Morgunblaðið - 19.10.1946, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.10.1946, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIH Laugardagur 19. okt. 1946 eMmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiHiiiiiiiiimiiiiiiiiiimmiimiiiiiiiimiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiig & = I BLÓÐSUGAN I c= = £ftir JoL n CjoodivLn iiiiiiimiiiiiiimiimiimiiiiiiimmmiiimiiiiiiiiiimimmmiii miiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiimiimiiiimmmms Barnið og björninn EFTIR CHARLES G. D. ROBERTS. 16. dagur Margaret stökk á fætur þeg- ar móðir hennar kom inn, en hún heilsaði dóttur sinni inni- lega og atyrti hana um leið fyrir að koma fljótt heim aftur. Síðan heilsaði hún Orme með handabandi, og Margaret var ekki sein á sjer að segja henni af þessu fyrirhugaða ferðalagi sínu til Woolwich. Frú Garth leit hugsandi á dóttur sína. — Jeg sje ekki, að það geti gert neitt, sagði hún rólega. — Jeg hefi sjeð skuggahliðar lífs- ins, en þú ekki, og jeg efast ekki um, að þú gætir haft gott af því. Jeg ætla því ekki að fara að banna þjer það, Marga- ret, ef þú ert fastráðin, og jeg vil helst að þú farir með ein- hverjum kunnugum. Jeg treysti yður, hr. Orme, til að láta hana samt ekki sjá of mikið. — Þjer getið reitt yður á það, svaraði hann. — En .... — Hr. Orme ætlaði að draga sig í hlje, sagði Margaret, — en jeg hermdi upp á hann loforð hans. Síðan skildi Margaret Orme og móður sína eftir ein. Frú Garth var fljót að koma að efninu og sneri sjer alvöru- gefin að Orme. — Jeg hlustaði á ræðuna yð- ar í þinginu, sagði hún. — Það, sem þjer hjelduð þar fram, er dagsanna. Þjer hafið hvorki meira nje minna en ljóstrað upp glæp! Þessi fámenna brask- araklíka er að reyna að einoka allar birgðir af kíníni og mor- fíni, þessum tveim lyfjum, sem þörfin er hvað allra mest fyrir, einmitt nú. Þeir hafa náð í all- ar birgðir, sem til eru á heims- markaðnum, og vænta sjer nú gífurlegs hagnaðar af því að selja þessi meðöl okurverði. — Já, þeir hafa valið sjer hentuga tímann, sagði Orme, gremjulega. — Utanlandsher vor hafði í fórum sínum feikna birgðir af þessum lyfjum og þeim hefir einhvernveginn verið spilt .... enginn veit hvernig. Og það, sem eftir var hefir verið prettað út úr fram- leiðendunum. Og nú er einmitt inflúensufaraldur að geisa og fólk deyr hrönnum saman. Hvað snertir morfínið, þá geta þeir ræflar, sem nota það, feng- ið það keypt fyrir geipiverð, og á þessu græðir ein fantaklíka miljónarfjórðung. Jeg segi ekki annað en það, að það sem svona menn eiga skilið, er ekki armað en kaðalspotti og næsti ljós- kersstaur. Ef bara hægt væri að festa kló á þeim. — Jeg skal segja yður eitt, sagði frú Garth. — Jeg hefi gildar ástæður til að halda, að þeir sem standa fyrir þessu, sje hið svokallaða Steinberg- fjelag, en aðal naður þess er Cúraven, sem við könnumst við. Orme sneri sjer snögt til. — Getið þjer sannað það? æpti hann. — Jeg hefi sjálfur háft sterkan grun um þetta sama, og ef jeg bara hefði ein- hverja sönnun í höndunum, skyldi jeg ganga frá Craven. — Sannanir er ómögulegt að útvega .... enn sem komið er. Höfuðpaurarnir hafa gengið svd vel frá öllum hnútum, að hver, sem reyndi að kæra þá, myndi aðeins spilla fyrir sjálfum sjer á því. En jeg skal segja yður nokkuð annað. Hún lagði höndina á ermina hans og lækkaði röddina. — Jeg hefi á síðustu tveim dögum gert ráðstafanir, sem eyðir öllu þessu fyrirtæki þeirra — ef það er þá ekki um seinan. Jeg ætla að sprengja fjelagið og eyðileggja mennina, þó það svo kosti mig hundrað þúsund pund. — Það er gleðilegt að heyra, sagði Orme. •— Þá verðið þjer velgjörðarmaður allrar þjóðar- Og það er heldur enginn annar til, sem gæti þetta. Haldið þjer nú sjálf, að þetta heppnist? — Það fæ jeg að vita innan sólarhrings. En munið eftir því, að þetta er fullkomið trúnaðár- mál. Þjer berjist rjettu meginn og þessvegna treysti jeg yður. En enginn utan þessarar stofu má vita neitt. Berjist þjer því áfram og hittið mig hjer á föstudaginn klukkan átta. Þá skal jeg geta sagt yður hvor verður sigurvegarinn! VIII. KAPÍTULI. — Jeg vildi gefa tíu ár æfi minni, sagði Steinberg kvíða- fullur, — fyrir að hafa aldrei snert á þessu bölvuðu fyrir- tæki. Áður en klukkan slær fjögur, herrar mínir, vitum við um örlög okkar. Einhver daufasti fjárgróða- „hringur“ var saman kominn heima. hjá Craven. Steinberg hinn gildvaxni virtist að gráti kominn, og veifaði höndunum eins og hann væri að banda frá sjer illum örlögum. Sir Mel- moth var daufeygður og geð- illur. Þriðji meðlimurinn, Senor Ruy Culebra, gulleitur Suður-Ameríkumaður, tautaði eitthvað við sjálfan sig og var illilegur eins og höggormur. Fjórði maðurinn var þarna viðstaddur, sem sat steinþegj- andi og rólegur. Hann var yngst ur þeirra, aðeins 33 ára að aldri, með dökkt andlit og arn- arnef, svo að hann líktist mest einhverjum ránfugli. Annars var hann ekki ólaglegur maður og hann var snyrtilega til fara, grönnu hendurnar prýðisvel snyrtar, en svörtu augun voru skörp og vakandi Hann hjet Cucros. — Þetta er alt að fara til andskotans, muldraði Suður- Ameríkumaðurinn. — Já, og það er þjer að kenna, sem passaðir ekki uppá sendingarnar og skipaferðirn- ar, heldur ljest það dragast von úr viti, hvæsti Craven. — Svei! Jeg held það sje sanni nær, að þetta sje alt þjer að kenna, hvæsti Culebra á móti, — með alt bölvað grobb- ið um fjármálagetu þína og fínu samböndin þín, sem áttu að opna okkur allar leiðir! Craven snerist öndverður, og sennilega hefðu þeir komist í hár saman, ef Steinberg Jiefði ekki stiít til friðar. — I Herrans nafni, við skul- um ekki fara að rífast innbyrð- is, sagði hann biðjandi. Þá för- um við bara ennþá rækilegar hundana. Nei, óvinir okkar hafa komið utan frá. Lítið á þetta! Hann tók upp dagblað, sem lá á borðinu. — Viljið þið sjá ræðuna, sem þessi strákfantur Orme hefir haldið. Þið hafið lesið hana? ,,Lyfjaokurs-hneykslið“. Heill dálkur af bullandi skömmum og sum atriðin í því eru frek- lega ískyggileg. Hann hefir ver- ið að storka stjórninni til að grípa í taumana. Og nú hefir Daily Mail tekið málið á sína arma. • r.'- . - - ‘v • - • r — Æ, góði Culebra, sagði Steinberg. — Þarna hefir mað- ur gott dæmi úþpá breska hræsni. Þvi ætti maður ekki að reyna að okra á kíníni og þess háttar? Jeg jeg ekki, að það sje annað en heiðarleg verslun. Og nú er veikindafaraldur, sem gerir það arðvænlegra. Við fá- um ekki betra tækifæri á heil- um mannsaldri. Aðalbirgðirnar skemdar og hitt í okkar hönd- um. Erindrekar okkar hafa gert sitt verk vel. Og svo eigum við að stranda á þessum Orme. Sir Melmoth ypti öxlum ó- þolinmóðlega. — Við skulum sleppa því, sagði hann. — Orme hefir verið að reyna að gera okkur bölvun, en við skulum sjá um, að hann fái makleg málagjöld. En hann einn hefir aldrei verið nógur til að gera alla bölvunina. Jeg hræðist ekki blankan kjaftaskúm. En það eru þessi reiðarslög á fjár- málamarkaðnum, hvað eftir annað, sem einhver fjármála- jötunn hlýtur að valda .... .... það eru þau, sem hafa drepið okkur. — Fyrst var þetta kolfall í Western brjefum og svo þessi siglingateppa og loks þessar meðalabirgðir, sem dembt var alt í einu á markaðinn með verði undir öllu valdi, og eng- inn veit hvaðan þær koma, sagði Culebra gremjulega. Hver svo sem þessi óvinur okkar kann að vera, hlýtur hann að eyða þúsund.um punda í þetta. Því þetta pr ells ekki kaupskan- ur, heldur hrein og bein ill- menska. Hvernig stóð á því, að bier brást hjálpin frá Garth, Craven? -r- Það þýðir lítið að fara að tala um það, sagði Sir Melmoth, hæglátlega. — Jeg sagði vkkur hvernig jeg ætlaði að fara að. Jeg hafði ágæta möguleika og ágæt meðmæli. Og til þess að vera viss, rjeðist jeg fyrst á garðinn þar, sem hann var lægstur .... það er að segja kom mjer í mjúkinn hjá dóttur kerlingarinnar, því þar er nú altaf tromfið hjá mjer, eins og þið vitið, enda gekk £að ágæt- lega. Og það var sterkari leik- ur hjá mjer heldur en alt fyr- irtækið hiá okkur í fjelagi. En svo höguðu forlögin því svo einkennilega, að það fór alt snögglega í hundana. Garth- kerlingin hefir eitthvað á móti mjer. Og þrátt fyrir alt, sem móti því kann að mæla, hbfi jeg sterkan grun um, að hún standi fvrir þessari herférð á móti okkur. Hinir fjelagárnir þogðu. Steinberg ypti öxlum. 7. Fljótið var nú tiltölulega sljett, það hafði vaxið ákaf- lega og víða flóð yfir bakka sína. Það glampaði á það í sólskininu. Rjett eftir að bangsinn sofnaði, fór telpan að dæmi hans, hún hvíldi rjóða vangann sinn í mjúka feld- inum hans. Loksins rakst flekinn á trje sem stóð á hólma, sem var í kafi, hann rakst svo mjúklega á, að litlu sofend- urnir vöknuðu ekki. Meðan þessu fór fram voru tvær örvæntingarfullar mæður á hraðri ferð niður fljótið og niður með því. Þær voru að leita að flekanum og því sem á honum var. Þegar móðir litlu telpunnar sá flekann berast frá landi, var hún komin á fremsta hlunn með að henda sjer eftir honum. En svo kom skynsemin til sögunnar. Hún minnt- þess í tæka tíð, að hún var ekki synt, — en það gat flekinn aftur á móti og gerði það líka heldur betur og myndi halda f jársjóði hennar, — litlu telpunni hennar lengi uppi. Hún óð vatnið í mitti heim að bænum, sem stóð upp á hæð og þaut svo eftir hæðinni til næsta bæjar, þar sem hún vissi að var til bátur. Þessi bær stóð þannig að engin flóð gátu náð honum, og bóndinn var heima, ánægður með sína tilveru. Og áður en hann vissi almennilega hvað var að gerast, fann hann að verið var að draga hann í átt- ina til bátsins, því grannkona hans var sterkur kvenmað- ur, — sem fáir vildu stæla við, og bóndanum var ljóst að eitthvað óvenjulegt hafði komið fyrir. En það var ekki íyrri en hann var kominn út í bátinn og farinn að róa, sem hann vissi hvað um var að vera. En þá tók hann líka hraustlega til áranna svo hraustlega að það sannfærði móðurina um að hann væri fús til þess að gera allt sem i hans valdi stóð. Hann beygði snarlega framhjá trjá- bolum og trjám, sem voru hvarvetna á floti og reri hratt niður eftir fljótinu, en konan sat upprjett í skutnum, föl bins og nár, en stundum tautaði hún eitthvað þannig að helst varð skilið á því, að telpan hefði stolist í skemti- ferð, og skyldi heldur betur verða refsað fyrir slíkar tiltektir. Það átti að vera stórt boð hjá lögfræðingnum og frúin haíði fengið ofan úr sveit aragrúa af sveppum, til að matreiða handa gestunum. En þið vitið hvernig þetta er með sveppi; það eru til svo margar sögur um eitraðar tegunclir, að í raun og veru er maður aldrei með öllu rólegur, þegar maður hefir þá undir höndum. Og svo var með frúna. En hún dó ekki ráðalaus. Hún kall- aði á hun'dinn sinn og gæddi honum á nokkrum sveppum, hugsaði sem svo að þó hún vildi ógjarnan missa hann, væri það þó betra en að drepa alla gest- ina. Og hundurinn át sveppina, sleikti út um ánægjulega og varð sýnilega ekkert meint af. Sveppamáltíðin vakti mikla hrifningu gestanna og allir voru í skínandi skapi, þar til vinnukonan kom inn, náföl í framan og stamaði: — Hundurinn er dauður. — Við erum öll dauðadæmd, hrópaði húsmóðirin; og kven- gestirnii hljóðuðu og karl- mennirnir bölvuðu. L bóndinn misti þó ekki alveg stjórn á sjálfum sjer, náði í sjö eða átta bíla og ljet aka öllum gestunum á sjúkrahús, þar sem mag'ar þeirra voru skolaðir út. Þogar frúin kom heim, fjejck hún aftur tóm til að hugsa urn hundinn sinn. — Þjáðist hann mikið? spurði hún vinnukonuna. — Nei, afturhjólið á vöru- bílnum fór beint yfir höfuðið á honum, var svarið. ★ Viljið þjer gefa guði peninga? sagði ung Hjálpræðishersstúlka aldraðan Skota. — Hvað eruð þjer gamlar? spurði hann. —• Nítján ára. — Jæja, þá sje jeg hann sjálf- sagt fyr en þjer, og get þá sjálf- ur afhent honum aurana. ★ — Hvað hefurðu fyrir stafni um þessar mundir? — Jeg sel hljóðfæri. — Píanó eða strokhljóðfæri? — Nei, grammofónsnálar. ★ Liðsforinginn horfði ógnandi á hermennina tvo, sem stóðu fyrir framan hann í rifnum klæðum og með skrámótt and- lit. — Hefi jeg ekki sagt ykkur hvað eftir annað, sagði hann, að jeg vil alls ekki hafa menn í herdeild minni, sem berjast. SEST AÐ AUGLS5A f MORGlTTíBLAÐLVIJ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.