Morgunblaðið - 19.10.1946, Page 8

Morgunblaðið - 19.10.1946, Page 8
I MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 19. okt. 1946 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.0o á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. f lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Ómaklegar árásir MORGUNBLAÐIÐ birtir í dag viðtal við einn af banka- rtjórum Landsbanka íslands. Tilefnið er hinar þrálátu og illskeyttu árásir Þjóðviljans á bankann ög stjórn hans. Uppistaðan í árásum Þjóðviljans á þjóðbankann, hefir einkum verið þetta tvent: 1. Að Landsbankinn eða stjórn hans hafi kipt að sjer hendinni með útlán til fiskframleiðenda, svo að til vand- ræða hafi komið fyrir útgerðarmenn og þeir neyðst til að stöðva framleiðsluna af þeim sökum. 2. Að stjórn Landsbankans hafi strax frá upphafi unn- ið markvist gegn nýsköpuninni, og gert alt sem í hennar valdi hefir staðið til þess að koma nýsköpunaráformum ríkisstjórnarinnar fyrir kattarnef. í viðtalinu við Jón Maríasson bankastjóra, sem birt er hjer í 'blaðinu í dag, er gerð full skil á afstöðu stjórnar Landsbankans til þessara mála. Kemur þá í ljós, sem reyndar var vitað áður, að allar árásir Þjóðviljans á bankann og stjórn hans eru gripnar úr lausu lofti, og eiga sjer enga stoð í veruleikanum. ★ Varðandi fyrra höfuðárásarefnið, að stjórn bankans hafi kipt að sjer hendinni með útlán til fiskframleiðslunn- ar, upplýsir bankastjóri Landsbankans að þeirri reglu sje fylgt, þegar um útflutningsvörur er að ræða, að lánað er út á tvo þriðju hluta af gangverði vörunnar. Þetta er meginreglan. Út af þessu hafi þó verið brugðið með hrað- írysta fiskinn, því að þar láni bankinn tvo þriðju af gang- verði fisksins út á 1. veðrjett, og að auki 10 kr. út á hvern kassa, gegn öðrum veðrjetti. Með öðrum orðurn: Fram- leiðendur hafa fengið að láni 50 kr. út á hvern fiskkassa, en útflutningsverðmæti kassans er um 62 krónur. Lánin til framleiðenda samsvara því um 5/6 hlutum gangverðs- ms. Af þessu er ljóst, að það er í hæsta máta ósanngjarnt að vera með ásakanir í garð bankans. Enda munu þær ekki gerðar í umboði framleiðenda. Erfiðleikar framleiðenda stafa ekki af því, að þeir hafi fengið of lítið lánað á framleiðsluvöruna, heldur af hinu, hve seint hefir gengið að fá vöruna afskipaða. Afleiðing þess hefir orðið sú, að frystihúsin urðu yfirfull og komu engu frá sjer. Auðvitað á stjórn Landsbankans enga sök á þessu, heldur er það vöntun hentugra skipa; sem þessu hefir valdið. Hin höfuðásökun Þjóðviljans, að Landsbankinn hafi unnið markvist gegn nýsköpuninni er jafn haldlaus og Ijarri veruleikanum. Bankastjóri Landsbankans upplýsir, að frá því að ný- sköpunin hófst, hafi útlán aðalbankans í Reykjavík aukist um 139 milj. kr. Þar við bætist aukning á verðbrjefaeign bankans, 40 milj. kr. Samtals nemur þetta 179 milj. kr. Megnið af þessu fje hefir farið í hyggingar síldarverk- smiðja, í raforkustöðvar, hafnarbætur, fiskiðjuver, hrað- írystihús, fiskiskip og flutningaskip, auk margvíslegra annara framkvæmda á sviði nýsköpunarinnar. Með þessa staðreynd fyrir augum leyfir Þjóðviljinn sjer að bera þær sakir á stjórn þjóðbankans, að hún vinni markvist gegn nýsköpuninni! Augljósari fölsun stað- reynda er ekki hægt að bera á borð fyrir lesendur. ★ Þjóðviljinn hefir einnig við og við verið með þær dylgj- ur í' garð utanríkisráðherra, að harin væri tómlátur í markaðsleit fyrir íslenskar framleiðsluvörur. Sannleik- urinn er sá, að þar hefir engu tækifæri verið slept, en allir möguleikar notaðir út í æsar. Nýlega mintist Þjóðviljinn á að okkur vantaði tilfinn- anlega markað fyrir saltfisk. Best hefði farið á atí þögn hefði ríkt um þetta mál af Þjóðviljans hálfu. Voru það ekki flokksbræður blaðsins, sem rjeðu þeim heimskupör- um, að setja afgreiðslubann á Spán, stærsta og besta við- skiftaland okkar í saltfiskinum um margra ára skeið? verji ii Áripar: UR DAGLEGA LÍFINU Reykjavíkur- flugvöllurinn. ALLIR REYKVÍKINGAR munu fagna því hvernig borg- arstjóri tók í erindi flugmála- stjóra, sem lá fyrir síðara bæj- arstjórnarfundi. Það eru ábyggilega fáir borg arbúar, sem vilja ganga inn á, að Reykjavíkurflugvöllurinn verði stækkaður nokkuð frá bví sem nú er, hús rifin og tak- mörk sett um hæð húsa, sem bygð verða í námunda við flugvöllinn. Það stóð mörgum stuggur af því, er Bretar rjeðust í að byggja hjer mikinn flugvöll og þó betur færi í þeim efnum en á horfðist í fyrstu, þá var það eins og hver önnur guðs mildi, að ekki skyldi hafa hlotist stór- slys af. Oft skall þó hurð nærri hæl- um. Sprengjuárásarhættan vofði altaf yfir bænum og að minsta kosti einu sinni kom það fyrir, að brennandi flug- vjel komst með naumindum yfir miðbæinn og gat lent á sjálfum flugvellinum. I annað sinn skall hurð nærri hælum, er flugvjel frá Kanada rakst á hús í Skerjafirði og kveikti í því. • Völlurinn er nógu stór. MÖNNUM SÝNIST að Reykja víkurflugvöllurinn sje nógu stór eins og hann er nú. Á völl- inn setjast og hefja sig til flugs allar þær flugvjelar, sem við eigum nú og ennfremur hinar stóru leiguflu.gvjelar Flugfje- lags íslands, sem annast milli- landaflug. Aðal Atlantshafsflugvöllur- inn hlýtur að verða Keflavík- urflugvöllurinn í framtíðinni, en ekki Reykjavíkurvöllurinn.' Að minsta kosti er það ósk Reykvíkinga og ætti að taka tillit til þeirra í þessu máli, þar sem þriðji hluti þjóðarinnar býr í þessum bæ. . Ef við höfum ráð á að leggja stórfje 1 flugvallaframkvæmd- ir væri nær að nota það iil lendingabóta fyrir flugvjelar úti á landi. • Frægðarför karlakórsins. MORGUNBLAÐINU HAFA nú borist fyrstu blöðin frá Ameríku, sem gátu um söng Karlakórs Reykjavíkur. Áður höfðu aðeins borist útdrættir í skeytum. Úrklippur blaðanna staðfesta að ekkert hefir verið of sagt um þær viðtökur, sem kórinn hefir fengið vestra. Þeir, sem sendu skeytin hafa ekki bara tekið hólið og sent það og slept því, sem miður kunni að hafa verið sagt um kórinn. Blöðin eru öll sammála um að söngur kórsins hafi hrifið áheyrendur. Þeir hafa fengið fult hús áheyrenda, nema í Washington. Blöðin þar segja, að áheyrendur hefðu mátt vera fleiri. Þetta ætti að kveða niður þær illgjörnu raddir, sem heyrst hafa í bænum og sem hafa viljað gera lítið úr frægð- arför landa okkar í Ameríku. • Arfur frá írum? EINN AF AMERÍSKU gagn- rýnendunum, sem skrifar um söng Kðrlakórs Reykjavíkur getur þess, að sjer sýnist marg- ar af bassaröddum kórsins gefa rússneskum bössum lítið eftir að raddfegurð. (Vonandi að enginn íslendingur firtist við þá samlíkingu). Og um tenór- ana segir sá sami að þeir minni á hið fegursta í írskum söng. Það skyldi nú aldrei vera að við höfum erft sönghæfileika okkar frá frændum vorum Ir- um. Það væri ein sönnunin enn fyrir skyldleika okkar og íra, en fleiri og fleiri eru nú farnir að hallast að því, að Islending- ar og Irar sjeu skyldari, en al- ment hefir verið haldið. • Á leið til frægðar. ALLIR AMERÍSKU GAGN- RÝNENDURNIR, sem skrifa um karlakórinn eru jafn hrifn- ir af Stefáni Islandi og Guð- mundi Jónss-yni. Verður ekki annað sjeð, en að þessir tveir íslensku söngvarar sjeu á hraðri leið til frægðar. Mun það vera mál manna, að þeir eigi það báðir skilið. Einn af gagnrýnendunvm stingur upp á því, að Metro- politan óperan ætti að bjóða þeim atvinnu, því sú fræga stofnun eigi fáa, ef nokki a, söngvara á borð við þessa tvo. • Enn um úlfaþytinn. RÓLEGUR skrifar út af um- mælunum um ,,úlfaþytinn“ nýja í unglingspiltunum hje-4 í bænum: „Mikið þótti mjer vænt um, Víkverji minn, að þú skyldir minnast á ,,úlfaþytinn“ í strák- unum. Það er alveg satt, sem þú segir. Þetta er leiðinlegur þytur, sem ætti að kveða niour undir eins og því fyr því betra. Það er ekki komandi á kvik- myndasýningar fyrir þessum lýð. Það heyrist ekki mannsins mál fyrnr blístri og skrækjum. Mikið væri gott ef þú gætir kveðið þetta niður, eins og bú vanst bug á lubbamennskunni í sumar“. ..... mi miniiiiiiiiiii mi ................................................................................. MEÐAL ANNARA ORÐA .... uiiiiiiiimiMiMiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiniiniiiiiiiiiiMiiiifiii í SÍÐASTA TÖLUBLAÐI sjómannablaðsins Víking birt- ist forystugrein er heitir: Hvað er að gerast í siglingamálum íslendinga? Er greinin merkt með stöfunUm H. J. Hún er athyglisverð. Þar segir m. a.: ,,Það er á alla vitund að vegna verðlagsástandsins í landinu stöndum vjer nú mjög höllum fæti í samkepninni við nágrannalöndin, bæði í verslun og siglingum. Og vjer verðum að horfast í augu við þann sannleika, að það er ekkert ann- að en þjóðareining, sameigin- legt átak allra * landsmanna á fjármálasviðinu, sem getur fleytt oss áfallalaust yfir þá örðugleika sem framundan eru. Eitt nauðsynlegasta atriðið til efnalegs sjálfstæðis fyrir ey- þjóð, er að eiga nægilegan far^- skipastól til eigin þarfa. Þetta er bæði ráðamönnum og at- hafnamönnum þjóðarinnar or^- ið Ijóst, og þess vegna hefir stórum hluta af fjármagni þjóð arinnar verið varið til þess að margfalda farskipastólinn á næstu árum. Beint áframhald af þeim ráðstöfunum verður svo það, að ráðamenn þjóðarinnar hlutist til um, að allur sá «kipa- stóll verði hagnýttur til fulls í þarfir landsmanna til vaxandi éfnalegs s.iálfstæðis, en skamm- sýnum fjármöngurum kki Siglingar íslendinga leyft að hlaupa eftir augnabliks ávinningi sem erlendir keppi- nautar kunna að bjóða. Vjer teljum því nauðsynlegt að vekja athygli almennings í landinu á því, sem nú er að gerast í siglingamálum þjóðar- innar. H.f. Eimskipafjelags íslands hefir í áframhaldi af starfsemi sinni fyrir stríð, tekið á ný upp siglingar til flestra þeirra við- skiftahafna erlendis, sem reglu- legar siglingar voru til áður. Það hefir og trygt sjer nægan skipakost til flutninganna á þann veg, að sá hagnaður, sem verða kann af siglingunum rennur að langmestu leyti til íslendinga sjálfra. Samtímis hafa nú erlend skipafjelög, fleiri en áður, haf- ið siglingar á sömu viðskifta- hafnir og E. í., sýnilega í þeim tilgangi, að nota sjer hina erf- iðu verðlagsaðstöðu vora í þess- um viðskiftum. Árangurinn er þegar að koma í ljós. Bestu dæmin sem oss ru kunn eru frá Antwerpen. Þar hefir skip E. í., Reykjafoss leg- ið samtímis skipum keppinaut- anna og fengið til flutnings fá- einar smálestir, en keppinaut- urinn alt að hálffermi. Var þó Reykjafoss auglýstur þar með góðum fyrirvara. Þá er annað dæmi fyrir hendi um það, að vörusending, sem búið var að afhenda fulltrúum E. í. til fyr- irgreiðslu, var stöðvuð þegar útskipun átti að héfjast, og lát- in bíða eftir skipum útlendu fjelaganna. Eitthvað svipað mun eiga sjer stað á öðrum við- skiftahöfnum vorum erlendis.“ Síðan bendir greinarhöfund- ur á, að svo líti út, sem er- lendu skipafjelögin taki sama flutningsgjald eins og Eimskipa fjelagið og Ríkisskip. Svo eitt- hvað sýnist vera bogið við .það, ef menn sækjast eftir að flytja vörur með erlendu skipunum, fremur en hinum íslensku. Ef um opinbert undirboð væri að ræða, þá væri öðru máli að gegna, enda mætti þá hin lægri farmgjöld koma almenningi til góða í lækkuðu vöruverði. Ef þjóðin vill eighast far- skipaflota og verða sjer nóg á því sviði segir höf., þá verður hún að borga útgerðarkostnað- inn. Aðrir gera það ekki fyrir oss. Það kostar ekki tiltölulega meira að gera út farskip jer en ýmislegt annað kostar. Það er engin fórn þótt farmgjöld sjeu eitthyað hærri með íslenskum skipum en útlendíngar telja sig geta boðið, ef mismunur- inn rennur í vasa Islendinga sjálfra. Að lokum segir höf.: Framh á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.