Morgunblaðið - 04.07.1946, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.07.1946, Blaðsíða 16
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: LUNDUNABRJEF frá Karli NorÖan kaldi, Ijettskýjað. Fimmtudagur 4. júlí 1946 Tvö íundurdufl af | 1500 fundust fyrir | Ausifjörðum | 15 hindurduflaslæðarar í Reykjavík ÞEGAR Reykvíkingar vöknuðu í gærmorgun hjeldu margir að landið hefði verið hernumið á ný, því á Reykjavíkurhöfn voru komin 8 herskip. En ótti manna hvarf fljótt er það vitnaðist að skip þessi eru hingað komin til að hreinsa hafið umhverfis Island af tundurduflum. Fundu aðeins 2 dufl. Alls eru bresku herskipin 18, sem hafa unnið að tundurdufla slæðingu hjer við land, komu 8 í gærmorgun, en 7 voru vænt- anleg í gærkveldi. Hafa skip þessi lokið við að slæða dufla- svæðið við Austurland. Fund- ust þar aðeins 2 dufl af 1500, sem lagt var á styrjaldarárun- um, 3 skip eru ennþá úti á sjó. Hjeðan munu skipin fara vest ur fyrir land og á önnur svæði kringum landið þar sem dufl- um var lagt styrjaldarárin. 11,000 smálesta skip. Herskipin sem hingað komu eru flest af svipaðri gerð og eru um 11,000 smálestir að stærð. Eitt þeirra lagðist hjer við hafnargarð í gær og var nokk- uð af breskum sjóliðum í bæn- um, en það er nú orðið alllangt síðan breskir sjóliðar hafa sjest hjer á götunum. KR fiaileíkaflokkur- inn kemur heim í kvöld ÍFIMLEIKAFLOKKUR K.R., hafði útisýningu í Edinborg í gær, en' nánari íregnir af sýningunni eru ókomnar enn. Fararstjóri, Bjarnd Guð- mundsson, kvaddi flokkinn í Jjondon, því að hann mun dvelja erlendis um stund. Björn Björnsson, stórkaup- maður, tók við fararstjórr. það sem eftir er ferðarinnar. Flokkurinn kemur í kvöld flugleiðis hingað og hefur K.R. móttöku samsæti fyrir bann í Tjarnarcafé í kvöld. Fimleikasýningu heldur þessi frægi flokkur á íþrótta- vellinum annað kvöld. ■ i* Oldungadeild pólska þlngsíns afnumln London í gærkveldi. KOMIÐ hefir nú í ljós, að við þjóðaratkvæðagreiðslu þá, sem nýlokið er í Póllandi, voru % þeirra, sem atkvæði greiddu, samþykkir afnámi öldungadeild ar þjóðþingsins. Þá er og tal- ið sð mikill meirihluti kjósenda hafi verið fylgjandi skiptingu stórjarða og þjóðnýtingu iðn- aðarins. Síööugar óeirðir á Gyðingalandi London í gærkveldi. STÖÐUGAR óeirðir eru á Gyðingalandi, og er breski her- inn á varðbergi. Breskir her- menn hafa rannsakað leynilegt vopnabúr Gyðinga, sem fannst nærri Haifa. I vopnabúrinu voru yfir 200.000 skot, 5000 sprengjur og mikið af sprengi- efni. — Þá hafa Bretar rann- sakað skjöl varðandi breska herinn, en þau fundust í felu- stað einum, þar sem leynisam- tök Gyðinga geymdu ýmislegt. Einn af æðstu mönnum Gyð- inga, sem í haldi var hjá Bret- um, hefir nú verið sleppt, en 54 Gyðingar, sem í haldi voru, sluppu með því að grafa jarð- göng út úr búðum þeim, þar sem þeir voru geymdir. — 30 þeirra hafa náðst aftur. Breskir tundurspillar hafa tekið skip með 1100 Gyðingum við strend- ur landsins og flutt það til hafn ar. Verður það sett í sóttkví, þar sem líklegt er að svarti dauði hafi brotist út á skipi þessu. —Reuter. Hjeldu hann vera Hollendíng London í gærkveldi. DR. CHARIR, forsætisráð- herra stjórnar Javamanna, sem numinn var á brott nýlega, er nú laus aftur, hefir skýrt blaða mönnum frá atburðum. Sagði hann, að hann hefði verið num- inn á brott af innbornum her- mönnum, sem hefðu auðheyri- lega haft fyrirskipanir um hvað gera skyldi. Sagði Charir, að tekin hefðu verið skjöl þau, sem vörðuðu uppástungur til Hollendinga um samkomulag, og þeim ekki verið skilað aft- ur. Charir kvaðst vera á þeirri skoðun, að hermennirnir hefðu staðið í þeirri meiningu, að hann væri hollenskur erind- reki. — Reuter. Farþegaskip á flot. LONDON. Fyrsta breska far þegaskipið, sem byggt hefir verið í Bretlandi síðan ófriði lauk, var nýlega sett á flot í Barrow in Furness. Heitir það Hinemoa og er 9600 smálestir að stærð. Fá ekki að bera vlíii’ London í gærkveldi. STJÓRN Júgóslavíu hefir neitað tilmælum Bandaríkj- anna og Bretlands að nokkrir af þeim herforingjum þessara þjóða, sem dvöldust með herj- um Mihailovitch hershöfðingja, styrjaldarárin, fái að bera vitni í máli hans. Telur stjórnin að vitnisburður þeirra muni eng- in áhrif hafa á endalok rjettar- haldanna. Sumir af herforingjum þeim, sem hjer um ræðir, hafa mót- mælt þvi harðlega að rjettar- höld þessi færu fram. Halda þeir fram sakleysi Mihailovitch og telji það hafi verið fyrir at- beina hans, að svo mörgum flugmönnum bandamanna, sem skotnir voru niður yfir Júgó- slavíu, tókst að komast undan Þjóðverjum. — Reuter. Smjörúlflulningi mólmælt í Nýja Sjálandi London í gærkveldi. HAFNARVERKAMENN 1 Nýja Sjálandi hafa neitað að af- greiða emerísk skip, sem send hafa vei'ið eftir miklum birgð- um af smjöri, sem Bandaríkja- stjórn hafði keypt og ætlaðist til að notað vrði á amerískum hernámssvæðum í Asíu og víð- ar. Mikil stjómmála- Étik í Færeyjum ElNS og kunnugt er, losnuðu Færeyjar úr öllu stjórnarsam- bandi við Danmörku þann 9. júlí 1940. í staðinn fengu eyjai íar svonefnda millibilstilskipan frá 9. maí sama ár. Þessi skipan var útbúin í miklum flýti og auðsýnilega ætlað að gilda aðeins stríðslokin, en ennþá, 13 mánuðum eftir ófriðarlok er hún form- lega í gildi. Tillögur Dana. Flokkarnir hafa ekki reynst færir um að leysa stjórnskipun- armálið. Nefnd, kosin af Lög- þinginu sat í 2% mánuð í Höfn og ræddi við dönsku stjórnina. Þessar viðræður gáfu engin já- kvæð úrslit. Nefndin kom heim með skilyrði Danastjórnar. Þau voru þessi: Annað hvort geta Færeyingar samþykt, að Fær- eyjar sjeu hluti af Danmörku, að amtsfyrirkomulagið gamla verður áfram í gildi, þ. e. að löggjafar-, framkvæmda- og dómsvald verður danskt áfram, að færeyska flaggið fær sama rjett og það danska, að fær- eyisk tunga fær sama rjett og danskan, — eða Færeyingar geta sagt sig úr öllum pólitísk- um fjelagsskap við Danmörku. Þetta eru skilyrði Dana og fer fram þjóðaratkvæði þann 14. september næstkomandi. Á kjör seðlinum verður spurt: Óskið þjer að tillögur dönsku stjórn- arinnar verði settar í gildi, eða óskið þjer skilnaðar Færeyja frá Danmörku. Hjer verður því aðeins um .tvær leiðir að velja, enginn mi'llivegur. Stjórnmáladeilur. Vegna úrslitakosta dönsku stjórnarinnar hafa spunnist miklar deilur innan færeyskra stjórnmálaflokka. I rauninni eru allir flokkar klofnir, þó reynt sje að dylja það. — Fyrst er að geta Fólkaflokksins. — Varaíormaður flokksins, Tór- stein Petersen ritstjóri Dag- blaðsins vill ekki hvetja fólkið til þess að kjósa fullað skilnað og fullt sjálfstæði, hinsvegar mælist hann til þess að menn setji „nei“ framan við kröfur dönsku stjórnarinnar, en með því verður kjörseðillinn ógild- ur. Aðrir fólkaflokksþingmenn og með þeim fólkaflokksf jslög- in eru á móti Tórsteini og , ilja að flokkurinn kjósi fullan skiln að. Verið getur að Tórstein verði rekinn úr flokknum. Sjálvstýriflokkurinn hefir hingað til haft sömu aðstöðu og Tórstein Petersen, en Tíminn, sem er málgagn flokksins snýr sjer gegn þeirri stefnu, sem Long kennari, formaður flokks- ins hefir haft. Vill blaðið íull- an skilnað við Dani. I ouis Zachariassen, sem er formaður í gamla Sjálvstýriflokknum vill láta kjósendur sjálfa um hvað þeir geri. í Jafnaðarmannaflokknum er mikil togstreita. Þingmað- urinn í Vogey, Jákup í Jákubs- stóvu, vill ekki fylgja stefnu foringjans, Pjeturs Dam. Vill Pjetur hvetja menn til að greiða atkvæði með tillögu Danastjórn ar, en Jákup vill fullan skiln- að. Síðasti viðburðurinn í fær- eyiskum stjórnmálum er sá, að stofnað hefir verið fjelag þ irra. Færeyinga, sem vilja fult r jálf- stæði, og kemur það ekki síjórn málaflokkunum við. •— Þetta fjelag, sem kallar sig Fterey- ingafjelag — landsfjelag fyrir færeyisku frelsi, hefir löngu byrjað stjórnmálastarfsemi sína og miklir pólitískir fundir hafa verið haldnir í landinu. Rakspegill verður mannsbani. LONDON. Nýlega fannst mað ur nokkur látinn í herbei'gi sínu hjer í borg. Kom á daginn að hann hafði beðið bana af rafmagnsstraum úr rakspegli sínum, sem var lýstur með raf- magnsljósum. A5a!skrifstofur breska fiughcrsins á fiugvciiinum brunnu í gær ELDUR kom upp í braggahverfi á Reykjavíkurflugveliinum í gærdag á fimta tímanum, en í bröggum þessum voru aðal- stöðvar breska flughersins. Brunnu "þarna margir braggar svo að segja á svipstundu, því efni það, sem braggarnir eru bygðir úr er mjög eldfimt, eins og kunnugt er Mun flug- herinn hafa orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni, einkum vegna þess að skjöl og skilríki hafa brunnið þarna inni. Ástæða hafnarverkamannanna fyrir að neita að ferma skipin er sú, að þeir telja Bandaríkja menn færa um að útvega næg- ar smjörbirgðir frá heimalandi sínu, en þar er engin skömtun á smjöri. Almenningur á Nýja Sjálandi mun vera fylgjandi þessum að- gerðum verkamannanna og stjórnarandstaðan í þinginu hefir þegar mótmælt því, að smjörsendingin verði látin koma til framkvæmda. Hækkun á sntjörlíki Þá hefir viðskiptaráðið ákveð ið hækkun á smjörlíki. Kostar nú hvert kíló kr. 5,60 í stað kr. 5,00 áður. Molasykur, sem verið hefir skamtaður sem kunnugt er hef- ir nú verið tekinn af lista yfir skömtunarvörur. Hvassviðri var af norðri og gerði það erfiðara fyrir um slökkvistarf. Slökkvilið Reykja víkur kom á vettvang og enn- fremur slökkvilið flugvallar- ins, en ekki var við eldinn ráð- ið og brann öll braggaþyrping- in, sjö eða átta braggar. Okunnugt er um eldsupptök,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.