Morgunblaðið - 08.02.1947, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.02.1947, Blaðsíða 2
2 M U K i l ft t) 1 iy Laugardagur 3. febr. 1947 Framfærslulög — Afstaða foreldra til óskilgctinna barna Þýfi nasisla rannsakað. ! I GÆR voru til umræðu í Nd. frumvarp til framfærslu- laga og frv. um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna. Er lagt til að núgildandi lögum um þessi efni, sje breytt til sam- ræmingar lögunum um al- mannatryggingar. Frumvörp þwsi eru samin af stjórnskipaði nefnd sem í áttu sæti: Auður Auðuns, cand. jur., Ingólfur Jónsson, fyrrv. bæjarstjóri, Jónas Thorodddsen, fyrrv. bæjarfógeti, Ólafur Sveinbjörnsson, skrifstofustjóri og Jónas Guðmundsson skrif- stofustjóri í fjelagsmálaráðu- neytinu. Framfærslulögin. Hvað 'framfærslulögin snert- ir, er það sjerstaklega um eina verulega breytingu að ræða frá því sem nú er, og hún felst í því, að feld verði niður 6. gr. núgildandi lága, sem hljóðar svo: „Börn skulu, svo sem*þau eru fær um, ala önn fyrir for- eldrum sínum, og mega for- eldrar ekki verða framfærslu- þurfar meðan þau eiga þau börn á lífi, sem eru þess um- komin að annast þau. Á sama hátt skulu foreldrar ala önn fyrir börnum sínum Í6 ára og eldri. Sama skylda hvílir á kjörforeldrum og kjörbörnum“. Nái þetta ákvæði fram að ganga, fellur þessi gagnkvæma skylda foreldra og barna niður. I greinargerð segir m. a.: „Meðan almannatryggingár voru litlar eða engar, var þetta mjög þýðingarmikið ákvæði, en ættarframfærslan þokar smátt og smátt fyrir opinberri fram- færslu, og nú, þegar mjög full- komnar tryggingar taka til starfa, virðist rjett að fella þessi ákvæði með öllu niður úr framfærslulögunum“. Afstaða foreldra til óskilget- inna barna. Hitt frumvarpið, um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna, miðar að því, að tryggja þeim barnsmæðrum erlendra setuliðs manna eða hermanna svipaðan rjett og öðrum íslenskum kon- um, er börn eiga utan hjóna- bands og feðra þau á þann hátt, er íslensk lög^jöf heimtar. Enn fremur er það nýmæli, að öll börn, er giftir foreldrar hafa saman átt fyrir giftingu, skulu talin skilgetin. í eldri lögum eru börn þessi talin skilgerð. — Bæði þessi frumvörp fóru áfram til 2. um- ræðu. Iðnfræðsla. Frumvarpið um iðnfræðslu var til 3. umr. í Ed. og endur- sent Nd. Emil Jónsson, iðnaðarmála- ráðherra, fór nokkrum orðúm ;um frumvarpið við síðustu um- ræðu í deildinni. Kvað hann gFUhdvellinum kippt undan þessari lagasetn- ingu með breytingunni, . sem deildin gerði á 14. gr. En þar er lagt til, að hver maður, sem eitthvað hefir unnið að iðnað- arstörfum geti öðlast full rjett- indi, ef þeir fá staðist próf. Kvaðst ráðherra mundu beita sjer fyrir að neðri deild feldi þetta ákvæði burt. ísiaþingmaður London í gærkv. SJERSTÖK nefnd, sem haft hefur til athugunar mál komm únistaþingmanns nokkurs í neðri málstofu breska þings- ins, sem fyrír nokkru síðan lenti í illdeilum við blaðamann, sem enduðu með handaíög- málum, hefur nú skilað áliti. Niðurstaða nefndarinnar er sú, að kommúnistinn hafi vanvirt þingið með þessari framkomu sinni. Framh. af bls. 1 sem vinveittastír Grikkjum, hefði þótt nóg um. — Telur gríska stjórnin, að móðganir þesar hafi sennilega komið fram í þeim tilgangi að láta grísku stjórnina mótmæla svo kröftug lega, að rannsóknarnefndin hefði ekki getað haldið áfram störfum, en stjórnin segistJiafa ákveðið að bíða róleg átekta þrátt fyrir allar móðganir. — Brjefið hefir verið sent öllum fulltrúum öryggisráðsins. Fjöldagöngur í Aþenu. í Aþenu söfnuðust þúsundir manna saman í dag fýrir utan hús það, er rannsóknarnefnd ör yggisráðsins heldur fundi sína, Báru margir spjöld er á var letrað: „Bretar verða að fara“. En margir hrópuðu og heimt- uðu að dauðadæmdir pólitískir fangar yrðu látnir lausir og að stjórnmálamönnum í útlegð yrði leyft að koma heim. Lund Roscher aðalritari nefndarinnar kom út á svalir hússins og skýrði frá því að nefndin myndi hitta opinbera fulltrúa E A M ísíðar. Annar álíka stór hópur safn- aðist saman um líkt leyti, sem hrópaði and-búlgörsk hæði- ög hrópyrði og „Lengi lifi konung- urinn“. Lögreglan skifti sjer ekki af kröfugöngunum, Norðmenn hæna lil sín ferðamenn FRJETTASTOFAN norska hefir opnað útbú í London og hefir byrjað auglýsinga og upplýsingastarfxemi tjl að hæna erlenda ferðamenn tií landsins. Forstjóri Lundúna- skrifstofunnar er Per Prág, sem áður var hjá Nortraship og mun hann veita breskum. ferðaskrifstofum og öðrum, sem áhuga hafa fyrir því, upp lýsingar um ferðalög í Noregí Normenn hófu upplýxinga, starfsemi sína méð því að gefá út auglýsmgaspjald og enm fremur hefir verið gefin úfe bók, ,,Norway“ með upplýs- ingum um Noreg í dag. Kunnt ir menn'rita í bókina og heL ir hún verið send tþ ýmsrai mikilsmetinna manná í Bret- landi. Fyiir stríð höföu Norð- menn um 80,000,000 króna tekjur áriega af ferðamönn- um, en takmark þeirra er að auka ferðamannastrauminn til iandsins á næstu árum og áætla að tekjur geti numið 250,000,000 krónum árlega. í FRANKFURT AM MAIN er mikið um að vera þcssa dag- ana. Fjöldi manns vinnur í Ríkisbankabyggingunni þar í borginni við að rannsaka og skrá þýfi nasista frá hernumdu löndunum. Þarna er saman komið óhemju mikið af gulli, silfri, demöntum og öðrum dýrum steinum og verðbrjefum margskonar. Fjársjóðir þessir nema miljörðum króna að verðmæti. — Hefir komið til mála, að allt verði sett í einn sjóð og síðan skift milli þeirra landa bandamanna, sem Þjóð- verjar stálu verðmætum frá. A efri myndinni sjest amer- ískur hervörður, sem gætir gull- og silfurbirgða, en neðri yndin er af mönnum, sem eru að rannsaka og flokka verðbrjef. Námskelð í „Mjáíp !" í ? fiemnmsji kæriuf Washington í gærkvöldi GERHARD Eisler, sem sagð ur er vera aðal „agent“ komm únista í Bandaríkjunum, var í dag kæiður fyrir að sína Bandaríkjaþingi vanvirðu, er hann neitaði að láta taka af sjér'eið, eftjr að hafa verið kallaður sem vithi í rannsókn sem nefnd sú, er fer með inn anlandsmál Bandaríkjanna, stendur fyrir. Nefndin er að reyna að komast fyrir það, hvaða samband sje á miili kommúnista í Bandaríkjun- um og kommúnistaleiðtoga í öðrum löndum. — Reuter. i ÞANN 26. fyrra mánaðar I hófst námskeið í „Hjálp í við lögum“, að tilhlutan U. M. F. Drengur í Kjós og Kvennfje- ■lags Kjósarhrepps. Námskeið ið stóð með nokkru millibili, en endaði þ. 2. þ.m. Var kensl an framkvæmd á* vegum Slysarvarnafjel. íslands. Kenn ari var Guðmundur Pjeturs . son, en aðstoðarmaður hans |var Eiríkur Oddsson, báðir úr Reykjavík. Sýnd vai' arrrerísk fræðslu- kvikmynd Hjálp í viðlögum. j Námskeiðið sóttu. um 50 manns. AÐALFUNDUR fjelags is- lenskra myndlistarmanna var liaidinn á miðvikud. Sigur- jón Ólafxson myndhöggvari var kjörjnn formaður í stað Þorvaldar Skúlasonar. Ritari var endurkjörinn Jón Engil- berts og.Jón ÞorleifssOn gjald keri. í sýninganefnd voru kjörin Sveinn Þórarinsson, Jón Þor- leifsson, Sigurjón Qlafsson, Nína Tryggvadóttir _.og Þor- j valdur Sléúlason. í fulltrúaráð Bandaiags ís-' lenskra Ijstamanna voru kjör in: Jón Þorleifsson, Ásmurtd ur Sveinsson, Kristín Jóns- dóttir, Sigurjón Óiafsson og Jón Engilberts. ; Fjelagið á nú sýhingarskál ann við Kirkjustræti skuTd- lausan og nokkuð fje í sjóði. 36 manns eru nú í fjelaginu. F-jórir nýir menn gengu í fje- j Vöruflutningaskipið Hrím- lagið á fundinum: Sigúrður■ faxi kom hingnð til Reykja Sigui-ðsson, Örlýguí' Sigurðs- ■ son, Jóhannes Jóhannesxon og Gestur Þorgrímsson. Einn sagði sig úr því á árinu, en það var Eggert Guðmundssonj verði lokið í dag. ríkja í New York í gærkv. MAX GARDNER, sem Tru- man forseti í desember s. 1. ár skipaði sendiherra Bandáríkj- manna í Bretlandi, ljest í New York í dag, rjett áður en hann átti að leggja af stað til Lond- on. Gardner var 6Í ára gamall. Þá hafa og borist fregnir af láti Ellen Wilkinson, sem var mentamálaráðherra í ráðu- neyti Attlees. Hún ljest' af hjártaslagi, en var .eini kven- ráðherrann í stjórninni. — Reuter. EKKERT sjerstakt var að frjetta af síidveiðunum í gær. *enda voru flest skipanna sem l'iðu löndunar í flutningaskip in. ; víkur seinnipart dags í gær og v’ar þegnr byrjnð, að lexta j skipið, én það ber . ein 4000 mál síldar. Búist er við að þvi Kolaskorfiur Breta. Framh. af bls. 1 ar yrðu ef til vill áð loka hvaðfö ráðstafanir, sem reynt væri að gera. EDEN ÁSAKAR STJÓRNINA Anthöny Eden ásakaði verka mannastjórnina á þingi í dag fyrir skort á framsýni og fyrir að hafa misskilið með öllu kola: ástandið í landinu. Alvarlegri hörmungar en nú gengju yfír bresku þjóðina hefði hún ekki horft fram á síðastliðin tuttugu ár. ÞJÓÐIN, SEM ÞRUMU LOSTIN Frjetaritarar segja, að breska þjóðin sje sem þrurnu lostin yfir hinum illu tíðindum í dag. Stj órnmálafrj ettaritarar segja að þetta sje alvarlegasta mál„ sem komið hafi fyrir í stjórnár- tíð verkamannaflokksins og getr. haft' Örlagáríkaf'afleiðingáf fýr ir flokkinn. Ekki hefir verið tilkynt hva ráfmagnsleysié muni standa lendi. Sumstaðar getur það stað ið í einn dag og annarsstaðar í 4—5 dagá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.