Morgunblaðið - 24.05.1946, Side 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
ÆTTARSETUR Roosevelts,
Alihvass sunnan. skýjað, dá-
lítil rigning eða súld.
Föstudagur 24. maí 1946
Hyde Park. — Sjá grein á
bls. 7.
4 menn hand-
te.knir fyrir
íkveikju
3 þeiira hafa jáiað
sig seka
EINS og kunnugt er brann
sláturhúsið á Akranesi til
kaldra kola 15. þ. m. — Við
rannsókn málsins er komið í
ljós, að hjer var um íkveikju
að ræða, og hafa fjórir menn
þegar verið handteknir. Þrír
þeirra hafa játað á sig að hafa
verið við þetta riðnir.
Sláturhúsið hafði verið leigt
undir vörubirgðir, sem þessir
fjórir menn áttu og höfðu flutt
þangað undir því yfirskyni að
setja þar á stofn verslun. Verð-
mæti þessara vara mun aftur
á móti hafa verið harla lítið, en
þær voru vátryggðar fyrir 600
þús. krónur.
Mennirnir, sem hjer um ræð-
ir, eru 2 Reykvíkingar, einn
Akurnesingur og einn af Snæ-
fellsnesi. Rannsókn málsins er
ekki enn lokið.
Rússar segjasf
famir frá Persíu
London í gærkveldi.
ÚTVARPIÐ í Moskva birti í
gærkveldi tilkynningu frá yfir-
stjórn „Transkákasíuhersins"
um það, að herílutningum hefði
verið lokið frá Persíu af Rússa
hálfu þann 9. maí s. 1. Var enn-
fremur tekið fram, að fyrrnefnd
yfirherstjórn hefði talið í upp-
hafi að hægt yrði að vera bú-
ið að flytj'a herinn burt á þess-
um tíma, og hefði það tekist.
— Frjettaritari vor tekur það
fram í þessu sambandi, að
Persar hafi sagt í gær, að Rúss-
ar hefðu verið farnir úr land-
inu þann 6. maí. — Reuter.
Fullfrúaráðsfund-
ur um frsmboðs-
lisfann
Fundur verður haldinn í
kvöld í fulltrúaráði Sjálf-
stæðisfjelaganna í Reykja-
vík í Sjálfstæðishúsinu.
V'erða tillögur kjörnefndar
um framboðslistann lagðar
fyrir fundinn, en nefndin hef
ir nú lokið störfum.
Fundurinn hefst kl. 8,30.
Thora Friðriksson heiðruð
Eins og áður hefir verið skýrt frá í blöðunum sæmdi franska
stjórnin frk. Thoru Friðriksson, heiðursforseta Alliance Franc-
aice, officera orðu heiðursf.vlkingarinnar frönsku á áttræðisaf-
mæli hennar á miðvikudaginn var. Myndin hjer að ofan var
íekin við það tækifæri. — A myndinni eru, talið frá vinstri,
fremri röð: Madame Voillery, Pjetur Gunnarsson, forseti AIli-
ance Francaise, Thora Friðriksson, M. Voillery, franski sendi-
fulltrúinn og Jón Gíslason. I aftari röð: Björn L. Jónsson,
Magnús Jónsson og Magnús Jochumsson. — Mjög var gestkvæmt
á heimili frk. Friðriksson á afmælisdegi hennar. Barst henni
fjöldi skeyta, blóma og annarra góðra gjafa. M. a. færði stjórn
Alliance Francaise henni áletraðan silfurdisk frá fjelaginu. Þá
var hún og kjörinn heiðursfjelagi í Reykvíkingafjelaginu þenn-
an dag.
36 hosfar skráðir lil keppninnar
HESTAMANNAFJELAGIÐ FAKUR efnir til kappreiða á
Skeiðvellinum við Elliðaár n. k. sunnudag kl. 2 e. h. Keppt
verður í skeiði á 250 m. stökkfæri, stökki, 300 m. og 350 m. og
250 m. tryppahlaupi. Alls taka
að þessu sinni.
Björn Gunnlaugsson, kaup-
maður, skýrði blaðinu frá þessu
í gærkveldi, er það átti tal við
hann.
I skeiði keþpa 6 hestar í tveim
ur flokkum. í fyrsta flokki eru
þessir: Þokki, sem búinn er að
taka þátt í kappreiðum 1 12—13
ár og oft verið fyrstur eða ann-
ar, Nasi, rauður, eign Þorgeirs
Jónssonar, Gufunesi, sem virð-
ist gott efni, enda knapi þektur
íþróttamaður, sem kann að æfa
gæðinga sína og Fluga, jörp, af
góðu borgfirsku kyni. — í 2.-
flokki keppa Randver og Gletta,
sem hafa oft áttst við og Valur
Eyjólfs Gíslasonar, sem að allra
dómi gerir best grip á vellinum
og er að margra dómi vakrasti
hestúr bæjarins.
í 300 m. stökki keppa 18 hest-
ar, flestir lítt þekktir, en í regl-
um Fáks segir svo fyrir, að eng-
ir hestar, sem hlotið hafa 1. verð
laun í því hlaupi, megi keppa
þar aftur. Hjer skulu aðeins 2
hestar nefndir: Róni, eigandí
Kristján Guðmundsson, Hafn-
arfirði og Stelpa Reynis Sveins
sonar, Lögbergi. Um úrslit verð
ur þó ekki Spáð.
8 hestar keppa í 350 m.
stökki. Má þar nefna Kolbak
Jóhanns Guðmundssonar frá
Sunnuhvoli, sem setti met á
vegalengdinni s. 1. ár. Drottning
36 hestar þátt í kappreiðunum
Þorgeirs í Gufunesi átti. það
áður. Hefir hún staðið í ,,barn“-
eignum og því ekki mætt á
kappreiðar síðustu ár og nú orð
in 15 vetra. En hún verður með
að þessu sinni og hefir fullan
hug á (eftir bestu heimildum)
að endurheimta met sitt. í þess-
um flokki keppir einnig Tvist-
ur, sem vann glæsilegan sigur
í 300 m. stökki s. 1. ár og Kol-
bakur Asbjörns Sigurjónssonar.
í 250 m. folahlaupi keppa 4
hestar.
„Sjálfsfætt fólk"
bék júlí-mánaðar
í Ameríku
AMERÍSKA útgáfufjelagið
,,Book of the month club“ hefir
ákveðið að gefa út skáldsögu
Halldórs Kiljans Laxness „Sjálf
stætt fólk“ og verður hún „bók
mánaðarins“ í júlí n. k.
Þessi bókaútgáfufjelagsskap-
ur hefir tugþúsundir áskrifenda
sem kaupa bækur útgáfunnar.
Er venja að velja eina bók í
hverjum mánuði.
Þessi sami fjelagsskapur hefir
gefið út bók eftir Gunnar Gunn
arsson, Aðventa, sem á ensk-
unni hlaut nafnið „The good
shepherd".
iikil hatíðarhöld 16. jiíní í
tilefni 100 ára afmælis
Menntaskólans
Rúml. 2090 sfúdentar hafa útskrifasf þaðan
STÚDENTAR frá Menntaskólanum í Reykjavík gangast fyrir
miklum hátíðahöldum 16. júní n. k. í tilefni 100 ára afmælis
skólans. Hátíðin hefst í hátíðasal Menntaskólans, skrúðganga
verður farin um bæinn, blómsveigur lagður á leiði Svein-
bjarnar Egilssonar og veisluhöld verða um kvöldið. Auk þess
verður afmælisins minnst á margvíslegan hátt annan. Úr
Menntaskólanum hafa nú rúmlega 2000 stúdentar útskrifast
cg eru um 1500 þeirra enn á lífi, sá elsti frá 1873.
í vetur voru fulltrúar frá öll-
um sfúdentaárgöngunum boð-
aðir á fund til þess að ræða und
irbúning hátíðahalda í tilefni af
100 ára afmæli Menntaskólans.
Árangur þessa fundar var sá. að
kosnar voru tvær nefndir.
Skyldi önnur annast fjársöfn-
un handa Bræðrasjóði, einkum
meðal stúdenta og annarra nem
enda skólans, og enn fremur
undirbúa stofnun nemendasam-
bands á þessu merkisafmæli
hans.
Hin nefndin átti hins vegar
að undirbúa sjálf hátíðahöldin
af hálfu stúdenta. Átti sú nefnd
tal við blaðamenn í gær. í henni
eiga sæti: Pálmi Hannesson,
rektor, formaður, Pjetur Sig-
urðsson, háskólaritari, Kelmenz
Tryggvason, hagfræðingur, Guð
jón Hansen, inspector scholae
Geirþrúður Bernhöft, cand.
theol. og Birgir Kjaran, fram-
kvæmdastjóri. Framkvæmda-
stjóri nefndarinnar er Gunn-
laugur Snædal.
Verða hátíðahöldin hinn 16.
júní í vor, er 100. starfsári skól-
ans lýkur og 100. stúdentaár-
gangurinn útskrifast. — í haust,
hinn 1. október, mun skólinn
sjálfur hins vegar efna til há-
tíðahalda, því að þá verða lið-
in 100 ár frá því, er hann tók
til starfa hjer í bænum. Eru
þau hátíðahöld fyrirhuguð með
nokkuð öðru sniði en þessi og
verða væntanlega að mestu
innan húss.
Nefndirnar báðar hófust þeg-
ar handa, hvor á sínu sviði, og
hefir þeim orðið vel ágengt.
Hátíðanefndin hefir nú í stór-
um dráttu mákveðið tilhögun
hátíðahaldanna í vor. Upphaf-
lega var gert ráð fyrir því, að
þau yrðu 17. júní, en af ýms-
um ástæðum þótti þó hentugra
að hafa þau 16. júní. — Dag-
skráin er fyrirhuguð á þessa
leið. -—- Hátíðin hefst með at-
höfn, sem fram fer í hátíðasal
skólans, er skólanum verður
sagt upp og hinir nýju stúdent-
ar útskrifast. Munu þá vænt-
anlega hinir eldri stúdentar, 50
ára, 40 ára og 25 ára, flytja á-
vörp, eins og venja er til. Há-
tölurum verður komið fyrir víðs
vegar í skólanum, svo að stú-
dentar geti hlýtt á það, sem
fram fer. Auk þess verður at-
höfninni væntanlega útvarpað.
Að þessari athöfn lokinni, hefst
skrúðganga stúdenta með lúðra
sveit í fararbroddi, og er ætl-
ast til þess, að hver árgangur
verði sjer og beri merki með
stúdentaártali sínu. Verður
gengið um bæinn og upp í
kirkjugarð að leiði Sveinbjarn-
ar Egilssonar fyrsta rektors
skólans hjer. Þar verður lagð-
ur blómsveigur og Sigurður
Nordal, prófessor. mun haldá
ræðu. Ennfremur mun stúdenta
kór syngja. Þessi kór er skipað-
ur stúdentum frá allmörgum
árgöngum, og er nú verið að
æfa hann. Skrúðgangan leggur
svo leið sína til baka að Mennta
skólanum og verður henni slit-
i5 þar með ræðuhöldum og söng.
Um kvöldið, kl. 7, hefst svo
borðhald í stærstu veislusölum
bæjarins og verða þar ræður
fluttar og kórinn mun syngja.
Hátalarar verða hafðir railli
staðanna. Mun þar verða sama
fyrirkomulag og fyrr um dag-
inn, að stúdentar frá sama ár-
gangi haldi ræður og skemmti
sjer saman. Verða árgangarn-
ir látnir draga um staði þá, sem
þeir fá við borðhaldið.
Eftir borðhaldið er svo öll-
um þátttakendum frjálst að
ferðast á milli staðanna gegn
því að sýna aðgangskort. Enn-
fremur mun Menntaskólinn
verða opinn þeim, og veitingar
hafðar þar. Skólinn og lóð hans
munu verða skreytt þennan dag
eftir föngum
0
Vegna óvissu um þáttöku
verður byrjað að selja aðgöngu
miða að hátíðahöldunum 1. júní.
Stendur sala þeirra yfir til 10.
júní. Þeir stúdentar sem c-kki
hafa annað hvort keypt niða
eða tilkynnt þátttöku sína íyrir
þann tíma eiga á hættu að-l.om-
ast ekki á kvöldskemmtunina
hinn 16. Miðar verða seldir á
skrifstofu nefndarinnar í íþöku
dagana 5.=—10. júní, og vcrður
þar ennfremur tekið á móti til-
kynningu um þátttöku.
Stúdentar, sem eigi búa í bænj
urn og ætla að sækja háiíðina,
eru kvattir til að senda tilkynn-
ingu um þátttöku fyrir 10. júní.
Sími skrifstofunnar er 6999,
og verður hún opin áðurneínda
daga kl. 5—7 (nema sunnu-
daga).
Er það eindregin ósk nefnd-
arinnar, að sem flestir etúdent-
ar útskrifaðir frá skólanum;
heiðri hann með nærveru sinnj
á þessari merkishátíð hans, j