Morgunblaðið - 05.05.1946, Page 7

Morgunblaðið - 05.05.1946, Page 7
Sunnudagur 5. maí 1946 MORGUNBLAÐIÐ JÓANNES PATURSSON ÁTTRÆÐUR Á MORGUN, þ. 6. maí, hylla færeyskir Sjálfstæðismenn for- ingja sinn, Jóannes kóngsbónda 'Patursson, áttræðan. Um sex áratugi hefir þessi einstæði for- ustumaður í þjóðmálum og þjóð ernismálum eyjanna verið í fylkingarbrjósti þeirra landa sinna, ,sem frelsisþrá er í merg runnin. Árið 1888 skipaði Jóannes Patursson sjer í flokk þeirra manna, sem beita skyldu sjer fyrir þjóðfrelsi Færeyinga. — Landar hans telja að með því hefjist nýtt tímabil í sögu eyj- anna. Síðan hefir saga Kirkju- bæjarbóndans verið einn meg- inþátturinn í sögu Færeyinga. Svo einbeitlega hefir hann bar- ist í hartnær 60 ár, svo mikil- virkur hefir hann verið. Ekki einasta á stjórnmálasviðinu. Því hann hefir alla tíð verið hinn mesti frömuður í öllum menningarmálum Færeyinga. Svo segja landar hans, að áð ur en hann 'kom til sögunnar, hafi naumast nokkurn landa hann órað fyrir djörfum frels- ishugsjónum hans. En Jóannes Patursson var frá upphafi hinn alhliða endurreisnarmaður, er fær hugsjónir sínar í vöggugjöf •— og fylgir þeim markvisst fram alla æfi. Nú þegar Jóannes Patursson stendur á áttræðu, þá er hann að undirbúa úrslitabardagann í æfilangri baráttu fyrir því, að Færeyingar gangi fram sem sjálfstæð þjóð í samfjelagi Norðurlandaþjóða. Jóannes Patursson er óvenju fjölhæfur maður, og hefir að þreki verið margra manna maki. Snemma fór hann til" Noregs til þess að nema bú- fræði, svo hann væri sem best undir það búinn að taka við höfuðbólinu Kirkjubæ, en þar hafa forfeður hans í beinan karllegg búið 12 feðgar á und- an honum og er hinn nafnfrægi Nolseyjar Páll langafi hans. Ungur gekk hann að eiga Guð nýju Eiríksdóttur frá Karls- skála í Reyðarfirði. Elsta systir Guðnýjar hafði nokkrum árum áður gifst færeyskum skip- stjóra og fluttst til Þórshafnar. Þangað kom Guðný í heimsókn. Þar kyntust þau Jóannes. Síð- an kom hinn ungi Kirkjubæj- arbóndi til Karlsskála og sneri sjer að gömlum sið til föðursins Eiríks og bað hann um dótt- urina sjer til handa. Var mál það auðsótt, eins og oft er kom- ist að orði í sögum. Síðan varð hin íslenska húsfreyja að Kirkjubæ sú stoð manni sínum, er Færeyingar gleyma ekki og glögt kemur fram í frásögn þeirra, er Jóhannes ungur stóð á hinum gamla þingstað Fær- eyinga í Þórshöfn og flutti mál sitt, en fekk andstreymi og óp frá áheyrendum, er jafnvel vörpuðu til hans spítnabraki, og gerðu sig líklega til að hrekja hann. Þá gall við rödd úr áheyr endahópi utánverðum og hljóm aði hátt: „Þú gefst ekki upp, Jóannes“. Það var rödd Guð- nýjar húsfreyju, sem síðan hef- ir endurómað meðal landa hans. Jóannes Patursson. Sem búhöldur hefir hann í orði og verki verið fyrirmynd- armaður í hvívetna. Fram eftir aldri vann hann á bújörð sinni nótt íneð degi, en -hafði þó allt af nægan tíma og krafta til þess að vinna að hugðarefnum sín- um og stefnumálum fyrir þjóð sína. Jóannes Patursson er skáld gott. Hann hefir orkt lýrisk kvæði, hvatningarljóð, tæki- færiskvæði, sálma. Hann hef- ir orkt vikivakakvæði um Gunnlaug ormstungu og Helgu hina fögru. í kvæðum sínum sem í ræðum er hann kjarn- orður, einbeittur hugsjóna og áhugamaður. Mikið af æfistarfi hans hef- ir miðað að því að vekja og styrkja þjóðerniskend Færey- inga, til varðveislu á þjóðmenn ing þeirra. Þaðan skjddi feng- in meginstoð í frelsismálum eyjanna. Kvæðaauðlegð Færey inga hefir fram á síðustu ár að .miklu leyti lifað óskráð á tungu þjóðarinnar. Hefir Jóannes Pat ursson lagt mikla stund á að skrásetja kvæði þessi, en Lög- þingið kostað útgáfuna. Eru komijj út fimm bindi þeirra. Jóannes Patursson er ris- mikill höfðingi í framgöngu, ein arður og djarfur. Á unga aldri var hann íþróttamaður góður, annálaður bjargmaður — full- hugi þar, sem í hinu opipbera lífi. Fyrir 45 árum var hann í fyrsta sinn kosinn á þing Dana. Þá höfðu vinstrimenn tekið þar við stjórn. Hann eignaðist brátt marga aðdáendur og vini þar í landi, sem kunnu að meta hinn hressandi stórhug eyjabónd- ans, þó sennilega hafi mörgir þeirra tekið undir óskir hans í sjálfstæðismálum Færeyinga. Hver sem verða úrslt þeirr- af baráttu, sem hinn áttræði foringi á nú fyrir höndum, þá er eitt víst, að bjart verður um minningu Jóannesar Patursson- ar í sögu Færeyinga, hins ötula stefnufasta, ósveigjanlega for- ustumanns á mesta framfara- tímabiþ landsins. En vonandi eiga Færeyingar því láni að fagna, að mega njóta enn um skeið starfskrafta hans. Áhrifa hans mun gæta alla daga með- an færeysk þjóð er til. Því hann er í einni persónu fær- eysk þjóðarsál. V. St. Hudson 1946 LÝSING á Hudson-bifreiðinni (1946 gerð), hefir nýlega borist hingað til lands og birtist mynd af Hudson-bifreið hjer að ofan. Ýmsar nýjungar frá því fyrir stríð eru í Hudson, sem til dæmis hefir svokallaðan „Drive-Master“ útbúnað, sem hægt er að setja í samband með því að þrýsta á hnapp í mæliborði og er þá gír- skifting ónauðsynleg. Vökvahemlar eru á ölluni hjólum og auk þess sjerstakir öryggishemlar. Þá er sjálfvirk loftræsting í hif- reiðinni, viðtæki og hitatæki og ýmsar aðrar nýjungar. Höggmyndasýning Tove Sigurjóns Olafssonar hjeðan Khöfn í gær. Einkaskeyti til Morgbl. BERLINGSKE Aftenavis rit- ar um það, að íslenskt útgáfu- HÖGGMYNDASÝNINGAR c'u sjaldgæfur viðburður hjer í bæ, enda hefir þess ekki verið kostur fyrr sakir hús- næðisleysis. Það er því nú á- nægjulegt að koma inn í rúm gott hús og njóta skoðunar v andleistra og þaulhugsaðra verka. Sigurjón Ólafsson hefir dval fyrirtæki hafi gefið út bók Aage ^ ið nokkuð af sínum náms- og Krarup Nielsen, Aloha. Enn- , þroskaárum í Danmörku sem fremur segir blaðið, að útgáfu- jeinnig er ættland konu hans Tove, sem eins og maður hehn ar, eru kunn þar í landi fyrir fyrirtækið hafi ekki svarað fyrirspurnum frá forlagi Niel- sens í Danmörku, viðvíkjandi ritlaununum, heldur búi sig undir að gefa út aðra bók, án þess að spyrja höfundinn um leyfi eða að bjóða ritlaun. Hefir fjelag íslenskra útgef enda ekki list sína. Sigurjón Ólafsson hefir mikla fjölhæfni í formmeð- ferð og' mætti segja mjer að ekki væru þau mörg verk- samþykt að viðurkenna f'fnin sem honum væru falin’ ritlaunakröfur danskra að hann ekki leÝsti Þau soma' samlega af hendi. Þau hjónin komu heim síð astliðið haust, nokkurn tíma höfunda, þar £em Islands sje ekki aðili að Bernarsamþykt- inni. Danskir útgefendur gætu með sama rjetti neitað að borga hefur það tekið fyrir þeim að íslenskum höfundum ritlaun, 'icoma sjer fyrir í bragganunl en það geri þeir ekki, heldur á Laugarnestanganum. Sam.t gefi verk þeirra út á dönsku hafa þau haft áræði til þess án þess að gera minstu tilraunÝð leggja í ærið mikið stór- til þess að reyna að komast hjá ræði. Þarna eru mvndir meit! gifs t. d. sjera Friðrik Frið- riksson og fh ,Frú Tove Ólafsson er einn- ig mikil atgerfiskona . sviði listarinnar, tilkomumikil er mynd hennar, Venus frá Laug arnesi; meitluð í grágrýti það nn frá staðnum. Fyrirsæta nr. 7 myndi sóma sjer betur í stærra formi. Fjöldi ljósmynda eru á sýn ingunni af verkum þeirra hjóna, svo sem af myndum þeim er Sígurjón Ólafsson gerði fyrir Vejleborg. Eva ettir Tove Ólafsson lýsir mik- illi formfegurð og yfirleit'o munu menn komast að raun um að verk þau sem hjer eru sýnd, eru gerð af listrænu form'næmi og þaulhugsuðn og margæfðu starfi. Stílhneigð ýmsra verka erti æfa forn. En er ekki lífið einmitt þannig, að til þess að höndla sannleikann þarf mað ur að afneita lyginni, því í upphafi var orðið og orðið var sannleikur. Orri. því að greiða ritlaun. Nielsen hefir falið stjórn rit- aðar í innlent efni. Granit austan úr Skaftafellssýslu og verði dæmt til að borga. Páll. ByggingarsDstefnafl 1046 Nú er aðeins mánuður þangað til byggingar- sýningin hefst, því ráðstefnan verður sett 2. júní næstk. Þótt mikil eftirspurn hafi verið eftir sýning- arplássi, er nokkru enn óráðstafað. Það er því nauðsynlegt, að þeir, sem hafa í hyggju að sýna vörur sínar, tilkynni það sem allra fyrst, og í seinasta lagi 10. þ. m., annars eiga þeir á hættu að komast ekki að. Allar upplýsingar gefur: GUNNAR VAGNSSON, Kirkjuhvoli, sími 5363. höfundafjelagsins mál sitt. — gi’ástein úr flæðarmálinu á Vera má að honum verði dæmd Laugarnesi. Eitt hið merk- ritlaun, ef málsókn verður haf- asta verk er mynd Sigurðar in, þar sem sambandslögm voru Nordal meitluð í grástein Nr. í gildi. er bókin var gefin út, jf, a skránni, það undirstrikar og má vera að þau verði túlkuð spakhyggnissvip fyrirmyndar þannig að útgáfufyrirtækið irnar { ríkum mæli og er form rterkt og' mun ávalt verða tal ið ágætt v'erk. No. 12, Snót, meitluð í granit, afar hug r.æm mynd, þótt eigi sje hún smáfríð. Granitið er frá Hval- nesi í Lóni. Virðist svo sem ísaland sje eigi fátækt land, þar sem slíkt efni er fyrir hendi og kunnátta manns- handarinnar er til að dreyfa. Þá Ivefir hann og höggvið mynd í marmara er hann prefnir Ekkjuna.. Sjerstæð mynd höggin; hið harða blá- grýtisbérg, er Finngálkn. — Mundu margar þessar mynda farp vel í húsagörðum og vif5 byggingar. Mynd af Jóni Krabbe í eyrsteypu er frá- bærilega fögur. Göfgi þessa manns verður vart betur lýst, líjct má og segja um mynd af móður höfundarins. Mörg Fangauppreisn við San Francisco Washington í gærkvöldi. FANGAVERÐIR og hermenn eru sem stendur að reyna að rjúfa gat á þak einnar álmu í Alcatraz-fangelsinu við San- Francisco, til þess að komast að því, að kasta handsprengj- um á fanga, sem gert hafa vopn aða unpreisn. Hafa menn úr strandgöngusveitum Bandaríkj anna tekið þátt í þessu, og bar- dagar orðið allsnarpir við fang ana, sem eru taldir allvel vopn aðir. —Reuter. (ripps ræðir vlð Gandhi London í gærkvöldi. í BÆNUM Simla í Indlandi eru þegar hafnar undirbúnings viðræður milli Indverja og bresku sendinefndarinnar. — Ræddi Sir Stafford Cripps við Gandhi í dag i 3 klukkustundir. Breta eru vongóðir um það, að þeir muni koma á ráðstefn- önnur verk eru og í leir oguna og taka þátt í henni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.