Morgunblaðið - 07.06.1945, Síða 5

Morgunblaðið - 07.06.1945, Síða 5
Fimtudag'ur 7. júní 1945. MORGUNBLAÐIÐ MINNINGARORÐ: JÓN STEFÁNSSON kaupmaður og ritstjóri á Akureyri JON STEFANSSON andað- ist á Akureyri 1. þ. m. og verð- ur jarðsunginn þar í dag. Jón Stefánsson var fæddur að Skútustöðum 17. janúar 1881, sonur hjónanna síra Stefáns Jónssonar frá Mæli- felli, Jónssonar prests þar Sveinssonar læknis og náttúru- fræðings Pálssonar, og Önnu Kristjánsdóttur frá Laxamýri, og hjá þeim ólst hann upp, en misti föður sinn með sviplegum hætti meðan hann var ungl- ingur. Þess taldi hann sig seint eða aldrei hafa beðið bætur, að því er varðaði lífsferil hans all- an, er "skapaðist eins og hann varð af ytri og knýjandi ástæð- um, því að alla æfina var það honum ríkast í hug að sjá skyldmennum og vandámönn- um sínum farborða. Trygð hans var fágæt við vini hans yfir- leitt, en á síðari árum urðu ýms ar ástæður til þess að gera hann ómannblendnari en efni stóðu til. Jón gekk ekki „skólaveginn“ og háði það honum í sinni alla daga, því að hann þekti vel upphaf sitt og eðli, þótt oftlega í lífi hans virtist eigi ástæða til að sakna þess, er hann, mátti segja, „baðaði í rósum“ fram- ar mörgum öðrum. En „brodd- urinn“ sat í honum. Eftir að J. St. komst veru- lega upp urðu verslunarstörf honum lengst handgengin. Rjeð ist hann ungur til Jakobs Hav- steens kaupmanns og etazráðs á Akureyri og gerðist verslun- arstjóri hjá honum um nokk- urra ára skeið (1901-1906). Og seinna fjekst hann einnig við þessa starfsgrein og hafði af- komu sína af henni, lengst af með umboðs- og heildverslun. Hjelt hann henni áfram einnig eftir að hann tók við forstöðu Áfengisverslunar ríkisins á Akureyri (1922). En annar veigamikill þáttur í æfistarfi J. St. var ritstjórn og blaðaútgáfa, sem hann hafði þó að síðustu alveg lagt á hill- una, þótt svo virtist sem hann munaði ávalt í það aftur. Var hann á tímabili með kunnustu blaðamönnum Jandsins. Gaf fyrst út blaðið „Gjallarhorn“ (1902—1905), og var ávalt síð- an mest við það kendur; síðan „Norðra“ (1906—1908), þá „Gjallarhorn" aftur (1910— 1912) og loks varð hann rit- stjóri „Norðurlands“ (1913— 1920). Hann var ágætlega pennáfær, skrifaði röggsamar greinar á prýðilegu máli, enda var hann skeleggur baráttu- maður meðan hann gaf sig að stjórnmálum, eri það gerði hann allan blaðamannstíma sinn og fylgdi áður jafnan heima- stjórnarmönnum að málum. Síð ar sá hann eðlilega mikla galla á „flokkapólitíkinni“ í landinu, eins og hún var rekin. Ekki fjekk hann sæti á Alþingi, sen honum hefði þó verið auðvelt á þeim tíma, sem hann tók mestan þátt í máltinum, ef hann hefði Iagt sig fram um það. En hans hlutskifti varð þá aðallega að „styðja aðra“ til þingsetu. Allsnemma tók Jón að ferðast til útlanda, bæði í verslunar- erindum sínum og til þess að kynnast lífi annara þjóða. Leit- aði hann mest til Norðurlanda, eins og reyndar var þá tíska, og ræðismannsstörfum hjer gegndi hann fyrir Norðmenn og Svía um hríð og var enda settur breskur vísikonsúll 1—2 ár. — Mesta trygð allra landa batt hann við sambandslandið Dan- mörk og dvaldi þar langvist- um og undi sjer ágætlega; eign- aðist hann þar ýmsa góðkunn- ingja, suma mikilsmegandi, sem báru óskoráð traust til hans í vjðskiftamálum, eins og kunnugir kannast við, og þaðan bar hann einnig mest úr býtum, er hann nokkuð rosk- inn fjekk sjer óanskt kvonfang ágætt, Gerdu dóttur Olsens góz eiganda á Sjálandi. Flutti hann hana hingað til lands (1932) og hafa þau mest búið á Ak- ureyri og eignast 3 mannvæn- leg börn. Er óhætt að fullyrða, að frú Gerða er með allrábestu kvenkostum frá því landi, sem íslendingum hafa hlotnast. Jón Stefánsson var í raun rjettri fluggáfaður maður og aflaði sjer af sjálfsdáðum gagn- gerðrar mentunar á ýmsum sviðum, og það á ungum aldri, er hann varð að vinna fyrir heilsutæpri móður og heimili hennar. Hann varð svo vel að sjer í verslunarefnum sem skólagenginn væri, og viss og áreiðanlegur í störfum. Qg í þjóðmálum var hann útsmog- inn, enda lagði hann rækt við þau fyrrum. Hann var hagsýnn með afbrigðum, og þótt á bát- inn gæfi stundum, vann hann það jafnharðan upp á eftir. Fjell honum þó einkarvel að lifa ríkmannlega og mega nú margir muna glaðar stundir með Joni fyr á æfinni, enda var hann hverjum manni skemti- legri í vinahóp, kunni mikið til frásagnar af mönnum og mál- um og átti auk annars ógleym- anlega kímnigáfu, en var laus við að smjaðra fyrir nokkrum manni. — Jón Stefánsson var maður | vel á sig kominn, þótt eigi væri har : ikill áð vallarsýn, þjett- ur , 8 líta, snyrtimenni og . fríður sýnum og bar höfðingja- svip. Fram yfir miðjan aldur t var hann ávalt hinn hraustasti, en fjekk þá sjúkdóm, blóðeitr- un skæða, sem hann beið aldrei bætur af. Geriðst hann nú kranksamari, þótt stundum bæri lítið á, og tók að lokum hjartasjúkdóm, en heilablóðfall varð honum að aldurtila. Á þann hátt syrti yfir hans síð- ustu dögum, þótt heimili ætti hann hið besta, sem honum kom nú næsta vel. Akureyri hefir lengi verið myndarbær eftir vorum hátt- um og íbúar hans mætir menn og skemtilegir. Með Jóni Stef- ánssyni, sem var gróinn Akur- eyringur, er hniginn í val einn af þeim, sem telja má á sínu sviði með frumherjum þessarar aldar í framfarabaráttu þjóðar- innar, maður, sem hófst af sjálfum sjer og sameinaði að ýmsu leyti hinn gamla og hinn nýja tíma, „aldamótamaður“, sem á flest gat verið jafnvíg- ur, er reyndi á greind og at- orku, þótt enginn sæi hann fara óðslega. Það leyndi sjer ekki, að hann var af góðu bergi brot- inn, enda var honum sjálfum það ljóst.-Er vinum hans hin mesta eftirsjá að honum, en allir eiga sitt skapadægur, og biðja þeir nú ástvinum hans blessunar um ókomnar æfi stundir. G. Sv. ★ ÞAÐ KANN að þykja óþarft að bæta fáum orðum við ofan- ritaða minningargrein eftir Gísla Sveinsson þingforseta, er hann hjer ritar um vin sinn og frænda Jón Stefánsson. En þó get jeg ekki látið hjá líða að minnast þess, sem mjer þótti óvenjulegast og merkileg ast í fari Jóns Stefánssonar. Að hann skyldi kornungur hafa þann þroska framyfir jafn aldra sína að geta, alveg án undangenginnar tilsagnar staðið í fremstu röð verslunar- manna á Akureyri, þegar hann 15 ára gamall rjeðst til versl- unar Eggerts Laxdal á Akur- 'eyri. Rúmlegá tvítugur er hann orðinn svo veraldarvanur við verslunarstörf hjá J. V. Hav- steen, að hann tekst á hendur ritstjórn að flokksblaði og stendur í blaðadeilum við þá menn norðanlands, sem fremst- ir stóðu að mentun og embætt- isáhrifum. Og það með þeim hætti, að eigi varð þess vart, að hann væri ekki jaínoki and- stæðinga sinna, er voru alt að því helmingi eldri en hann og höfðu notið fylstu skólament- unar, sem þá var völ á. Til þess að standa í þeirri stöðu, sem Jón valdi sjer á fyrstu árum aldarinnar, þurfti alveg sjerstaka einbeitni og traust á sjálfum sjer, trú á málstað sinn, samfara óvenju- legum gáfum. Enda hefir jafn- aldri hans einn sagt mjer, er var honum mjög kunnugur, að honum hafi oft fundist, að Jón heitinn hefði haft of lítið fyrir mörgu því. sem hann tók sjer fy.rir hendur. En fljótastur Framhald á 8. slðu Reglusoitmr uiuður getur fengið atvinnu hú þegar við að leysa af í ’sumar- leyfum á bensín og bifreiðaafgreiðslu ökkai’. Frám- tíðaratvinna getur komið til greina. if-reidiótöo Steindórá ❖ ♦ ilokkrir bifreiðastió geta fengið atvinnn við akstur á stórum bílum um helgar. ifrei&aótöci ddöteindóró Reykjavík-Keflavík-Sandgerði Frá 1. júní s. 1. er burtfarartími frá Reykjavík kl. 1 e. h. og kl; 6 síðd. I Bifreiðastöð Steindórs f Getur nokkur véitt upplýsingar um hvort til sje tæki hjer á landi, eða er nokkur, sem getur veitt upplýsing- ar um tæki, sem hægt er að sjá í gegnum yfir allstórt lahdsvæði a. m. k. milli, Reykjavíkur og Mýrdals og sem hægt er að tala við mann í gegnum, með þessu millibili, án þess að harni hafi móttökutæki, og sem sendir frá sjer geisla, sem skapa þrýsting (notað við folk). Þeir, sem,kynnuað geta veitt upplýsingar þess- ar, eru vinsamlega beðnir að snúa sjer til mín. Baldur Guðmundsson, Stýrimannastíg 10. * Skipstjóra vantor Yanan fiskimann með skötulóðárveiðarfæri á Vest- fjörðum vanta-r strax á 26 smál. vjelbát. Ennfremur einn vjelamann á,sama bát. Fast mánaðarkaup ef ósk- að er. ■— Tilboð sendist blaðinu merkt „Vestfirðir". Ný 200 ha. bótavjel með öllu tilheyrandi til sölu og_ afgreiðslu nú þegar hjer í Reykjavík. — Upplýsingar gefa O. H. Helgason & Co. Vjeladeild. — Borgartúni 4. — Sími 2059. <®^®><Sx^<$*S><£<$>^S><SxSv3x®^><S>®^<®<S»<S><&<^<$<S><$><íx$<S><®^x$>3x&<®<^S*$KSx^$x$^<$^><j* Kjötverslun og pylsugerð | til sölu. Nánari upplýsingar gefur Málflutningsskrif- % stofa Einars B. Guðmundssonar og Guðlangs Þorláks- sonar, Austurstræti 7. Símar 2002 og 3202. ■5 ■ • r ■ ? > ■ : « t >. < f ?V

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.