Morgunblaðið - 21.01.1947, Qupperneq 5
Þriðjudagur 21. jan. 1947
MORGUNBLAÐIÐ
Einar Sveinsson arkitekt:
Um loftræstingu í skólum
I ALÞÝÐUBLAÐINU 27. og’
28. nóv. s.l. birtist útvarpser-
indi eftir Einar Magnússon,
menntaskólakennara, með fyr-
iisögninni „Sitthvað um skóla-
hald“.
Höfundur ræðir þar, á nokk-
uð öfgakenndan hátt, um stærð,
fyrirkomulag, loftræstingu,
bergmál, árangur af kennslu o.
fl. í ýmsum skólum í Reykja-
vík. Að mínu áliti eru ýmsar
mjög vafasamar fullyrðingar
um þessi atriði í erindi E. M.,
en jeg mun leiða hjá mjer að
ræða þær nánar hjer, að und-
antekinni einni, um loftræst-
ingu í skólum.
Jeg hefi sjeð um byggingu
tveggja barnaskóla fyrir bæj-
arstjórn Reykjavíkur, Laugar-
nesskólans og Melaskólans. —
Þessir tveir skólar eru enn í
smíðum, þótt kennsla sje hafin
í þeim báðum að verulegu leyti,
einkum í hinum fyrnefnda. Það
er því ótímaþært að méta kosti
þeirra og galla til fullnustu.
í áðurnefndu erindi segir E.
M.:
„En í báðum þessum skóla-
húsum virðist hafa gleymst að
sjá fyrir neinni annari loftræst-
ingu en opnanlegum gluggum.
Má það satt að segja furðulegt
heita“.
Það er rjett hjá E. M., að ekki
er sjeð fyrir annari loftræstingu
í kennslustofum en opanlegum
gluggum, en hjer er ekki um
neina gleymsku að ræða, held-
ur er þetta gert af ráðnum hug.
í Arkitekten, 1.—2. hefti ’33,
segir Prófessor Edvard Thom-
sen, arkitekt í Kaupmannahöfn,
í grein, sem hann nefnir: Skole
bygningens Funktion og Ind-
retning, bls. 38:
I lauslegri þýðingu:
„Við byggingu nýrra, opin-
berra skólahúsa í Hamborg er
ekki einungis hætt við að blása
úpphituðu lofti í húsin, heldur
er einnig hætt við að nota hin-
ar einföldu loftræsipípur, sem
einungis vegna þyngdarmis-
munar á heitu og köldu lofti
leiða mengaða loftið út. Loft-
ræsipípurnar eru ekki einungis
álitnar óhentugar, heldur bein-
líns skaðlegar. Við viðgerðir
var tekið eftir því, að hliðar
loftræsipípanna, sem þó voru
klæddar glerhúðuðum flísum,
voru þaktar ryklagi, sem með
tímanum var orðið svo þykkt,
að allt að % af leiðslunum
voru stíflaðir. Það versta við
þessa ryksöfnun er það, að
ekki er hægt að hindra, að loft-
ið í loftræsipípunum fari stund
um öfuga leið.
Af þessari ástæðu var múr-
að upp í op loftræsipípna í
kennslustofum í öllum opinber
um skólum í Hamborg, og í nýj
um skólum hefir allri loftræst-
ingu verið sleppt, jafnvel í
snyrtiherbergjum og salernum,
eingöngu frá - miðstöðvarher-
bergi eru loftræstipípur. [Þessu
lík hlýtur reynslan að hafa ver-
ið annars staðar í Þýskalandi,
því að sagt er, að bannaðar sjeu
loftræsipípur í nýjum sjúkra-
húsum]“.
Að sjálfsögðu er nokkuð mis
jafnt, hve mikil ryksöfnun á
sjer stað í slíkum loftræsipíp-
um, og fer það eftir gerð og
fyrirkomulagi þeirra, svo og
ýmsum aðstæðum öðrum, sem
ekki skal nánar rætt hjer.
Það mun ekki vera venja að
hreinsa loftræsipípur þessar,
enda er frágangur þeirra oft
þannig, að slíkt er með öllu
ógerlegt, svo að gagni komi.
Auk þess hefir reynslan ótví-
rætt sýnt, að þær eru mun
gagnsminni til loftræstingar,
en alment er haldið.
í kennslustofum í Miðbæj-
arskólanum eru loftræstipípur
af fyrrnefndri gerð, og í sumum
stofunum eru þær lokaðar. Jeg
hefi spurst fyrir um það, hvort
verra loft sje í þeim stofum í
kennslustundum, en hinum,
sem loftræsipípurnar eru opn-
ar, og fengið þau svör, að því
hafi ekki verið veitt athygli,
nje nokkur um það kvartað.
Til þess að örva loftstraum
í loftræsipípum, af umræddri
gerð, hefir verið reynt að setja
loftrásir (ventla) bak við mið-
stöðvarofna undir glúggum og
á síðari árum fyrir ofan þá,
undir gluggakistunum.
Þessi aðferð hefir ekki reynst
vel, vegna ryksöfnuanr, og
súgs og hávaða, sje eitthvað að
veðri, en þá ætti einna helst
að vera þörf fyrir þessar loft-
rásir. ■
í Post-War building studies,
no. 21:
School buildings for Scotland,
London 1945, bls. 30 segir:
„Forðast ber að setja loft-
ræstingarop bak við miðstöðv-
arofna“.
Ýmsar aðrar aðferðir hafa
verið reyndar til þess að örva
loftstraum í pípunum, svo og til
þess að fyrirbyggja að loftið
geti farið öfuga leið í þeim, en
þær hafa ekki borið tilætláðan
árangur.
Það skal viðurkennt, að í
mörgum byggingarreglugerðum
hafa verið fyrirmæli um að
setja slíkar loftræstingarpípur í
kenslustofur, og enn má finna
slík fyrirmæli.
Þó hygg jeg, að fleiri og fleiri
sjeu að komast á þá skoðun, að
þessi loftræstingaraðferð í
kennslustofum sje þæði gagns-
lítil og til óþrifnaðar, vegna ryk
söfnunar o. fl., og eigi því ekki
lengur rjett á sjer.
Þá hafa verið reynd ýms vjel
knúin loftræstingarkerfi og sam
eiginlega vjelknúð upphitunar-
og loftræstingarkerfi í nokkr-
um skólum, sem jeg hefi upp-
lýsingar um. Stofnkostnaður
þeirra er mjög mikill, auk þess
sem þau eru dýr í rekstri og
vandmeðferin ,ef þau eiga að
koma að tilætluðum notum; —
í kaldari löndum eru þau talin
óþörf' í venjulegum kennslu-
stofum, þótt algengt sje að
nota þau í stærri salarkynnum
skóla, allt eftir aðstæðum og
fvrirkomulagi hverju sinni.
í bókinni: „Architectural Hyg-
iene or sanitary science as app-
lied to buildingte“, eftir Sir B.
Fletcher og H. P. Fletcher, á11-$$<$$$$$$$$$$$$$$$$$,
undu útgáfu, London 1944, bls.
273, segir:
í lauslegri þýðingu:
„í bæklingi sínum nr. 107,
sem fjallar um barnaskólahús,
ræður fræðsluráðið frá því, að
vjelknúin loftræstingarkerfi
eða sameiginleg lofthitunar- og
ræstingarkerfi sjeu almennt
notuð í barnaskólum.
Reynslan hefir sýnt, að loft-
ræsting um opna glugga er
fullkomlega nægileg, svo fremi
að gluggarnir sjeu hæfilega mik
ið opnir, og að næg hitaorka
sje fyrir hendi, til þess að við-
halda notalegu hitastigi11.
í mörgum skólum hjer á
landi, er ekki nægilega góður
útbúnaður á gluggarömmum, til
þess að bæði sje fljótlegt og
þægilegt að opna glugga. Af
þessari ástæðu eru gluggar efa-
laust ekki eins oft opnir, nje
hæfilega mikið, og æskilegt er.
Þó er þetta að sjálfsögðu mis-
jafnt, eftir reglusemi þeirra,
sem hjer eiga hlut að máli.
Þess skal getið, í þessu sam-
bandi, að vegna erfiðleika á út-
vegun byggingarefnis, hefir
ekki enn verið hægt að Ijúka
við smíði á opnanlegum glugga
römmum í Laugarnes- og Mela
skóla, eins og til er ætlast.
Að lokum túl jeg taka þetta
fram:
Hjer í bæ eru flestir skólar
og hús upphituð með heitú vatni
frá Hitaveitu Reykjavíkur, og
oft óþarflega mikið, sjerstak-
lega í hlýju veðri. Þess er þá
ekki ávallt gætt sem skyldi, að
opna glugga.
Sje hinsvegar þeirri sjálfr
sögðu reglu framfylgt, að stilla
upphitun eftir veðráttu og opna
glugga eftir þörfum, þá tel jeg
vel sjeð fyrir loftræstingu í
kennslustofum, íbúðarherbergj
um o. fl., álíka salarkynnum,
án annara ráðstafana.
Reykjavík 15. janúar 1947.
Einar Sveinsson,
arkitekt.
$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$<$$$$$$<$$$$$$<$$$$<$$$$$$$$<$$$<$'h
Framtíðar fyrirtæki
með fjölþættu starfssviði óskar eftir vönum
verslunarmanni, sem getur bæði unnið sjálf
stætt og sagt fyrir verkum. Enskukunnátta
og bókhaldsþekking nauðsynleg. Umsóknir
merktar „Framtíð 67“ leggist inn á afgreiðslu
Morgunblaðsins, og sje þar tilgreindur aldur
hvar viðkomandi hafi unnið og við hvaða störf
Ódýrar kvenkápur
allar stærðir, teknar upp í dag.
~J\ápu lú ciin
Laugaveg 35
$$$$$$$$$$$$$$<$$«$$<$<$<$x$$x$$<$<$$<$$$<$$$$$>$$<$$<$$$$$$$$<
$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$>$$$$$$$$$$$$$$$$$X$^$$$$I
Til sölu
Amerískur ÍKVEIKJUÞRÁÐUR (Lúnta) í
kínverja og flugelda, ca. 5000 métrar. Enn-
fremur efni 1 mislit blys og stjörnuljós. Upp-
lýsingar í síma 81, Siglufirði.
5*S*SX®>4>$$$$$$$$<Sx$$X$$>$$$>$$$$$$$$X$$>$X$$>$>$.$$>$>$>$>$X$$X$$>$$
Silfurslaglóð
fyrirliggjandi.
HÁKON JÓHANNSSON & CO. H.F.,
| Sölvhólsgötu 14, sími 6916.
'*x$»$$$$$$«»<SX$>$$$$$$<ii>$$$$$'í>$$$$$$$$$$$$$$$$$$$#$$$$
Siúlka óskast
Í
til afgreiðslu í skóverslun, Verslunarskóla-
éða hliðstæð mentun æskileg.
Umsóknir merktar „Skóbúð“, sendist afgr.
Mbl.
Stúlka
vön afgreiðslustörfum óskast nú þegar í versl
un í miðbænum. Kaup eftir samkomulagi.
Svar merkt verslun, ásamt uppl. sendist afgr.
Mbl. nú þegar.
SIMA-AFMÆLI
LONDON •— Fyrir skömmu
var þess minnst hátíðlega, að
20 ár eru liðin frá því, að síma-
samband komst fyrst á milli
London og New York.
<*><»$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$<. $$$$$$$$$$$$$
JVýkomin
Reiðhjól fyrir drengi á
aldrinum 8—14 ára.
ocj, malntn^an'onu/erólun
JJn&rih Uerteh
óen
Hafnarhvoli. Sími 6620.
:$$$$$$<$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$<$$$$$$$$$$$$<$$$$$