Morgunblaðið - 14.02.1946, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 14. febr. 1946
Nægjanleg bíladekk
framleidd á næstunni
Glæsilegur afmælisfundur Varðar
fulltrúi Dunlop alhugar markaðshoriur
á íslandi
BRÁÐLEGA verður nóg á markaðnum af bíladekkjum, sem
verst var fyrir almenning að fá styrjaldarárin. Áður en langt
iíður komast gúmmíekrurnar í rækt og verður þá hægt að
fá allar tegundir gúmmívara á ný. Hingað er nýkominn til
landsins, hr. Arthur E. Durling, fulltrúi fyrir eitt af stærstu
gúmmífyrirtækjum heimsins, Dunlop Co. í Englandi. Erindi
.. hans hingað er að kynna sjer markaðshorfur fyrir fram-
leiðslu fjelags síns og hvernjg best sje að haga innflutningi
hingað með þarfir íslendinga fyrir augum.
Gerfigummi
og náttúrugummi.
Blaðamaður frá Moz-gunblað-
inu hitti hr. Durling, sem
.snöggvast í skrifstofu Friðriks
Bertelsens í gærdag. Durling
sagði að náttúrugummi væri nú
að koma á markaðinn á‘ ný,
það myndi verða notað meir
en gerfigummi, þrátt fyrir að
gerfigummi hefði gefist vel
styrjaldarái'in. Úr náttúru-
gúmmíinu fengist betri vörur.
Dunlop firmað framleiðir
margskonar vöru úr gummi,
auk bílabarða af öllum stærð-
um framleiðir Dunlop marks-
konar klæðnað og skótau úr
gummi, knetti allskonarj
gummivörúr á lækningastofur
og spítala, dýnur, regnfrakka,
gumrtiistígvjel og margt margt
fleira. Golfleikendur, sem und-
anfarin ár hafa verið í vandr-
æðum með að fá knetti geta
nú búist við að fá eins mikið
og þeir vilja af þeim.
Best klædda fólk í heimi.
Hr. Durling var major í
breska hernum. Hann hefir
.víða farið 'um heiminn, en
aldrei komið til íslands áður.
Hann segist hafa orðið forviða
að sjá hve Reykjavík er ný-
tísku borg og hvergi í heim-
inum segist hann hafa sjeð fólk
betur klætt en hjer á landi,
bæði konur og karla.
.Gg í fyrsta sinn á æfinni hefi
jeg borðað sannkallaðan fisk.
Fiskur fæst hvergi betri en hjer
■hjá ykkur. .
Hjer hefi jeg notið gestrisni
í ríkum mæli og allir hafa tek-
4ð mjer alúðlega.
Mjer finst að það sje margt
líkt með bresku og íslensku
þjóðinni. Sömu hugsjónirnar
eru ofarlega hjá báðum þjóð-
um.
Einn sið, sem íslendingar
hafa þekti jeg ekki áður en
jeg kom hingað, segir hr.
Durling, en það er hinn fallegi
aiður að þakka fyrir matinn
að loknum snæðingi. Og hita-
veitan •er dásamleg, þar hefir
náttúran verið örlát við ykkur
Islendinga.
Þegar jeg nú kveð ísland á
jeg ekki aðra heitari ósk en
þá, að þjóðin fái notið sem
best hæfileika sinna og mögu-
leí.ka og haldi áfram að verða
stærri og meiri. ísland á eftir
að verða og er raunar orðinn
þýðingarmikill áfangi á flug-
leiðinni milli Ameríku og
Evrópu.
Arthur E. Durling.
Nýr bálur iil
Veslmannaeyja
Frá frjettaritara vorum.
SÍÐASTLIÐINN laugardag
kom hingað til Eyja bátur, sem
keyptur hafði verið hingað frá
Svíþjóð. Eigendur bátsins eru
þeir Gunnar Marel Jónsson,
Páll Oddgeirsson, útgerðarmað
ur og Guðni Jóhannsson skip-
stjóri.
Var frjettamönnum blaða og
útvarps boðið í gær, ásamt
fleiri gestum, að skoða skipið.
Ei- það hið glæsilegasta. Skipið
er keypt í Gautaborg fyrir
340.000 ísl. krónur og er 84
smálestir að stærð með 200
hestafla June Munktell-vjel, og
er ganghraði yfir 9 mílur. —
Skipið er raflýst. Mannabústað
ir eru mjög rúmgóðir og vel
úr garði gerðir. Er upphitun
með miðstöðvarkyndingu, og
yfirleitt má segja, að útbúnað-
ur skipsins sje mjög fullkominn
enda er skipið svo að segja nýtt,
aðeins 5 ára. Skipið hlaut nafn
ið ,,Heimaklettur“. — Hafa eig
endur í hyggju að nota það til
fiskflutninga í vetur og á síld
að sumri.
Ickes veitt lausn
Washington í gærkvöldi:
TRUMAN Bandaríkjafor-
seti veitti Harold Ickes, inn-
anríkisráðherra Bandaríkj-
anna, lausn frá embætti í
dag^. — Ickes var einn áf ráð-
herrunum í fyrsta ráðuneyti
Roosevelts forseta, og hefir
nú setið í ráðherrastóli í 13
ár samfleytt. — Ástæðan fyr
ir lausnarbeiðni Ickes var
ágreiningur milli hans og
forsetans, meðal £mnars um
það, hvernig hagnýta ætti
ýmsar olíulindir. — Reuter-
Áhugi og samhugur
einkendu fundinn
1(9 manns ganga í fjelagið
MIKIÐ fjölmenni var í Sýningarskálanum í gærkvöldi
á afmælisfundi landsmálafjelagsins Varðar.
Fundurinn var haldinn í tilefni þess að 20 ár eru liðin
frá stofnun fjelagsins.
Formaður Varðar, Bjarni Benediktsson, borgarstjóri,
setti fundinn og las upp í fundarbyrjun inntökubeiðnir frá
169 manns.
Áður en gengið væri til dag1
skár minntist formaður þeirra
sjómanna, sem nú nýverið
hefðu látið lífið í baráttunni á
hafinu og fært hina dýrustu
fórn í þágu þjóðarinnar. Heiðr
uðu fundarmenn minningu
hinna látnu.
Ljek nú Lúðrasveit Reykja-
víkur nokkur lög og þökkuðu
fundarmenn ágætan leik með
dynjandi lófataki.
Þá hófust ávörp formanna
Varðar.
Fyrstur tók til máls fyrsti
formaður fjelagsins, Magnús
Jónsson prófessor.
Minntist hann upphafs
fjelagsins og'þeirra aðstæðna í
stjórnmálabaráttunnar áður en
stai'fsemi Varðar hófst. ,,Jeg
held að stofnun Varðar, í húsi
K. F. U. M. þann 13. febrúar
1926, sje með því merkasta í
starfi flokks okkar“, sagði ræðu
maður. — Vörður varð sameig-
inlegur vettvangur Sjálfstæðis-
manna í stjórnmálabaráttunni.
„Úr hinum mjóa vísi, sem gróð
ursettur var 13. febrúar 1926,
er nú orðinn eitt mesta stór-
veldi í íslenskri pólitík“.
maður sjerstaklega að hinum
merka þætti Varðar í skipu-
lagsmálum Sjálfstæðisflokks
ins. Minntist hann sjerstak-
lega starfshátta á fyrri árum
fjelagsins.
Þá tók til máls Guðmund-
Benediktsson, er gengdi
ur
formensku í fjelaginu um 5
ára skeið. Gerði hann g'xein
fyrir margháttuðu samstarfi
Varðar við hin Sjálfstæðis-
fjelögin í Reykjavík, en í
stjórnartíð Guðmundar voru
stofnuð Sjálfstæðiskvennafje
lagið Hvöt og málfundafje-
lag . Sjálfstæðisverkamanna
Óðinn. „Vörður á að fylla
stöðu varðmannsins“, -sagði
ræðumaður - hann hefir
gert það — mín ósk er að
hann geri það þjóðinni til
góðs á ókomnum árum“.
Að lokum talaði fyrrver-
andi ■ form*aður Stefán A.
Pálsson. „Öll þau 20 ár, sem
Vörður hefir starfað, hefir
Sjálfstæðisflokkurinn aldrei
tapað kosningum í Reykja-
vík“, sagði ræðumaður. Gerði
hann grein fyrir þætti Varð
ar í starfi og skipulagi flokks
fram unnum sidri í bæjar-
stjórnarkosningunum, —<
efla Vörð og gera fjelajpð
styrkara en nokkru sinni að-
ur.
Þessu næst tók til máls
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Ólafur Thors, forsætis-
ráðherra, er flutti fjelaginu
árnaðaróskir og þakkir Sjálf
stæðisflokksins, fyrir mörg
afrek, er fjelagið ætti að baki
í þágu flokks og þjóðar.
Frú Guðrún Jónasson, for
maður Hvatar, flutti næst
kveðjuorð frá Sjálfstæðis-
konum til Varðar.
Þá fluttu formaður Heim-
dallar, Ludvig Hjálmtýsson
og formaður Óðins, Axel
Guðmundsson, árnaðaróskir
frá þessum tveim Sjálfstæð-
isfjelög(um.
Ólafur Jónsson frá Elliða-
ey, flutti kveðjuorð frá Sjálf
stæðisfjelaginu Skyldi í
Stykkishólmi.
í lok fundarins voru lesin
heillaóskaskeyti, er Verði
höfðu borist.
Var þessi afmælisfundur
mjög ánægjulegur og gleði-
legur á 20 ára starfsbraut
Varðar.
þreföldu húrrahrópi.
Þá bað formaður fundarmenn
að rísa úr sætum og minnast
næstu tveggja formanna Varð-
ar, sem látnir pru, Jón Olafsson
ar, alþingismannS og Guðmund
ar Jóhannessonar, kaupmanns.
Næstur tók til máls fjórði
formaður fjelagsins Gustav A.
Sveinsson. Hann minntist starf
seminnar í formannstíð sinni,
og samstarfs við marga ágætis
menn. "
„Það, sem mótað hefir giftu
fjelagsins“, sagði ræðumaður,
„eru hinar lýðræðislegu reglur
og starfsaðferðir Varðarfjelags-
ins“. — „Góðir Varðarmenn
hafa altaf verið góðir Sjálfstæð
ismenn“. — _
Þessu næst söng Pjetur Á.
Jónsson með aðstoð lúðrasveti-
arinnar, — Vakti söngur hans
hina mestu hrifningu fundar-
manna, enda söng Pjetur af
miklum glæsileik.
Næst tók til máis á fundin
um Gunnar E. Benedikts-
son, formaður Varðar 1933—
35, en hann hefir lengst af
gengt einhverjum stjórnar-
störfum í þágu fjelagjsins.
Rakti hann ýms stjórnmála-
afskipti fjelagsins, „er altaf
hefði reynst hollur aðili
hverju góðu máli í þágu ís-
lenskra atvinnumála og aríh-
arra þjóðmála“. Þá vjek for-
Fundarmenn heiðruðu fyrsta. jns j bænum. „Gjör rjett
formann Magnús Jónsson með þol ei órjett« _ eru ejnkunn
arorð Varðar, — megi fjelag
ið fylgja þeirri stefnu —
voru niðurlagsorð ræðu-
manns.
Þá tók til máls síðastur
fyrrverandi formaður fjelags
ins, Eyjólfur Jóhannsson.
„Sameinaðir í landsmálafje-
laginu Verði hófu Sjálfstæð-
ismenn baráttuna^ fyrir sam-
eiginlegum hagsmunamálum
fyrir 20 árum. Fyrsta verk-
efnið er að marka fr^mtíðar-
veginn. — Þann veg verður
vel að varða — og það er
verkefni Varðarmanna að
vinna það starf af höndum
til hagþældar fyrir Sjálfstæð
isflokkinn11, sagði ræðumað-
ur.------„Störf Varðar hafa
löngum verið þau kenni-
merki, er hafa vísað mörgum
rjettu leiðina1,.----
Síðastur formannanna tal-
aði núverandi formaður
Varðar, Bjarni Benediktsson.
Vjek hann orðum sínum að
verkefni Varðar: „Án Varð-
ar gæti Sjálfstæðisflokkur-
inn ekki hafa unnið sína
stöðugú kosningasigra í
Reykjavík — fjelagið hefir
viðhaldið arineldi stjórnmála
áhugans meðal Sjálfstæðis-
manna“, sagði formaður. -
Flutti hann hvatningarorð
til fundarmanna að fylgja
Afgreiðsla mále
á Alþingi
FRUMVÁRPIÐ um fræðslu
barna var til 2. umr. í Nd. í
gær. Menntamálanefnd lagði til
að frv. yrði samþykkt meS
nokkrum breytingum, sem hún
hafði gert á því, og voru þær
allar samþ. samhljóða og frv.
afgr. til 3. umr.
Jón Sigurðsson gagnrýndi
frv. nokkuð og taldi það draga
of mikið úr áhrifum skóla-
nefndanna til sveita.
Frumvarpið um lantöku-
heimild til handa síldarverk-
smiðjum ríkisins var afgr. til
Ed.
Þriðja málíð, sem tekið var
fyrir í Nd. var frv. Jóns Sig-
urðssonar um breyt. á lögum
um lax- og silungsveiði.
Frv. fer fram á leyfi til að
stofna fiskiræktarfjelag á tak-
mörkuðu svæði innan fiski-
hverfisins, þótt fellt hafi ver-
ið að stofna fjelagið innan alls
hverfisins. Frv. var vísað til
landbúnaðarn.
I Ed. var aðeins eitt mál á
dagskrá, er fór áfram.
Ðanskur
sendikennari
til háskólans hjer
Khöfn í gær. Einkaskeyti til
Morgunblaðsins.
ÞANN 1. apríl n.k. verður aft
ur stofnað danskt sendikennara
embætti við Háskóla íslands,
eftir að þar hefir ekki verið
sendikennari um 20 ára skeið,
vegna þess, að Danir vildu held
ur senda menn til fyrirlestra-
halda þangað, fyrir það fje, sem
til þessa var veitt. Danir hafa
skipað adjunkt Martin Larsen í
þessa stöðu. Þýðing hans á
Eddu, er gerð var árið 1943,
vakti mikla athygli.