Morgunblaðið - 14.02.1946, Síða 10
10
MORGUNBLAÐI3
Fimtudagur 14, febr. 1946
J/ r ó t i a d í (í a líFj
ot'avi
n
L iCl (f
Miklar líkur til að Andersson og
Hágg fái ekki lengur að-keppa
sem áhugamenn
fslenskt drengjamet
í frjálsum íþróttum
íslensku drengjametin í frjáls-
um íþróttum eru núna sem hjer
segir:
60 m hlaup 7,2 sek. Finnbjörn
Þorvaldsson, ÍR 1943.
80 m hlaup 9,3 sek. Finnbj.
Þorvaldsson, ÍR 1943.
100 m hlaup 11,4 sek. Finnbj.
Þorvaldsson, ÍR 1943.
200 m. hlaup 23,8 sek. Finnbj.
Þorvaldsson, ÍR 1943.
300 m hlaup 38,7 sek. Finnbj.
Þorvaldsson, ÍR 1943.
400 m blaup 53.8 sek. Magn-
ús Þórarinsson, Ármann 1945.
800 m hlaup 2:85,6 mín. Ósk-
'ar Jónssop, ÍR 1944.
1000 m hlaup 2:46,6 mín. Páll
Halldórsson, KR 1944.
1500 m hlaup 4:17,4 mín. Ósk
ar Jónsson, ÍR 1944.
> 3000 m hl. 9:31,8 mín. Óskar
•Jónsson, ÍR 1944.
■ 5000 m hlaup 16:13,0 mín.
Guðm. Þ. Jónsson, ÍK 1940.
110 m grindahlaup 16,8 min.
Ólafur Nielsen, Ármann 1945.
400 m grindahlaup 1:03,6
mín. Haukur Clausen, ÍR 1945.
4 X 100 m boðhlaup 47,1 sek.
KR 1945.
4 X 200 m boðhlaup 1:38,2
mín. ÍR 1943.
4 X 400 m boðhlaup 3.48,6
* mín. ÍR 1943.
4 X 1500 m boðhlaup 19:29,2
mín. ÍR 1945.
1000 m boðhlaup 2:11,7 mín.
KR 1944.
Hástökk 1,82 m. Skuli Guð-
mundsson, KR 1943.
Langstökk 6.46 m Þorkell Jó
hannesson, FH 1944. Þrístökk
13,55 m Björn Vilmundarson,
KR 1945.
Stangarstökk 3,60 m Kol-
beinn Kristinsson, Samvinnusk.
1945.
Kúluvarp 17.35 m Gunnar
Huseby, KR 1941.
Kringlukast 53,82 m Gunnar
Huseby, KR 1941.
Spjótkast 53,71 m Jóel Sig-
urbsson, ÍR 1943.
Sleggjukast 40,73 m Áki
Grenz, KV 1944.
Þríþraut 1870 stig, Bragi
Friðriksson, KR 1943.
Drengjametjn hafa aldrei
verið staðfest af stjórn í. S. í.,
^heldur aðeins viðurkennt í orði
kveðnu. Þetta heíir haft það í
j för með sjer, að ekki hefir ver-
ið haft eins strangt eftirlit með
því, að þau fullnægi fyllilega
þeim kröfum, sem gerðar eru
um íslandsmet og annars hefði
orðið.
Álil forseta sænska íþróttasambandsins
og forsefa olympiska ráðsins
MJÖG STERKAR LÍKUR virðast nú fyrir því, að hinum
heimsfrægu sænsku hlaupurum Gunder Hágg og Arne Anders-
son verði ekki lengur leyft að keppa sem áhuga-íþróttamönnum
(amatörum). Er álitið, að þeir hafi þegið of mikið fje fyrir þátt-
töku sína í keppnum. Gert er ráð fyrir að þetta bann gildi þá
æfilangt.
Frá þessu er skýrt í Politiken
19. janúar s.l. samkvæmt við-
tali sem Stokkhólmsblaðið Dag
ens Nyheter átti við forseta
sænska iþróttasambandsins, Bo
Lindman. — Það er mikið áfall
fyrir Svía að missa þessa ágætu
íþróttamenn úr tölu áhuga-
manna sinna. Annars verður
mál þetta auðvitað rannsakað
ýtarlega? Það er enginn vafi á
því, að það verður til þess, að
enn strangara eftirlit verður í
framtíðinni haft með því, að á-
hugamenn brjóti ekki reglur
þær, sem þeim eru settar. Það
er ekki hægt að segja um á
þessu stigi málsins, hvort eitt-
hvað af metum Hággs og And-
erssons verða dæma ólögleg, en
ef atvinnumenska sannast á þá,
áður en þau voru sett, verður
það að sjálfsögðu gert.
Álit forseta olympiska ráðsins.
Frjettaritari sænska blaðsins
„Expressen“, átti nýlega tal um
þetta mál við Mr. Avery Brun-
dage, forseta olympiska ráðs-
ins. Hvað Brundáge útlitið fyr-
ir sænsku hlauparana langt frá
því gott. Hann er algerlega á
móti því, að áhugamannaregl-
unum verði breytt nokkuð, en
sænska íþróttasambandið hefir
farið fram á, að þær verði end-
urskoðaðar. Áhugamaður á að
vera áhugamaður, segir hann,
ekki einu sinni Guð getur breytt
núgildandi áhugamannareglum.
Brundage segir ennfremur:
„Það er ekki aðalatriðið, hve
frækinn íþróttamaðurinn er. —
Það, sem jeg tel fyrir mestu
er, að hann meti íþróttina vegna
hennar sjálfrar og láti sjer
nægja ánægjuna og gagnið, er
hún veitir honum. Hann á að
jiðka íþróttir af ást til þeirra,
j en ekki vegna peninga. En ef
j atvinnumenska er viðhöfð á
jannað borð, þá á hún að vera
heiðarleg, en enginn tvískinn-
ungur“.
Brundage viðurkennir að eft
irlitið hafi hingað til ef til vill
1 ekki verið nógu strangt, jafn-
vel á síðustu Olympíuleikjum,
(þar sem sum íþróttasamtök,
jeins og t. d. sundmanna og
skíðamanna, hafi leyft kennur-
um 1 greinunum að taka þátt í
keppni áhugamanna. „Það verð
• ur tekið fyrir þetta nú“, segir
hann ennfremur, „olympiska
ráðið hefir tilkynt viðkomandi
sjersamböndum, að kennurum
skuli ekki leyfð þátttaka í slík-
um keppnum, þær eru aðeins
fyrir hreina áhugamenn“.
Rússar útilokaðir frá Olympíu-
leikjum.
Þegar Brundage var spurður
að, hvort nokkrir möguleikar
væru á því, að Rússar gætu
verið með í næstu Olympíu-
leikum, svaraði hann því neit-
andi, Rússar væru algerlega at-
vinnumenn.
Mikið verkefni bíður íþrótt-
anna.
Brundage sagði sænska blaða
manninum að lokum, að hann
væri í engum vafa um, að í-
þróttirnar ættu blómaöld fram
undan, og að þeirra biði mikið
hlutverk í framtíðinni, hvað
snerti uppbyggingu hins nýja
heims. Þorbjörn.
áinó
Fiá Sundmóti Ægis
íslenskir skíðamenn
faka þált í keppni
í Svíþjóð
TVEIR íslenskir skíðamenn
tóku 10. þ. m. þátt í alþjóða-
stökkkeppni, sem haldin var í
„Ángermanland“ í Svíþjóð. —
Voru það Siglfirðingarnir Jón-
as Ásgeirsson og Haraldur Páls
son.
Keppendur í móti þessu voru
als 40 frá Svíþjóð og Finnland’
og íslendingarnir tveir. Jóna:
varð 11. í röðinni, en Haraldu.
19. — Má það kallast gó;
frammistaða hjá þeim fjelög-
um, enda fengu þeir góð:
dóma ytra.
. Skíðaráði Reykjdvíkur bars'
skeyti um þetta í gærkveldi, er
þeir Jónas og Haraldur eru nv
á skíðanámskeiði í „Storlien" í
Svíþjóð. Komust þeir þangaf
fyrir milligöngu Skíðaráðsins
Hin heimsfræga danskf
sundkona, Inga Sörensen, hefii
misst áhugann á sundi og lagl
íþróttirnar á hilluna. Henni
var boðin þátttaka í fyrsta
sundmótinu, sem fram á af
fara í sundhöllinni í Odensr
nú í fjögur ár, en hún hafnaði
því. Keppa Svíar þar við Dani.
* MYNDIR þær, sem hjer eru
birtar, eru frá sundmóti Ægis,
sem haldið var í Sundhöllinni
fimtudaginn 7. þ. mán. — Mót
þetta var fyrsta sundmót ársins
og tókst yfirleitt ágætlega. Ár-
angur var góður í öllum grein-
um á okkar mælikvarða, en í
sundi erum við, hvað getu snerí
ir, langt á eftir flestum öðrum
þjóðum heims. En sundíþróttin
á hjer vaxandi vinsældum að
fagna. Er það gleðiefni og spáir
henni góðri framtíð.
Efsta myndin sýnir Sigurð
Jónsson frá U. M. S. Þingeyingi
í 400 m. bringusundskeppni
karla. Hann vann keppnina að
þessu sinni mjög glæsilega, en
alnafni hans úr K. R. hefir oft
verið honum erfiðari keppinaut
ur en nú.
Næsta mynd er af Önnu Ól-
afsdóttur, hinni 13 ára gömlu
sundkonu Ármanns, sem setti
annað Islandsmetjð sitt í þess-
ari keppni. Var það í 400 metra
bringusur.di kvenna. Hún var
ekkert að skera metið við negl-
ur sjer, synti á 7:06,9 mín., eða
rúmri hálfri mín. undir gamla
metinu.
Þá er Ari Guðmundsson, Æg-
ir. Hann er nú besti skriðsunds-
maður okkar og setti nýtt ís-
landsmet í 50 m. skriðsundi á
bessu móti, synti á 27,2 sek.
Neðsta myndin er af þrem
fyrstu mönnum í 400 m bringu-
sundi karla (talið frá vinstri):
Sigurður Jónsson, KR, Sigurð-
ur Jónsson, Þing., og Atli Stein
arsson, ÍR.