagsins frá fjarstödd-
um Isfirðingum, sjómönnum og
börnum, er nú eru á sundnám-
skeiði á Reykjanesi. Arngrímur
Fr. Bjarnason flutti ræðu, sjó-
mannakór söng, undir stjórn
Jóns Tómassonar. Að þessu
loknu fór fram afhending verð
launa, en því næst var kvik-
mvndasýning og dans fram eflir
nótlu. —■* Brúltótekjur dagsins
urðu um 14 þús. kr. Ólafur
Samúelsson og kona hans gáfu
Jóni Björnssyni fagran silfur-
skjöld, til minningar um björg
un sonar. þeirra hjóna síðastl.
vetur.
Stykkishólmur.
Sjómannadagurinn í Stykk-
ishólmi fór fram sem hjer seg-
ir: Kl. IOV2 árd. söfnuðust sjó-
menn saman við höfnina, það-
an gengu þeir skrúðgöngu til
kirkju og hlýddu á messu hjá
sr. Sigurði Ó. Lárussyni. Kl. 3
um daginn fór fram kappbeit-
ing milli 5 manna og varð fyrst
ur Ingvar Ragnarsson. í reip-
drætti sem fram fór á eftir milli
hásela og formanna og vjel-
stjóra'hinsvegar, báru háselar
sigur af hólmi.
Lúðrasveit Slykkishólms Ijek
úti meðan atriðin fóru fram.
Kl. 9 um kvöldið hófst skemt
un í samkomuhúsinu. Ágúst
Pálsson skipstjóri setti samkom
una og' stjórnaði henni. — Þá
flutti Sigurður Ágústsson kpm.
og útgerðarmaður ræðu. Sig-
urður Skúlason verslm. flulli
frásögu, Karlakór Stykkishólms
söng, og Lúðrasveitin.ljek nokk'
ur lög.
Þá var sýndur gamanþáttur,
samlal milli tveggja sjómanna,
sem þeir ljeku Víkingur Jó-
hannson og Sigurður Sörens-
son, að síðustu var sýnd stutt
kvikmynd. Svo var dansað fram
eftir nóttu.
Sókum veðurs varð kappróð
urinn að falla niður að þessu
sinni. — Mikið fjölmenni sótti
skemtunina.
Hnífsdalur.
í IIXÍFSDAL liófust liátíða
íiöld á sjómannadaginn með
skrúðgöngu úr Ileimabæjar-
vör að barnaskólanum, en þar
liófst guðsþ.jónusta kl. 11.
Útiskemtun hófst kl. 13,30.
Þar för fram reiptog. hand-:
knattleikur, hlaxtp pg knatt-,
spyrna. KHas Qmgiiiiundarson,
setti skenrtunina nreð ræðu. •—•
Jnniskenvtun hófst kl. 21 Þar
fluttu r,æðu: n-ngitnar Finn-
björnsson eg Fimir Steindórs-
son. Kór atndir st.jórn Ki-ist-
jáns .Jónssonar söng, T’áll Páls1
son og .KrÍHtján Jónsson lásn
tipp, nokkrar stiiikur sungu
og Ijeku undir á gitar. Að lok-
um var skraittsýning og dans.
ÍSlysavarnadeildin í Ilnífsdal
hafði alla forgöngu um hátíða
höld dagsins.
Garðurinn.
Sjómannadagshátíðahöldin í
Garði hófust kl. 1.30 e. h. með
skrúðgöngu sjómanna og ann-
ara undir íslenskum fánum, frá
barnaskólanum til kirkju, en
þar prjedikaði sóknarprestur-
inn, en kirkjukór og karlakór-
inn Víkingur sungu. — Um
kvöldið kl. 9 hófst samkoma í
samkomuhúsi byggðalagsins og
fóru þar fram ræðuhöld, söng-
ur, upplestur og dans. — Hátíða
höldin fóru í alla staðði hið
besta fram.
Patreksfjörður.
Patreksfirði, . mánudag i
• Frá frjettaritara vorum
Sjómannadagurinn var hald-
inn hátíðlegur hjer með fjöl-
breyttri dagskrá. Veður var hið
besta og mikið fjölmenni sam-
ankomið úr nærliggjandi sveit-
um.
Dagskráin hófst með því að
kl. 10 f.h. safnaðist fólk saman
og gekk í skrúðgöngu til kirkju,
þar sem sóknarpresturinn, sjera
Einar Sturlaugsson, prjedikaði.
Eftir hádegi safnaðist fólk sam
an á íþróttavellinum og voru;
þar fluttar ræður, söngflokkur
söng nokkur lög og keppt í
knattspyrnu milli landmanna
og sjómanna. Var keppt um silf
urbikar. Leikar fóru þannig, að
landmönnum tókst £ð skora eitt
mark eftir framlengdan leik.
Hafa þeir þá als unnið bikarinn
þrisvar, en sjómenn einu sinni.
Síðar um daginn fór svo fram
kappróður og- reiptog. í kapp-
róðrinum voru tvær fyrstu
bátshafnirnar jafnar með tíma
og munu síðar keppa til úlslita.
Reiptogið var milli færeyskra
og íslenskra sjómanna og unnu
Islendingarnir. Um kvöldið var
svo samkoma í samkomuhús-
inu. Voru þar margar ræður
fluttar, sungið og að lokum stig
inn dans.
Framh. af bls. 1.
komst að orði. Að ýmsu leyti
hefði það verið auðveldara að
sitja kyrr, til þess að taka þátt
í harmi og' þrengingum þjóðar-
inftar.
En þá hefði Noregur hætt að
vera sjálfstætt ríki. Og endur-
reisn hins innra frelsis og ylra
sjálfstæðis hefði orðið mun erf
iðara.
En sú ákvörðun konungs og
ríkisstjórnar, að yfirgefa Noreg
var í fylsta samræmi við ein-
róma samþykki Stórþingsins á
síðasta fundi þess í Elverum
að kvöldi þess 9. apríl, þar sem
svo er fyrir mælt, að baráttan
gegn ofbeldismönnunum skyldi
halda áfram, enda þótt úti yrði
um vopnað viðnám í landinu
sjálfu.
—00—
Er Hákon konungur stje á
iand í Oslo í nóvember 1905,
var honum tekið sem merkis-
bera hins nýfengna sjálfstæðis
þjóðarinnar. Hann náði brátt
miklum vinsældum í landinu.
Vald konungs í Noregi er
samkvæmt stjórnarskránni
ekki mikið. Honum ber að stað
festa þau lög, sem þing þjóð-
arinnar samþykkir. Hann hef-
ir heldur aldrei látið sjer til
hugar koma, að taka sjer meira
vald, en honum ber.
En öll þaú ár, sem.hann hef-
ir verið konungur Noregs, eða
náJega í 40 ár, hefir hann aldrei
staðfest með undirskrift sinni
nein þau lagafyrirmæli, að ekki
hafi hann nákvæmlega gert sjer
grein fyrir efni þeirra Og gildi.
Svo skyldurækinn er hann gagn
vart þjóð sinni. Hann er kjör-
inn konungur lýðræðisþjóðar,
verndari og málsvari laga og
rjetlar.
Þannig kom hann fram á
hætlunnar stund og á dimm-
ustu dögum þjóðar sinnar. —
Þegar til Englands kom, tók
hann mikinn þátt í störfum
hinnar útl. stjórnar. Öll þessi
útlegðar ár hafa Norðmenn
meira og meira litið til hans
sem þess þjóðhöfðingja, er frem
ur öllum sameinar þjóð sína í
djarflegri sókn til þjóðþrifa og
auðmjúkri lotning fyrir sögu og
helgum dómum þjóðarinnar.
Þess vegna verður dagurinn
í dag Norðmönnum ógleyman-
leg fagnaðarhátíð, er þjóðin fær
konung sinn heim úr útlegðinni.
★
Hátíðahöldunum í tilefni
heimkomu Hákonar konungs í
dag verður þannig fyrir komið:
Öllum kirkjuklukkum verður
hringt milli kl. 8 og 9 um morg
uninn. Hákon konungur kemur
til borgarinnar ásamt Mörtu
krónprinsessu og þrem börnum
hennar um. kl. 11 f. h. með
breska herskipinu „Norfolk“.
Konungurinn stígur á land á
,,Heiðursbryggjunni“ svonefndu
Þar bjóða hann velkominn Ól-
afur krónprins, fulltrúar sveit-
ar- og bæjarfjelaga, embættis-
menn, sveitir úr norska heima-
hernum og breskar og amerísk-
ar hersveitir. Síðan gengur kon
ungur til hins nýja ráðhúss, þar
sem forseti bæjarstjórnar og
aðrir forráðamenn bæjarins
bjóða hann velkominn.
Þá mun konungur aka í vagni
um fagurlega skreyttar götur að
konungshöllinni. Síðar um dag'-
inn verður gengið í tvennum
skrúðgöngum til konungshallar
innar. Búist er við gífurlegrl
þátttöku í skrúðgöngunum, því
að öll fjelög í Oslo, hverju nafnx
.sem þau nefnast, hafa tilkynnt
þátttöku sína.
Um kvöldið verða hljómleik-
ar í öllum skemmtigörðum borg
arinnar. Verða þeir skrautlýst
ir og flugeldum skotið.
Alt er tilbúið til þess að veita
hinum ástsæla konungi Noregs
sem innilegastar móttökur.
I þeim bæjum, þar sem engin
útvarpstæki eru til, svo sem í
Drammen; Stavanger og Rjukan
og Litla Hamri, verða útvarps-
vagnar á torgum með gjallar-
hornum svo fólk geti heyrt þar
hvað fram fer L Oslo í dag.
Boðhlaupið um-
hverfis Reykjavík
er í dag
BÖÐIILAUP Ánnanns xim-
hverfis Reýkjavíkur fer fram
í dag. Hefst það á íþróttavell-
inum kl. 8,30 e. h. — Þr.jái'
sveitir taka þátt í keppnimii,
frá ÍR, KR og Ármanni.
Hlaupið er alls 15 spreitir,
Einn 1675 m., einn 1500 m.,
tveir SOO m., einn 400 m., tveir:
200 m. og 8 150 m. -— Húup-
ið hefst, eins og áður er s.igt
á íþróttavellinum. Þaðan ei*
hlaupið eft.ir Ilringliraut, Vest
urgötu, Tryggvagötu, Shúla-.
götu, . síðan eftir Hringbrant-
inni og endað á íþróttaveilin-
um.
Keppt er um Alþýðublaðs-
þikarinn. Var í fyrst.a im
keppt um hann í fyrra og
vann lR hann þá.
Það er eindregin tilmæli
til hjólreiðamanna, bifreiða-
stjóra og annara vegfaronda
að hliðra til fyrir hlauparnna,
ef þeir verða á végi þeirra.
Halvælasendingar
lil Noregs
Frá norska blaða-
fulltrúanum.
Á LAUGARDAGINN var
komu fjórir danskir kútterar
með 74.000 pakka, sem í voru
allskonar matvæli. Norður-
Jótar sendu Oslobúum þetta,
Matvælasöfnunin hófst, þegar
er frjettin um, að Noregur værx
aftur frjáls, barst til Danmerk-
ur. —
Bæjaryfirvöldin í Oslo hafa
þakkað gefendunum, og norsk
blöð leggja það til, að Norð-
menn haldi hátíðlegan þjóðhá-
tíðardag Dana, til merkis um
vináttu þjóðanna.
Einhvern næstu daga mun
norska Rauða Krossinum ber-
ast 360.000 matvælapakkar frá
breska Rauða Krossinum. Mat-
vælin nema um 1.600 smálest-
um. Rauði Krossinn mun út-
hluta matvælunum í samráði
við skömtunaryfirvöldin.